Morgunblaðið - 16.10.2001, Page 27
UMRÆÐAN
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 16. OKTÓBER 2001 27
HINN 24. september sl. var þing
Evrópuráðsins sett, þar sem sæti eiga
þingmenn kjörnir af þjóðþingum
þeirra 43 Evrópuríkja, sem nú eru að-
ilar að ráðinu. Við setningu þingsins
var fórnarlamba hryðjuverkaárás-
anna í New York og Washington
minnst og síðan var lögð fram skýrsla
um aðgerðir gegn hryðjuverkum, sem
miklar umræður spunnust um. Næst-
um einn þriðji hluti þingheims var á
mælendaskrá.
Meðalhóf
Flestir þingfulltrúanna hófu mál
sitt á því að votta aðstandendum
þeirra er létust í hryðjuverkaárásun-
um og bandarísku þjóðinni allri sam-
úð og samstöðu. „Þær stundir eru fá-
ar sem snerta allan heiminn. Morðið á
John F. Kennedy var ein þeirra og at-
burðirnir 11. september 2001 eru það
líka,“ sagði Terry Davis, höfundur
skýrslunnar, við upphaf umræðn-
anna. Í máli hans og annarra kom
fram að árásunum var ekki aðeins
beint gegn Bandaríkjunum heldur
einnig gildum Evrópuráðsins, s.s. lýð-
ræði, mannréttindum og öryggi,
grundvelli frjáls og opins samfélags.
Þau gildi yrði að verja og grípa til
gagnaðgerða. Flestir voru á því að við
þær aðgerðir yrði að gæta meðalhófs,
þ.e. ekki mætti ganga lengra en nauð-
synlegt væri til að ná því markmiði
sem stefnt væri að. Í því sambandi
skipti máli hvernig tilgangurinn væri
orðaður. Vöruðu sumir þingmann-
anna við að tala um stríð og hefnd,
réttara væri að segja að tilgangurinn
væri sá að leita réttlætis. Sá tilgangur
að leita réttlætis helgaði hins vegar
ekki hvaða meðal sem
væri. Til að mynda væru
ofsóknir gegn múslím-
um og fordómar í garð
íslamskrar trúar gryfj-
ur sem varast yrði að
falla í, í kjölfar hryðju-
verkanna. Kom fram að
hugsanlega var það ein-
mitt tilgangur hryðju-
verkamannanna að
Bandaríkin og Evrópa
færu offari í gagnað-
gerðum sínum, sem yrði
til þess að íslamskir trú-
bræður sameinuðust og
það kæmi til langvar-
andi árekstra milli þess-
ara ólíku menningar-
heima.
Hryðjuverk skilgreind
Sumir þingmenn höfðu á orði að
skilgreina yrði hryðjuverk á alþjóða-
vettvangi og lögðu fleiri en einn til að
sú skilgreining yrði að vera rúm. Aðr-
ir, t.a.m. Kilclooney lávarður, sem tal-
aði um hryðjuverk af eigin reynslu, en
30 kúlur voru dregnar úr honum eftir
hryðjuverkaárás írska lýðveldishers-
ins fyrir nokkrum árum, lagði áherslu
á að skilgreiningin yrði að vera skýr.
Þannig sagði hann að hryðjuverka-
menn væru ekkert annað en „þeir
sem tækju að sér að drepa saklaust
fólk“. Hins vegar væru alltaf vafatil-
vik; voru uppreisnarmenn á Austur-
Tímor t.d. hryðjuverkamenn eða
frelsishetjur? Í sama streng tók sviss-
neski þingmaðurinn Gross, sem benti
á að ekki væru nema nokkur ár síðan
litið hefði verið á Nelson Mandela
sem hryðjuverkamann.
Allmargir þingmann-
anna hölluðust að því að
skilgreina ætti hryðju-
verk sem „glæp gegn
mannkyninu“. Hugtak-
ið „hryðjuverk“, eða
réttara sagt hið erlenda
samheiti þess, „terror-
ismi“, felur í sér orðið
„terror“ eða hræðslu.
Það er ávallt meðal
markmiða hryðju-
verkamanna að skapa
hræðslu og glundroða
og kom skýrt fram í
máli margra þing-
manna að þeim mætti
ekki takast það ætlun-
arverk sitt. Grípa yrði til aðgerða til
að skapa öryggi að nýju. Þannig sagði
þingmaður fra Kýpur að jafnvel þótt
baráttan gegn hryðjuverkum yrði
langvinn og sársaukafull yrði hún að
vinnast.
