Morgunblaðið - 28.09.2001, Blaðsíða 47

Morgunblaðið - 28.09.2001, Blaðsíða 47
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 28. SEPTEMBER 2001 47 Sýnd kl. 6. Ísl tal. Vit265. Sýnd kl. 6 íslenskt tal. Vit 245 www.sambioin.is Keflavík - sími 421 1170 - samfilm.is FYRIR 990 PUNKTA FERÐU Í BÍÓ Sýnd kl. 8. Vit265. Sýnd kl. 10.15. Sýnd kl. 8 og 10.15.  X-ið Sími 461 4666 samfilm.is FYRIR 990 PUNKTA FERÐU Í BÍÓ Sýnd kl. 8. B.i. 16. Vit 251  Kvikmyndir.is Sýnd kl. 6. Ísl tal. Vit 245 www.sambioin.is Sýnd kl. 5.40, og 10. Vit270 Sýnd kl. 8 og 10.  X-ið FRUMSÝNING Að falla inní hópinn getur reynst dýrkeypt. Naglbítandi og „sexí“ sálrænn tryllir í anda „Cruel Intentions“. betra en nýtt Sýnd kl. 10.Sýnd kl. 6, 8, 10 og 12. Sprenghlægileg mynd frá sama manni og færði okkur Airplane og Naked Gun myndirnar. Hér fara á kostum Rowan Atkinson, hinn eini sanni Mr. Bean, og John Cleese, úr Monty Python, ásamt fleiri frábærum leikurum. Sýnd kl. 6, 8 og 12.20 e miðn.  Kvikmyndir.com Nýr og glæsilegur salur FRUMSÝNING MAGNAÐ BÍÓ Sýnd. 5.30, 8 og 10.30.Sýnd. 6, 8, 10 og 12. aknightstale.com Hrikalega flott ævintýramynd með hinum sjóðheita og sexý Heath Ledger (Patriot). Hugrakkar hetjur, fallegar meyjar, brjálaðar bardagasenur og geggjað grín. Búðu þig undir pottþétta skemmtun! Cool Movie of the Summer! Rolling Stone Magazine Hann Rokkar feitt! FRUMSÝNING Það þarf þorpara til að negla þjóf. Frábær gamanmynd með stórleikurunum Martin Lawrence og Danny DeVito Allir þeir sem kaupa miða á miðnætursýninguna fá bol. Fyrstir koma fyrstir fá. Sýnd kl. 8 og 10.10. Sprenghlægileg mynd frá sama manni og færði okkur Airplane og Naked Gun myndirnar. Hér fara á kostum Rowan Atkinson, hinn eini sanni Mr. Bean, og John Cleese, úr Monty Python, ásamt fleiri frábærum leikurum.  Kvikmyndir.com  RadioX FRUMSÝNING Ath engar sýningar kl. 6 vegna einkasamkvæmis. Það þarf þorpara til að negla þjóf. Frábær gamanmynd með stórleikurunum Martin Lawrence og Danny DeVito Sýnd kl. 8, 10.10 og 12.20 eftir miðnætti. Sýnd kl. 8, 10.10 og 12.20 eftir miðn. Allir þeir sem kaupa miða á miðnætursýninguna fá bol. Fyrstir koma fyrstir fá. HIN kvikláta kanína úr Hljómalindinni, Kiddi, er nú búinn að rúlla upp hinni væn- ustu vetrardagskrá þar sem von er á fjölda erlendra au- fúsugesta. Amerískir straumar Herlegheitin byrja fimmtu- daginn 11. október á Gauki á Stöng. Þá heimsækja landann gamlir félagar, bandaríska nýrokksveitin Trans Am. Með þeim verður San Franc- iscosveitin The Fucking Champs og íslenska ungsveit- in Kuai. Kvöldið eftir er stefnt að menntaskólatónleikum en þá munu Úlpa og Singapore Sling leika ásamt erlendu sveitunum. Ekki liggur enn fyrir hvaða menntaskóli verð- ur fyrir valinu en eins og sjá má er hugmyndin að hafa ávallt tvenna tónleika; á veit- ingastað og svo í framhalds- skóla. Hinn 18. og 19. október mun hin kraftmikla rokksveit The Dismemberment Plan leika. Fyrra kvöldið verður á veitingastað í Reykjavík en síðara kvöldið verður í MH. Harðkjarnasveitin Mínus mun spila