Morgunblaðið - 25.01.2002, Blaðsíða 18
LANDIÐ
18 FÖSTUDAGUR 25. JANÚAR 2002 MORGUNBLAÐIÐ
Einföld, þægileg, hnéstýrð
blöndunartæki.
Þar sem ýtrasta hreinlætis
er gætt.
Hagstætt verð.
MARGIR sækja ýmiss konar handverksnámskeið á
kvöldin og um helgar til að fræðast og skemmta sér við
margvíslega iðju. Má nefna vinnu með tré, leir eða pensil
svo eitthvað sé nefnt, að ógleymdum fluguhnýting-
arnámskeiðum sem hafa orðið æ vinsælli í seinni tíð með-
al veiðimanna.
Nýlega lauk námskeiði í tréskurði á Flúðum þar sem
þátttakendur voru ellefu talsins. Þær Helga Magn-
úsdóttir í Bryðjuholti og Sigríður Jóna Kristjánsdóttir á
Grund í Villingaholtshreppi, öðru nafni Sigga á Grund,
stóðu fyrir námskeiðinu. Vikulega var komið saman
nokkrar klukkustundir í senn en námskeiðið hófst í byrj-
un nóvember. Þátttakendur voru víðsvegar að af Suður-
landi.
Leiðbeinandi var listamaðurinn Sigga á Grund sem án
efa er einn snjallasti tréskurðarlistamaður landsins. Það
var áhugi og ánægja meðal þátttakenda þegar fréttarit-
ari leit inn á námskeiðið eitt kvöldið.
Áhugavert var að sjá árangur þessa fólks sem er að
nema þessa listgrein, Sigríður snerist á milli „nemenda“
og sagði þeim til. Sumir eru nýliðar í faginu en aðrir
reyndari eins og Helga Magnúsdóttir sem fór á sitt
fyrsta útskurðarnámskeið árið 1984 og hefur náð góðum
árangri. Sigga á Grund sagði að áhugi væri greinilega
vaxandi á tréskurðarlist og margir vildu reyna fyrir sér
með útskurð og að tálga í tré. Efniviðurinn er fjöl-
breyttur. Nokkrir þátttakendur voru að skera í linditré
sem Sigga sagði að væri afskaplega góður viður, einkum
fyrir byrjendur. Að auki er mahóní allmikið notað og
birkið er alveg frábært, að sögn Siggu. Einnig er peru-
viður afbragðs efni og hart en ekki heppilegur fyrir
byrjendur.
Hún segir að hún hafi lítið getað sinnt námskeiðahaldi
vegna annarra verkefna. Mestur tími hennar fer í að
sinna pöntunum á útskurðarmunum og nú þegar hefur
hún næg verkefni næstu þrjú árin. Í myndaalbúmi sem
hún sýnir fréttaritara eru myndir af mörgum glæsi-
legum munum sem hún hefur unnið, meðal annars af
munum skornum í hvaltennur og nautgripahorn. Sigga
sem er menntuð í útskurðarlist hefur haldið nokkrar
sýningar hér heima og erlendis. Sennilega eru nokkur ár
þar til næsta sýning hennar verður haldin, bætti hún við.
Meðal þátttakenda var Ragnhildur Magnúsdóttir,
fyrrverandi bóndi í Gýgjarhólskoti. Hún fékkst eingöngu
við tálgun og mátti sjá hjá henni nokkra listilega gerða
muni. Hún byrjaði að tálga út fyrir aðeins þremur árum
og nam handverkið af bróður sínum Guðmundi. Hann og
Ólafur Oddsson hafa leiðbeint fólki víðsvegar um landið
undanfarin tvö ár við að tálga í tré. Námskeiðin þeirra,
sem kallast „Að lesa í skóginn og tálga í tré“, hafa verið
afar vel sótt. Því má vænta þess að sífellt fleiri listaverk
sjáist í framtíðinni um leið og íslenskur skógur vex og
dafnar.
Munir tálgaðir af Ragnhildi Magnúsdóttur Helga Magnúsdóttir með sýnishorn af mununum.
Fjölbreytni á útskurðar-
námskeiði á Flúðum
Hrunamannahreppur
Morgunblaðið/Sigurður Sigmundsson
Sigríður Jóna Kristjánsdóttir leiðbeinir Gunnari
Jóhannessyni frá Hömrum
NÝTT fiskvinnslufyrirtæki, Godtha-
ab í Nöf, hefur starfsemi í Vest-
mannaeyjum innan skamms. Síð-
ustu mánuði hefur verið unnið að
gagngerum endurbótum á húsnæði
því sem fyrirtækið verður með starf-
semi sína í og er reiknað með að
vinnsla hefjist í byrjun febrúar.
