Morgunblaðið - 09.10.2001, Blaðsíða 60

Morgunblaðið - 09.10.2001, Blaðsíða 60
MORGUNBLAÐIÐ, KRINGLUNNI 1, 103 REYKJAVÍK, SÍMI 569 1100, SÍMBRÉF 569 1181, PÓSTHÓLF 3040, ÁSKRIFT-AFGREIÐSLA 569 1122, NETFANG: RITSTJ@MBL.IS, AKUREYRI: KAUPVANGSSTRÆTI 1 ÞRIÐJUDAGUR 9. OKTÓBER 2001 VERÐ Í LAUSASÖLU 190 KR. MEÐ VSK. OPIÐ VIRKA DAGA KL. 8-18 • LAUGARDAGA KL. 10-16 Skeifunni 17, 108 Reykjavík Sími 550 4100 Furuvöllum 5, 600 Akureyri Sími 461 5000 Össur Skarphéðinsson, formaður Samfylkingarinnar, hóf umræðuna með því að lýsa áhyggjum sínum af þróun mála. „Heimurinn vill allur sjá Osama bin Laden og samverka- menn hans dregna fyrir lög og dóm til þess að gjalda illra verka sinna,“ sagði Össur. Hann lét í ljósi áhyggj- ur af almenningi í Afganistan sem væri bráð hætta búin um þessar mundir af völdum hungursneyðar og örbirgðar. Benti hann á sam- þykkt stjórnvalda um stuðning við flóttamenn þar í landi með fjár- framlögum, en sagði að meira þyrfti að koma til, t.d. aðstoð við uppbygg- ingu. Davíð Oddsson forsætisráðherra lét í ljósi ánægju með stuðning for- manns Samfylkingarinnar í þessu máli. Sagði hann ríkisstjórnina þeg- ar hafa ákveðið að verja 10 millj- ónum kr. til verkefna af þessu tagi. Skilaboð frá breska forsætisráðherranum Upplýsti forsætisráðherra að fyrr í gærdag hefði hann átt samtal við sendiherra Breta hér á landi sem færði honum skilaboð frá Tony Blair, forsætisráðherra Bretlands. Fram kom í máli forsætisráð- herra að Íslendingum var ekki sér- staklega tilkynnt um árásina á Afg- anistan á sunnudag, fremur en mörgum öðrum ríkisstjórnum. Íslensk stjórnvöld vissu að til þeirra myndi draga, en ekki nákvæma tímasetningu. Vísaði hann aftur til skilaboða frá breska forsætisráð- herranum og sagði: „Þetta er aðeins fyrsta aðgerð. Ef þetta væri hefnd- araðgerð, þá mætti láta hana duga. En þetta er ekki hefndaraðgerð, heldur refsiaðgerð og þvingunar- aðgerð til þess að knýja talibana- stjórnina til samstarfs og hvetja hana til þess að skila af sér þeim hermdarverkamönnum sem hún hefur skotið skjóli yfir.“ Steingrímur J. Sigfússon, for- maður VG, sagði mikil vonbrigði að svona væri komið og að hafin væri árás á þetta stríðsþjáða land og þær soltnu þjóðir sem það byggja. Árásir án nokkurrar lokaviðvörunar Sagði Steingrímur vekja athygli að þessar árásir væru hafnar án nokkurrar lokaviðvörunar, þær væru einhliða aðgerðir og ákvarð- anir Bandaríkjamanna og Breta án undangenginnar umfjöllunar í öryggisráði Sameinuðu þjóðanna. Lýsti hann yfir vonbrigðum með að ríkisstjórn Íslands hefði lýst yfir stuðningi við þessar árásir svo fljótt og án nokkurs samráðs við utan- ríkismálanefnd. Davíð Oddsson forsætisráðherra svaraði því til að þessar aðgerðir væru í samræmi við yfirlýsta stefnu ríkisstjórnarinnar, öryggisráðs og allsherjarþings SÞ og í raun þá niðurstöðu utanríkismálanefndar að við þessum voðaverkum yrði að bregðast. Gagnrýndi hann formann VG fyrir sérstöðu sína gagnvart þessum aðgerðum. Þessi sérstaða væri afskaplega óviðfelldin og gengi gegn stefnu hins siðaða heims auk þess að vera algjörlega á skjön við önnur stjórnmálaöfl hér á landi. HANN var dreyminn á svip, mað- urinn sem sat með hönd undir kinn á rauðu ljósi á gatnamótum Hringbrautar og Njarðargötu síð- degis í gær og horfði á bílana fara hjá. Kannski hefur hann ver- ið á leiðinni heim að loknum erf- iðum vinnudegi og átt von á ein- hverju góðu í kvöldmatinn, eins og t.d. fiskibollum eða bjúgum. Hann virðist samt ekkert vera að flýta sér um of, hann bíður ein- faldlega átekta eftir því að rautt ljós breytist í gult og síðan grænt, þannig að hann geti hald- ið för sinni áfram. Að loknum vinnudegi Morgunblaðið/Kristinn Ingvarsson Loftárásirnar á Afganistan ræddar á Alþingi Ekki hefndaraðgerð heldur refsiaðgerð  Aðgerðir sem/10 FORMAÐUR Vinstrihreyfingarinnar – græns framboðs gagn- rýndi loftárásir Bandaríkjamanna og Breta á Afganistan og stuðn- ing íslenskra stjórnvalda við þær í umræðum á Alþingi í gær. Dav- íð Oddsson forsætisráðherra sagði að aðgerðir Bandaríkjamanna væru ekki hefndaraðgerð heldur refsi- og þvingunaraðgerð. ÁFENGISSALA Áfengis- og tób- aksverslunar ríkisins dróst saman í septembermánuði