Morgunblaðið - 09.10.2001, Blaðsíða 35

Morgunblaðið - 09.10.2001, Blaðsíða 35
UMRÆÐAN MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 9. OKTÓBER 2001 35 FYRIR fáeinum dögum fór fram á Al- þingi umræða um við- brögðin við hryðju- verkaárásunum á New York og Wash- ington. Svo var að skilja á frásögnum margra fjölmiðla, sér- staklega Ríkisút- varpsins, að í um- ræðunni hefðu menn verið mjög á einu máli um hve ágæt fram- ganga íslenskra stjórnvalda hefði ver- ið. Staðreyndin er hins vegar sú að í um- ræðunum var mjög eindregið varað við því að við spyrt- um okkur saman við NATO og lét- um æsingamenn innan hernaðar- bandalagsins teyma okkur í þessu máli. Um hitt eru menn að sjálfsögðu sammála að bregðast þurfi við þess- um voðaverkum. Hryðjuverk eru tilræði – ekki aðeins við fórnarlömb- in hverju sinni heldur við siðað sam- félag. Sú eldraun sem við stöndum frammi fyrir er að bregðast þannig við að okkur takist að varðveita réttarríkið og þær grundvallarregl- ur um mannréttindi sem mannkynið hefur sameinast um. Það er mikilvægt að hafa hendur í hári þeirra sem voru ábyrgir fyrir þessum voðaverkum og leiða þá fyr- ir alþjóðlegan rétt. Það er grund- vallaratriði að þetta sé gert á vett- vangi alþjóðasamfélagsins, Sam- einuðu þjóðanna og að í einu og öllu sé farið að grundvallarsáttmálum um mannréttindi. Nú kann einhver að segja að Sameinuðu þjóðirnar séu svifasein- ar og búi ekki yfir þeim tækjum sem nauðsynleg eru til að taka á slíkum vanda. Að vissu leyti er þetta rétt og minnir okkur á nauðsyn þess að efla öryggis- og eftirlits- hlutverk SÞ. En fram- ar öllu verður aldrei of oft á það minnt að þær aðgerðir sem gripið verður til þurfa að bera tilætlaðan árangur – og áður verðum við að leggja það skýrt niður fyrir okkur hvað það er sem við ætlum að ná fram: réttlátari og frið- vænlegri heimur. Ég hef leyft mér að vara við fljótræði og þá sérstaklega við því að Íslendingar láti stríðsæsinga- menn innan NATO teyma sig áfram í þessu máli. Í fréttum höfum við orðið vitni að mjög herskáum yfirlýsingum tals- manna NATO og breska forsætis- ráðherrans sérstaklega. Fram- kvæmdastjóri NATO sagði að nú hefðu verið færðar óyggjandi sönn- ur á að hryðjuverkunum hefði verið stýrt af aðilum utan landamæra Bandaríkjanna – og því bæri að skilgreina þau sem árás á Bandarík- in. Við það kviknaði 5. grein NATO- samningsins sem segir að árás á eitt NATO-ríki jafngildi árás á önnur og þar með öll aðildarríki hernaðar- bandalagsins. Við þetta er sitthvað að athuga. Í fyrsta lagi kennir reynslan okkur að yfirlýsingar herstjórnar NATO og ýmissa ráðamanna í bandalagsríkj- um okkar, ekki síst breska forsætis- ráðherrans, hafa á ögurstundu sem þessari ekki alltaf reynst traustar eins og dæmin sanna og vísa ég þar til dæmis á yfirlýsingar þessara að- ila í tengslum við loftárásir NATO á Balkanskagann vorið 1999. Í öðru lagi hlýtur það að orka tvímælis að skilgreina árás með þeim hætti sem hér er gert. Þessi skilgreining þýðir að á hryðjuverkaöld standa Íslend- ingar nær stríði en áður og geta hæglega sogast inn í hringiðu þeirra átaka sem háð eru á heimsvísu. Og þá skulum við hyggja að því hvað svokallaðir vinir okkar, ríkustu herveldi jarðarinnar, eru að aðhaf- ast og hvernig þau koma fram í heiminum. Frelsishetjur gærdagsins Um árabil hefur setið við völd í Afganistan stjórn talibana – ofstæk- istrúmanna sem beita ómældri kúg- un gegn þeim sem voga sér að and- æfa valdi þeirra. Heimurinn hefur verið áhugalítill um þessa kúgun að undanskildum kvennahreyfingum sem hafa verið óþreytandi að vekja athygli á illu hlutskipti kvenna