Morgunblaðið - 03.11.2001, Page 41

Morgunblaðið - 03.11.2001, Page 41
MINNINGAR MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 3. NÓVEMBER 2001 41 Þegar ég var lítil stelpa spurði ég ömmu mína af hverju hún væri kölluð Stella þar sem hún héti Helena. Hún sagði að pabbi hennar hefði alltaf kallað sig litlu stjörnuna sína og að stella þýddi stjarna. Stellu nafnið festist svo við ömmu, sem bar það nafn með rentu. Hún var alltaf svo sæt og fín og betri ömmu var ekki hægt að hugsa sér. Hún vakti aðdáun fólks hvar sem hún kom enda tignarleg og flott með eindæmum. Hún var mjög örlát og gjafmild og aldrei fór maður svangur heiman frá henni. Henni tókst alltaf að töfra fram veisluborð, fullt af kökum og góðgæti, þótt hún ætti ekkert frekar von á gestum. Einu sinni fórum við systurnar með afa að gefa öndunum brauð. Við keyptum líka brauð fyrir ömmu sem beið heima. Á leiðinni heim til hennar byrjuðum við að kroppa innan úr brauðinu, það var HELENA G. ZOËGA ✝ Helena Geirs-dóttir Zoëga fæddist í Reykjavík 12. júní 1920. Hún varð bráðkvödd á heimili sínu í Hæðar- garði 20 í Reykjavík 22. október síðastlið- inn og fór útför hennar fram frá Fossvogskirkju 2. nóvember. svo gott svona heitt og nýtt. Þegar amma fékk svo brauðið og ætlaði að skera það lagðist það saman því ekkert var innvolsið. Hún þóttist nú ekki skemmta sér mikið þá og fannst þetta ekki nærri eins fyndið og okkur hinum, en nokkru seinna fór hún að rifja upp þennan at- burð og hló mikið að. Amma Stella vann í Skóbúðinni á Lauga- vegi 100. Þangað heim- sótti ég hana alltaf ef ég var í bæn- um. Og alltaf var hún búin að lauma smáaur í vasann þegar ég kom út á götu aftur. Amma heilsaði alltaf og kvaddi með kossi á báðar kinnar, brosi og fallegum orðum. Hún elskaði sumarbústaðinn þeirra afa þar sem þau dvöldu mjög oft. Þá fóru þau út á bát að veiða, voru í fallega garðinum sínum eða dyttuðu að sumarbústaðnum. Það var alltaf mjög gestkvæmt hjá þeim enda fengu allir sem þangað komu, góðar og hlýjar móttökur. Hvort sem það voru dýr eða menn fengu allir kökur. Amma var sérstaklega mikill vinur máríuerlunnar og skóg- arþrastarins, sem voru í fullu fæði hjá henni í sveitinni. Ef mávurinn ætlaði að fá sér bita líka þá var amma komin út og rak hann í burtu. Þar sem foreldrar mínir eiga sum- arbústað við hliðina á ömmu og afa, fórum við mjög oft til þeirra. Alltaf um leið og við komum upp eftir var farið yfir til ömmu og afa til að kyssa og heilsa upp á þau. Þetta var orðinn fastur liður hjá okkur fullorðna fólk- inu og börnunum. Þegar ég byrjaði að vera með manninum mínum tóku amma og afi honum mjög vel. Ég var búin að vara nýja kærastann við, hann yrði að vera prúður og vand- virkur í orðavali því ekki mátti segja eitthvað dónalegt eða ljótt í eyru ömmu Stellu. Það átti bara ekki við þessa virðulegu konu. En eftir þessi ellefu ár okkar hjóna hefur nú ým- islegt verið látið flakka. Og amma tók öllu vel. 12. júní síðastliðinn, á af- mælisdegi ömmu Stellu, veiktist hún og var lögð inn á spítala. Hún lá á spítala í nokkra daga og fannst hræðilegt að starfsfólk spítalans þyrfti að hafa fyrir henni. Hún gat ekki hugsað sér að vera byrði ein- hvers. Hún kvartaði aldrei þótt hún fyndi fyrir verkjum eða liði illa. En hún komst á ról á ný og hresstist mjög fljótt. Kvöldið áður en amma Stella dó bauð Anna dóttir hennar fjölskyldunni í síðbúið afmæliskaffi og erum við glöð fyrir að hafa notið þessarar stundar saman. Svo skyndilega, þegar enginn bjóst við því, fór amma á spítala aftur og lést sama