um 7,44% í lítrum talið frá sama mánuði í fyrra. Engar skýringar liggja fyr- ir á þessum samdrætti en hugs- anlegt er talið að rekja megi hann til áhrifa hryðjuverkaárásanna í Bandaríkjunum 11. september. „Tölur okkar fyrir september eru mjög furðulegar. Þetta er í fyrsta skipti í langan tíma sem sala fellur í mánuði frá sama mán- uði árið á undan, án þess að við höfum nokkrar tiltækar skýringar á því,“ segir Höskuldur Jónsson, forstjóri ÁTVR. Samkvæmt athugun SVÞ – Sam- taka verslunar og þjónustu dróst sala í sérvöruverslunum verulega saman hér á landi fyrstu vikuna eftir atburðina í Bandaríkjunum. Minni áfengis- neysla eft- ir hryðju- verkin?  Samdráttur/12 SPÁÐ er töluverðri fólksfjölg- un á höfuðborgarsvæðinu á næstu árum og má reikna með að íbúar verði orðnir 228 þús- und talsins árið 2024 en þeir voru 168 þúsund árið 1998. Þetta kemur fram í nýju svæðisskipulagi fyrir höfuð- borgarsvæðið sem kynnt verð- ur í dag. Við gerð þess var gerð ítarleg spá um íbúaþróun fram til ársins 2032. Samkvæmt henni fjölgar fólki um 60 þús- und manns frá árinu 1998 fram til ársins 2024. Helming íbúaaukningarinn- ar má rekja til náttúrulegrar fjölgunar en gert er ráð fyrir að hinn helmingurinn verði til kominn vegna aðflutts fólks, af landsbyggðinni eða frá út- löndum. Íbúar um 228 þúsund árið 2024  Fjölgun um/14  Byggja þarf/22C Mikilli fólksfjölgun spáð á höfuðborg- arsvæðinu Á ÞRIÐJA tug íslenskra lækna er í sérnámi í heimilislækningum og er bjart framundan á þessu sviði, en ástæðan er fyrst og fremst eflt sér- nám í heimilislækningum hérlendis, að sögn Jóhanns Ágústs Sigurðs- sonar prófessors. Undanfarin ár hefur verið vaxandi skortur á heimilislæknum. Jóhann Ágúst Sigurðsson segir að til að bregðast við þeim vanda hafi sér- námið hérlendis verið eflt, en fyrir fimm árum hafi heilbrigðisráðu- neytið komið á fót fjórum námsstöð- um til sérnáms í heimilislækningum á Íslandi. Um er að ræða starfsnám á heilbrigðisstofnunum en bóklega námið fer fram við Háskóla Íslands. Jóhann Ágúst segir að á síðasta ári hafi 10 læknar verið í skipulögðu sér- námi í heimilislækningum hérlendis, jafnmargir séu að ljúka slíku námi erlendis og tveir við það að skipta yfir í heimilislækningar úr öðru sér- námi, en væntanlega útskrifist átta úr þessum hópi innan árs. Jóhann Ágúst segir að í efldu sér- námi felist sú breyting að nú verði nemendur að sækja 100 bóklega tíma á ári og ákveðinn fjölda námskeiða. Boðið sé upp á persónulega hand- leiðslu, fóstra eða umsjónarkennara, sem sjái um daglega handleiðslu og hjálpi viðkomandi að skipuleggja námið í heild sinni. Áhuginn á þessu sérnámi hefur aukist eftir nokkra lægð undanfarin fimm ár og segir Jóhann Ágúst að þessi efling á náminu hérlendis hafi skipt sköpum fyrir marga, sem hefðu annars jafnvel ekki farið í neitt sér- nám eða ekki treyst sér í það erlend- is vegna ýmissa ástæðna. Hann segir ennfremur að búið sé að byggja upp sambærilega kennslufærni hérlendis og þekkist erlendis. Þar til í fyrra voru aðeins fjórir í fyrrnefndum námsstöðum en Jóhann Ágúst segir að nú hafi orðið mikil aukning og áhugi á að komast í þetta nám hafi aukist. Með aðstoð yfirlækna hafi tekist að fjölga stöð- unum úr fjórum í 10 en lögð verði aukin áhersla á það við heilbrigðis- ráðuneytið að komið verði á fleiri námsstöðum og að það aðstoði við að móta þetta sérnám betur. Eins verði leitað eftir samstarfi við ýmsar menntastofnanir eins og Endur- menntunarstofnun. Í þessu sam- bandi nefnir hann að uppbygging á námsstöðum úti á landi sé langt á veg komin og sé m.a. horft til Akureyrar. Góð kennsla mikill hvati Sólveig Dóra Magnúsdóttir gerir ráð fyrir að ljúka sérfræðinámi í heimilislækningum hér á landi um önnur áramót. Hún segir að kennsl- an sé mjög góð í sérnáminu og það sé mikill hvati til að auka áhuga á faginu. Ragnar Logi Magnason segir að sérnámið hérlendis sé jákvæð þróun. Þetta sé skemmtilegt og fjölbreytt fag sem veiti visst frjálsræði. Búseta skipti ekki svo miklu máli og fag- legur sveigjanleiki sé mikill. Stefnt að fjölgun í stétt heimilislækna hérlendis Yfir 20 í sérnámi í heimilislækningum
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.