Morgunblaðið - 03.11.2001, Síða 37
UMRÆÐAN
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 3. NÓVEMBER 2001 37
SELTIRNINGAR
standa nú frammi fyr-
ir þeirri staðreynd að
í lok þessa kjörtíma-
bils lætur Sigurgeir
Sigurðsson af störfum
eftir farsælan og ein-
stakan feril sem
spannar 37 ár í bæj-
arstjórnarstólnum en
í heildina hefur hann
komið í 40 ár að sveit-
arstjórnarmálum.
Mikið vatn hefur
runnið til sjávar á
þessum tíma í sögu
Seltjarnarneskaup-
staðar þar sem hröð
og metnaðarfull upp-
bygging hefur átt sér stað, eigin
hitaveita hefur komist á laggirnar
og bærinn varð jafnframt fyrstur
til þess að einsetja skólana í þétt-
býli. Þrátt fyrir að Sigurgeir láti
af störfum mun sólin halda áfram
að skína á Seltjarnarnesi og mark-
mið sjálfstæðismanna á Nesinu að
halda áfram að vinna ötullega að
hagsmunum bæjarbúa eins og
uppbygging í bænum ber vitni um.
Íbúar Seltjarnarneskaupstaðar eru
í grundvallaratriðum sammála um
hvað myndar kjarna samfélagsins
á Nesinu og hverjar áherslurnar
eiga að vera. Þær einkennast með-
al annars af því að fjölskyldan sé í
fyrirrúmi þar sem skóla- og leik-
skólastarfið er gott, virku æsku-
lýðs- og íþróttastarfi auk þess sem
virðing er borin fyrir þörfum
þeirra eldri. Jafnhliða því þarf
rekstur bæjarins að vera skilvirk-
ur og endurspeglast það í lágum
álögum á íbúana og eignir þeirra.
Nokkur grundvallaratriði standa
samt út af borðinu, ber þar fyrst
að nefna að tekist hefur að verja
sérstöðu og sjálfstæði bæjarfélags-
ins sem hefur lagað þjónustukerfi
sitt að þörfum bæjarbúanna. Í
öðru lagi er einstakt náttúrufar og
lífríki á Seltjarnarnesi þar sem
ósnortin strandlengjan hefur feng-
ið að njóta sín og svo hlýtur að
vera krafan áfram og hafna öllum
áformum um aukna íbúðarbyggð
með landuppfyllingum sem kunna
að raska viðkvæmri náttúru. Nátt-
úrugæðin á Nesinu eru ekki færð
til bókar eða eru þeim gerð reikn-
ingsleg skil og okkur leyfast ekki
nein mistök þegar að framkvæmd-
um kemur. Ég mun verða í fylk-
ingarbrjósti þeirra sem segja nei
við því að náttúran á Nesinu verði
fótum troðin.
Skipulagsmálin á Seltjarnarnesi
bera þess merki að
landgæði eru af
skornum skammti og
því miður hefur ekki
alltaf lánast að gera
öllum til hæfis. Nú
þegar skipulagning
Hróflsskálamelsins
stendur fyrir dyrum
gera bæjarbúar þá
kröfu að vel takist til
enda staðurinn nánast
miðpunkturinn í bæn-
um með tengingu við
skólana, íþróttamið-
stöðina og aðrar
stofnanir bæjarins. Í
þéttleika byggðar á
Seltjarnarnesi eru
líka fólgnir möguleikar á breið-
bandsvæðingu og mikilvægt er að
næsta bæjarstjórn leiti leiða til
þess að Seltjarnarnesbær taki for-
ystu í upplýsingatækninni enda
allar forsendur til þess.
Í öllum bæjarfélögum hefur fé-
lagsheimilið verið hornsteinn sam-
félagsins þegar að menningar- og
félagslífinu kemur og rétt að
benda á að á næsta ári rennur út
leigusamningur um rekstur félags-
heimilisins sem hefur verið í út-
leigu. Brýnt er að Seltirningar
endurheimti félagsheimilið og nái
þannig að skapa fjölmörgum fé-
lögum og menningarstarfsemi á
Nesinu aðstöðu til framtíðar.
