Morgunblaðið - 03.11.2001, Blaðsíða 21

Morgunblaðið - 03.11.2001, Blaðsíða 21
VIÐSKIPTI/ATHAFNALÍF MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 3. NÓVEMBER 2001 21 MIÐHRAUN 11 535 6600 FAXAFEN 12 588 6600 LÆKJARGATA 4 561 6800 GLERÁRGATA 32 461 3017 Að geta leikið sér úti í vetur... ...er mikið hitamál hjá krökkum N O N N I O G M A N N I • 0 4 5 8 2 • sía TAP Húsasmiðjunnar hf. fyrstu níu mánuði ársins 2001 nam 24,7 milljón- um króna og samkvæmt tilkynningu frá félaginu stafar tapið fyrst og fremst af gengistapi að upphæð 417,1 milljón króna vegna skuldbindinga fé- lagsins í erlendri mynt. Að öðru leyti var reksturinn á tímabilinu í ágætu samræmi við rekstraráætlun. Tap félagsins fyrstu sex mánuði ársins nam 161,4 milljónum króna. Rekstrartekjur Húsasmiðjunnar hf. námu 6.762 milljónum króna fyrstu níu mánuði ársins og rekstrargjöld tímabilsins námu 6.112 milljónum króna. Hagnaður fyrir afskriftir og fjármagnsgjöld var 650,3 milljónir króna, eða sem svarar til 9,6% af rekstrartekjum. Fram kemur í tilkynningu félags- ins að varúðarniðurfærsla viðskipta- krafna er aukin um 43 milljónir króna frá síðastliðnum áramótum og var upphæð hennar í lok tímabilsins 110 milljónir króna. Á tímabilinu voru af- skrifaðar viðskiptakröfur að upphæð 25,8 milljónir króna. Fjármunatekjur námu 387,2 milljónum króna og fjár- magnsgjöld 432,3 milljónum. Sem fyrr segir nam gengistap 417,1 milljón króna og hrein fjár- magnsgjöld á tímabilinu námu um 437,3 milljónum króna. Áhrif fyrir- hugaðrar lækkunar tekjuskatts úr 30% í 18% um næstkomandi áramót á tekjuskattsskuldbindingu félagsins eru ekki sýnd í uppgjörinu, en í til- kynningu félagsins segir að gangi framangreindar breytingar eftir megi reikna með að í ársuppgjöri 2001 komi fram um 140 milljóna króna tekjufærsla vegna þeirra. Eigið fé Húsasmiðjunnar hf. nam 3.096 milljónum króna hinn 30. sept- ember síðastliðinn og hafði það hækk- að um 138 milljónir króna frá 30. júní síðastliðnum. Eiginfjárhlutfall var 31,2% í lok tímabilsins. Veltufé frá rekstri nam 548,4 milljónum króna. Viðskiptakröfur hækka um 976 millj- ónir króna frá áramótum, en hækkun viðskiptakrafna nam um 946 milljón- um króna fyrstu sex mánuði ársins og hefur því verulega dregið úr vexti þeirra. Vörubirgðir voru um 1.750 milljónir króna í lok tímabilsins og höfðu lækkað um 209 milljónir frá 30. júní síðastliðnum. Vörubirgðir í upp- hafi árs voru um 1.342 milljónir króna. Þrátt fyrir áframhaldandi veikingu íslensku krónunnar og töluverða óvissu um ýmsa aðra þætti er áhrif hafa á afkomu Húsasmiðjunnar hf. er stefnt að því að hagnaður verði á starfsemi félagsins á árinu í heild, að því er fram kemur í tilkynningu fé- lagsins. Rekstur Húsa- smiðjunnar í sam- ræmi við áætlun REKSTRARTEKJUR Guðmundar Runólfssonar hf. á tímabilinu jan- úar–sept. 2001 námu alls 750 millj- ónum króna. Að meðtöldum inn- lögðum eigin afla og veiðafærasölu til eigin nota nam heildarvelta fé- lagsins 989 milljónum króna. Hagnaður fyrirtækisins fyrir af- skriftir og vexti var 204,6 milljónir króna sem eru 27,3% af veltu. Veltufé frá rekstri er 122 milljónir króna. Samkvæmt rekstrarreikn- ingi nam tap tímabilsins 14,3 millj- ónum króna. Gengistap félagsins var 246 milljónir og skýrir það aukningu í fjármagnsgjöldum. Verkfall sjó- manna hafði neikvæð áhrif á rekst- ur félagsins. Tekjuskattsskuld- binding nemur 145 milljónum kr. í lok september 2001. Bókfært eigið fé í lok tímabilsins nam 407,1 millj- ón króna en þar af nemur hlutafé 137,4 milljón króna. Eiginfjárhlut- fall í lok tímabilsins var 17,25%. Meðalfjöldi starfa á tímabilinu var 100 og launagreiðslur og launa- tengd gjöld 228,7 milljónir. Tapið 14,3 milljónir Guðmundur Runólfsson hf.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.