Morgunblaðið - 28.09.2001, Page 26

Morgunblaðið - 28.09.2001, Page 26
26 FÖSTUDAGUR 28. SEPTEMBER 2001 MORGUNBLAÐIÐ Hallgrímur B. Geirsson. Styrmir Gunnarsson. Framkvæmdastjóri: Ritstjóri: STOFNAÐ 1913 Útgefandi: Árvakur hf., Reykjavík. Aðstoðarritstjórar: Karl Blöndal, Ólafur Þ. Stephensen. Fréttaritstjóri: Björn Vignir Sigurpálsson. FRIÐRIK J. Arngrímsson,framkvæmdastjóri LÍÚ,segir að fyrstu niðurstöð-ur hagfræðilegrar athug- unar, sem unnin er að á vegum LÍÚ á áhrifum auðlindagjalds í sjávarút- vegi, bentu til þess að 11 árum eftir að gjaldið er lagt á fari það að hafa neikvæð áhrif á tekjur ríkissjóðs af sjávarútvegi. Betra sé fyrir ríkissjóð að geyma auðlindagjaldið í fyrir- tækjunum sjálfum og láta fjármagn- ið vaxa þar sem aftur skili sér til baka í ríkissjóð í formi almennra skattgreiðslna. Þetta kom fram á morgunverðarfundi Verslunarráðs Íslands um sjávarútvegsmál sem haldinn var í gær. Árni Mathiesen sjávarútvegsráð- herra lýsti á fundinum tillögum end- urskoðunarnefndarinnar. Hann sagði mikilvægt að hafa í huga að markmið nefndarstarfsins hefði ver- ið að ná sem víðtækastri sátt um fiskveiðistjórnkerfið, en þó þannig að ekki væri fórnað markmiðum um skynsamlega nýtingu og bætta um- gengni um auðlindir sjávar né held- ur að raska hagkvæmni og stöðug- leika í greininni. Hann minnti á að auðlindanefnd hefði aldrei gert upp á milli veiðigjalds og fyrningarleiðar. Við val á milli þessara tveggja leiða þyrftu menn að hafa í huga þau markmið sem ráðherra hefði sett nefndinni í upphafi. „Meirihluti endurskoðunarnefnd- arinnar hefur að mínu mati valið leið stöðugleikans. Stöðugleikinn er jafnframt sú leið sem veitir byggð- unum meira öryggi. Það má deila um hagkvæmni þessarar leiðar, en ég tel að óstöðugleiki leiði sjaldan til hagkvæmari reksturs og því sé stöð- ugleikaleiðin jafnframt leið meiri hagkvæmni,“ sagði sjávarútvegsráð- herra. Árni sagði ljóst að ákvörðun um að sjávarútvegurinn greiddi auð- lindagjald hlyti að leiða til þess að aðrar greinar greiddu jafnframt auðlindagjald. Slík gjaldtaka í sjáv- arútvegi leiddi hins vegar til enn meiri hagræðingar, fækkunar starfa, frekari samþjöppunar í út- veginum og þar með að einhverju leyti veikara atvinnulífs á lands- byggðinni. Þess vegna hefði nefndin lagt til að 350-500 milljónum verði árlega varið til að efla atvinnulíf á landsbyggðinni. Nefndin hefði hins vegar ekki gert tillögu um byggða- kvóta enda hefði auðlindanefnd ekki gert það. Að mati meirihluta nefnd- arinnar þyrfti hins vegar að auka frjálsræði í greininni til þess að hún ætti möguleika á að greiða hærra auðlindagjald og þess vegna væru gerðar tillögur um að lyfta þaki á há- markshlutdeild fyrirtækja í kvóta á einstökum tegundum. Breyting á takmörkun á veiðiskyldu miðaði að því sama. Árni sagði að fram kæmi í nefnd- arálitinu að rökin fyrir því að miða afkomutengda hluta veiðigjaldsins við 20% framlegð væri sú að hagn- aður í greininni myndaðist yfirleitt ekki fyrr en framlegðin væri orðin a.m.k. 20%. Tölur um hagnað og framlegð í sjávarútvegi á síðustu 20 árum sýndu þetta mjög vel. Ef það væri enginn hagnaður í greininni væri enginn grundvöllur fyrir greiðslu auðlinda- rentu. Það mætti ekki gleyma því að þó að fyrirtækin hefðu 20% framlegð ættu þau eftir að greiða vexti af lánum, reikna af- skriftir, fjárfestingar og arð til eig- enda. Auk þess gerðu tillögur meiri- hlutans ráð fyrir því að fyrirtæki gætu áfram keypt sér kvóta, m.a. til þess að hagræða og þau kaup þyrfti að greiða með framlegðinni. Árni sagði að tilgangur nefndar- starfsins hefði ekki