Morgunblaðið - 09.10.2001, Blaðsíða 43
FRÉTTIR
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 9. OKTÓBER 2001 43
HELZTI viðburður á liðnu
sumri í röðum íslenzkra frímerkja-
safnara var landsþing þeirra 9. maí
sl. og stjórnarskipti, sem þá
urðu. Er einsætt að hefja
þennan þátt að nýju á því
að minnast á eitthvað af
því, sem þar gerðist, en
þó verður geymt til næsta
þáttar að segja frá ýmsu
umræðuefni, sem þar kom
fram og hugleiðingum mínum í
því sambandi. Segja má í fullri
hreinskilni, að heldur dauflegt var
yfir síðasta landsþingi og þingsókn
léleg. Að mínum dómi er mjög
slæmt, þegar slíkt gerist, enda
þurfa frímerkjasafnarar ekki síður
en aðrir að ræða margs konar mál
sín á milli. En hvað sem því líður,
fór þetta þing vel fram og þau mál
rædd, sem helzt brenna á söfnur-
um um þessar mundir.
Formaður LÍF, Sigurður R.
Pétursson, flutti skýrslu stjórnar
sinnar fyrir liðið starfsár og kom
víða við. Hann ræddi sérstaklega
um svonefnt rammamál, sem virð-
ist vera orðið nokkurt vandamál
milli Póstsins og LÍF.
Fram að þessu hafa póstyfirvöld
geymt í húsakynnum sínum sýn-
ingarramma þá, sem notaðir hafa
verið á frímerkjasýningum hér á
landi. Nú mun Pósturinn ekki telja
sig hafa tök á að geyma þá öllu
lengur sökum húsnæðisleysis og
verður því að koma þeim fyrir ann-
ars staðar.
Þá vék formaður LÍF að kynn-
ingarfundum, sem haldnir voru á
árinu, en þátttakan varð léleg. Hið
sama má segja um fulltrúafund,
sem haldin var.
Því miður eru þetta heldur dap-
urlegar fréttir fyrir frímerkjasöfn-
un hér á landi. Verður auðvitað að
bæta úr því með einhverjum ráð-
um á næstu árum.
Formaður minntist á fyrirhug-
aða NORDIU-sýningu hér á landi
árið 2003, en fyrir mun liggja fyr-
irheit um styrk úr Frímerkja- og
póstsögusjóði til sýningarhaldsins.
Ætti þessi sýning að verða vel við-
ráðanleg, þar sem ekki er gert ráð
fyrir nema 500 sýningarrömmum.
Annað það efni, sem formaður
LÍF tók fyrir í ræðu sinni, bíður
næsta þáttar.
Sigurður R. Pétursson, sem
hafði tilkynnt fyrir þingið, að hann
hefði ákveðið að hætta sem for-
maður LÍF, þakkaði í lok ræðu
sinnar samstarf við alla þá, sem
hann hafði unnið með á liðnum ár-
um, en hann hafði verið formaður
LÍF um tólf ár, raunar í tveimur
áföngum. Voru honum færðar
þakkir fyrir þau störf sín á
vegum frímerkjasafnara,
sem hann hverfur nú frá,
en hann mun enn um sinn
sitja í dómaranefnd LÍF
og þá væntanlega einnig
taka að sér störf á frí-
merkjasýningum á vegum
samtaka okkar.
Stjórnarkjör fór síðan fram, og
er hún skipuð þessum mönnum:
Formaður er Gunnar Rafn Einars-
son til eins árs, en varaformaður
Rúnar Þór Stefánsson, Bolli Dav-
íðsson er gjaldkeri og Hrafn Hall-
grímsson ritari. Þór Þorsteins er
meðstjórnandi til eins árs og vara-
maður til jafnlangs tíma Eiður
Árnason. Endurskoðendur eru
Sighvatur Halldórsson og Sigfús
Gunnarsson og varaskoðunarmað-
ur Benedikt Antonsson.
Mörg og áhugaverð verkefni
bíða nýrrar stjórnar LÍF og sum-
hver brýn. Er ég ekki í vafa um, að
stjórnin mun valda þeim, enda val-
inn maður í hverju rúmi. Veit ég ,
að safnarar taka undir frómar ósk-
ir mínar til hennar um velfarnað í
starfi.
Í næsta þætti, sem ætlunin er að
birtist fljótlega eftir þennan þátt,
verður greint frá HAFNIU 01, al-
þjóðasýningu frænda okkar í Dan-
mörku, sem stendur fyrir dyrum í
næsta mánuði.
