Morgunblaðið - 03.11.2001, Blaðsíða 43
MINNINGAR
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 3. NÓVEMBER 2001 43
Okkar kæra vinkona,
formaður kvenfélagsins
Fjallkonurnar í Efra-
Breiðholti, er látin.
Fyrir um það bil hálf-
um mánuði var hún
með okkur á fundi og
stýrði honum af sínum sígilda krafti,
gleði og þeirri lífsorku sem hún miðl-
aði okkur af eins og ævinlega, er við
hittumst. Á þessum fundi barst það í
tal að hún þyrfti í aðgerð, sem átti
ekki að vera mikil, en varð þó hennar
banamein. Eins og gefur að skilja er-
um við harmi slegnar og orða vant.
Þó er okkur efst í huga innilegt þakk-
læti til hennar fyrir allar þær ferðir
og stundir sem við áttum saman.
JÓHANNA GUÐRÚN
GUNNARSDÓTTIR
✝ Jóhanna GuðrúnGunnarsdóttir
fæddist í Reykjavík
2. desember 1944.
Hún lést 19. október
síðastliðinn og fór
útför hennar fram
frá Fella- og Hóla-
kirkju 29. október.
Stundirnar og ferðirnar
urðu margar enda hafði
Jóhanna verið formað-
ur okkar í tíu ár.
Eins og við höfum
sagt er okkur orða vant,
svo snöggt bar lát henn-
ar að, en við viljum
þakka henni alla hennar
öruggu stjórn og góð-
vild í okkar garð hverr-
ar og einnar jafnt í sorg
og gleði.
Innilegar samúðar-
kveðjur sendum við
Bjarna, börnum og
systkinum hennar og
þeirra fjölskyldum. Guð blessi minn-
ingu Jóhönnu Gunnarsdóttur.
Fjallkonurnar.
Kveðja frá Félagi
framsóknarkvenna í Reykjavík
Jóhanna Gunnarsdóttir var góður
félagi, skemmtileg, dugleg og ósér-
hlífin. Alltaf tilbúin að leggja fram
En sólin gyllir sund og bláan fjörð
og sameinar með töfrum loft og jörð.
Ég heyri í fjarska villtan vængjaþyt.
Um varpann leikur draumsins perluglit.
Snert hörpu mína, himinborna dís,
og hlustið, englar guðs í paradís.
(Davíð Stef. )
Við vottum aðstandendum Jó-
hönnu og konum í kvenfélaginu Fjall-
konunum okkar innilegustu samúð.
Blessuð sé minning hennar.
F.h. Kvenfélags Breiðholts og
Kvenfélags Seljasóknar,
Þóranna Þórarinsdóttir,
Sædís Jónsdóttir.
Oft erum við minnt á hverfulleika
lífsins. Þá gerist eitthvað sem við eig-
um ekki von á og eigum erfitt með að
sætta okkur við. Þannig var með lát
Jóhönnu Gunnarsdóttur. Það er svo
erfitt að sætta sig við að geta hvorki
heyrt rödd hennar eða njóta krafta
hennar og kæti framar. Jóhanna var
ein af þessum konum sem geta drifið
allt áfram og hvatt aðra til að vinna
með sér.
Þannig birtist hún okkur í Banda-
lagi kvenna í Reykjavík. Hún var allt-
af tilbúin að rétta hjálparhönd og
baðst ekki undan störfum þegar til
hennar var leitað. Enda var mikið til
hennar leitað af félagskonum og þá
gaf hún ótæpilega af krafti sínum og
dugnaði, hughreysti og styrkti.
Jóhanna var líka í ábyrgðarstöðum
innan Bandalags kvenna í Reykjavík.
