Morgunblaðið - 03.11.2001, Blaðsíða 25

Morgunblaðið - 03.11.2001, Blaðsíða 25
ERLENT MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 3. NÓVEMBER 2001 25 Ericsson T39m „MÓNA Lísa brúnna“, sem end- urreisnarmaðurinn Leonardo da Vinci teiknaði fyrir 500 árum, er nú risin í Noregi þótt gagnrýn- endur listamannsins hafi á sínum tíma þvertekið fyrir, að smíðin gæti gengið upp. Leonardo teiknaði brúna árið 1502 og þá var fyrirhugað, að hún spannaði Gullna hornið, fjörð, sem gengur inn úr Hellu- sundi vestanverðu og myndar innri höfnina í Istanbúl. Átti hún að vera 346 metra löng, lengsta brú í heimi á þeim tíma, en Baja- zet II soldán trúði því ekki, að mannvirkið gæti staðið undir sjálfu sér. Nú er þetta sama mannvirki risið sem göngubrú yfir E-18- þjóðbrautina í Ási fyrir sunnan Ósló en að vísu ekki nema 100 metra langt og átta metra hátt. Er hún úr timbri og hvílir á þremur límtrésbogum, sem liggja langsum undir brúnni. „Þetta er í fyrsta sinn sem ein- hverjum af byggingar- eða verk- fræðilegum hugmyndum Leon- ardos er hrint í framkvæmd. Af þeim hafa verið gerð líkön en ekki mannvirki í fullri stærð,“ segir norski listamaðurinn Ve- bjørn Sand en hann segist hafa orðið hugfanginn af brúnni er hann sá líkan af henni 1995. „Það bara varð að smíða þessa brú.“ Sand tókst að sannfæra ráða- menn í samgönguráðuneytinu um, að brúarsmíðin væri gerleg, en upphaflega vildi hann, að hún yrði úr steini. Það hefði þó orðið mjög dýrt en kostnaður við tré- brúna er um 142 milljónir ísl. kr. Í tilefni af smíðalokunum efndi Sand til veislu, sem hófst á þriðjudagskvöld og stóð síðan í alla fyrrinótt og fram á gærdag- inn er Sonja drottning vígði brúna. AP Leonardo-göngubrúin í Ási fyrir sunnan Ósló afhjúpuð. Við vígsluna voru stórir kranar notaðir við að svipta tjöldunum af henni. „Móna Lísa brúnna“ vígð Ósló. AP. EINKAFYRIRTÆKI undir for- ystu prófessorsins Kåre Berg hefur sótt um leyfi til að setja á fót gagnagrunn, sem hefði að geyma erfðaupplýsingar um rúmlega eina milljón Norð- manna. Skiptar skoðanir eru í Noregi um réttmæti slíkra gena- banka. Kåre Berg er prófessor í genalækningum við háskólann í Ósló og gegndi þar til nýlega yf- irlæknisstöðu við sjúkrahúsið í Ullevål. Fyrirtæki hans, Genova, hefur sótt um leyfi hjá norskum persónuverndaryfirvöldum til að kortleggja gen íbúa í Hedmark, Oppland og Buskerud. Samþykki íbúar þátttöku verða tekin úr þeim blóðsýni og ítarlegar heilsufarsupplýsingar skráðar í gagnagrunn Genova. Markmið fyrirtækisins er að varpa ljósi á orsakir ýmissa sjúkdóma og í framhaldinu að þróa lyf við þeim. Gera má ráð fyrir að hlutar verkefnisins verði unnir í samvinnu við opinbera heilbrigðiskerfið, en Genova mun samt sem áður hafa einkarétt á niðurstöðum rannsóknanna og hljóta allan arð af þeim. Í frétt Aftenposten á miðviku- dag segir að fyrirætlanir Genova séu sambærilegar við starfsemi deCODE á Íslandi. Hugmyndir Bergs hafa hlotið blendnar viðtökur í Noregi. Aftenposten hefur í gær eftir heilbrigðisráðherra Noregs, Dagfinn Høybråten, að hann hafi ekki farið yfir umsókn Genova og geti því ekki tjáð sig um hana að svo stöddu. Ráðherrann segir þó ljóst að þörf sé á að endur- skoða lög og reglugerðir á þessu sviði. Ýmsar spurningar um réttmætið Høybråten segir að almennt vakni ýmsar spurningar um rétt- mæti þess að einkaaðilar nýti sér opinberar heilbrigðisupplýsing- ar, en kveðst vera opinn fyrir samstarfi við einkafyrirtæki að vissum skilyrðum uppfylltum. Geir Stene-Larsen, forstöðu- maður norsku lýðheilsustofnun- arinnar, er öllu neikvæðari og segir það alvarlegt umhugsunar- efni ef einkafyrirtæki eigi að fá einkarétt á svo víðtæku rann- sóknasviði. „Stórir hlutar hinnar opinberu heilbrigðisþjónustu hljóta að tengjast verkefninu og því ætti hið opinbera einnig að hafa einkaréttinn á niðurstöðun- um. Um er að ræða sameiginleg- an arf þjóðarinnar sem ætti að koma samfélaginu til góða,“ seg- ir Stene-Larsen. Hann kveðst telja að upplýsingar um erfða- efni eigi best heima í opinberum skrám, en viðurkennir að ef Norðmenn séu reiðubúnir að veita einkafyrirtæki blóðsýni úr sér geti enginn meinað þeim það. Deilt um rétt- mæti gena- banka í Noregi
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.