kvöld. Hún skín nú á himninum og ég veit að hún er fallegasta stjarn- an þar eins og hún var þegar hún var hér með okkur. Elsku afi, mamma, Lóló, Anna og fjölskyldur, megi góð- ur guð geyma ykkur og styrkja í sorginni. Hildur, Ólafur, Eygló Dögg og Selma Rut. Elsku Stella. Það er erfitt að sætta sig við að þú ert horfin frá okk- ur, þú þessi fallega og hjartahlýja kona. Stella og Ernst byggðu sumarbú- stað í landi okkar, Grjóteyri við Með- alfellsvatn, fyrir um það bil 30 árum. Alveg frá fyrsta degi, hefur sam- bandið við þau hjón verið einstakt. Betri manneskjur er varla hægt að hugsa sér, velvildin og góðmennskan hefur verið með eindæmum í garð okkar allra. Þau hjónin hafa verið ákaflega natin við bústaðinn sinn og hafa m.a. ræktað heilmikinn skóg allt í kring. Dugnaðurinn og eljan við gróðurinn hefur skilað sér í mikilli grósku. Heimsóknir í bústaðinn voru alltaf yndislegar, alltaf jafn hlýlega tekið á móti okkur og gestrisnin engu lík. Þau hjón hafa verið börnum okkar ákaflega góð og börnin hafa talað um að þau gætu eins verið amma þeirra og afi. Við eigum öll eft- ir að sakna Stellu en minningin um hana lifir í hjörtum okkar allra. Elsku hjartans Ernst, við vottum þér okkar dýpstu samúð og megi all- ar fallegu minningarnar um yndis- lega konu styðja þig og styrkja í söknuði þínum. Við vottum fjölskyld- unni allri samúð okkar. Guð geymi þig Stella. Kristján, Hildur og fjölskylda. Mig langar að minnast vinkonu minnar Stellu með nokkrum línum. Þegar foreldrar mínir færðu mér þær fréttir að Stella væri látin var mér brugðið. Stella hafði verið í huga mínum deginum áður eða um það leyti sem hún lést. Stella var ein sú fallegasta og besta kona sem ég hef þekkt. Það tókst sérstakur og inni- legur vinskapur með okkur Stellu þegar ég var barn og hann hefur sannarlega haldist alla tíð þrátt fyrir 45 ára aldursmun. Við Stella áttum margt sameiginlegt, báðar miklir náttúruunnendur og leið okkur hvergi betur en í Kjósinni. Einnig áttum við saman hest um tíma sem við kölluðum Ernst. Stella var hreint út sagt einstök kona. Góðvildin, um- hyggjan og kærleikurinn geislaði frá henni og faðmlagið var þétt og inni- legt. Ég trúði Stellu fyrir mínum leyndarmálum á æsku- og unglings- árunum og það veganesti er hún færði mér hefur sannarlega nýst mér vel. Ég á eftir að sakna þess að horfa á eftir þeim hjónum fara sam- an út á vatn til veiða, fylgjast með þeim í humátt og sjá þau koma að landi. Það var ótrúlegt hvað þau gátu siglt um vatnið fram og til baka og augljóst að samband þeirra Stellu og Ernst var mjög sérstakt. Elsku Ernst. Missir þinn er mikill. Þú hefur misst yndislega eiginkonu og kæran vin. Ég mun áfram fylgjast með þér í humátt á vatninu sigla bátnum þínum Stellu. Ég mun varðveita minningar mín- ar um Stellu og yndislegt bros henn- ar um ókomin ár. Guð styrki þig og varðveiti, elsku Ernst. Sofðu rótt, elsku Stella. Rebekka. Mig langar að minnast hér elskulegs tengdaföður míns í nokkrum orðum. Þau tíu ár sem okkar kynni vöruðu tókust með okkur góð tengsl og vinskapur, enda var Ólafur Daðason þeirrar gerðar að annaðhvort tók hann fólki eða ekki. Hann var maður sem bar mikla virðingu og reisn og var vandaður í hvívetna. Hann vildi hafa reglu á hlutunum, gera réttu hlutina og gera þá rétt. Hann hugsaði um heilsuna, líkamsrækt og mataræði löngu áður en það komst í tísku enda tággrannur og teinréttur allt til hins síðasta. Þannig stundaði hann sundlaugarnar svo ekki féll dagur úr þar til hann fór að kenna sér sjúkleika á síðasta ári, þá 94 