Morgunblaðið - 09.10.2001, Blaðsíða 21
NEYTENDUR
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 9. OKTÓBER 2001 21
KÖNNUN ASÍ á verði matvöru í net-
verslunum á Íslandi og í Danmörku
leiðir í ljós að 65% vörutegunda sem
athugaðar voru eru dýrari á Íslandi,
eða 55 af þeim 84 sem nú er greint frá.
Um er að ræða annan hluta verð-
könnunar ASÍ á 242 tegundum í 25
vöruflokkum, en greint er frá verð-
mun á ís, ferskum og unnum ávöxt-
um, grænmeti og kartöflum, ávaxta-
safa og öðrum matvörum að þessu
sinni.
Mestur verðmunur er á niðursoðn-
um tómötum, sem eru 364,57% dýrari
á Íslandi en í Danmörku. Minnstur
verðmunur er á einu rauðu epli, eða
0,25%.
Verðkönnunin var framkvæmd
föstudaginn 14. september og var
borið saman verð í netverslun Hag-
kaups og ISO í Danmörku.
Aðeins fundust tvær tegundir af ís
og frostpinnum sem voru sambæri-
legar og reyndust báðar tegundirnar
dýrari á Íslandi. 10 stykki af Sun-
Lolly frostpinnum voru 30,31% dýrari
og einn lítri af vanilluís 22,24% dýrari.
Rauðlaukur og eggaldin
dýrara í Danmörku
Í vöruflokknum ávextir, grænmeti
og kartöflur voru 28 af 33 vöruteg-
undum dýrari á Íslandi og fimm í
Danmörku. Mestur verðmunur var á
einu stykki af Galía melónum, eða
293,41%. Eitt kíló af lauk var 135,43%
dýrara í Danmörku og minnsti verð-
munurinn var á einu stykki af íssalati,
eða 2,98% og var það einnig dýrara í
Danmörku. Einnig voru rauðlaukur
og eggaldin dýrari í Danmörku.
Hvítar kartöflur voru 68,93% dýrari á
Íslandi.
Hvað unnar vörur úr ávöxtum,
grænmeti og kartöflum varðar voru
12 af 17 vöruflokkum dýrari á Íslandi
en sveppir í sneiðum jafndýrir. Mest-
ur verðmunur var á 1 kílói af mauk-
uðum tómötum, sem voru 364,57%
dýrari á Íslandi. Minnsti verðmunur
var á Del Monte blönduðum ávöxtum,
sem voru 1,85% dýrari í Danmörku.
Fjórar af fimm gerðum ávaxtasafa
voru dýrari á Íslandi, mestu munaði á
einum lítra af ódýrustu tegund af
eplasafa sem var 93,66% dýrari hér.
Í vöruflokknum aðrar matvörur
eru ýmsar gerðir af sósum, sultur,
marmelaði, hunang, ýmsar pakkavör-
ur í duftformi, krydd, edik og frosnir
tilbúnir réttir. Af 27 vörutegundum í
þeim flokki voru 17 dýrari á Íslandi.
Mestur munur var á Frigodan far-
falle pastarétti, sem var 69,97% dýr-
ari á Íslandi. Minnsti munurinn var
0,64% á Knorr pasta/pitsukryddi,
sem var dýrara á Íslandi.
Ekki borið saman kílóverð
á grænmeti
Eins og fram kom í fyrsta hluta
könnunarinnar, sem birtur var fyrir
viku, var ákveðið að bera saman
ákveðnar vörutegundir, til þes að
koma í veg fyrir misræmi vegna mis-
munandi vægis. Ekki er reiknað
heildarverð allra vörutegunda, eða
hvers flokks, heldur hver og ein vöru-
tegund borin saman og verðmunur
fundinn, segir um aðferðafræði verð-
könnunarinnar í fréttatilkynningu frá
ASÍ.
Ekki var hægt að bera saman kíló-
verð af grænmeti þar sem það er ekki
gefið upp í dönsku netversluninni og
því ákveðið að bera saman verð á einu
stykki. Þótt ekki sé hægt að fullyrða
að um sé að ræða sömu þyngd í
hverju tilviki fyrir sig fá neytendur
engu að síður eitt stykki af viðkom-
andi tegund fyrir uppgefið verð, segir
ennfremur í verðkönnun ASÍ.
Verð var umreiknað í samræmi við
opinbert viðmiðunargengi Seðla-
banka Íslands. Verð er borið saman
án virðisaukaskatts, sem er 25% í
Danmörku og 14% á Íslandi, í ein-
hverjum tilvikum 24,5%.
Tæplega 365% verðmunur
á niðursoðnum tómötum
ASÍ kannar verð í netverslunum á ís, ávöxtum, grænmeti og unnum vörum
! "# $ # "
% $&"!
!"
#$%&
#' (
)
*
+
,
-&.& "
,& "
/. %
/.& ".
/. &
01 %
#
#2 "
34. 5 "
' !! "
#" 6 *7
& ( '8
7 9"$
&!
"
8()
*
)*
+
+
(+
,(*
(*
+)
)*
*
)
)
*+
+
(
(
+*
*
+(
)
)
))
+
+(
)
)
)
*
)(
+
(+
+
:
:
:
:
:
:
:
:
:
:
:
:
:
:
HOLLUSTUVERND ríkisins hefur
ásamt fleirum látið vinna bækling um
köfnunarhættu vegna sælgætis og
smáhluta og rétt viðbrögð vegna að-
skotahlutar í hálsi. Bæklingnum
verður dreift á alla leikskóla, auk þess
sem hann mun liggja frammi á heilsu-
gæslustöðvum, en í honum er að finna
ábendingar og upplýsingar til for-
eldra og forráðamanna barna.
Sesselja María Sveinsdóttir, mat-
vælafræðingur hjá Hollustuvernd,
segir að fjöldi barna hér á landi hafi
verið hætt kominn vegna sælgætis
sem staðið hafi í koki. Því hafi verið
gerð könnun á sælgæti á íslenskum
markaði síðasta haust, hvað varðar
stærð, lögun og aðra eiginleika. Að
því búnu var gefin út skýrsla um
verkefnið, sem nú er að finna á
heimasíðu stofnana sem komu að
verkefninu, og nú síðast umræddur
bæklingur. „Markmiðið er að skil-
greina hættuleg matvæli, sérstaklega
þau sem hönnuð eru, framleidd og
markaðssett fyrir börn, svo sem sæl-
gæti. Ennfremur að upplýsa almenn-
ing um hvers beri að gæta þegar sæl-
gæti og leikföng eru valin og hvernig
eigi að bregðast við festist aðskota-
hlutur í koki barns. Ástæða þess að
fjallað er sérstaklega um sælgæti er
sú að komið hefur upp fjöldi tilvika
þar sem börn hafa verið hætt komin
við neyslu sælgætis,“ segir hún.
Öll matvæli geta hrokkið ofan í kok
en tíðni köfnunarslysa þar sem börn
hafa verið hætt komin við að borða
sælgæti er mest hjá tveggja ára börn-
um. Árin 1998-1999 komu 28 börn á
slysadeild Landspítala í Fossvogi
vegna aðskotahluta í hálsi, en vitað er
að mun fleiri börn hafi orðið fyrir
samskonar slysum, segir Sesselja
ennfremur.
Sjá nánar: hollver.is, hr.is, rvk.is,
ls.is og redcross.is.
Köfnunarhætta vegna aðskota-
hluta í koki er mest hjá 2 ára.
Varasamur risabrjóstsykur.
Sælgæti og
smáhlutir
geta valdið
köfnun
Engjateigi 5, sími 581 2141