Jón Ólafur Svansson, Björn Þor-
gímsson, Daði Pálsson, Einar
Bjarnason og Sigurjón Óskarsson
eru eigendur Godthaab í Nöf. Allir
eru þeir reyndir á sviði fiskvinnslu
og sjávarútvegs. Fjórir þeir fyrst
nefndu hafa verið meðal æðstu
stjórnenda fiskvinnslu Ísfélags
Vestmannaeyja um árabil og sá
fimmti skipstjóri, útgerðarmaður og
aflakóngur um árabil.
Miklar breytingar á húsnæði
Fyrirtækið er til húsa þar sem á
árum áður var til húsa fiskverkunin
Nöf en miklar endurbætur hafa
staðið yfir á húsnæðinu. Hafist var
handa um framkvæmdir í húsinu í
október og hefur verið unnið sleitu-
laust síðan. Húsnæði fiskvinnslunn-
ar sem er um 1.400 fermetrar er á
tveimur hæðum. Á efri hæð er verið
að innrétta starfsmannaaðstöðu og
skrifstofu en á neðri hæðinni verður
vinnslan á 1.000 fermetra gólffleti.
Að sögn Jóns Ólafs Svanssonar og
Björns Þorgrímssonar voru breyt-
ingar á húsinu og fyrirkomulag
hannað af eigendunum og hafa þeir
allir unnið við breytingar og lagfær-
ingar á húsnæðinu. Þeir segja að
húsið hafi nánast verið gert fokhelt
áður en uppbygging hófst að nýju en
allar framkvæmdir í húsinu hafa
miðast við að það uppfylli ströng-
ustu alþjóðlegar kröfur um fisk-
vinnslu. Segjast þeir mjög ánægðir
með hvernig til hefur tekist og
sögðu m.a. að þeir hefðu fengið
heimsókn frá erlendum fiskkaup-
anda fyrir skömmu sem hefði lýst
mikilli ánægju með húsið.
Tæki og búnaður er að mestu
keypt notað en allt þó í mjög góðu
lagi. Þeir félagar segja að þeir hafi
legið yfir áætlunum um reksturinn
og kostnað við framkvæmdir og þeir
séu vissir um að reksturinn muni
ganga, enda stefni allt í að kostn-
aður við endurbætur á húsinu verði
innan þess kostnaðarramma sem
áætlun þeirra gerði ráð fyrir í upp-
hafi.
Þeir segja að Sparisjóður Vest-
mannaeyja fjármagni framkvæmd-
irnar og þar á bæ hafi menn verið
fljótir til samstarfs og litist vel á
hugmyndir þeirra og áætlanir.
Stefnt er á að Godthaab í Nöf leggi í
fyrstu aðaláherslu á vinnslu á þorski
og ýsu sem flutt verður ferskt á
markaði erlendis með flugi en einnig
verður unnið í frystingu. Reiknað er
með um 20 starfsmönnum í fyrstu
en allt rými miðast við að hægt verði
að koma fyrir 40 starfsmönnum í
fyrirtækinu.
Hafa ekki áhyggjur
af hráefnisöflun
Jón Ólafur og Björn segja að þeir
hafi ekki tryggt sér fasta viðskipta-
báta til að sjá fyrirtækinu fyrir hrá-
efni en þó hafi þeir kynnt sig fyrir
útgerðum og vonist til að það geti ef
til vill leitt til einhverra samninga
um hráefniskaup. Þeir segjast munu
afla hráefnis á fiskmörkuðum eða
með beinum viðskiptum við útgerðir
og hafa ekki áhyggjur af að erfitt
verði að fá hráefni til vinnslunnar.
„Við þekkjum vel til í greininni og
höfum áratuga reynslu í fiskverkun
og stjórnun hennar. Við eigendurnir
höfum hver sína reynsluna af mis-
munandi sviðum í þessum geira og
teljum það koma okkur til góða við
rekstur þessa fyrirtækis. Við teljum
okkur hafa undirbúið og skoðað
þetta vel áður en lagt var af stað og
erum fullir bjartsýni á að fyrirtækið
gangi vel og muni eflast, dafna og
skila arði í framtíðinni,“ sögðu þeir
Jón Ólafur og Björn.