Hún var varaformaður frá 1992 til
1998 og formaður fjáröflunarnefndar
Starfsmenntunarsjóðs ungra kvenna
á vegum Bandalagsins frá 1998 til
dauðadags. Þessi sjóður hefur styrkt
árlega nokkrar konur til náms, sem
hafa átt erfitt fjárhagslega og fé-
lagslega. Jóhanna var formaður eins
aðildarfélags Bandalags kvenna í
Reykjavík, en það er Kvenfélagið
Fjallkonurnar. Bandalagið sér á eftir
kraftmiklum bandamanni og kveður
með trega, en minningin um Jóhönnu
Gunnarsdóttur mun lifa.
Fyrir hönd Bandalags kvenna í
Reykjavík,
Hildur G. Eyþórsdóttir,
formaður.
Eitt af því dýrmætasta er að eiga
góðan vin og langar mig að gera orð
Kahlils Gibran að mínum er ég hugsa
um vináttu okkar, en þú reyndist mér
alveg einstaklega góð vinkona: „Vin-
ur þinn er þér allt. Hann er akur sál-
arinnar, þar sem samúð þinni er sáð
og gleði þín uppskorin. Hann er
brauð þitt og arineldur. Þú kemur til
hans svangur og í leit að friði.
Þegar vinur þinn talar, þá andmæl-
ir þú honum óttalaust eða ert honum
samþykkur af heilum hug. Og þegar
hann þegir, skiljið þið hvor annan.
Því í þögulli vináttu ykkar verða allar
hugsanir, allar langanir og allar vonir
ykkar til, og þeirra er notið í gleði,
sem krefst einskis.
Þú skalt ekki hryggjast, þegar þú
skilur við vin þinn, því að það, sem
þér þykir vænst um í fari hans, getur
orðið þér ljósara í fjarveru hans, eins
og fjallgöngumaður sér fjallið best af
sléttunni.“
Þín vinkona
Þorbjörg.
Með Jóhönnu er fallin frá hin mæt-
asta kona. Kallið kom óvænt og öllum
að óvörum og var mikið áfall.
Margs er að minnast eftir áralanga
vináttu og samvinnu í Bandalagi
kvenna í Reykjavík. Þar var hún
varaformaður í sex ár auk þess að
vera í nefndum síðar því að ekki mátti
missa hana úr starfinu hjá BKR. Allt-
af ríkti gleði og ánægja þar sem Jó-
hanna kom að og alltaf var hún úr-
ræðagóð. Það var gott að leita til
hennar með hvers kyns mál. Hún
hafði ávallt tíma til að ræða, hún var
réttsýn og gat skoðað mál frá öllum
hliðum en auk þess komist að nið-
urstöðu sem best þótti henta hverju
sinni. Hún var gædd miklum fé-
lagsþroska sem við sem unnum með
henni nutum í ríkum mæli og allt sem
hún tók sér fyrir hendur var unnið af
gleði og ánægju sem smitaðist til
samstarfsfólksins. Oft hugsaði maður
um það hvernig sólarhringurinn ent-
ist henni til að ljúka öllum verkefn-
unum í félagsstarfinu svona vel og
gefa sér alltaf tíma til þess, auk þess
að sinna fjölskyldunni.
Elsku Jóhanna. Hafðu þökk fyrir
allt og allt. Við erum margar sem
munum sakna þín mikið og vart verð-
ur fyllt það skarð sem þú lætur eftir
þig. Þó munu ástvinir þínir hafa orðið
fyrir meiri missi og sendi ég þeim
mínar innilegustu samúðarkveðjur.
Þórey Guðmundsdóttir,
fyrrverandi formaður
Bandalags kvenna
í Reykjavík.
starfskrafta sína. Að leiðarlokum
þökkum við henni samvinnuna. Við
sendum fjölskyldu hennar samúðar-
kveðjur.
Guð blessi minningu Jóhönnu
Gunnarsdóttur.
Síðastliðinn mánudag kvöddum við
elskulega konu, Jóhönnu Guðrúnu
Gunnarsdóttur. Ekki hefði hvarflað
að okkur að við þyrftum að kveðja
hana svona fljótt, svo lífsglaða og
kraftmikla. Fyrir 16 árum tóku kven-
félögin í Breiðholti sig til og héldu
sameiginlegan fund, sem síðan hefur
verið árviss viðburður. Jóhanna hef-
ur ætíð verið styrkur stofn í kven-
félaginu Fjallkonunum sem og í sam-
starfi kvenfélaganna í Breiðholti.
