Morgunblaðið - 03.11.2001, Qupperneq 38
UMRÆÐAN
38 LAUGARDAGUR 3. NÓVEMBER 2001 MORGUNBLAÐIÐ
„HANA verðum við að kjósa,“ var
það fyrsta sem mér datt í hug þegar
ég heyrði að Ásgerður Halldórsdóttir
gæfi kost á sér í fyrsta sæti fyrir bæj-
arstjórnarkosningar
næsta vor. Af þeim
sökum er mér það
einstaklega ljúft að
hvetja alla sem kjósa
í prófkjöri sjálfstæð-
ismanna á Seltjarn-
arnesi í dag að veita
Ásgerði stuðning
sem okkar bæj-
arstjórnarefni.
Ástæða þess að ég styð eindregið
Ásgerði í fyrsta sæti er einföld. Ég
hef ekki aðeins reynt Ásgerði að
fjölda þarfra verka í þágu bæj-
arfélagsins. Ásgerður lætur verkin
tala og þau eru hvorki fá né smá,
hvort heldur litið er til stjórnmála, fé-
lagsmála eða íþrótta- og æskulýðs-
mála, svo dæmi séu nefnd.
Eins og gefur að skilja, er útsjón-
arsemi og ábyrg fjármálastjórn frum-
forsenda þess að málum verði komið
á skrið. Einn helsti styrkur Ásgerðar
liggur einmitt á þessu sviði.
Það eru því ekki aðeins verkin sem
mæla með Ásgerði í fyrsta sæti, held-
ur fyrst og síðast hún sjálf.
Fylkjum liði
um Ásgerði!
Þorkell Helgason atvinnurekandi skrifar:
Þorkell
Helgason
Meira á netinu
AÐ ÁSGERÐUR Halldórsdóttir
hafi gefið kost á sér í fyrsta sæti
til bæjarstjórnar er, að mínu mati,
mikill fengur fyrir
okkur Seltirninga.
Þarna er á ferð ein-
staklega vönduð
kona, sem heillar
auðveldlega þá sem
hún kynnist með
dugnaði sínum og
þor.
Fáum get ég
treyst betur til þessa vandasama
starfs en Ásgerði Halldórsdóttur.
Þau fjölmörgu trúnaðarstörf sem
hún hefur leyst óaðfinnanlega af
hendi á undanförnum 15 árum,
sýna það og sanna, að Ásgerður
hefur allt til brunns að bera sem
prýða þarf farsælan stjórnanda.
Ástæða þess að sumum farast
erfið og vandasöm stjórnunarstörf
auðveldar úr hendi en öðrum, er
eðli málsins vegna ekki auðfundin.
Hvað Ásgerði varðar, held ég þó
að hárfín geta hennar til að greina
hismið frá kjarnanum, ásamt ein-
stökum hæfileika til að laða fólk
til samstarfs við sig, geri gæfu-
muninn. Gagnvart mér ríkir því
enginn vafi á því að Ásgerður er
kjörin sem næsti bæjarstjóri Sel-
tjarnarness.
Kjósum Ásgerði
sem bæjarstjóra
Margrét Kristjánsdóttir framkvæmdastjóri
skrifar:
Margrét
Kristjánsdóttir
Meira á netinu
JÓNMUNDUR Guðmarsson,
stjórnmálafræðingur og forseti bæj-
arstjórnar, gefur nú kost á sér í
fyrsta sæti listans.
Þar er á ferðinni ein-
stakur hæfi-
leikamaður, sem hef-
ur þrátt fyrir ungan
aldur aflað sér víð-
tækrar reynslu, sem
ómetanleg er í for-
ystustörfum á sviði
stjórnmála. Þar fer
saman traust menntun, fjölbreytt
reynsla af stjórnunarstörfum, bæði
úr opinbera geiranum og einka-
rekstri, og síðast en ekki síst víðtæk
þekking á stjórnmálum, bæði sveit-
arstjórnamálum og landsmálum.