Nýtt fiskvinnslufyrirtæki
veitir 20 störf í fyrstu
Vestmannaeyjar
Morgunblaðið/Sigurgeir
Eigendur nýja fiskvinnslufyrirtækisins Godthaab í Nöf. Frá vinstri: Jón
Ólafur Svansson, Einar Bjarnason, Daði Pálsson, Sigurjón Óskarsson og
Björn Þorgrímsson í verðandi vinnslusal fyrirtækisins.
ELLEFU manns munu taka þátt í
prófkjöri Sjálfstæðisflokksins á
Akranesi fyrir komandi sveitar-
stjórnarkosningar, en frestur til að
skila inn þátttökutilkynningum rann
út um síðustu helgi.
Þeir sem gefa kost á sér eru: Guð-
mundur Egill Ragnarsson veitinga-
maður, Guðrún Elva Gunnarsdóttir
iðnrekstrarfræðingur, Gunnar Sig-
urðsson framkvæmdastjóri, Hall-
veig Skúladóttir hjúkrunarfræðing-
ur, Ingþór Þórhallsson pípu-
lagningamaður, Jón Gunnlaugsson
umdæmisstjóri, Kristjana Guðjóns-
dóttir nemi, Lárus Ársælsson verk-
fræðingur, Sæmundur Víglundsson
byggingartæknifræðingur, Sævar
Haukdal framkvæmdastjóri og
Þórður Þ. Þórðarson bifreiðastjóri.
Ekki er enn að fullu ákveðið hve-
nær prófkjörið verður en líklegt er
að það fari fram laugardaginn 23.
febrúar nk. Sjálfstæðisflokkurinn á
Akranesi er í minnihluta bæjar-
stjórnar á þessu kjörtímabili með
þrjá bæjarfulltrúa, Gunnar Sigurðs-
son, Elínbjörgu Magnúsdóttur og
Jón Gunnlaugsson. Elínbjörg er ekki
í hópi þeirra sem fara í prófkjörið, en
Gunnar og Jón gefa kost á sér eins
og áður kemur fram.
Ellefu
taka þátt í
prófkjöri
Akranes
UM síðastliðna helgi bar ærin Hetta
tveimur lömbum. Sigríður Etna
Marínósdóttir er eigandi ærinnar og
var hún að vonum ánægð með þessa
tvo óvæntu vorboða. Í fyrra bar
Hetta 15. janúar og tveimur vikum
síðar bar systir hennar líka. Að sögn
Marinós Bjarnasonar, föður Sigríð-
ar, er allt útlit fyrir að sama sagan
endurtaki sig í ár og var að heyra að
hann væri ekki eins ánægður með
þetta og Sigríður dóttir hans.
Morgunblaðið/Finnur
Sigríður Etna Marínósdóttir og
Marinó Bjarnason með lömbin.
Sauðburður á
Tálknafirði
Tálknafjörður
Í ROKINU um síðastliðna helgi not-
aði björgunarsveitin Strönd á
Skagaströnd tækifærið og hélt flug-
línuæfingu ofan við bæinn. Skotið
var línu yfir malarnámu sem þar er
og nokkrir björgunarsveitarmenn
dregnir yfir námuna í björgunarstól
sveitarinnar.
Illa gekk að hitta skotmarkið yfir
námuna, sem er á að giska 100 metra
breið, þar sem flaugarnar bar af leið
vegna hvassviðrisins. Það hafðist þó í
fjórða skoti og eftir það gekk eins og
í sögu að koma búnaðinum fyrir og
draga mennina yfir námuna úr hinu
ímyndaða, nauðstadda skipi.
Nokkuð er langt um liðið síðan
sveitin hélt síðast fluglínuæfingu
enda eru skotin í línubyssurnar
óheyrilega dýr, að sögn Ara Þórs-
sonar, formanns sveitarinnar. Var
hann ánægður með hvernig til tókst
og sagði að menn hefðu ekki verið
búnir að gleyma handtökunum við
búnaðinn enda hefðu þeir byrjað á að
horfa á myndbandsupptöku frá síð-
ustu æfingu áður en hafist var
handa.
Næsta æfing sveitarinnar er fyrir-
huguð í lok febrúar en hún verður
með allt öðru sniði, að sögn Ara, og
mun sennilega snúast um leit á landi
með aðstoð GPS-tækja.
Fluglínuæf-
ing í roki
Morgunblaðið/Ólafur Bernódusson
Ari Þórsson, formaður Strand-
ar, dreginn yfir malarnámuna í
björgunarstól.
Skagaströnd