Morgunblaðið - 28.09.2001, Side 16
SUÐURNES
16 FÖSTUDAGUR 28. SEPTEMBER 2001 MORGUNBLAÐIÐ
VELTA Kaffitárs ehf. hefur aukist
verulega á hverju ári þau ellefu ár
sem fyrirtækið hefur starfað og
svo verður einnig í ár. Kemur þetta
fram í samtali við Aðalheiði Héð-
insdóttur framkvæmdastjóra.
Kaffiár er með kaffibrennslu í
Njarðvík þar sem svonefnt eð-
alkaffi er brennt og malað. Auk
þess rekur fyrirtækið kaffihús í
Kringlunni og Bankastræti í
Reykjavík og þau eru jafnframt
helstu útsölustaðir fyrir fram-
leiðsluvörur fyrirtækisins. En auk
þess eru vörur frá því til sölu í
flestum stærri matvöruverslunum
landsins.
Lóð við Reykjanesbrautina
Starfsemin hefur lagt undir sig
alla aðra hæðina að Holtsgötu 52 í
Njarðvík en það hefur ekki reynst
nóg, ýmis varningur er í geymslum
og gámum annars staðar. Þá segir
Aðalheiður óþægilegt að vera með
starfsemina á annarri hæð í hús-
inu.
Stjórnendur fyrirtækisins hafa
lengi haft hug á að bæta úr hús-
næðismálunum með byggingu nýs
sérhannaðs húsnæðis á lóð sem
Kaffitár hefur fengið úthlutað við
Reykjanesbrautina. Búið er að
teikna húsið en framkvæmdum
hefur verið frestað, meðal annars
vegna óvissu í efnahagsmálum
þjóðarinnar. Aðalheiður vill hafa
fast land undir fótum þegar hún
ræðst í þessa miklu framkvæmd.
Stefnir hún þó að því að hefjast
handa við byggingu hússins á nýju
ári.
Við flutning í nýtt húsnæði verð-
ur einnig gert átak í að vélvæða
framleiðsluna til að létta störfin.
Ekki er þó hægt að koma við sjálf-
virkni í þessari framleiðslu, nema
að vissu marki, vegna þess hversu
fjölbreytt hún er. Kaffitegundirnar
eru 37 um þessar mundir og vöru-
númerin skipta hundruðum. Það
eru kaffibaunir frá ýmsum löndum,
kaffiblöndur og bragðbætt kaffi.
Aðalmarkaðurinn fyrir afurðir
Kaffitárs er á höfuðborgarsvæð-
inu. Aðalheiður segir að til greina
hafi komið að byggja nýju kaffi-
brennsluna á höfðuborgarsvæðinu
en niðurstaðan hafi orðið sú að
halda sig við Reykjanesbæ. Hún
telur að vinnuafl sé stöðugra á Suð-
urnesjum og þar sé stutt í alla þjón-
ustu. Þá megi ekki vanmeta heima-
markaðinn sem þar er. Reykja-
nesbær og margar stórar stofnanir
og fyrirtæki kaupi kaffi af Kaffi-
tári og fái þar alla þjónustu á því
sviði.
Aðalheiður er bjartsýn á fram-
tíðina þótt hún treysti sér ekki til
að spá jafn góðum vexti á næstu ár-
um og verið hefur til þessa „Ég hef
alltaf átt von á því að nú fari að
hægja á en það hefur enn ekki
gerst. Það drekka allir kaffi. Að
vísu er drukkið minna af því en
fyrir nokkrum árum en fólk vill
betra kaffi. Það er hugsjón okkar
og starf að bæta kaffimenninguna
hér á landi. Kaffi er í tísku, það er
skemmtilegt,“ segir Aðalheiður.
Hún telur raunar að ekkert lát sé
á þeirri eðalkaffibyltingu sem hófst
fyrir 20 árum í Bandaríkjunum og
breiddist þaðan út um heiminn.
Kaffitár hefur sprengt utan af sér húsnæðið og undirbýr nýja byggingu
Vivian Osei Helgason vinnur við
að bragðbæta og pakka kaffi.
Morgunblaðið/Helgi Bjarnason
Aðalheiður Héðinsdóttir framkvæmdastjóri og Ragnheiður Sævars-
dóttir brennslumeistari við ofninn þar sem kaffibaunir eru brenndar.
Starfsemin eykst
á hverju ári
Njarðvík
BÖRN verða tekin inn í leik-
skóla Reykjanesbæjar eftir
aldri en ekki aldursröð um-
sókna, þegar nýjar reglur um
úthlutun leikskólaplássa taka
gildi.
Bæjarráð hefur samþykkt
tillögur skóla- og fræðsluráðs
um breyttar reglur um úthlut-
un leikskólaplássa.
Forgangsreglur eru óbreytt-
ar. Börn einstæðra foreldra,
börn sem búa við fötlun og/eða
veikindi og börn sem búa við fé-
lagslega erfiðleika njóta for-
gangs, einnig börn þar sem
báðir foreldrar eru í fullu dag-
námi.
Hins vegar verður leikskóla-
rýmum ekki úthlutað eftir ald-
ursröð umsókna, eins og verið
hefur, heldur verður þeim út-
hlutað eftir aldri barna þannig
að eldri börn ganga fyrir yngri.