Hennar verður sárt saknað á kven-
félagsfundum í framtíðinni.
Snert hörpu mína, himinborna dís,
svo hlusti englar guðs í paradís.
Við götu mína fann ég fjalarstúf
og festi á hann streng og rauðan skúf.
Úr furutré, sem fann ég út við sjó,
ég fugla skar og líka úr smiðjumó.
Í huganum til himins oft ég svíf
og hlýt að geta sungið í þá líf.
Þeir geta sumir synt á læk og tjörn,
og sumir verða alltaf lítil börn.
Elsku pabbi. Þú
varst alltaf svo sterkur,
svo stór og svo vitur.
Þú söngst ljóð. Þú varst
með allt á hreinu,
kunnir allar reglurnar, öll lög og ekki
má gleyma öllum góðu stundunum
okkar saman með gítarinn. Þú
kenndir mér að fylgjast með og
hlusta, að hugsa, að spyrja, að rann-
saka. Og síðan, eins og fyrir töfra,
breyttistu í mann sem reyndist að-
eins minni en vinir mínir. Kurteis,
blíður og yfirleitt umburðarlyndur –
en eilítið á eftir tímanum að mér
fannst. Því ég hafði þroskast og
fundið mér aðra hetju. Eða, öllu
heldur, ég var að verða fullorðin.
Tíminn leið og ég varð vitrari. Og sá
að lokum að þú varst í raun „súp-
erman“ sem eftir að hafa hjálpað
mér ákvað að fara aftur í rólega dul-
argervið sitt.
Veistu að ég trúi því ekki enn að þú
sért farinn frá okkur. Mér finnst
þetta allt svo ótrúlegt og ég vakna á
hverjum morgni í þeirri von að þetta
hafi bara verið hræðileg martröð en
svo er því miður ekki. Það eru aðeins
BJÖRN RÚNAR
MAGNÚSSON
✝ Björn RúnarMagnússon
fæddist á Akureyri
10. maí 1961. Hann
lést á heimili sínu í
Hjallalundi 7 á Akur-
eyri 24. október síð-
astliðinn og fór útför
hans fram frá Akur-
eyrarkirkju 1. nóv-
ember.
þrjár vikur síðan þú
hringdir í mig til Hol-
lands og sagðir mér að
krabbameinið væri
komið aftur. Hjartað í
mér stöðvaðist um
stund og ég brotnaði
saman en þú talaðir
eins og þú hefðir verið
að segja mér að þú
værir með kvef, sagðir
mér að harka af mér
því við ættum nægan
tíma eftir saman, en því
miður var svo ekki.
Þegar þú bauðst mér
til Spánar í vor var ég
mikið að pæla í að fara ekki með, því
það yrði svo ósköp þægilegt að vera
bara ein heima. En veistu, ég sé sko
alls ekki eftir að hafa farið með, því
það var svo ótrúlega gaman og við
kynntumst mun betur og urðum
miklu betri vinir en við höfum nokk-
urn tímann verið. Þegar við sátum
úti að horfa á stjörnurnar eitt kvöldið
spurðir þú mig að því hvort ég tryði á
Guð. Ég svaraði nei eða vissi það
hreinlega ekki, því mér fyndist allt
svo ótrúlegt í kringum þetta. Við
ræddum þetta lengi og þú reyndir að
útskýra þetta fyrir mér, þannig að ég
var orðin á báðum áttum. Þegar ég
fór til Hollands pældi ég mikið í
þessu og eftir að þú veiktist pældi ég
enn meira og nú held ég að ég sé
komin að niðurstöðu. Veistu ég er
farin að trúa á Guð, ég held að trúin
sé það eina sem heldur í mér lífinu
núna. Ég trúi því að lífið haldi áfram
eftir dauðann, á nýjum og stórfeng-
legum stað, með fullt af spennandi
ævintýrum. Ég veit að þú ert nú hjá
afa og ömmu á Ólafsfirði og öllum
öðrum látnum ástvinum okkar og ég
veit líka að við eigum eftir að hittast
aftur í framtíðinni. Ég elska þig svo
mikið og ég á eftir að sakna þín sárt.