ára gamall. Útivist og fjallgöngur stundaði hann einnig meðan heils- an leyfði og langt fram yfir nírætt. Í mínum huga verður minning hans ekki síst tengd Börmum í Reykhólasveit en þar vann hann að uppbyggingu gamla bæjarins, gróðursetningu og síðar viðhaldi ásamt Jóni syni sínum og hans fjölskyldu þau þrjátíu ár sem það uppbyggingarstarf hefur staðið. Þar á hann mörg handtökin sem bera vitni snyrtimennsku hans, al- ÓLAFUR DAÐASON ✝ Ólafur Daðasonfæddist á Narf- eyri á Skógarströnd 7. maí 1906. Hann lést á líknardeild Landspítalans, Landakoti, 25. októ- ber síðastliðinn og fór útför hans fram frá Áskirkju 2. nóv- ember. úð og natni sem kom fram bæði í smáu og stóru. Þar átti hann dvöl með okkur hjón- um á hverju sumri enda hafði hann, eins og við, tekið ástfóstri við staðinn og sl. sum- ar fylgdist hann með því sem þar var gert þótt úr fjarlægð væri. Samvera okkar þar fyrir vestan var mér mikils virði og dýr- mæt minning. Tengdapabbi var mik- ill sögumaður og sagði líflega frá og lék jafnvel frásögn- ina þegar sá gállinn var á honum. Hann sagði mér frá veru sinni í Elliðaey við refarækt snemma á öldinni, hve straumarnir voru sterkir milli eyja og þurfti að sæta lagi og taka á árunum þegar róið var til fiskjar á Breiðafirðinum og frá því þegar hann kom ungur til Reykjavíkur til að mennta sig í iðn sinni, fátækur sveitapiltur og að hluta upp á góðvild annarra kom- inn. Það hentaði honum ekki og hefur sjálfsagt mótað hann fyrir lífstíð. Enda stofnaði hann sitt eig- ið fyrirtæki í bólstrun svo fljótt sem hann gat og vann sjálfstætt alla tíð upp frá því. Saga hans og lífshlaup er um margt dæmigerð fyrir aldamótakynslóðina sem nú er að hverfa en um leið sérstök og einstök. Enda var hann einstakur maður. Blessuð sé minning Ólafs Daða- sonar. Birna Sigurjónsdóttir. „Allir hlutir koma fram í til- vistina, og menn sjá þá hverfa aft- ur. Eftir blóma ævinnar fer hvað- eina aftur til upphafsins. Að hverfa aftur til upphafsins er friðurinn; það er að hafa náð tak- marki tilvistar sinnar.“ (Lao-Tse.) Ólafur og Guðný, Guðný og Ólafur, afi og amma, amma og afi. Nú eruð þið bæði farin. Þið skiljið eftir tómarúm sem ég reyni að fylla með minningarbrotum: Amma að baka heimsins bestu pönnukökur, amma fótboltaaðdá- andi, amma sígefandi. Afi þolinmóði sem kenndi mér að lesa, að spila, að tefla, að meta bókmenntir og listir. Afi fríski, sís- yndandi, gangandi, eilífur. „Þó þekkir eilífðin í ykkur eilífð lífsins og veit, að dagurinn í gær er aðeins minning dagsins í dag og morgundagurinn draumur hans.“ (Kahlil Gibran.) Ef til vill hittumst við aftur, ein- hvern tímann, einhvers staðar. Það er einhven veginn bærilegra að hugsa til þess. Þangað til þakka ég ykkur samverustundir, stuðning og umhyggju sem var mikil og dýrmæt. Maðurinn minn, Hubert, og börnin mín, Lea og Matthías, eru einnig afar sorgmædd vegna frá- falls langafa, sem og tengdafor- eldrar mínir, Daniele og Gerard. Ólöf Ýr. Minningarkort Hjartaverndar 535 1825 Gíró- og greiðslukortaþjónusta                              !  "          ! "   #    $% &   ' #         ()!*)!++,$,),-..!) /  /   0&12 34 /             !  25    1 5    &5    #0 5    5   +'5     # 2   $ %             /, -)56*6     !!! -&%    &'( ( )       5  5    - 7 /&&  5')0% 50  , $0& /&&  & $'/&&  + /&&   8    9 /&&  /&&:&0)0%   &2   ' 5" !-,5$,).   *+  ,*, $;)5<=/",-..!)   ,    &0 & $  0&> )0% 1   '    -  '   .  //0 5%&$'5 &  ! 5   ?&0 5 &  $  (0&@  &<'5 &  5  ) A &         2   2 '

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.