Hann hefur starfað sem deild-
arstjóri í menntamálaráðuneytinu,
aðstoðarmaður menntamálaráð-
herra, framkvæmdastjóri hugbún-
aðarfyrirtækis í alþjóðlegu sam-
keppnisumhverfi og nú að
undanförnu sem fjárfestingastjóri
Íslenska hugbúnaðarsjóðsins. Á
kjörtímabilinu, sem nú er að líða,
hefur hann verið bæjarfulltrúi, for-
maður í mikilvægum nefndum á veg-
um bæjarins og nú að undanförnu
forseti bæjarstjórnar. Það er vart
hægt að hugsa sér betri undirbúning
og bakgrunn fyrir ungan mann til
forystustarfa í stjórnmálum.
Ég skora á Seltirninga að veita
honum góðan stuðning í fyrsta sætið
í prófkjörinu í dag.
Jónmund í
fyrsta sætið
Brynhildur Þorgeirsdóttir
viðskiptafræðingur skrifar:
Brynhildur
Þorgeirsdóttir
Meira á netinu
AUGLÝSINGAR og málflutn-
ingur Ásgerðar og hennar stuðn-
ingsmanna um að Seltirningar séu
með því að kjósa
hana að velja næsta
bæjarstjóra er al-
rangur. Verið er að
velja fólk í framboð
til næstu sveit-
arstjórnarkosninga.
Kjósendur eru ekki
eyrnarmerktar roll-
ur í réttum. Ég hef
stutt Sjálfstæðisflokkinn hér um
áratuga skeið, en ef hann fer að
telja mig eign sína áskil ég mér
þau mannréttindi að skipta um
skoðun. Svona hroki gerir illt og
fer fyrir brjóstið á flestum. Sjálf-
stæðisflokkurinn á ekki neinn held-
ur fær hann umbun fyrir frammi-
stöðu sína sem hefur verið góð á
síðustu árum. Hastarlegt er að
þurfa að minna frambjóðandann á
þessa sjálfsögðu staðreynd. Svona
málflutningur er varasamur og vel
ég því hinn frambjóðandann, Jón-
mund Guðmarsson, sem er aðeins
frambjóðandi í prófkjöri og telur
sig þurfa að vinna fyrir bæj-
arstjórastarfinu.
Seltirningar
eru ekki að velja
bæjarstjóra
Erlendur Á. Garðarsson, markaðsstjóri
og sjálfstæðismaður á Seltjarnarnesi,
skrifar:
Erlendur Á.
Garðarsson
ÁSGERÐUR Halldórsdóttir á
að baki glæstan feril innan
íþrótta, stjórnmála og æskulýðs-
og félagsmála. Enn
á ný lætur hún að
sér kveða og í þetta
sinn í prófkjöri
sjálfstæðisflokksins
á Seltjarnarnesi
sem fram fer í dag.
Verkin tala fyrir
Ásgerði. Það er
engin tilviljun að
starf sjálfstæðisfélagsins á Sel-
tjarnarnesi var aldrei virkara en
einmitt þegar Ásgerður gegndi
þar formennsku, sem gaf m.a. af
sér að sjálfstæðismenn bættu við
sig einum bæjarfulltrúa í for-
mennskutíð hennar. Og það er
heldur engin tilviljun að hún var
valin til þess vandasama verks að
leiða kjördæmaráð Sjálfstæð-
isflokksins í hinu nýja Suðvest-
urkjördæmi í gegnum fyrstu
starfsár þess. Þegar vandasöm
trúnaðarstörf eru annars vegar
treystum við Ásgerði. Það er því
engin tilviljun að við styðjum Ás-
gerði í fyrsta sætið.
Verkin tala
fyrir Ásgerði
í fyrsta sæti!