Frímerkjasýningin FRÍMSÝN
2001 verður haldin í Síðumúla 17 í
samvinnu við Íslandspóst hf. dag-
ana 9. - 10. október nk í tilefni
Dags frímerkisins. Sýningin verð-
ur opin frá kl. 17 - 21 báða dagana.
Safnaðarmarkaður verður hald-
inn sunnudaginn 14. okt. nk. Frá
kl. 13 - 17 í Iðnó.
Ný stjórn í Lands-
sambandi íslenzkra
frímerkjasafnara
FRÍMERKI
L a n d s þ i n g L Í F
í m a í s l .
Frímerkjaþáttur Mbl. hefur tek-
ið sér óvenjulangt sumarleyfi að
þessu sinni. Ýmislegt hefur samt
gerzt í frímerkjamálum Póstsins
og í samtökum íslenzkra frí-
merkjasafnara á liðnum mán-
uðum, sem þörf verður að minn-
ast á smám saman. Þess vegna er
rétt nú á haustdögum að snúa sér
aftur að frímerkjasöfnun okkar
og ýmsu öðru henni tengt.
Jón Aðalsteinn Jónsson
UM helgina var sérstakt
útivistarátak í gangi sem
unnið var í samstarfi Fé-
lagsþjónustunnar í
Reykjavík, Íþrótta- og tómstunda-
ráðs og lögreglunnar. Börn sem voru
úti eftir að útivistartíma þeirra lauk
og eldri börn undir áhrifum áfengis
voru flutt í sérstakt athvarf þar sem
þau biðu eftir að foreldrar sæktu þau.
Höfð voru afskipti af tugum barna
um helgina, flestum þeirra í miðborg-
inni. Þeir sem unnu að þessu voru
ánægðir með árangurinn og allir for-
eldrar sem rætt var við lýstu ánægju
sinni með átakið.
Aðfaranótt sunnudags var ölvun í
meðallagi í miðborginni og ástandið
þokkalegt. Fjórir menn voru hand-
teknir vegna ölvunar og óspekta en
fimm voru fluttir á slysadeild.
10 ökumenn grunaðir
um ölvun
Um helgina voru 10 ökumenn
grunaðir um ölvun við akstur og 11
um of hraðan akstur.
Á sunnudagmorgun varð árekstur
tveggja bifreiða á Kringlumýrar-
braut/Miklubraut. Báðir ökumenn
fundu til verkja eftir áreksturinn og
voru fluttir á slysadeild. Á föstudags-
kvöld var tilkynnt að karlmaður hafi
skollið á höfuðið framan við aðalinn-
gang BSÍ og væri meðvitundarlaus.
Maðurinn var ölvaður að stíga út úr
leigubifreið þegar hann datt. Hann
var fluttur með sjúkrabíl á slysa-
deild. Þá var tilkynnt um ölvaðan
mann í Austurstræti en hann hafði
tekið sig til og rispað mannlausa bif-
reið. Þarna var búið að rispa tvær
bifreiðir. Maðurinn var handtekinn.
Maður kvaðst hafa verið sleginn utan
við veitingastað í miðborginni
snemma á laugardagsmorgun.
Reyndist hann hafa fengið högg á
andlit og var m.a. brotin framtönn.
Hann var fluttur á slysadeild.
Ókunnugir menn voru
sofandi í íbúðinni
Á laugardagsmorgun hringdi kona
í austurborginni og sagði að hún
hefði verið að vakna og væru tveir
ókunnugir menn inni hjá henni sof-
andi. Þeim var vísað út og er ekki vit-
að hvernig þeir komust inn en þeir
voru ölvaðir og héldu að þeir væru
hjá vinkonu sinni, sem líklega á
heima á sama stigagangi.
Eftir hádegi á laugardag varð
vinnuslys við nýbyggingu í Baugs-
hlíð. Þarna var verið að hífa upp rör,
vírinn í krananum slitnaði og rörið
slóst í tvo menn. Annar þeirra fann til
eymsla í hægri fæti en hinn fann til
eymsla víðar um líkamann. Þeir voru
báðir fluttir með sjúkrabifreið á
slysadeild. Þá var tilkynnt um inn-
brot í hús í vesturbænum. Þar hafði
verið farið inn um glugga og stolið
dýru tæki.Tilkynnt var um dreng
sem hafði hjólað fram af hitaveitu-
stokki í Elliðaárdalnum þar sem
stokkurinn var um 150 cm hár.
