Morgunblaðið - 25.01.2002, Blaðsíða 10

Morgunblaðið - 25.01.2002, Blaðsíða 10
FRÉTTIR 10 FÖSTUDAGUR 25. JANÚAR 2002 MORGUNBLAÐIÐ BJÖRN Bjarnason (D) menntamála- ráðherra segir að ekki sé enn loku skotið fyrir það að samningar náist um beinar útsendingar frá heims- meistarakeppninni í knattspyrnu hingað til lands næsta sumar. Þetta kom fram í umræðu utan dagskrár á Alþingi í gær um HM í knattspyrnu og þjónustu Ríkisút- varpsins. Málshefjandi var Kristján L. Möller (S) sem gagnrýndi harka- lega í upphafi máls síns stórversn- andi fjárhagsstöðu Ríkisútvarpsins og sagði menntamálaráðherra, æðsta yfirmann stofnunarinnar undanfarin sjö ár, hafa haldið henni í fjársvelti. „Þannig fyrirhugar Ríkisútvarpið að fækka og fella niður beinar út- sendingar frá heimsfrægum íþrótta- viðburðum eins og vetrarólympíu- leikunum í Salt Lake City sem hefjast í febrúar nk. þar sem sex Ís- lendingar keppa og frá sjálfri heims- meistarakeppninni í knattspyrnu, vinsælustu íþróttakeppni nánast um allan heim, sem haldin verður í Suð- ur-Kóreu og Japan á sumri kom- andi,“ sagði Kristján og lýsti því hvernig „allt hafi orðið vitlaust“ með- al íþróttaáhugamanna um allt land eftir að þessi tíðindi spurðust. „Ég er einn af þeim sem óttast að verði sjónvarpinu ekki gert kleift að sýna frá þessum heimsviðburðum sé það alvarlegasta aðför að rekstri Rík- isútvarpsins í langan tíma og þar með vegið að réttlætingu á lögbundinni áskrift að ljósvakamiðli í eigu al- mennings,“ sagði Kristjánog benti á að RÚV væri skyldað til þess að greiða 105 millj. kr. á ári til reksturs Sinfóníuhljómsveitar Íslands. Þessi lögbundna skylda væri að sínu mati óeðlileg og ósanngjörn. Hann muni því leggja fram frumvarp þar sem lagt verði til að rekstrarþátttaka Rík- isútvarpsins verði felld niður en Sin- fóníuhljómsveitinni verði árlega tryggðar samsvarandi tekjur á fjár- lögum. Björn Bjarnason menntamálaráð- herra sagði ekkert nýtt hafa komið fram um fjármál Ríkisútvarpsins, á sínum vegum hafi verið unnin skýrsla um fjárhag stofnunarinnar og á rúmu ári hafi hann heimilað hækkun afnotagjalda um 14% í tveimur áföngum og þar með hafi fjárhagslegt svigrúm stofnunarinnar verið bætt. Á þessu ári sé gert ráð fyrir að stofnunin hafi 2,8 til 3 millj- arða kr. í tekjur og til ráðstöfunar sinnar starfsemi. „Ég hef margoft lýst því yfir í um- ræðum á þingi um málefni Ríkisút- varpsins á undanförnum árum að ég skipti mér ekki af einstökum dag- skrárliðum Ríkisútvarpsins, hvorki íþróttum, fréttum né öðrum þáttum sem Ríkisútvarpið ákveður að sýna eða sinna sérstaklega. Það er verk- efni starfsmanna Ríkisútvarpsins að forgangsraða innan þess og ákvarða hvernig ráðstöfunarféð er nýtt,“ sagði ráðherrann og gat þess að út- varpsráð hafi fjallað um heimsmeist- arakeppnina í knattspyrnu og þeirri umfjöllun sé ekki lokið. „Það er ekki aðeins hér á landi heldur víða um lönd sem menn standa frammi fyrir breyttum að- stæðum varðandi þá samninga sem útvarpsstöðvar þurfa að gera um kaup á þessu dagskrárefni,“ sagði Björn ennfremur og gat þess að þýskt fyrirtæki ætti sýningarréttinn og mönnum þyki víðar en