Morgunblaðið - 03.11.2001, Page 52
FÓLK Í FRÉTTUM
52 LAUGARDAGUR 3. NÓVEMBER 2001 MORGUNBLAÐIÐ
SKÍFAN hefur um árabil verið
helsti útgefandi íslenskrar tónlistar
hérlendis. Hér á eftir fer yfirlit um
jólaútgáfu fyrirtækisins og að vanda
er um auðugan garð að gresja. Að
mati Aðalsteins Magnússonar, sölu-
stjóra hjá Skífunni, einkennir mikil
breidd útgáfuna í ár og mikið er um
nýtt efni.
„Við erum með Björg-
vin og Diddú, Stuðmenn,
Magnús Eiríksson í eldri
deildinni og svo nýja
listamenn eins og Svölu,
Fabúlu, Védísi og Á móti
sól. Það er líka gaman að
sjá að það er að koma
nýtt efni frá mönnum eins
og Bubba og Björgvini
Halldórssyni.“
Aðalsteinn segir að eitt
af einkennum útgáfunnar
í ár sé að skýr stefna hafi
verið tekin gegn afritun-
um.
„Í því markmiði leggj-
um við t.d. mun meira í
umslögin, reynum að gera þau eigu-
legri. Höfum texta með og góðar
upplýsingar.“
Aðalsteinn segir að lokum að hann
eigi von á gullplötujólum og er bjart-
sýnn á komandi vikur.
Á móti sól – ÁMS
Þriðja plata þessarar sunnlensku
ballsveitar. Fróðir segja hana þeirra
besta verk til þessa og að platan sé
stórstíg framför frá síðustu tveimur
skífum.
Björgvin Halldórsson – ?
Björgvin hefur löngum verið með
vinsælustu söngvurum landsins og
núna, í fyrsta sinn í fimmtán ár, kem-
ur hann með glænýja skífu, uppfulla
af spánnýju efni. Hér eru á ferðinni
lög eftir Björgvin, Guðmund Jónsson
Sálverja og einnig nokkur erlend lög.
Bubbi – Nýbúinn
Bubbi hefur
lengi verið einn
vinsælasti tón-
listarmaður
landsins.
Nýbúann, sem
er hrá og ný-
bylgjuskotin
rokkplata,
vinnur hann
með hljóm-
sveitinni Stríð
og friður sem
er skipuð þeim
Guðmundi Pét-
urssyni gítar-
leikara, Pétri
Hallgrímssyni
gítarleikara,
Jakobi Smára Magnússyni bassa-
leikara og Arnari Geir Ómarssyni
trommuleikara.
Diddú – Óskastund með Diddú
Hér tekst Diddú á við sönglagaarf-
inn íslenska og er nálgunin tvíþætt.
Annars vegar er um að ræða útsetn-
ingar Atla Heimis Sveinssonar á sí-
gildum íslenskum lögum í anda hinna
svokölluðu „Salon Orchestras“; þ.e.
fyrstu útvarpshljómsveitanna í
kringum 1935. Hins vegar mun
Diddú flytja önnur sams konar lög
ásamt undirleikara sínum, Önnu
Guðnýju Guðmundsdóttur.
Ego – Frá upphafi til enda
Um er að ræða safnskífu frá þess-
ari mætu sveit sem skartaði Bubba
Morthens sem söngspíru og átti sinn
blómatíma árin ’81–’84. Hér eru á
ferðinni vel valin lög af þremur
breiðskífum sveitarinnar ásamt einu
óútgefnu lagi.
Fabúla – Kossafar á ilinni
Fabúla er listamannsheiti Mar-
grétar Kristínar Sigurðardóttur en
áður hefur hún gefið út plötuna Cut
My Strings (’96). Plötuna vann hún
með Valgeiri Sigurðssyni, sem m.a.
hefur unnið nokkuð með Björku
Guðmundsdóttur.
Haukur Heiðar og félagar –
Mánaskin
Haukur Heiðar, læknir og píanó-
leikari, hefur sent frá sér nokkrar
létthlustunarplötur sem hafa fallið í
góðan jarðveg. Honum til aðstoðar
hér er m.a. Árni Scheving og fer
læknirinn fimum höndum um vel
valdar dægurlagaperlur, jafnt inn-
lendar sem erlendar.
JFM – Special Treatment
Árið 1979 gaf Jakob Magnússon,
Stuðmaður með meiru, út djass-
bræðingsplötuna Special Treatment.