und- ir stjórn talibana. Sú var tíðin að heimurinn hafði meiri áhuga á Afg- anistan. Það var undir lok áttunda áratugarins og í byrjun þess níunda. Þá gerðu sósíalistar uppreisn gegn lénsveldi íslömsku klerkanna og í kjölfarið fóru Sovétmenn með herlið inn í landið þeim til aðstoðar. Nú var stórveldahagsmunum ógnað og hófst mikið áróðursstríð. Á meðal þeirra fréttamanna sem fóru á vett- vang var undirritaður. Ég heimsótti margar búðir uppreisnarmanna – frelsisherjanna sem svo voru nefnd- ir í fjölmiðlum í okkar heimshluta. Þeirra á meðal voru þeir, sem nú fara fram undir merkjum talibana. Nú eru þessar frelsishetjur gær- dagsins réttdræpar á sama hátt og Saddam Hussein, áður vinur vest- urveldanna þegar það þjónaði hags- munum þeirra í stríðinu við Íran á níunda áratugnum. Hann var sami ódæðismaðurinn þá og hann er nú. Það eru hins vegar hagsmunir stór- veldanna sem hafa breyst. Höfum mannréttinda- sáttmála sem vegvísi Við lifum í heimi harðrar og grimmrar hagsmunabaráttu. Við skulum gera okkur grein fyrir því að þegar við stillum okkur upp eins og mér finnst íslensk stjórnvöld gera, nánast gagnrýnislaust við hlið Bandaríkjstjórnar, bresku stjórnar- innar og hernaðarbandalagsins NATO, þá fer því fjarri að um það eitt sé að tefla að verja frelsi og mannréttindi. Við erum að taka af- stöðu með auðugustu herveldum jarðarinnar og þeirra málstaður hefur ekki alltaf reynst góður. Þessi alvarlegu deilumál eiga heima í öðrum farvegi en hjá hern- aðarbandalginu NATO. Þau eiga heima á vettvangi Sameinuðu þjóð- anna og sem vegvísi eigum við að hafa þá mannréttindasáttmála sem mannkynið hefur komið sér saman um. Látum ekki NATO stýra okkur í stríð Ögmundur Jónasson Hryðjuverkin En framar öllu verður aldrei of oft á það minnt að þær aðgerðir sem gripið verður til, segir Ögmundur Jónasson, þurfa að bera tilætlaðan árangur. Höfundur er alþingismaður. íbúðum sem nú eru heimilaðir. Þessar hækkanir bætast ofan á þá verð- sprengingu sem orðið hefur á leigu- verði íbúða sl. þrjú ár m.a. vegna þeirra breytinga sem ríkisstjórnin gerði á húsnæðismálum 1997. Auknar lántökur til uppbyggingar leiguíbúða eru því sýndarmennskan ein þegar enginn getur staðið undir þeim leigukjörum sem þeim fylgja. Eða getur ráðherra sýnt fram á að 450 öryrkjar sem nú eru á biðlistum hjá Öryrkjabandalaginu eftir leigu- íbúðum geti staðið undir 15–20 þús- und króna hækkun á leigukjörum? Ávinningur skattfrelsis húsaleigubóta hverfur Þegar húsaleigubætur komust á í minni tíð sem félagsmálaráðherra gerðu sjálfstæðismenn það að skilyrði fyrir því að húsaleigubætur yrðu lög- festar að þær væru skattlagðar. Við féllumst á skattlagninguna á fyrsta ári húsaleigubótanna, sem var fórn- arkostnaðurinn fyrir að koma þeim á, en gegn því skilyrði að skattlagningin yrði endurskoðuð, vextir hækkuðu ekki á leiguíbúðum og greiðslur húsa- leigubóta yrðu hækkaðar sem skatt- lagningunni næmi. Það fyrirkomulag var þá sérstakur ávinningur fyrir fólk með tekjur undir skattleysismörkum og greiddi því ekki skatt af húsaleigu- bótum. Sex ár hefur það nú tekið Pál fé- lagsmálaráðherra að afnema skatt- lagninguna, sem aðeins átti að vera tímabundin. Á þeim tíma hefur fjár- hæð húsaleigubóta ekki tekið mið af því að þær voru skattlagðar. Loksins þegar skattlagningu húsa- leigubóta er svo hætt hverfur ávinn- ingurinn í gífurlegar vaxtahækkanir á lánum til leiguíbúða hjá því fólki sem nú bíður eftir leiguhúsnæði. Leigu- verð mun hækka a.m.k. tvisvar sinum meira en nemur skattfrelsi húsaleigu- bóta. Höfundur er alþingismaður.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.