hér sem mjög hátt verð hafi verið sett upp fyrir þennan rétt og að óaðgengilegt sé fyrir sjónvarpsstöðvar að ganga að þessum samningum. Menntamálaráðherra sagði út- varpsstöðvar standa frammi fyrir erfiðu viðgangsefni sem ekki væri bundið við Ísland eða fjárhag RÚV. „Ég teldi skynsamlegt fyrir þær stöðvar sem standa að sjónvarps- rekstri hér á landi að þær tækju höndum saman og reyndu sameigin- lega að ná samningum við söluaðila efnisins eins og gert hefur verið víða annars staðar,“ sagði ráðherrann. „Þetta er viðfangsefni sem á að leysa eins og það hefur verið sett upp, á viðskiptalegum forsendum, og um það þarf að ná samkomulagi. Ég hef þær upplýsingar að menn séu enn að leita leiða hér á landi til að ná þessum samningum. Hvort það tekst eða ekki ætla ég ekki að fullyrða neitt um.“ Kristinn H. Gunnarsson, þing- flokksformaður Framsóknarflokks- ins, sagði takmörk fyrir því verði sem hægt sé að greiða og ekki gangi að gefa fyrirfram yfirlýsingar um að gengið verði að öllum kröfum. Hann taldi þó rétt og eðlilegt að Ríkisút- varpið sýni frá keppninni og vísaði m.a. til ákvæða í útvarpslögum þar sem viðurkenndur er réttur almenn- ings að vinsælum íþróttaviðburðum og reglna Evrópusambandsins þar að lútandi. Kolbrún Halldórsdóttir (Vg) gagn- rýndi mjög hversu verð á vinsælum íþróttaviðburðum í sjónvarpi hefði hækkað og kenndi græðgi um. Aðrar skýringar væru vart á 35-faldri hækkun sjónvarpsréttar á tíu árum. Beinar sjónvarpsútsendingar frá HM í knattspyrnu Ráðherra vill að sjónvarpsstöðvarnar taki höndum saman Morgunblaðið/Sverrir Kastljós stjórnmálanna beinist mjög að Birni Bjarnasyni menntamálaráð- herra þessa dagana. Hér gluggar hann í blöðin undir umræðum á Alþingi. SAMÞYKKT var á Alþingi í gær, með 34 samhljóða atkvæðum, að óska eftir skýrslu frá dómsmálaráð- herra um stöðu og þróun löggæslu í landinu á undanförnum árum með hliðsjón af brotatíðni, almannaör- yggi og réttaröryggi íbúa í sam- ræmi við lögreglulög. Jafnframt er þess óskað að ráðherra geri grein fyrir úrbótum sem nauðsynlegar eru til að styrkja löggæslu og ör- yggi og þjónustu við landsmenn. Níu þingmenn Samfylkingarinn- ar, með Jóhönnu Sigurðardóttur fremsta í flokki, óskuðu eftir skýrsl- unni og lögðu fram átján tölusettar spurningar til ráðherra. Með skýrslubeiðninni fylgir stutt grein- argerð, þar sem m.a. kemur fram að margir óttist að mikill niður- skurður sem orðið hafi á framlögum til löggæslu ógni öryggi og þjón- ustu við íbúana, enda hafi tíðni af- brota farið vaxandi. Í lögreglulög- um sé skýrt kveðið á um að ríkið eigi að halda uppi starfsemi lög- reglu til að gæta almannaöryggis og tryggja réttaröryggi borgar- anna. Aukning í rekstri ríkislög- reglustjóraembættisins bitnað á almennri löggæslu „Á umliðnum árum hefur lög- reglumönnum fækkað mjög í Reykjavík. Voru 490 íbúar á lög- reglumann á sl. ári, en 402 árið 1998. Samkvæmt ársskýrslu lög- reglustjórans í Reykjavík fyrir árið 2000 kemur fram að auðgunarbrot- um hefur fjölgað milli ára, auk þess sem aukning hefur orðið á innflutn- ingi fíkniefna, um 52% á milli ára. Umferðarlagabrotum fjölgaði líka