endilega verið að nefndarmenn næðu sátt sín á milli hvort þetta væri sú fram sem menn vildu sjá. Hann bátaflotinn ætti í miklum um og hann væri t.d. nær a horfinn frá Húsavík, stærst gerðarhöfn landsins. Eitt vopn sjávarútvegsins hefð verið aðlögunarhæfni ha hæfni hans til að bregðast um. Steingrímur kvaðst sjávarútvegurinn væri a þessu ef þróunin héldi áf þeim hætti sem verið hefði. Steingrímur sagði að hreyfingin styddi að farin y ingarleið, en vildi ekki að s til einhverrar kollsteypu. Þ legði flokkurinn til fyrningu um. Jafnframt vildi flokk sveitarfélög fengju yfirráð hluta af fyrndum veiðiheim að hluti leigutekna rynni til Samfylkingin lagði til s Jóhann Ársælsson, þi Samfylkingarinnar, en h sæti í endurskoðunarnefnd eindreginni andstöðu við meirihluta nefndarinnar. Þ lögur, sem nytu stuðnings S isflokksins og líklega m Framsóknarflokksins, væru sátt við LÍÚ en í andstöðu ina. Tillögurnar fælu í sér ástand, þ.e. að valin fyrirtæ framfæri ríkisins. Önnur þyrftu að heyja vonlausa vegna þess að þau fengju hlutað. Samfylkingin he vegna lagt áherslu á að v ildir yrðu innkallaðar á Skapaður yrði virkur leigum þar sem veiðiheimildirn leigðar til 5 ára í senn. And ar þessarar hugmyndar h vegar sagt að innköllun veið anna fæli í sér þungan skat gerðina semhún myndi ekk Jóhann sagðist þess ve lagt til að á næstu sex ár- um yrðu 5% kvótans inn- kölluð á ári. Þessar veiði- heimildir yrðu seldar á markaði og að útgerðar- menn fengju leigutekj- urnar fyrstu 5 árin. Hann sagðist hafa talið að þ í sér einfalda leið til sátta, hefði verið hafnað. Meirihlu arinnar hefði ekki viljað ræ Jóhann sagði mikilvægt huga að í áliti meirihluta en unarnefndarinnar fælist vi ing á rétti þjóðarinnar til þessi réttindi gegn gjaldi. leiddi jafnframt að einhve en þeir sem hefðu farið m réttindi síðustu ár ættu r heldur að að nefndarstarfið leiddi til meiri sáttar meðal þjóðarinnar um sjávarútvegsmálin. Reynslan sýndi að útgerðarmenn og sjómenn berð- ust hart fyrir sínum hagsmunum og væru ekki tiltakanlega sáttfúsir. Stjórnmálamenn í ólíkum flokkum hefðu heldur ekki neinn sérstakan hag af því að skapa sátt um þau mál sem þeir væru að berjast fyrir. Menn mættu því ekki láta stóryrði stjórnmálamanna og aðila í sjávar- útvegi villa sér sýn því aðalatriðið væri að þjóðin væri sáttari við nið- urstöðuna. Gjaldtaka ekki aðalatriði Steingrímur J. Sigfússon, formað- ur Vinstrihreyfingarinnar, sagði að nú væru bráðum liðin 18 ár frá því að lög voru sett um kvótakerfi í sjávar- útvegi. Lögin hefðu verið sett til eins árs til að bregðast við þeirri alvar- legu stöðu sem menn stóðu þá frammi fyrir. Lögin hefðu fyrstu ár- in aðeins verið framlengd til eins árs í einu vegna þess að kvótakerfið hefði alltaf verið hugsað sem bráða- birgðaaðgerð. Um kerfið hefði alla tíð ríkt mikið ósætti. Þess vegna væru sér það mikil vonbrigði að end- urskoðunarnefndin skyldi ekki hafa komist að sameiginlegri niðurstöðu. Starf sem unnið hefði verið að í tæp 3 ár hefði í raun ekki skilað neinu. „Ég sé ekki að þessi niðurstaða meirihlutans sé líkleg til að skapa víðtækari sátt um þetta kerfi nema aðeins að einu leyti og þá á ég við gagnvart þeim hópi sem fyrst og fremst hefur horft á það sem grund- vallaratriði að það væri einhver táknræn greiðsla fyrir aðgang að auðlindinni. Þeir menn, sem aldrei hafa haft áhyggjur af neinu öðru í sambandi við þróun sjávarútvegsins, geta fagnað sigri. Ég er ekki og hef aldrei verið í þeirra hópi. Gjaldtakan gjaldtökunnar vegna hefur aldrei verið aðalatriði þessa máls í mínum huga held- ur það hvert greinin væri að þróast, hvernig henni bæri að tryggja stöðu þeirra aðila sem þarna þurfa og eiga að vinna saman, þ.e. útgerðar, sjó- manna, fiskvinnslu, verkafólks, íbúa sjávarbyggðanna og annarra sem eiga hagsmuna að gæta.