Oft hefur verið talað um að Sel-
tjarnarnes sé draumabæjarfélagið
og eftirsóknarvert að komast inn í
gegnum „gullna hliðið“ og setjast
þar að. Svo mun verða áfram enda
hefur sjálfstæðismönnum á Sel-
tjarnarnesi tekist að hámarka hag
bæjarbúa með ábyrgum rekstri og
skilningi á þörfum íbúanna og fyr-
ir því mun ég beita mér áfram.
Sólarmegin með
Sigurgeiri
Guðmundur Helgi
Þorsteinsson
Prófkjör
Ég mun segja nei við
því, segir Guðmundur
Helgi Þorsteinsson, að
náttúran á Nesinu verði
fótum troðin.
Höfundur er framkvæmdastjóri og
gefur kost á sér í 4. sæti í prófkjöri
sjálfstæðismanna á Seltjarnarnesi.
Prófkjör
Prófkjör sjálfstæðismanna á Seltjarnarnesi fer fram
í dag 3. nóvember og birtast hér greinar af því tilefni.
Greinarnar eru ennfremur birtar á mbl.is.
Í DAG halda sjálf-
stæðismenn á Seltjarn-
arnesi opið prófkjör í
aðdraganda sveitar-
stjórnarkosninga.
Fimmtán einstaklingar
eru í kjöri. Sem bæjar-
fulltrúa og forseta bæj-
arstjórnar er það mér
ánægjuefni að svo
margir hæfir einstak-
lingar séu reiðubúnir að
leggjast á eitt til að efla
hag bæjarins enn frek-
ar. Tel ég víst að í kjör-
inu verði valinn sigur-
stranglegur listi, sem
líklegur er til afreka
fyrir hönd bæjarbúa á
nýju kjörtímabili. Hef ég ákveðið að
gefa kost á mér í 1. sæti listans og
leita eftir umboði kjósenda til að leiða
hinn glæsilega hóp frambjóðenda í
kosningabaráttunni í vor.
Seltjarnarnes er gjarnan talið til
best reknu bæjarfélaga landsins og
jafnframt hinna eftirsóttustu. Megin-
skýringin er að bæjaryfirvöldum hef-
ur ávallt tekist að veita íbúum fyrsta
flokks þjónustu án þess að íþyngja
þeim um of með álögum. Meginverk-
efni nýrrar bæjarstjórnar verður að
treysta hina sterku stöðu. Á sama
tíma og við höfum metnaðarfulla
framtíðarsýn verðum við að tryggja
að hér séu skattar á íbúa þeir lægstu á
höfuðborgarsvæðinu. Á bæjarfulltrú-
um hvílir sú skylda að nýta skattfé
okkar með ábyrgum og árangursrík-
um hætti og gera enn betur með
minni tilkostnaði.
Það felst mikill ávinningur í því að
áfram verði jafneftirsótt að búa á Sel-
tjarnarnesi, ekki síst í ljósi fasteigna-
verðs, sem oft og tíðum endurspeglar
drjúgan hluta af sparn-
aði fólks. Þegar staðan
er góð er mikilvægt að
halda í horfinu, en við-
leitnin hlýtur þó ávallt
að vera, að gera betur,
vera gagnrýnin á eigin
frammistöðu.
Í stjórnmálum leggur
fólk gjarnan sérstaka
rækt við einstaka mála-
flokka, svo sem skóla,
umhverfi, skipulag,
þjónustu við aldraða,
íþróttastarf og svo
framsvegis. Ég er engin
undantekning en þegar
fólk gefur kost á sér til
forystu fylgir sú krafa
að það sé vakandi fyrir brýnum verk-
efnum á öllum sviðum og gæti þess að
eðlilegt jafnvægi sé á milli mála-
flokka. Forystumaður er trúr sann-
færingu sinni en ber einnig að vera
talsmaður allra bæjarbúa og allra
brýnna verkefna og hafa dómgreind
til að greina á milli mikilvægis ein-
stakra mála og hæfni til að forgangs-
raða verkefnum með heill umbjóð-
enda sinna og bæjarsjóðs að
leiðarljósi.
Metnaður og ábyrgð
Hlutverk forystumanns er einnig
að takast á við pólitíska andstæðinga
og leiða samverkafólk sitt til sigurs í
kosningum. Traust staða Sjálfstæðis-
flokks á Seltjarnarnesi er ekki sjálf-
gefin. Hún byggist á dómi kjósenda
um frammistöðu okkar sjálfstæðis-
manna í bæjarstjórn og baráttunni í
aðdraganda kosninga.