Aðgerðir gegn hryðjuverkum
Ýmsar aðrar tillögur voru um að-
gerðir gegn hryðjuverkum. Rússnesk
þingkona, Buratæva, lagði t.d. til að
endurskoða ætti alþjóðalög um
hryðjuverk og koma á alþjóðlegri ráð-
stefnu um leiðir til að vinna sameig-
inlega gegn hryðjuverkum. Hún
hvatti jafnframt þjóðþingin til að
setja lög um hertar aðgerðir gegn
hryðjuverkum.
Hryðjuverk hafa lengi átt sér stað í
Evrópu, nægir hér að nefna samtök
eins og ETA á Spáni, árásir tsjetsj-
neskra hryðjuverkamanna í Moskvu
og Baader Meinhof samtökin í Þýska-
landi. Einn þingmaðurinn benti á að
eitt af markmiðum síðastnefndu sam-
takanna hefði verið að sanna að
Þýskaland væri lögregluríki, en það
hefði mistekist því Þjóðverjar hefðu
barist gegn samtökunum á lýðræðis-
legan máta. Taldi hann og fleiri þing-
menn að gagnaðgerðir gegn hryðju-
verkum yrðu að vera lýðræðislegar.
Skiptar skoðanir voru um að hve
miklu marki ætti að takmarka mann-
réttindi, taka upp strangara útlend-
ingaeftirlit eða hefta frjálsa för fólks.
Sumum þingmannanna fannst það
vera í góðu lagi í ljósi atburðanna í
Bandaríkjunum, aðrir töldu að með
því hefðu hryðjuverkamennirnir haft
of mikil áhrif á vestræn þjóðfélög.
Margir héldu því fram að skoða
yrði vandlega ástæður fyrir hryðju-
verkum og ráðast síðan að rótum
vandans í hverju tilviki. Bent var á að
hryðjuverk væru oft fjármögnuð með
vopna-, eiturlyfja-, kvenna- og barna-
sölu, sem yrði að uppræta með öllu.
Tyrkneski þingmaðurinn Mutman
varaði þó við að allar aðgerðir gegn
hryðjuverkum væru fjárfrekar, höml-
uðu framförum og gætu skapað efna-
hagsvanda, e.t.v. enn eitt af markmið-
um hryðjuverkamannanna.
Því væri þörf á samvinnu.
Að lokum
Svör við sumum spurningum vekja
nýjar, t.d.: hvaða dómstóll á að dæma
í máli hryðjuverkamannanna þegar
þeir finnast og hvaða refsing er hæfi-
leg þeim til handa? Hvað refsingu
varðar þá hefur lengi verið barist
gegn dauðarefsingum innan Evrópu-
ráðsins. Ljóst er hins vegar að Banda-
ríkjamenn myndu dæma hryðju-
verkamennina til dauða, sbr. aftöku
hryðjuverkamannsins Timothy
McVeigh, 11. júni sl., þ.e. þess sem
sprengdi upp stjórnsýslubyggingarn-
ar í Oklahoma. Það er undarleg til-
viljun að einungis þrír mánuðir, upp á
dag, líða milli aftöku (fram til þessa)
mesta hryðjuverkamanns í sögu
Bandaríkjanna og atburðanna í New
York og Washington. Rétt er einnig
að hafa í huga að McVeigh stóð einn á
bak við sprengingarnar í Oklahoma.
Spurning er einnig hvaða dómstóll
ætti að dæma í máli hryðjuverka-
mannanna. Er það dómstóll eða dóm-
stólar í Bandaríkjunum sem koma til
með að dæma í málinu eða er þetta
mál sem kæmi fyrir hinn nýstofnaða
Alþjóðaglæpadómstól í Róm? Í því
sambandi er vert að geta að Banda-
ríkjamenn hafa ekki undirritað Róm-
arsamninginn.
Þessum og fjölmorgum öðrum
spurningum verður svarað þegar hin-
ir seku hafa fundist. Hvað sem öðru
líður þá má að lokum vel taka undir
með búlgarska þingmanninum Lo-
ufti, sem stakk upp á að 11. septem-
ber yrði gerður að alþjóðlegum minn-
ingardegi um þá sem létust í
Bandaríkjunum.
