Morgunblaðið - 28.09.2001, Qupperneq 40

Morgunblaðið - 28.09.2001, Qupperneq 40
40 FÖSTUDAGUR 28. SEPTEMBER 2001 MORGUNBLAÐIÐ                                                 !  !       BRÉF TIL BLAÐSINS Kringlunni 1 103 Reykjavík  Sími 569 1100  Símbréf 569 1329  Netfang bref@mbl.is Allt efni sem birtist í Morgunblaðinu og Lesbók er varðveitt í upplýsinga- safni þess. Morgunblaðið áskilur sér rétt t i l að ráðstafa efninu þaðan, hvort sem er með endurbirtingu eða á annan hátt. Þeir sem afhenda blaðinu efni ti l birtingar teljast samþykkja þetta, ef ekki fylgir fyrirvari hér að lútandi. FJÁRHAGSVANDI langflestra íþróttafélaga er mikill. Illa gengur að ná endum saman í rekstrinum og skuldabagginn fer stækkandi. Fjölmiðlar hafa flutt fréttir af björgunaraðgerðum einstakra fé- laga og bágri stöðu annarra. Víðast hvar er vandinn fyrst og fremst vegna afreksíþróttamanna og meistaraflokka félaganna, eink- um í boltaíþróttum. Barna- og ung- lingastarfið stendur undir sér og víða er það svo, að ýmiss konar mótahald fyrir börn og unglinga skilar hagnaði sem fer í að halda annarri starfsemi á floti. Skuldasöfnun afreks- og meist- araflokka getur sett allt félagið á hausinn, enda þótt bróðurpartur- inn af íþróttaiðkun innan félagsins standi undir sér. Allar eignir fé- lagsins eru að veði fyrir skuldum meistaraflokka og áratugaupp- bygging er í hættu ef fjármál meistaraflokka fara úr böndunum. Framundan er erfiður tími. Harðnað hefur í ári hjá atvinnulíf- inu og hinu opinbera og minni styrkir og auglýsingapeningar fást. Ólíklegt er að aðsókn að kappleikj- um og mótum vaxi nægilega til að vega upp á móti þessum samdrætti tekna. Því er tímabært – og þótt fyrr hefði verið – að bregðast við með breyttum vinnubrögðum. Hér á eftir fara nokkrar tillögur til úr- bóta: Aðskilinn fjárhagur og ábyrgð Afreks- og meistaraflokkar verði með aðskilinn fjárhag frá íþrótta- félögunum. Þeir geti þó áfram keppt undir merki félags, en „leigi“ af því aðstöðuna. Fjárhagsleg ábyrgð hvíli á meistaraflokkum sjálfum og aðstandendum þeirra og ekki verði unnt að láta eignir fé- lagsins standa að veði. Agavald sérsambanda Afreks- og meistaraflokkum verði bannað að taka þátt í mótum nema þeir uppfylli kröfur um fjár- hagsstöðu við upphaf leiktíðar og fullnægjandi eftirlit með fjármál- um og rekstri á leiktíðinni. Refsað verði fyrir frávik frá settum reglum um fjármál, t.d. með svipt- ingu stiga eða falli í neðri deildir að erlendri fyrirmynd. Fækkun meistaraflokka Unnið verði að því, með sam- starfi sérsambanda og sveitarfé- laga (sem víðast hvar kosta upp- byggingu æfinga- og keppnisaðstöðu fyrir íþróttafólk), að fækka afreks- og meistaraflokk- um með sameiningu eða samstarfi. Rökstuðningur Íþróttafélög og sérsambönd hafa mörg hver reist sér hurðarás um öxl á undanförnum árum. Þau hafa dregist inn á braut atvinnu- eða hálfatvinnumennsku sem getur ekki borið sig við íslenskar aðstæð- ur. Með þessum tillögum er hvatt til þess að stíga skrefin til baka – langleiðina til hreinnar áhuga- mennsku. Annarra kosta er ekki völ – óbreytt skipan mun á skömm- um tíma leggja uppbyggingarstarf margra áratuga í rúst. Vafalaust eru ýmsir ósáttir við þær tillögur sem hér eru kynntar. Setjum sem svo að það beri góðan árangur að róa á mið styrkja og auglýsinga til að halda meistara- flokki á floti. Er þá ekki allt í lagi? Nei, reynslan sýnir að þá verður minna aflögu hjá fyrirtækjum og hinu opinbera til að styrkja barna- og unglingastarfið. Er réttlætan- legt að greiða 15–20 fullorðnum mönnum í félagi laun fyrir að iðka íþróttina á meðan mörg hundruð börn og unglingar borga sjálfir all- an sinn rekstur og tugir/hundruð sjálfboðaliða verja miklum tíma í að reka félagið? Svari hver fyrir sig. Án efa eru margir ósáttir við hugmyndir um fækkun meistara- flokka og óttast áhrif slíkrar ákvörðunar á starf íþróttafélags í heild. Það er skoðun okkar, að ekki sé nauðsynlegt að hafa meistara- flokk í hverri deild eða hverju fé- lagi til að ná árangri í barna- og unglingastarfi. Ekki verður séð að það sé óviðunandi að starfrækja mörg félög fyrir æskuna en færri félög fyrir afreksmenn. Margt bendir til þess að í fjölda íþróttafélaga sé hljómgrunnur fyr- ir þeim tillögum sem hér eru born- ar fram. Brýn þörf er á opinni um- ræðu og skoðanaskiptum um þessi mál innan íþróttahreyfingarinnar og niðurstöðu sem allir geta unnið eftir. Nú þarf að taka af skarið og taka höndum saman til að beina rekstri félaganna í farveg sem fær staðist til lengdar. Þorbergur Halldórsson, form. ÍR Einar Hafsteinsson, form. skíðadeildar ÍR Gissur Jóhannsson, form. knattspyrnudeildar ÍR Hólmgeir Einarsson, form. handknattleiksdeildar ÍR Stefán Halldórsson, form. frjálsíþróttadeildar ÍR Þorgeir Einarsson, form. körfuknattleiksdeildar ÍR Úrbætur í fjár- málum afreks- íþróttaflokka Frá formönnum aðalstjórnar og deilda í ÍR:

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.