Hildur Jónsdóttir landfræðingur skrifar:
Hildur
Jónsdóttir
Meira á netinu
Í DAG fer fram opið prófkjör
Sjálfstæðisflokksins á Seltjarn-
arnesi. Fyrir bæjarbúa, jafnt flokks-
bundna sjálfstæð-
ismenn og ekki síður
óflokksbundna,
skiptir miklu máli að
geta haft áhrif á
hvaða einstaklingar
veljast til forystu í
bæjarmálunum.
Reynslu, þekk-
ingu, stefnufestu,
heiðarleika og traust tel ég mik-
ilvæga eiginleika. Fyrir leiðtoga er
einnig nauðsynlegt að geta tekið yf-
irvegaðar og rökstuddar ákvarðanir
með langtímahagsmuni heildarinnar
að leiðarljósi. Kynni mín af Jón-
mundi Guðmarssyni hafa sannfært
Jónmund til
forystu á
Seltjarnarnesi
Auður Hafsteinsdóttir fiðluleikari skrifar:
Auður
Hafsteinsdóttir
mig um að hann er þessum kostum
búinn og réttur maður til að skipa
efsta sæti lista Sjálfstæðisflokksins.
Jónmundur hefur fjölbreytta
starfsreynslu og góða menntun sem
hann hlaut bæði hérlendis og erlend-
is. Jónmundur hefur verið virkur
þátttakandi í bæjarmálum á Sel-
tjarnarnesi og setið í bæjarstjórn á
kjörtímabilinu sem nú er að líða.
Hann er kraftmikill baráttumaður,
sem þorir að standa við sannfæringu
sína, en á jafnframt gott með að ná
til kjósenda og ávinnur sér traust
þeirra með sanngirni og málefna-
legum málflutningi. Hið sama á við
um störf hans í bæjarstjórn, þar sem
hann hefur óhikað tekið að sér mik-
ilvæg og stundum erfið verkefni og
jafnan leyst þau vel af hendi.
Ég skora því á Seltirninga að
tryggja örugga kosningu Jónmund-
ar í 1. sæti listans í dag og þar með
að hæfileikar hans nýtist bæj-
arbúum á sem bestan hátt.
Í DAG, laugardag, er
opið prófkjör hjá Sjálf-
stæðisflokknum á Sel-
tjarnarnesi.
Í prófkjörinu veljum
við þá einstaklinga sem
koma til með að skipa
framboðslista Sjálf-
stæðisflokksins í sveit-
arstjórnarkosningum á
vori komandi. Ljóst er
að nokkrar breytingar
munu verða á listanum
frá núverandi kjör-
tímabili þar sem þrír af
fimm bæjarfulltrúum
gefa ekki kost á sér til
áframhaldandi setu og
því ríður á að vanda
valið og hugsa vel hverjum við
treystum best til að stjórna bæjar-
félaginu. Ég hvet því sem flesta Sel-
tirninga til að taka þátt í að velja
framtíðarstjórnendur bæjarfélags-
ins því í prófkjörinu er hægt að hafa
bein áhrif á hverjir veljast til verks-
ins. Það eru sem betur fer flestöll
málefni í nokkuð góðum farvegi á
Seltjarnarnesinu og öll viljum við
halda þeim stöðugleika sem ríkt hef-
ur í sveitarfélaginu.
Engu að síður eru nokkur málefni
sem liggja fyrir á næsta kjörtímabili,
Hrólfsskálamelar, síðasta bygging-
arsvæði á nesinu, verður byggt upp,
fyrir liggur ákvörðun um að reist
verði hjúkrunarheimili, bygging nýs
knattspyrnuvallar er á teikniborðinu
og svo eru skólamálin, sem eru
stærsti liður á fjárhagsáætlun bæj-
arins, áframhaldandi uppbygging og
skipulag þjónustu innan skólanna
sem unnið er að eftir að rekstur
þeirra fluttist til sveitarfélagsins.