Plötuna vann hann vestur í Banda-
ríkjunum með fjölda þekktra lista-
manna og hefur gripurinn verið ófá-
anlegur í árafjöld. Er þetta í fyrsta
sinn sem platan kemur út á geisla-
diski og er búið að véla um umslag og
slíkt, til að að mæta kröfum hins
snarborulega nútíma.
Magnús Eiríksson – Braggablús
Hér eru samankomin fjörutíu vin-
sælustu lög þessa ástsæla höfundar.
Að sögn útgefenda var vandkvæðum
bundið að velja á diskinn, slíka
gnægð smella hefur Magnús sent frá
sér í áranna rás.
Magnús Kjartansson –
Þakklæti/To Be Grateful
Magnús Kjartansson hefur marga
perluna ort, þá sem hluti sveita eins
og Júdasar og Trúbrots eða þá upp á
eigin spýtur. Á plötunni eru tuttugu
og þrjú lög eins og t.d. „To Be Grate-
ful“, „Eitt lítið andartak“ og „Lítill
drengur“.
Páll Rósinskranz – ?
Eftir að hafa stimplað sig rækilega
inn í fyrra sem einn allra besti söngv-
ari landsins með tökulagaplötunni
No Turning Back snýr Páll Rósinkr-
anz aftur með plötu sem er titilslaus
enn sem komið er.
Pottþétt barnajól
Safn 40 jólalaga, ætlað yngstu
hlustendunum, tekið af ýmsum ófá-
anlegum jólaplötum sem gefnar hafa
verið út síðastliðin 35 ár.
Quarashi –
Kristnihald undir jökli
Hér er komin tónlistin sem Quar-
ashi-félagar unnu við samnefnt leik-
rit, byggt á bók Halldórs Laxness en
það er sýnt um þessar mundir í
Borgarleikhúsinu. Upplag er tak-
markað.
Sálin hans Jóns míns –
Logandi ljós
Um er að ræða framhald plötunn-
ar Annar máni sem út kom í fyrra.
Hér lýkur metnaðarfullri sögu Sálar-
innar um þau Sól og Mána en sú
heildarhugmynd sem sveitin lagði
upp með við gerð þessara platna hef-
ur getið af sér sígild lög eins og
„Hinn eini sanni“ og „Ekki nema
von“.
Sálin hans Jóns míns –
12. ágúst ’99 DVD
Upptaka frá þessum sögufrægu
tónleikum Sálarinnar, sem urðu til
þess að sveitin fór af stað á ný og gaf
m.a. út plötutvennuna Annar Máni/
Logandi ljós. Þessi myndritun inni-
heldur aukaefni eins og t.d viðtöl,
ljósmyndir, texta og aukalög.
Skagakvartettinn –
Kátir voru karlar
Endurútgáfa á plötu þessa vin-
sæla söngflokks en hún kom fyrst út
fyrir réttum 25 árum. Hver man ekki
eftir knattspyrnulaginu eina og
sanna „Skagamenn skora mörkin“?
Þetta er í fyrsta sinn sem gripurinn
lítur dagsins ljós á geislaplötu.
Svala – The Real Me
Biðin eftir þessum frumburði
Svölu Björgvins er búin að vera löng
og spennan því hlaðist upp jafnt og
þétt. Óhætt er að segja að hér sé við-
burður á ferð, þar sem platan verður
gefin út í Bandaríkjunum af Priority
Records og mikill metnaður hefur
verið lagður í tónlistar- og ímyndar-
vinnu í kringum plötuna.
Stuðmenn – Tvöfalda bítið
Vegleg safnplata sem tekur yfir
feril einnar vinsælustu sveitar lands-
ins fyrr og síðar. Diskurinn er tvö-
faldur, á honum eru um fjörutíu lög,
auk þess sem bæklingurinn sem hon-
um fylgir er sneisafullur af upplýs-
ingum, m.a. eru áður óbirtar ljós-
myndir og allir textar laganna.
Tvíhöfði –
Konungleg skemmtun
Konungur grínsins, Tvíhöfði,
mættur með fjórðu plötu sína. Að
vanda er um að ræða vel valin atriði
úr samnefndum morgunþætti Jóns
Gnarr og Sigurjóns Kjartanssonar,
en auk þess verður að finna frum-
samin lög og grínflugur.
Védís – In the Caste
Védís Hervör Árnadóttir er hæfi-
leikarík stúlka, ekki nema nítján ára
gömul. Á In the Caste er að finna
poppvænt R og B sem Védís samdi
sjálf að mestu leyti. Plötuna vann
hún svo í góðu samstarfi við Barða úr
Bang Gang og Valgeir Sigurðsson.