“ Steingrímur sagði að ef sú þróun sem hefði verið í sjávarútveginum héldi áfram yrði þess ekki langt að bíða að fimm stærstu sjávarútvegs- fyrirtækin á Íslandi yrðu komin með 70% kvótans og að frá Íslandi yrðu gerðir út 50 stórir frystitogarar og 500 trillur. Hann spurði fundarmenn Morgunverðarfundur Verslunarráðs um s Engin samstað tillögur nefnda Skiptar skoðanir komu fram á fundi Verslu ráðs um sjávarútvegsmál í gærmorgun þar fjallað var um tillögur endurskoðunarnefnd breytingar á lögum um stjórn fiskveiða. Sjá útvegsráðherra lagði áherslu á að við breyt á kerfinu mætti ekki fórna stöðugleikanu Morgunbla Framsögumenn á fundinum voru Jóhann Ársælsson (lengst t.v rik J. Arngrímsson, Steingrímur J. Sigfússon og Árni Mat Fundarstjóri var Bogi Pálsson, formaður Verslunarráðs Ísla Aðrar atvinnugreinar greiði líka auðlindagjald TÆKIFÆRI FYRIR BOTNI MIÐJARÐARHAFS SKATTAR OG TEKJUR RÍKISSJÓÐS Undanfarna mánuði hafa ráðamennlandsins ítrekað greint frá því íviðtölum að á döfinni sé að lækka skattálögur í landinu. Skattar hafa hins vegar síst verið að lækka á liðnum árum og hafa tekjur ríkissjóðs sem hlutfall af vergri landsframleiðslu reyndar verið að aukast. Í viðskiptablaði Morgunblaðsins í gær er greint frá því að frá árinu 1990 til ársins 2000 hafi þetta hlutfall hækkað úr 35,8 af hundraði upp í 42 af hundraði, eða um 6,2 prósentustig, sem samsvarar 17,3 af hundraði á einum áratug. Árið 1990 var hlutfall tekna ríkissjóðs af vergri landsframleiðslu örlítið undir meðaltali aðildarríkja OECD, en tíu árum síðar hafði ríkissjóður komist rækilega fram úr svo munaði 3,8 prósentustigum. Mest jukust tekjur ríkisins á seinni hluta síð- asta áratugar. Hlutfall tekjuskatta ein- staklinga af skatttekjum hefur einnig hækkað. Það fór úr 20,5 af hundraði upp í 21,9 af hundraði á tímabilinu 1990 til 2000, en náði 24,5 af hundraði ef einnig er talinn fjármagnstekjuskattur einstak- linga. Tekjuskattshlutfallið hefur reynd- ar lækkað ívið frá 1991, en á móti kemur að persónuafslátturinn hefur ekki fylgt vísitölubreytingum eins og flest annað í þjóðfélaginu og þýðir það að skattstofn- inn hefur breikkað á undanförnum árum. Persónuafslátturinn var 23.376 krónur árið 1991 og var 24.211 krónur í fyrra, en hefði verið 29.913 krónur hefði hann fylgt vísitölu. Það er sterk vísbending um að skatt- lagning er á villigötum í landinu þegar ís- lensk stjórnvöld eru komin verulega yfir meðaltal OECD í skattheimtu. Það hefur aldrei verið ódýrt að búa á Íslandi og verða landsmenn oft og tíðum að sætta sig við sýnu hærra verðlag en í löndunum í kring og teljast mörg þeirra þó síður en svo skara framúr í kaupmætti. Kemur þessi munur einna helst fram í verðlagi á mat og drykk, sem oft og tíðum er svo hátt að undrum sætir. Einangrun lands- ins og hár flutningskostnaður er vissu- lega einn sá þröskuldur, sem veldur háu verðlagi, en ætla mætti að það væri hlut- verk yfirvalda að nota þau tæki, sem þeim standa til boða, til að reyna að jafna þann aðstöðumun, sem er milli Íslands og grannríkjanna. Þessar auknu tekjur ríkissjóðs hafa að einhverju leyti verið notaðar til að grynnka á skuldum þjóðarinnar og er það vel. Skuldir á hvert mannsbarn eru um þessar mundir um ein milljón króna og þykir ýmsum ugglaust nóg um. Oft er hins vegar ekki auðséð að verið sé að nota skattféð til að efla hag þeirra, sem búa í