Það er óhjákvæmilegt að prófkjörum
fylgi barátta um sæti og ekki síst
núna þegar verið er að
skipta um forystumann
á listanum sem ekki
hefur verið gert í lang-
an tíma.
Það liggur fyrir að
nýr bæjarstjóri mun
taka við á næsta kjör-
tímabili og væntanlega
ræðst val nýs bæjar-
stjóra af því hver verð-
ur í fyrsta sæti í próf-
kjörinu nú á laugardag.
Tveir hæfir einstak-
lingar bjóða sig fram í
1. sæti að þessu sinni
og ég ætla ekki að
dæma hér en ljóst er að
báðir einstaklingarnir
eru vel hæfir. Auðvitað er hart barist
eins og óhjákvæmilega vill verða
þegar prófkjör eru og stuðnings-
menn frambjóðenda skiptast í fylk-
ingar. Þetta er líkt og á íþróttaleik-
vangi þar fólk skiptist í fylkingar og
styður og hvetur sitt lið.
En við skulum ekki gleyma því að
kapp er best með forsjá og það á við í
þessum efnum. Gleymum því ekki að
eftir að prófkjöri er lokið þurfum við
að slíðra sverðin og fylkja okkur
saman að nýju um framboðslista
Sjálfstæðisflokksins, standa saman
sterk á eftir og styðja við bakið á
þeim frambjóðendum sem valist hafa
til að skipa listann. Tökumst á með-
an á leik stendur, það er eðlilegt, en
gerum það þannig að allir geti sáttir
setið á eftir og við stöndum stolt og
keik með sterkan framboðslista sem
mun leiða Sjálfstæðisflokkinn til sig-
urs í kosningum í vor.
Stöndum saman
Sigrún Edda
Jónsdóttir
Prófkjör
Gleymum því ekki, segir
Sigrún Edda Jónsdóttir,
að eftir að prófkjöri er
lokið þurfum við að
slíðra sverðin og fylkja
okkur saman að nýju.
Höfundur er viðskiptafræðingur og
býður sig fram í 3. sæti í komandi
prófkjöri.
SELTIRNINGAR
búa að bæjarfélagi
sem er meðal þess
fremsta í sinni röð.
Ástæðuna má rekja til
þess að þótt við séum
meðal þeirra smæstu á
höfuðborgarsvæðinu
er efnahagur Seltjarn-
arneskaupstaðar
traustur og útsvar
með því lægsta sem
gerist. Engu að síður
er bærinn í farar-
broddi hvað varðar fé-
lagslega þjónustu og
málefnum unga fólks-
ins er sinnt af krafti og
dugnaði, meðal annars
með ósérhlífnu starfi foreldra og
forráðamanna.
Einstök aðstaða okkar
Styrkur okkar felst, þegar betur
er að gáð, í stærðinni. Við búum við
þá einstöku aðstöðu að bæjarfélag-
ið getur fylgt náið eftir þjónustu-
hlutverki sínu. Við erum hvorki of
stór til að einstaklingurinn týnist
né of smá til að standa ekki fjár-
hagslega undir okkur. Það er að
mínu mati eitt mikilvægasta hlut-
verk hverrar bæjarstjórnar, að hún
sinni af fullri alvöru og alúð þörfum
íbúanna, allt frá viðburðaríkum
æskuárum og viðkvæmum ung-
lingsárum, að ævikvöldi hvers og
eins.
Eitt brýnasta verkefni okkar í
dag er því að reisa hjúkrunarheim-
ili fyrir Seltirninga, en
heilsugæsla og þjón-
usta við eldri borgara
eru dæmi um mála-
flokka sem vega sífellt
þyngra á vettvangi
bæjarmálanna. En
þetta mikilvæga verk-
efni er jafnframt sígilt
dæmi um skipulags-
mál sem sveitarfélag
verður að vinna að í
samvinnu og sátt við
íbúana. Það kemur að
mínu mati ekki til álita
að ganga frekar á
græn útivistarsvæði
Nessins, nema um það
ríki sátt meðal Seltirn-
inga, og verður af þeim sökum að
gaumgæfa vel hvaða aðrir kostir
eru í stöðunni. Í mínum huga snýst
þetta mál ekki um hvort við byggj-
um hjúkrunarheimili, heldur hvar
við veljum því stað og um það stað-
arval verður að ríkja sátt, sér í lagi
á meðal eldri bæjarbúa.