verulega, um 12% milli ára. Þá hef- ur alvarlegum líkamsárásum fjölgað og kynferðisbrotum hefur fjölgað jafnt og þétt, um 52% frá árinu 1996. Á meðan hert hefur verið að með miklum niðurskurði framlaga til al- mennrar löggæslu hefur rekstur og starfslið við embætti ríkislögreglu- stjóra vaxið verulega. Nauðsynlegt er að skoða samhengi í framlögum almennt til rekstrar löggæslu í landinu og hvort þær breytingar sem urðu á skipulagsmálum lög- gæslu með stofnun embættis rík- islögreglustjóra hafi náð tilætluðum árangri. Margt bendir til þess að aukningin sem orðið hefur í rekstri þess embættis hafi bitnað harka- lega á almennri löggæslu í landinu. Í fjölda lögregluumdæma hafa skapast vandamál vegna niður- skurðar framlaga til löggæslu, ekki síst í miðborg Reykjavíkur, þar sem lögreglan er orðin lítt sýnileg. Alþingi ber skylda til að kanna þessi mál til hlítar og því er skýrslubeiðni þessi lögð fram. Svör við þeim spurningum sem bornar eru upp gætu auðveldað stjórnvöld- um og löggjafarþingi að meta til hvaða aðgerða er nauðsynlegt að grípa til að tryggja viðunandi ör- yggi og þjónustu við íbúa landsins og að það fjármagn sem til þessa málaflokks er varið nýtist sem best í samræmi við markmið lögreglu- laga,“ segir í greinargerðinni. Skýrsla um stöðu og þróun löggæslu TVEIR þingmenn Samfylkingar- innar, þeir Mörður Árnason, vara- þingmaður, og Karl V. Matthíasson, hafa lagt fram á Alþingi þingsálykt- unartillögu um endurheimt Drekk- ingarhyls í Almannagjá á Þingvöll- um. Í tillögunni felst að Þingvalla- nefnd verði falið að láta kanna hvernig Drekkingarhylur í Almanna- gjá geti heimt aftur sinn forna svip. Flutningsmenn segja í greinargerð með tillögu sinni, að Þingvellir séu einstakur staður að náttúru og sögu. Innan þinghelginnar fari víða ágæt- lega saman hin náttúrulega sköpun og framlag mannshandarinnar og megi nú heita að hvorugt geti án ann- ars verið. Nokkrar undantekningar séu þó á þessu fagurlega samræmi, og hafi áar okkar á stöku stað ekki gætt þess í framkvæmdagleði sinni að taka nægilegt tillit til umhverf- isins og hinnar sögulegu arfleifðar. „Svo er háttað um Drekkingarhyl nyrst í Almannagjá þar sem nú er grunnur pollur sem stendur illa und- ir nafni. Áður var hér djúpur hylur eða svelgur framan við þröngt kletta- haft og féll áin yfir það í talsverðum fossi sem í heimildum er helst kall- aður Neðrifoss,“ segir í greinargerð- inni og þar er rakið hið fyrra hlut- verk hylsins, þar sem konur sem fundnar voru brotlegar við ákvæði Stóradóms um óhæfu og fordæðu- skap voru settar í hærusekk og drekkt í honum. Brúin orðin með öllu óþörf Breytingar við Drekkingarhyl eiga sér þá sögu að árið 1911 var ákveðið að leggja steinbrú við Öxará framan hylsins í stað trébrúar sem þar hafði verið lögð 1897. Segja flutningsmenn að við brúarsmíðina hafi verið farið fram af talsverðum ákafa, enda komin sú öld að „þótt þjaki böl með þungum hramm / þrátt fyrir allt þú skalt, þú skalt samt fram“ og hafi þá skipt minna máli hvað fyrir varð. Við brúargerðina hafi allmikið af gjárhaftinu verið sprengt í loft upp með dínamíti og var þá í