Metnaður og ábyrgð eru lykilhug-
tök sem ég vil að einkenni bæjarfélag-
ið okkar. Metnaðurinn felst í því að
gera Seltjarnarnesið að enn betri bæ
fyrir okkur öll. Ábyrgðin felst í þeirri
virðingu sem við auðsýnum verðmæt-
um, hvort sem þau eru mannleg, um-
hverfisleg eða fjármunir.
Ég hvet alla Seltirninga til þátt-
töku í opnu prófkjöri sjálfstæðis-
manna í dag og nýta þar með gott
tækifæri til að hafa áhrif á framtíð
okkar allra.
Sýnum metnað
og ábyrgð
Jónmundur
Guðmarsson
Höfundur er forseti bæjarstjórnar
Seltjarnarness og gefur kost á sér í
1. sæti í prófkjöri sjálfstæðismanna.
Seltjarnarnes
Á bæjarfulltrúum hvílir
sú skylda, segir Jón-
mundur Guðmarsson,
að nýta skattfé okkar
með ábyrgum og árang-
ursríkum hætti.
ÉG STYÐ Ásgerði Halldórs-
dóttur í fyrsta sæti í prófkjöri sjálf-
stæðismanna á Seltjarnarnesi.
Ég hef kynnst
störfum hennar fyrir
Gróttu undanfarin ár
og hrifist af dugnaði
hennar. Hún hefur
einnig lagt áherzlu á
að hjúkrunarheimili
verði reist á Sel-
tjarnarnesi og er því
bæði málsvari æsk-
unnar og eldri borgara á Nesinu.
Ég styð Ásgerði
Meyvant Meyvantsson, bifreiðastjóri,
skrifar:
Meyvant
Meyvantsson
www.isb.is
Hundrað heppnir muggar
Nú leikur lukkan vi› 100 lesendur Harry Potter
bókanna. Dregi› hefur veri› úr töfrahattinum
sem geymdi nöfn fleirra sem fyrir ári keyptu
Harry Potter og fangann frá Azkaban í forsölu
í hra›bönkum Íslandsbanka e›a á hagkaup.is.
Hinir heppnu fá nú a› gjöf n‡ju bókina, Harry Potter og
eldbikarinn, og geta sótt hana í Íslandsbanka á Kirkjusandi
e›a haft samband vi› næsta útibú Íslandsbanka.
Nöfn vinningshafanna er a› finna á isb.is
og óskum vi› fleim til hamingju!
vinna nýjustu bókina
ÞAÐ hefur verið lán okkar Sel-
tirninga að um áratugaskeið hefur
Sjálfstæðisflokkurinn haldið hér um
stjórnartaumana.
Mikilvægt er að þar
verði framhald á eft-
ir næstu kosningar.
Samkvæmt sam-
þykkt fulltrúaráðs
mun leiðtogi listans
jafnframt verða
bæjarstjóraefni
flokksins. Ungur og
framúrskarandi dugmikill núverandi
forseti bæjarstjórnar, Jónmundur
Guðmarsson, hefur gefið kost á sér í
fyrsta sætið. Það er mikið fagnaðar-
efni öllum þeim sem fylgst hafa með
bæjarmálum á undanförnum árum.
Sem formaður skólanefndar hefur
hann leitt hið mikla og jákvæða
skólastarf bæjarins. Sem bæj-
arfulltrúi hefur hann sett sig inn í
þau fjölmörgu mál sem koma til
kasta á þeim vettvangi. Eitt af þeim
eru málefni aldraðra. Þar er honum
heiður að hafa tryggt, ásamt öðrum
bæjarfulltrúum meirihlutans, að
byggingarreit í landi Ness var út-
hlutað til hjúkrunarheimilis fyrir
aldraða og sjúka Seltirninga. Þessi
ákvörðum ber vitni um réttsýni, ein-
urð og kjark.
Þarf frekari vitna við? Tryggjum
Jónmundi fyrsta sætið í dag, það
yrði gæfuspor.
Jónmundur –
sannur baráttu-
og drengskap-
armaður
Magnús Erlendsson, fyrrv. forseti bæj-
arstjórnar Seltjarnarnes, skrifar:
Magnús
Erlendsson
Meira á netinu