Umræður um hryðjuverk á þing-
mannasamkomu Evrópuráðsins
Ragnheiður
Jónsdóttir
Hryðjuverk
Fjölmörgum spurn-
ingum varðandi hryðju-
verk verður svarað,
segir Ragnheiður
Jónsdóttir, þegar hinir
seku hafa fundist.
Höfundur er í starfsnámi við
mannréttindadómstól Evrópu.
Á VORDÖGUM var
mér mikið hugsað til
hennar Sölku Völku og
aðbúnaðs verkafólks á
hennar tímum. Hvernig
atvinnurekendur gátu
komist upp með að
greiða lág laun og ekk-
ert þegar illa áraði til
sjávar og sveita. Ekki
var það nýafstaðið verk-
fall sjómanna sem olli
þessu, þótt margt í
þeirri umræðu minnti
þar á. Nei, ég var að
hugsa um samninga
sem leikarar Þjóðleik-
hússins samþykktu í
febrúar.
Góðir samningar
Það má reyndar margt gott segja
um þessa samninga. Stefnan í upphafi
var að koma sem mestu af laununum
inn í grunnlaun svo sem tíska er og
þannig gera heildarlaunin sýnilegri.
Með þessu móti hækkar t.d. yfir-
vinnutaxti ef einhver yfirvinna er og
jafnframt eftirlaun leikara. Ekki
slæmt hvað varðar það síðarnefnda
þar sem 6 leikarar fara á eftirlaun á
næstu 2 árum og nokkrir eru þar fyr-
ir. Eflaust má deila um hvort lokatöl-
ur hafi verið nógu góðar – það ætla ég
ekki að leggja beint mat á. Slæ því þó
fram að eftir þá hækkun, sem tekur
gildi 1. janúar á næsta ári get ég í
fyrsta skipti íhugað að þiggja stöðu
fastráðins leikara við húsið ef hún
byðist – ég og bankinn minn mundum
lifa það af.
Laun lausráðinna
Það sem mér blöskrar er sú stað-
reynd að nú eru lausráðnir leikarar
heilum níu launaflokkum neðar en
þeir fastráðnu. Fáum að vísu tvo
flokka um næstu áramót og auk þess
6% álag vegna lausráðningar. Það er
sem sagt búið að semja um að leikari
með sömu menntun, aldur og starfs-
reynslu fái ekki sama
kaup og sá við hliðina.
Þetta er sérstaklega
snautlegt þegar litið er
til þess að sá lausráðni
hefur aðeins 4 mánaða
atvinnuöryggi, en er á
sama tíma bundinn leik-
húsinu að flestu leyti.
Í stuttu máli eru ekki
lengur greidd sömu
laun fyrir sömu vinnu
og ekki tekið neitt tillit
til atvinnuöryggis hins
lausráðna starfsmanns.
Þetta er ekki bara lítið
skref aftur á bak heldur
kjaftshögg sem sendir
lausráðna leikara aftur
um tugi ára hvað launabaráttu varð-
ar.
Mér þætti gaman að sjá aðrar rík-
istofnanir, hvað þá aðila á hinum
frjálsa markaði, bjóða verkefnaráðn-
um starfsmönnum slík kjör.
Hlutur samninganefndanna
Hver er ábyrgð starfsmanna fjár-
málaráðuneytisins? Jú, þeir komu
með þá dagsskipun að heildartalan
mætti ekki fara yfir ákveðna upphæð.
Fengu hana sjálfsagt hækkaða svona
til að sýna vilja, en í lok dagsins þurfti
að skera einhvers staðar niður ef
mæta ætti kröfum leikara um laun
fastráðinna. Og fulltrúar Þjóðleik-
hússins fylgdu með.
Að sögn samninganefndar leikara
reyndu þau hvað þau gátu, fengu tvo
flokka um næstu áramót, ákváðu svo
að lengra yrði ekki náð. Þetta segjast
þau hafa kynnt leikurum til hlítar.
Miðað við hvernig atkvæðagreiðslan
fór hlýt ég að draga það í efa.
Leikarar Þjóðleikhússins
Það voru svo leikarar Þjóðleikhúss-
ins sem samþykktu. Ég ítreka; leik-
arar Þjóðleikhússins – það er, aðeins
þeir sem voru þar að störfum á þess-
um tíma.