Haustútgáfa Skífunnar
Ferill Stuðmanna er rakinn á plötunni Tvöfalda bítið.
Nýtt og
gamalt
The Real Me er frumburður
Svölu Björgvinsdóttur.
!"""
#$%&'()'%*+&&,-*+$&,.
BLÍÐFINNUR e. Þorvald Þorsteinsson
í leikgerð Hörpu Arnardóttur
Í dag kl. 14 - ÖRFÁ SÆTI
Su 4. nóv kl. 14 - ÖRFÁ SÆTI
Lau 10. nóv. kl. 14 - ÖRFÁ SÆTI
Su 11. nóv. kl. 14 - UPPSELT
KRISTNIHALD UNDIR JÖKLI
e. Halldór Laxness
Lau 10. nóv kl. 20 - UPPSELT
Su 18. nóv. kl. 20 - LAUS SÆTI
MEÐ VÍFIÐ Í LÚKUNUM e. Ray Cooney
Í kvöld kl. 20 - UPPSELT
Su. 11. nóv. kl. 20 - NOKKUR SÆTI
Fi. 15. nóv. kl. 20 - ÖRFÁ SÆTI
Fö 16. nóv kl. 20 - LAUS SÆTI
ÍSLENSKI DANSFLOKKURINN
HAUST 2001 - 3 NÝ ÍSLENSK VERK
"Da", eftir Láru Stefánsdóttur
Milli heima, eftir Katrínu Hall
Plan B, eftir Ólöfu Ingólfsdóttur
Í kvöld kl. 20 - LAUS SÆTI
Fö 9. nóv kl. 20 - LAUS SÆTI
BEÐIÐ EFTIR GODOT e. Samuel Beckett
Su 4. nóv. kl. 20 - ÖRFÁ SÆTI
Lau 10. nóv. kl. 20 - LAUS SÆTI
PÍKUSÖGUR e. Eve Ensler
Í kvöld kl. 20 - UPPSELT
Su 11. nóv kl. 20 - LAUS SÆTI
DAUÐADANSINN eftir August Strindberg
í samvinnu við Strindberghópinn
Í kvöld kl. 20 - NOKKUR SÆTI
Fi 8. nóv. kl. 20 - LAUS SÆTI
KRÖFUHAFAR e. August Strindberg
í samvinnu við Strindberghópinn
Í dag kl. 17 LEIKLESTUR
Stóra svið
3. hæðin
Nýja sviðið
Litla sviðið
Miðasala: 568 8000
Miðasalan er opin kl. 13-18 og fram að sýningu
sýningardaga. Sími miðasölu opnar kl. 10 virka daga.
Fax 5680383 midasala@borgarleikhus.is
Í HLAÐVARPANUM
Veröldin er vasaklútur
ICELANDIC TAKE AWAY THEATRE
Leikstjóri: Neil Haigh, Leikmynd og búninga-
hönnun Katrín Þorvaldsdóttir.
6. sýn. í kvöld kl. 21 - örfá sæti laus
7. sýn. þri. 6. nóv. kl. 21 - Tveir fyrir einn
8. sýn. þri. 13. nóv. kl. 21 - Tveir fyrir einn
9. sýn. fim. 15. nóv. kl. 21
Ath. Takmarkaður sýningafjöldi
Morðsaga
- enginn má fara úr húsinu!
Laugardag 10. nóv. kl. 20.00
Sunnudag 11. nóv. kl. 20.00
Miðapantanir: s. 554 1985 eða
midasala@kopleik.is
Leikfélag Kópavogs
e. Tom Stoppard
!"#$
18 9%%
+ 9& '" ($
!") "$
"
/ 9%%
: 0%%
9"**+
1/ 9%%
,$"-("
, .%%
." /"
" 0
*'" &
/ 8
!" / *0%%
+ *0+
, *0%%
0 *0+
8+
" *1(*"
;
*.<
"
%"2*
*
3
4 '""
'"" & 567
5
*
Laugardagur 3.11
Laugardagskvöld
á Gili
Karlakór Kjalnesinga,
félagar úr Karlakór
Reykjavíkur og
Nafnlausa þjóðlaga-
hljómsveitin,
kl. 22.00
Miðaverð kr. 1200.
Skógarhlíð 20 • 105 Reykjavík
Miðasala: 595 7999 • 800 6434
www.kkor.is
8
9 !
/ ,9:;)<=
. ! , *0><=
8 !
:9:;)<=
: ! 8 *0><=
+ !
: ,><=
=# ?@"'""&
=6
"
.,
!
!
&" 0,
&
57