Í minningunum ertu alltaf við hliðina
á mér, hlustar, útskýrir og faðmar
mig. Þú verður alltaf hluti af mér,
pabbi. Guð blessi þig, kallinn minn.
Ástarkveðja.
Þín dóttir
Birna.
Björn Rúnar Magnússon var ein-
staklega ljúfur maður og góður
drengur. Er ég hugsa til baka eru all-
ar minningar tengdar Bjössa á einn
veg, gestrisinn, kátur og skemmti-
legur. Gott var að koma norður og
heimsækja Ástu og Bjössa, alltaf
jafn lífsglöð og jákvæð hvernig sem
stóð á. Sérstaklega er mér minnis-
stætt þegar við gistum sjö í litlu
tveggja herbergja íbúðinni þeirra.
Þar var mikið hjartarými þótt hús-
rýmið væri með minnsta móti.
Ekki er hægt að verjast þeirri
hugsun að lífið sé ranglátt. Maður í
blóma lífsins er tekinn frá eiginkonu
og börnum. En fjölskyldan er lánsöm
að eiga góðar minningar frá lífi
þeirra saman og hetjuleg barátta
Bjössa í veikindum sínum er þeim
styrkur og hvatning til að halda
áfram.
Hinn mildi blær, sem þér að morgni
strýkur
milt og blítt um kinn,
breytist kannski í kvöld í hvirfilvind,
sem um koll þér steypir vinur minn.
Enginn veit fyrr en yfir lýkur.
Svo hverfult er allt í heimi.
Vinarbros, sem þér að morgni mætir
milt með birtu og yl,
sérðu kannski næst með sorgarsvip.
Svo snögg eru harmaskil.
Enginn veit, hvað annan grætir.
Svo hverfult er allt í heimi.
Hinn hrausti sveinn, sem afl sitt ekki
hemur
og aldrei hrýtur tár,
og ljómar í dag af lífsins gleði,
liggur í kvöld kannski nár.
Enginn veit, nær kallið kemur.
Svo hverfult er allt í heimi.
(Á.G.F.)
Elsku Ásta mín, Birna og Maggi
Villi, engin orð ná yfir samúð mína né
aðdáun á styrk ykkar og æðruleysi í
þessari miklu sorg. Blessuð sé minn-
ing Bjössa.
Guðmunda og Ómar.
Ekki gátum við ímyndað okkur að
í dag ættum við eftir að kveðja einn
okkar besta vin, langt fyrir aldur
fram. Það verður skrítið að koma
heim af sjónum og geta ekki skropp-
ið í morgunkaffi til þín og spjallað um
formúluna og sjóinn eins og við gerð-
um svo oft. Það vita allir sem þekktu
þig hve ljúfur og góður drengur þú
varst, stutt í brosið og grínið. Einnig
hve fús þú varst alltaf að rétta fram
þína hjálparhönd.
Æðruleysið og rósemin var aðdá-
unarverð hjá þér, elsku vinur, þegar
þú fékkst vitneskju um að ekki yrði
aftur snúið, svo að við gátum vart
skilið það og þú barðist hetjulega
fram á síðasta dag sem var þín von
og vísa. Þegar við kvöddumst í síð-
asta skipti vissum við öll innst inni að
við myndum ekki sjást í lifanda lífi,
Bjössi minn, og hvað það var sárt.
Þín elskulega fjölskylda, þau Ásta,
Birna og Maggi stóðu einsog hetjur
þér við hlið allan tímann og biðjum
við algóðan Guð að hjálpa þeim á
þessum erfiðu tímum.
Ég sendi þér kæra kveðju,
nú komin er lífsins nótt.
