Morgunblaðið - 28.09.2001, Page 43
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 28. SEPTEMBER 2001 43
DAGBÓK
Fataverslun
Garðatorgi, sími 565 6550.
Nýjar haustvörur á
konur og börn, t.d.
buxur, peysur og úlpur
BÚÐIN
Gerum göt í eyru
Úrval af lokkum
Höfum umboð
fyrir skotbyssur og lokka.
HRUND
Snyrtistofan
Grænatúni 1,
Kópavogur
sími 554 4025
Guðrún Arnalds verður með námskeið
í líföndun helgina 13.—14. október
Að upplifa andardráttinn og anda að sér lífinu.
Líföndun getur hjálpað okkur að leysa upp spennu,
næra hjartað og finna það sem þar er, gleði eða sorg.
Dans — Yoga — Öndun — Fræðsla
Guðrún Arnalds,
símar 896 2396/551 8439.
Líföndun
Árnað heilla
LJÓÐABROT
TIL BOÐBERA
Þú hlustar á vatnið sem leggur leið
um leyninginn fram – og segist skilja
deginum ljósar þá dul, þann seið
sem dylst undir spegli svartra hylja.
Þó heyri ég einlægt holan róm:
hyggju vantar í boðun þína
og orðin þvælast við þurran góm.
Þvílíkt ljós – það kann ekki að skína!
Hannes Pétursson.
50 ÁRA afmæli. Í dagföstudaginn 28. sept-
ember er fimmtugur Einar
Örn Einarsson, húsasmíða-
meistari, Klapparbergi 8,
Reykjavík. Eiginkona hans
er Hulda S. Haraldsdóttir.
Þau taka á móti ættingjum
og vinum í dag kl. 18-21 í sal
Meistarafélaganna, Skip-
holti 70.
50 ÁRA afmæli. 24.september síðastlið-
inn varð fimmtugur Ingi-
mundur Sigurpálsson, for-
stjóri Hf. Eimskipafélags
Íslands. Eiginkona hans er
Hallveig Hilmarsdóttir.
Þau taka á móti gestum milli
kl. 18 og 20 í kvöld í Sam-
komusal Fjölbrautaskólans í
Garðabæ.
STAÐAN kom upp á at-
skákmóti sem lauk fyrir
skömmu á Krít. Hristos
Banikas (2531) hafði svart
gegn Dimitry Svetushkin
(2467). 27...d2!
Kraftmesti leik-
urinn. Í fram-
haldinu verður
hvítur varnar-
laus. 28. Bxd2
Bxg3 29. Bb4+
Bd6 30. Bc3 Bc5
31. Dg2 Bxf2+
32. Kh1 Bxe1 33.
Hxe1 Hd3 34.
Bf3 og hvítur
gafst upp saddur
lífdaga. Skákin
tefldist í heild
sinni: 1. e4 c5 2.
Rf3 e6 3. d3
Rc6 4. c3 d5 5.
De2 Rge7 6. g3 b6 7. Bg2
Ba6 8. e5 Dc7 9. O-O Rg6 10.
He1 Be7 11. h4 h5 12. c4 Hd8
13. Rc3 dxc4 14. dxc4 Rd4
15. Rxd4 cxd4 16. Rb5 Bxb5
17. cxb5 d3 18. Dd1 Rxe5 19.
Bf4 Bd6 20. Hc1 Db8 21. Bg5
Be7 22. Bd2 Rg4 23. Bc6+
Kf8 24. Df3 Re5 25. De4 Rg4
26. Bf4 Bd6 27. Bg5 o.s.frv.
SKÁK
Umsjón Helgi
Áss Grétarsson
Svartur á leik.
BARRY Rigal var í austur
og vakti á þremur tíglum.
Suður kom inn á þremur
spöðum og norður tók þá við
stjórninni og keyrði í sex
spaða.
Norður
♠ 832
♥ Á102
♦ ÁD42
♣ ÁD8
Vestur Austur
♠ DG10 ♠ 9
♥ G765 ♥ 984
♦ 97 ♦ KG10863
♣ K976 ♣ 1032
Suður
♠ ÁK7654
♥ KD3
♦ 5
♣ G54
Út kom tígull, sem sagn-
hafi tók með ás, og svo ÁK í
trompi. Skömmu síðar
skráðu AV 50 í plúsdálkinn,
því sagnhafi hafði gefið slag
á tromp og lauf. Í næsta spili
var Rigal blindur og þann
tíma notaði hann til að fara
yfir síðasta spil, því honum
þótti líklegt að vinningsleið
væri til.
Og hún er til, en byggist
reyndar á því að trompa tígul
í öðrum slag, sem er erfitt
eftir opnun austurs á
ÞREMUR tíglum. En segj-
um að sagnhafi trompi tígul í
öðrum slag og taki svo ÁK í
spaða. Næst spilar hann
hjarta þrisvar og endar í
borði til að stinga aftur tígul.