Drengurinn mun hafa misst meðvit-
und í 2-3 mín. og fann til eymsla í
vinstra fæti. Hann var fluttur með
sjúkrabifreið á slysadeild.
Fífluðust með
Bandaríkjafána
Á laugardagskvöld var tilkynnt um
3 pilta er væru að fíflast með fána
Bandaríkja Norður-Ameríku. Pilt-
arnir fengu tiltal frá lögreglumönn-
um og lofuðu þeir að láta af fíflagang-
inum.
Dyraverðir á veitingastað í mið-
borginni óskuðu eftir lögreglu, en
þar hafði maður slegið annan í höf-
uðið með flösku. Maðurinn hlaut
áverka á eyra og augnloki. Átök urðu
á milli gesta á veitingastað í miðborg-
inni. Þar var maður sleginn í höfuðið
með glasi og skarst hann. Tilkynnt
var um átök á Laugavegi á sunnu-
dagsmorgun og að tveir lægju í valn-
um. Tveir menn voru fluttir á slysa-
deild af lögreglu en árásarmenn voru
farnir. Þá var tilkynnt um innbrot og
þjófnað úr bifreið. Stolið var stórri
verkfæratösku með talsverðu magni
af verkfærum.
Úr dagbók lögreglu, 5.–8. október
Nokkuð um slagsmál
og átök milli manna
GARÐYRKJUSKÓLI ríkisins,
Reykjum í Ölfusi stóð nýverið fyrir
tveggja daga námskeiði um
trjáumhirðu og vistfræði. Nám-
skeiðið var haldið í húsakynnum
skólans en leiðbeinendurnir komu
frá Danmörku, þeir Sten Porse og
Jens Thejsen, en þeir eru kennarar
við Dansk Center for Jordbrugs-
uddannelse (DCJ). „Um sjötíu
manns sóttu námskeiðið, sem tókst
í alla staði mjög vel. Námskeiðið
endaði á vettvangsferð til Reykja-
víkur þar sem trjágróður í kirkju-
garðinum við Suðurgötu var skoð-
aður og nokkur tré í miðborginni
en lokapunkturinn var hjá garð-
yrkjudeild Kirkjugarða Reykjavík-
urprófastsdæma í Fossvogi, þar
sem boðið var upp á veitingar og
starfsemin var kynnt,“ segir í
fréttatilkynningu.
Þátttakendur á námskeiðinu „Trjáumhirða og vistfræði“, sem haldið var á vegum Garðyrkjuskólans.
70 manns á námskeiði um
trjáumhirðu og vistfræði
NÝTT tölublað fjr.is, vefrits fjár-
málaráðuneytisins, er komið út.
Þar er fjallað um eftirfarandi mál:
1. Víðtækar umbætur í skattamál-
um.
2. Efnahagsforsendur fjárlagafrum-
varps 2002.
Vakin er athygli á því að fjármála-
ráðuneytið hefur nú hafið útgáfu út-
drátts á ensku úr vefritinu sem verð-
ur framvegis birtur á vefsíðu
ráðuneytisins á föstudögum, sam-
kvæmt því sem fram kemur í frétta-
tilkynningu.
Vefritið er á pdf-formi sem unnt er
að lesa með forritinu Adobe Acrobat
Reader, en það fæst ókeypis á vef-
fangi: http://www.adobe.com/pro-
ducts/acrobat/readstep.html
Nýtt tölublað
fjr.is
AÐALFUNDUR kjördæmis-
félags Vinstrihreyfingarinnar –
græns framboðs á Suðurlandi var
haldinn nýlega á Hótel Selfossi.
Steingrímur J. Sigfússon ávarp-
aði fundinn og gerði grein fyrir
stjórnmálaviðhorfunum í upphafi
þingtímans.
Einn stjórnarmaður baðst und-
an endurkjöri, en annars var
stjórnin endurkjörin og er Þor-
steinn Ólafsson á Selfossi formað-
ur kjördæmisfélagsins.
Fundarmenn voru sammála
um að skerpa þyrfti áherslur í
sveitarstjórnarmálum og var
ákveðið að hefja undirbúning að
framboði undir merkjum flokks-
ins eða í samstarfi við aðra í Ár-
borg og víðar í kjördæminu fyrir
sveitarstjórnarkosningarnar
næsta vor.
Bæjarmálahópur VG í Árborg
mun hefja fundaröð í þessum
mánuði og verður byrjað á því að
ræða skólamál í Árborg.
Vilja skerpa áherslur í
sveitarstjórnarmálum