Þessi regla tekur gildi 1. nóv-
ember næstkomandi.
Eldri börn
ganga fyrir
Reykjanesbær
ÆTTFRÆÐIGRÚSKARAR á
Suðurnesjum eru að fara að
hefja vetrarstarf sitt, en þeir
hittast einu sinni í mánuði yfir
vetrartímann í Bókasafni
Reykjanesbæjar. Fyrsti fund-
ur vetrarins verður mánudag-
inn 1. október nk. kl. 20.
Hópurinn byrjaði að hittast
reglulega á safninu sl. vetur og
náðist strax saman 10–12
manna kjarni. Á fundunum er
rætt og rabbað vítt og breitt
um ættfræði.
Safnið hefur komið til móts
við þennan hóp, m.a. í innkaup-
um og pantað filmur af kirkju-
bókum frá svæðinu. Búið er að
setja upp sérstakt ættfræði-
horn með bókum í eigu safnsins
um ættfræði og strax og film-
urnar berast verður sett upp
vinnuaðstaða með filmulesvél í
tengslum við ættfræðihornið.
Vetrarstarf
ættfræði-
grúskara
að hefjast
Reykjanesbær
HÚSAFRIÐUNARNEFND
telur heppilegast að sleppa því
að byggja við Gömlu búð, eins
og bæjaryfirvöld í Reykjanesbæ
telja nauðsynlegt svo þar sé
hægt að koma upp aðstöðu fyrir
ungt fólk.
Gamla búð er elsta hús Kefla-
víkur. Það er friðað en skemmd-
ist illa að innan í bruna. Reykja-
nesbær á húsið og datt mönnum
í hug að nýta það fyrir menning-
ar- og þróunarsetur ungs fólks.
Við athugun kom í ljós að húsið
er of lítið fyrir slíka starfsemi.
Húsafriðunarnefnd vekur at-
hygli á því í svari til Reykjanes-
bæjar að óheimilt sé að breyta
húsinu að innan, hvað varðar
herbergjaskipan og burðarþol,
nema leita álits húsafriðunar-
nefndar. Hið sama gildi um út-
litsbreytingar og viðbyggingar.
Í lok bréfsins segir: „Ekki er
tekin afstaða til viðbyggingar
við húsið en heppilegast væri að
henni væri sleppt. Hins vegar,
ef ný notkun hússins krefst við-
byggingar, er sjálfsagt að skoða
slíkt með jákvæðum huga.“
Óheppi-
legt að
byggja við
Gömlu búð
Keflavík
SANDGERÐISHÖFN verður
dýpkuð í vetur og sprengt fyrir stál-
þili vegna lagfæringa og lengingar á
Norðurgarði. Er þetta gert til að
bæta aðstöðu fyrir loðnu- og síldar-
skip.
Hafnarráð Sandgerðis og Sigl-
ingastofnun bjóða út framkvæmd-
irnar í Sandgerðishöfn. Að sögn
Björns Arasonar hafnarstjóra felast
þær í dýpkun á 3.800 fermetra svæði
við Norðurgarð og sprengingum fyr-
ir stálþili. Til stendur að lengja
Norðurgarð um 25 metra og endur-
bæta stálþilið á hluta núverandi
garðs.
Vaxtarbroddur í uppsjávarfiski
Hafnarráð Sandgerðis hefur mót-
að þá stefnu að vaxtarbroddur hafn-
arinnar liggi í uppsjávarfiski. Barðs-
nes hf. sem er að mestu í eigu
Síldarvinnslunnar í Neskaupstað
hefur aukið verulega við rekstur
fiskimjölsverksmiðju sinnar í Sand-
gerði. Hins vegar er erfitt fyrir
stærri síldar- og loðnuskip að at-
hafna sig í höfninni. Hafnarfram-
kvæmdirnar í vetur eru liður í að
bæta úr því. Hluti dýpkunarinnar er
í 8,5 metra dýpi og hluti í 6 metra.
Björn Arason segir að innsiglingin
muni áfram takmarka möguleika
hafnarinnar. Djúprist loðnuskip
komist ekki þangað inn við vissar að-
stæður.
Tilboð í vinnu við dýpkun hafnar-
innar og sprengingar fyrir stálþili
verða opnuð í byrjun október og á
verktakinn að ljúka vinnu sinni fyrir
1. febrúar í vetur.
Skip staðarins
Meginhluti kvóta Sandgerðinga
hefur verið fluttur í önnur bæjar-
félög með sölu skipa og sameiningu
við önnur útgerðarfélög. Heilmiklum
afla er eftir sem áður landað á staðn-
um.
Björn segist líta á þau fiskiskip
sem landi meginhluta síns afla í
Sandgerðishöfn sem skip staðarins
þótt þau eigi heimahöfn annars stað-
ar. Nefnir hann í því sambandi
loðnuskipin sem landa hjá Barðsnesi
og báta Nesfisks hf. í Garði.
Dýpkun Sandgerðishafnar boðin út
Bætt aðstaða
fyrir loðnuskipin
Sandgerði