landinu. Það er ein af kennisetn- ingum hagfræðinnar að ekki skuli slaka á skattaklónni í góðæri og þenslu. Hér á landi hefur hún hins vegar aukist við þær aðstæður. Davíð Oddsson forsætisráðherra og Geir Haarde fjármálaráðherra hafa báð- ir gert skattamál að umtalsefni upp á síð- kastið og boðað breytingar á skattalög- um um áramót. Horfa þeir þar einkum til lækkunar skatta fyrirtækja, lækkunar eignaskatta fyrir einstaklinga og fyrir- tækja og að hækka mörk hátekjuskatts, sem eins og sakir standa er farinn að leggjast á tekjur, sem vart teljast í með- allagi. Í raun ætti að afnema eignaskatta einstaklinga með öllu þar sem þar er ekki verið að skattleggja verðmætasköpun heldur fasta stærð, þannig að færa mætti rök að því að um eignaupptöku væri að ræða. Rökin fyrir lækkun skatta á fyr- irtæki eru þau að íslensk fyrirtæki sitji ekki við sama borð og keppinautar er- lendis og þau eru gild. Í þeim efnum má hins vegar ekki gleyma því að einstak- lingar á Íslandi vilja einnig sitja við sama borð og skattborgarar nágrannaríkj- anna. Fundur Yassers Arafat, forseta pal-estínsku heimastjórnarinnar, og Shimonar Peres, utanríkisráðherra Ísr- aels, vekur vonir, þótt veikar séu, um að það takist að stilla til friðar í átökunum milli Ísraela og Palestínumanna. Arafat og Peres náðu samkomulagi um að hefja á nýjan leik formlegt öryggismálasam- starf og að vinna að varanlegu vopnahléi. George W. Bush, forseti Bandaríkj- anna, átti stóran þátt í því að fundi Ara- fats og Peresar var komið á, en stjórn Bush hefur að undanförnu þrýst mjög á Ísrael að friðmælast við Palestínumenn. Bush kann nú að hafa einstakt tækifæri til að beita áhrifum Bandaríkjanna í þágu friðar fyrir botni Miðjarðarhafs. Á sínum tíma beitti faðir hans, George Bush eldri, Ísraelsstjórn þrýstingi til að setjast að samningaborðinu þegar hann þurfti á stuðningi arabaríkja að halda vegna stríðsins við Írak. Með sama hætti mun Bush yngri nú þurfa á stuðningi hófsamari afla í arabaheiminum að halda í baráttunni gegn hryðjuverkamönnum. Þann stuðning fær hann hins vegar ekki nema hann hætti að leyfa ísraelskum stjórnvöldum að fara sínu fram í sam- skiptunum við Palestínuaraba. Yasser Arafat er mikið í mun að líta ekki út fyrir að sýna stuðning við hryðju- verkamennina, sem réðust á Bandaríkin fyrr í mánuðinum. Hann er því líklegur til að reyna að hafa hemil á herskárri öfl- um á meðal Palestínumanna, sem m.a. hafa stutt sjálfsmorðsárásir gegn Ísr- aelum. Til þess þarf hann m.a. að þagga niður í málgögnum heimastjórnarinnar, sem hafa lofað sjálfsmorðsárásirnar. Stefna Bandaríkjanna í málefnum Mið-Austurlanda hefur löngum tekið mið af því hversu valdamikill þrýstihóp- ur gyðingar eru í Bandaríkjunum. Nú er hins vegar þjóðarsamstaða þar vestra um að berjast verði gegn hryðjuverkum með öllum tiltækum ráðum. Jafnt Bandaríkjamenn af gyðingaættum sem aðrir skilja að til þess að sú barátta beri árangur þarf að skapa víðtækt bandalag ríkja heims og ein meginforsendan fyrir árangri er að arabaríkin verði með í því bandalagi. Allt þetta þýðir að Bush og stjórn hans hefur nú í höndum tækifæri, sem ekki má glutra niður. Bandaríkin eru eina ríkið, sem hefur það afl og trúverðugleika sem til þarf að stilla til friðar í deilum Ísraela og Palestínumanna. Það hefur alla tíð verið brýnt verkefni, en nú hefur það öðl- azt gífurlegt mikilvægi sem einn megin- þráðurinn í þeim flókna vef, sem Banda- ríkin þurfa nú að spinna til að klófesta og uppræta öfgamennina sem unnu her- virkið í New York og Washington.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.