burtu í senn fossbrúnin og hylbarmurinn. Vatnsborð hylsins hafi lækkað og hinn fagri Neðrifoss breyst í flúð. Við síðari endurbætur á brúnni hafi enn horfið af kletta- nösinni, þar á meðal brík sú sem hin- um gæfusnauðu konum var hrundið fram af. Flutningsmenn vísa til þess að umrædd brú sé með öllu óþörf þar sem umferð bíla hafi fyrir alllöngu verið bægt frá Almannagjá. Þótt ekki sé hægt að endurskapa Drekk- ingarhyl og nágrenni hans í upp- runalegri mynd megi bæta að nokkru fyrir þá eyðileggingu sem orðin er og vísa þeir m.a. til tillögu Björns Th. Björnssonar, listfræð- ings, sem lagt hefur til að fjarlægja brúna en leggja í stað yfir svip- fallega göngubrú. Aukinheldur verði árhaftið hækkað, svo hvor tveggja hylur og foss heimti aftur sinn forna svip. Drekkingarhylur fái sinn forna svip Morgunblaðið/Kristinn ÞAÐ setti nokkurn svip á umræður um HM í knattspyrnu og Ríkis- útvarpið í gær að von er á yfirlýs- ingu Björns Bjarnasonar mennta- málaráðherra um hug sinn til framboðs fyrir Sjálfstæðisflokkinn til borgarstjórnarkosninga á morgun, laugardag. Þannig keppt- ust stjórnarandstæðingar við að geta þess í ræðum sínum að ráð- herrann væri nú á förum úr ráðu- neytinu, t.d. sagði Guðmundur Árni Stefánsson (S) að Rík- isútvarpið hafi verið í herkví undir stjórn Björns og það sé merkilegt núna, þegar ráðherrann sé að kveðja og gerast „forystumaður minnihluta borgarstjórnar“ að þá skuli hann skilja við stofnunina með þessum hætti. Flokksbróðir hans, Mörður Árnason, varaþingmaður og fulltrúi í útvarpsráði, hjó í sama knérunn og taldi áhorfendur, hlustendur eða starfsmenn Rík- isútvarpsins ekki myndu sakna ráðherrans, enda hefði í embætt- istíð hans skort á forystu, stefnu- mótun og fjárhagslegan umbúnað. Sverrir Hermannsson, formaður Frjálslynda flokksins og fyrrv. menntamálaráðherra, sagði hins vegar hækkun afnotagjalds RÚV hafa komið seint og illa. Forsætis- ráðherra og menntamálaráðherra hefðu haft sérstakan kommissar á gafli inni í Ríkisútvarpinu til þess að fylgjast með rekstri þess og lesa megi „af starfsemi Ríkisútvarpsins núna hvernig hún kemur til skjal- anna vegna framboða til borg- arstjórnar í Reykjavík. Rík- isútvarpið og sjónvarpið eru í pólitískum herfjötrum ríkisstjórn- arinnar. En menntamálaráðherra er meira heldur en aðeins æðsti yf- irmaður ríkisfjölmiðlanna. Hann er nefnilega æðsti yfirmaður íþróttamála í landinu líka. Og það verður fróðlegt að fylgjast með því á vordögum, ef svo fer fram um framboðsmál í Reykjavík sem lítur út fyrir, að heyra hvernig hann svarar til um þá starfsemi íþrótta- fólki í Reykjavík.“ Þegar Björn dró saman um- ræðuna undir lokin veltu menn fyrir sér hvort þar væri komin yf- irlýsing um framboð: „Ég tók nú ekki ræðu Sverris Hermannssonar þannig að hann væri að fjalla um dagskrárlið, hann var að fjalla um allt annað í ræðu sinni og sýnir hvað umræðan getur farið út um víðan völl. En ég held að sú keppni sem ég er að fara í verði örugglega sýnd í sjónvarpinu áfram hvað sem orðum Sverris Hermannssonar líð- ur.“ Yfirlýsing um framboð?
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.