með í MH og svo verða Fidel og Sofandi einnig með. Ekki er þó enn búið að taka ákvörðun um hvaða kvöld þær hreppa. Hinn 6. og 7. nóvember er svo von á góðum gesti. Um er að ræða sjálfan Will Oldham en þessi bandaríski einyrki hélt afar eftirminnilega tón- leika á Gauki á Stöng í byrj- un árs 1999. Ekki er staðfest hvort hann taki með sér hljómsveit eður ei. Í sömu viku, eða 9. og 10. nóvember, mun svo sænska hljómsveitin Pär Lindh Pro- ject spila en sveitin sú einbeit- ir sér að rokki í stíl við sveitir eins og ELP, King Crimson og Yes. Þeim til halds og trausts verða Dúndurfréttir. Dagskránni lýkur svo 15. og 16. nóvember. Þá mun banda- ríska angurrokksveitin Low leika, en hún gerði garðinn frægan í Háskólabíói hér um árið, hvar andaktugir gestir áttu vart orð yfir leik sveitar- innar. Með Low verða sveit- irnar Lúna og Náttfari. Nánari upplýsingar verða svo birtar er nær dregur. Útgáfa Hugsanlegt er að Hljóma- lind muni að einhverju leyti koma að útgáfu á nýrri ís- lenskri tónlist í haust. Kiddi sjálfur hefur orðið: „Við ætlum að blanda okkur í útgáfu á plötu með Kuai og vonandi að við getum hjálpað einhverjum fleiri böndum. Sof- andi eru líka inni í myndinni.“ Kiddi áréttar þó að þessi þáttur sé á algeru frumstigi. „Eigum við ekki bara að segja að Hljómalind sé að fara að seilast aðeins inn á útgáfu- sviðið og fyrsta verkefnið er að aðstoða hljómsveitina Kuai í útgáfu á sinni fyrstu plötu. Í kjölfarið fylgja vonandi fleiri bönd, það eru viðræður í gangi við nokkrar sveitir í bænum sem eru búnar að vinna alveg geysilega gott efni.“ Vetrardagskrá Hljómalindar afhjúpuð Oldham, Low og Trans Am spila TENGLAR ........................................... www.hljomalind.is Hljómsveitin Low heimsótti Ísland haustið 1999 og vakti mikla athygli. Will Oldham Í KVÖLD verður hinum svokallaða Föstudagsbræð- ingi Hins hússins ýtt úr vör í Geysi-kakóbar. Um er að ræða vikulegan viðburð sem fram verður haldið út veturinn og gefst þar ung- um og efnilegum tónlist- armönnum af öllu tagi kost- ur á að spreyta sig á „lifandi“ spilamennsku. Það eru unggruggsveit- irnar Coral og Noise sem ríða á vaðið og hafði Morg- unblaðið samband við Andr- és, bassaleikara Coral. Sveitin var stofnuð fyrir um tveimur árum upplýsir Andrés, ekki af vinahópi eins og títt er, heldur af slarkfærum tónlist- armönnum, víðs vegar að. „Við þekktumst ekkert áður en við stofnuðum bandið, heldur söfnuðum bara saman liði sem við vissum að gæti spilað. Við erum engir svaka vinir utan við bandið en það var all- tént þétt þegar við byrj- uðum.“ Coral hefur eðlilega hug á útgáfu eins og svo marg- ar aðrar ungsveitir. „Við erum búnir að gera prufuupptöku og þrykkja á disk,“ segir Andrés. „En við höfum ekki farið í hljóðver ennþá.“ Bræðslan hefst kl. 20.00 og að sjálfsögðu er frítt inn. Aldurstakmark er 16 ára. Föstudagsbræðingur Hins hússins Gruggið kallar Morgunblaðið/Ásdís Ásgeirsdóttir Noise spilar á Geysi-kakó- bar í kvöld ásamt Coral.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.