Þig umvefji blessun og bænir,
ég bið að þú sofir rótt.
Þó svíði sorg mitt hjarta,
þá sælt er að vita af því
þú laus ert úr veikinda viðjum,
þín veröld er björt á ný.
Ég þakka þau ár sem ég átti,
þá auðnu að hafa þig hér.
Og það er svo margs að minnast,
svo margt sem um hug minn fer.
Þó þú sért horfinn úr heimi,
ég hitti þig ekki um hríð.
Þín minning er ljós sem lifir
og lýsir um ókomna tíð.
(Þórunn Sig.)
Minningin um þig lifir að eilífu í
hjarta okkar Sillu, elsku vinur.
Sigurgeir.
Síðastliðinn fimmtudag, 1. nóvem-
ber, var til moldar borinn fyrrver-
andi skipsfélagi okkar Björn Rúnar
Magnússon. Með örfáum orðum
langar okkur að minnast skipsfélaga
sem var ljúfur og lítillátur maður
sem gott var að hafa nálægt sér en
vegna þess hve gott það var er hægt
að sakna og vegna þess að hann var
góður piltur er hægt að syrgja góðan
dreng sem lést langt um aldur fram.
Eftirsjáin er vegna mannkosta látins
vinar.
Af því að fátækleg orð okkar
hljóma innantóm gagnvart sorginni
látum við duga að þakka Bjössa sam-
fylgdina og sendum Ástu, Birnu og
Magga okkar innilegustu samúðar-
kveðjur og biðjum Guð að styrkja
þau í sorginni.
Áhöfnin á Sléttbak EA 4.
Okkur var brugðið
þegar við fengum þá
frétt að afi væri dáinn.
Við heimsóttum hann
sunnudeginum áður og hann var svo
hress og kátur. Hann var nýfluttur á
dvalarheimilið Kirkjuhvol á Hvols-
velli. Aðeins búinn að dvelja þar í
mánuð. Á föstudagsmorgni fór hann
HÁLFDAN
AUÐUNSSON
✝ Hálfdan Auðuns-son fæddist í
Dalsseli í Eyjafjalla-
sveit 30. apríl 1911.
Hann lést á Heilsu-
gæslustöðinni á
Hvolsvelli 19. októ-
ber síðastliðinn og
fór útför hans fram
frá Stóradalskirkju
27. október.
í göngutúr. Gekk upp
að kirkjunni og fór svo í
heimsókn til Siggu,
mágkonu sinnar, sem
bjó þar skammt hjá.
Þar fékk hann verk fyr-
ir hjartað og töflurnar
hjálpuðu honum ekki.
Sigga gerði það sem
rétt var að keyra hann
upp á dvalarheimili.
Þar var fenginn læknir
strax sem tók hann
með sér á heilsugæslu-
stöðina. Þar dó hann
friðsæll og sáttur. Okk-
ur er hugsað til níræðisafmælis afa
sem var haldið í vor á Heimalandi
undir Eyjafjöllum. Þar var hann svo
ánægður. Þar var mikill fjöldi fólks.
Fjölskyldan stór og margir vinir og
sveitungar. Þar tóku margir til máls
og þar heyrði maður margar
skemmtilegar sögur af afa og einnig
ömmu.
Síðan amma dó í fyrra er afi búinn
að standa eins og klettur en þó vit-
anlega einmana. Nú eru þau samein-
uð á ný.
Guð styrki okkur öll.
Margs er að minnast,
margt er hér að þakka.
Guði sé lof fyrir liðna tíð.
Margs er að minnast,
margs er að sakna.
Guð þerri tregatárin stríð.
Far þú í friði,
friður Guðs þig blessi,
hafðu þökk fyrir allt og allt.
Gekkst þú með Guði,
Guð þér nú fylgi,
hans dýrðarhnoss þú hljóta skalt.
(V. Briem.)
Hálfdan Örn,
Þóra Marta, Gunnar Már
og Jóna Vigdís.