Gildi forvarnastarfs
aldrei meira
Annað afar brýnt verkefn snýr að
skólamálum ásamt æskulýðs- og
íþróttamálum. Skólarnir, jafnt
grunnskóli sem leikskóli, gegna sí-
fellt viðmeira hlutverki umfram
grunnþátt menntunarinnar. Mikil-
vægi forvarnastarfs af ýmsum toga
eykst jafnframt hröðum skrefum,
og með því að tengja starfsemi
grunnskólans betur t.a.m. tónlist-
arkennslu og íþróttaiðkun má auka
til muna ekki aðeins forvarnagildi
skyldunámsins, heldur einnig þá
menntun sem börnin okkar búa að
til framtíðar.
Eftirsóknarvert og fjöl-
skylduvænt bæjarfélag
Prófkjör sjálfstæðismanna á Sel-
tjarnarnesi fyrir komandi bæjar-
stjórnarkosningar gefur okkur
kærkomið tækifæri til að líta fram á
veginn um leið og við veltum þeirri
spurningu fyrir okkur, hvernig við
viljum sjá bæjarfélagið okkar
þróast í nánustu framtíð. Sjálf er ég
þeirrar skoðunar okkar bíði mörg
brýn verkefni, svo að Seltjarnarnes
haldi stöðu sinni sem eftirsóknar-
vert og fjölskylduvænt bæjarfélag.
Gerum gott betra!
Ásgerður
Halldórsdóttir
Prófkjör
Það er að mínu mati eitt
mikilvægasta hlutverk
hverrar bæjarstjórnar,
segir Ásgerður Hall-
dórsdóttir, að hún sinni
af fullri alvöru og alúð
þörfum íbúanna.
Höfundur er viðskiptafræðingur og
gefur kost á sér í 1. sæti á lista Sjálf-
stæðisflokksins á Seltjarnarnesi.
FRAMUNDAN eru þáttaskil í
stjórnmálum á Seltjarnarnesi þegar
sjálfstæðismenn velja sér nýjan for-
ystumann í stað Sig-
urgeirs Sigurðs-
sonar bæjarstjóra.
Jónmundur Guð-
marsson kom fyrst
fram á sjónarsvið
bæjarmála í kosn-
ingunum 1998. Hann
vakti þá athygli mína
fyrir skýra hugsun og örugga fram-
setningu á skoðunum. Seltjarnarnes
þarf á slíkum forystumanni að halda
ef áfram á að takast vel til með
stjórnun bæjarins.
Fylgismenn Ásgerðar Halldórs-
dóttur hafa reynt að gera staðsetn-
ingu hjúkrunarheimilis á Seltjarn-
arnesi að ágreiningsmáli í þessu
prófkjöri. Staðreyndin er sú að um
það mál er enginn teljandi ágrein-
ingur. Bæði Jónmundur og Ásgerð-
ur vilja hjúkrunarheimili, en Ás-
gerður hefur sagt opinberlega að
hún muni láta fulltrúaráð Sjálfstæð-
isflokksins ráða staðsetningu þess.
Um þetta mál verður hins vegar að
skapast víðtæk sátt. Ég treysti Jón-
mundi mjög vel til að standa að op-
inni og uppbyggilegri umræðu um
málið og leiða það til lykta á farsæl-
an hátt.
Jónmund í forystu
Steinn Jónsson læknir skrifar:
Steinn Jónsson
Meira á netinu