Þar af voru lausráðnir leikarar að-
eins 6.
Í síðustu samningum ákváðu leik-
arar Þjóðleikhússins að nýta sér ný
lög sem heimiluðu starfmannafélög-
um yfir ákveðinni stærð að kljúfa sig
út úr heildarsamningum BSRB. Gera
sjálfstæðan samning sem þótti nauð-
synlegt þar sem erfitt getur verið að
samræma 9-5 samninga við starf leik-
arans. Til að þetta væri mögulegt
þurftu lausráðnir leikarar, sem áður
nutu forystu Félags íslenskra leikara,
að ganga í hið nýstofnaða Leikara-
félag Íslands, þ.e.
félag leikara innan Þjóðleikhúss-
ins, svo fjöldi félaga LÍ næði tilsettu
lágmarki. Okkur í deild lausráðinna
leikara hjá FÍL fannst þetta sjálfsagt
ef þannig mætti ná betri heildarkjör-
um fyrir alla. Það sem við áttuðum
okkur ekki á var að við þessa breyt-
ingu hafa okkar félagsmenn ekkert
um samninga að segja, að frátöldum
þeim fáu sem starfa við leikhúsið þá
stundina þegar samningur er borinn
undir atkvæði.
Og leikarar Þjóðleikhússins sam-
þykktu þennan hræðilega samning.
Við þökkum stuðninginn!
Hvað er til ráða?
Mest lítið. Þar sem þessir samn-
ingar voru samþykktir af til þess
bærum aðilum geta lausráðnir leik-
arar lítið gert. Lögin eru skýr þar um
og við verðum einfaldlega að bíða
næstu þrjú árin. Punktur.
Við verðum að bíða með bundnar
hendur og safna í sarpinn fyrir næstu
átök.
Þar munu lausráðnir leikarar von-
andi endurheimta samningsrétt sinn
– og ekki bara hjá Þjóðleikhúsinu, því
svipað vandamál er til staðar hjá
Leikfélagi Reykjavíkur. Þar eru að
vísu sömu laun greidd fyrir sömu
vinnu, en ekkert álag vegna lausráðn-
ingar og einungis félagar í LA hafa
atkvæðisrétt.
Reyndar er örlítið atriði í þessum
samningum þjóðleikhússleikara sem
getur hjálpað til. Það er einmitt helsta
tilefni þessara skrifa minna.
Þjóðleikhússtjóra var gefið það
vald að geta samið sérstaklega við
einstaka leikara um hærri laun. Innan
ákveðins fjárlagaramma. Líklega er
þetta nú ætlað til þess að þjóðleikhús-
stjóri geti haldið í sínar helstu stjörn-
ur og við skulum ekki ímynda okkur
að „aumur aukaleikari“ geti farið
sjálfur fram á að njóta góðs af. Þess
vegna sendi ég eftirfarandi áskorun:
Áskorun
Stefán Baldursson, þjóðleikhús-
stjóri.
Þessir starfsmenn gera Þjóðleik-
húsinu kleift að bjóða upp á mun öfl-
ugra leikhús en fjárhagsáætlun gæfi
húsinu með fastráðna leikara ein-
göngu. Ég skora á þig að sýna laus-
ráðnum leikurum við Þjóðleikhúsið
þá virðingu að bjóða þeim sömu laun
og fastráðnum hið minnsta.
Ég skora á þig, Geir H. Haarde, að
veita þjóðleikhússtjóra það fjárhags-
lega svigrúm sem þarf til að mæta
þessu. Hér er um sáralitlar upphæðir
að ræða, en smánarblett á einni
helstu menningarstofnun landsins.
Áskorun til þjóðleikhússtjóra
og fjármálaráðherra
Vilhjálmur
Hjálmarsson
Kjaramál
Það sem mér blöskrar
er sú staðreynd, segir
Vilhjálmur Hjálm-
arsson, að nú eru laus-
ráðnir leikarar heilum
níu launaflokkum neðar
en þeir fastráðnu.
Höfundur er leikari og fleira og
stjórnarmaður í deild lausráðinna
leikara hjá FÍL.
BROSTE - HAUST 2001
Blómaverkstæði Betu, Hafnarf.
Huggulegt
heima....
er heitast
í dag
M O N S O O N
M A K E U P
litir sem lífga