Þá er staðan þessi:
Norður
♠ 8
♥ –
♦ D
♣ ÁD8
Vestur Austur
♠ D ♠ –
♥ G ♥ –
♦ – ♦ KG
♣ K97 ♣ 1032
Suður
♠ 76
♥ –
♦ –
♣ G54
Vestur hefur hent laufi í
þriðja tígulinn. Laufdrottn-
ingu er svínað og tígull enn
stunginn heima. Nú er vest-
ur illa settur. Ef hann yfir-
trompar þarf hann að spila
frá laufkóngi eða hjartagosa
út í tvöfalda eyðu, svo það
má hann ekki. Laufi má hann
heldur ekki henda, því þá
kemur kóngurinn í ásinn, og
því er hjartagosinn nánast
þvingað spil. En ekki dugir
það, því nú er engin flóttaleið
til og sagnhafi sendir vestur
inn á spaða og lætur hann
spila frá laufkóngnum.
Rigal bendir á að sagnhafi
hefði getað reynt að bjarga
sér eftir byrjunina með því
að spila hjartaþristi á tíuna
og stela þar einni innkomu.
Vissulega á vestur krók á
móti því bragði – að stinga
upp gosanum – en þá vörn
finnur enginn mennskur
maður.
Barry Rigal notar tímann
vel þegar hann er blindur.
BRIDS
Umsjón Guðmundur
Páll Arnarson
BRÚÐKAUP. Hinn 11.
ágúst sl. voru gefin saman í
hjónaband Regína Bjarna-
dóttir og Henry Alexander
Henryson í Hvannarótar-
lundi, Sumarliðabæ, Ása-
hreppi af mági brúðarinnar,
séra Kristjáni Björnssyni
sóknarpresti í Vestmanna-
eyjum. Þau eru búsett í
London.
50 ÁRA afmæli. Nk.sunnudag, 30. sept-
ember, verður fimmtugur
Örn Sveinbjarnarson, múr-
arameistari, Háulind 18,
Kópavogi. Hann tekur á
móti ættingjum og vinum
laugardaginn 29. september
í sal Múrarameistarafélags
Reykjavíkur, Skipholti 70,
frá kl. 19–23.
STJÖRNUSPÁ
eft ir Frances Drake
VOG
Afmælisbarn dagsins:
Þér hættir til að halda þig
stundum of mikið til hlés og
láta aðra ráða um of fram-
vindu mála.
Hrútur
(21. mars - 19. apríl)
Þú þarft að ræða hugmyndir
þínar við þína nánustu og
samstarfsmenn þína svo þú
megir af undirtektum þeirra
ráða hvernig framhaldinu
verður best varið.
Naut
(20. apríl - 20. maí)
Þú vinnur þér aðdáun vinnu-
félaga þinna fyrir alla ósér-
hlífnina, en þarft að gæta
þess að ganga ekki fram af
þér. Leyfðu öðrum að njóta
sín líka.
Tvíburar
(21. maí - 20. júní)
Þú mátt ekki láta útlit hlut-
anna blekkja þig, heldur
skaltu gera þér það að reglu
að kanna allar aðstæður áður
en þú tekur nokkra ákvörðun.
Krabbi
(21. júní - 22. júlí)
Þú getur vel látið aðra ganga
fyrir endrum og sinnum. Þú
tapar engu á því þar sem slík-
ir hlutir skila sér jafnan
margfaldir til baka.
Ljón
(23. júlí - 22. ágúst)
Þú ættir að búa þér til tíma
fyrir sjálfan þig í dag svo þú
getir hugleitt menn og mál-
efni í ró og næði. Slíkar
stundir skapa frið og endur-
nýjun.
Meyja
(23. ágúst - 22. sept.)
Þótt gjafmildi þín sé lofsverð
þarftu að hafa stjórn á henni,
því þú bjargar ekki heiminum
með því að gera sjálfan þig að
bónbjargarmanni.
Vog
(23. sept. - 22. okt.)
Þó hugmyndir þínar séu
margar bráðsnjallar ættirðu
að bíða aðeins með að hrinda
þeim í framkvæmd. Þreifaðu
fyrst á undirtektum vina
þinna.
Sporðdreki
(23. okt. - 21. nóv.)
Þú mátt ekki leggja svo hart
að þér við vinnu að þú finnir
þér aldrei stund eða stað til
þess að sinna eigin hugðar-
efnum. Sýndu þolinmæði.
Bogmaður
(22. nóv. - 21. des.)
Nú er lag til þess að staldra
við og athuga stöðu mála.
Gættu þess bara að hafa báða
fæturna á jörðunni þegar þú
metur eigin frammistöðu.
Steingeit
(22. des. - 19. janúar)
Það er ástæðulaust að hafa
horn í síðu annarra fyrir það
eitt að þeir eru ekki alltaf
sammála þér. Ekki eru allir
viðhlæjendur vinir.
Vatnsberi
(20. jan. - 18. febr.)
Þótt þú skiljir ekki lífið til
fulls er engin ástæða til þess
að láta hugfallast. Sá sem
stöðugt leitar opnum huga er
á réttri leið.
Fiskar
(19. feb. - 20. mars)
Þú þarft ekki að vera svona á
varðbergi gagnvart sam-
starfsmönnum þínum, þótt
sjálfsagt sé að þú passir upp á
það sem þú mátt ekki láta frá
þér.
Stjörnuspána á að lesa sem
dægradvöl. Spár af þessu tagi
eru ekki byggðar á traustum
grunni vísindalegra staðreynda.