Morgunblaðið - 25.01.2002, Blaðsíða 42

Morgunblaðið - 25.01.2002, Blaðsíða 42
Í KVÖLD, föstudagskvöld 25. jan- úar, kl. 20:30, verður samkoma í Digraneskirkju. Tónlist annast hinn landskunni Þorvaldur Hall- dórsson. Undanfarið misseri hefur hann starfað á vegum Reykjavík- urprófastsdæmanna. Hefur hann á þeim tíma komið víða við, þjón- að jafnt ungum sem öldnum, á æskulýðsfundum sem messum. Einnig hefur hann staðið að gosp- elkvöldum. Á samkomum sem verða í Digraneskirkju mán- aðarlega fram á sumar munum við hafa um hönd guðs orð og söngva, sem einkennt hefur það form. Prestur á þessari samkomu verður sr. Gunnar Sigurjónsson. Væntum við þess að söfnuðurinn fagni þessari nýbreytni og taki vel á móti enn einum þætti í safn- aðarstarfinu. Prestarnir. Áfengisráðgjafi á Ömmukaffi LAUGARDAGSMORGUNINN 26. janúar kl. 11 verður opið á Ömmukaffi í Austurstræti 20. Þangað mætir Guðbergur Auð- unsson, áfengis- og fíkniefnaráð- gjafi, og flytur fyrirlestur sem ber yfirskriftina „Spiritus contra spiritum“, andleg lausn frá fíkn. Guðbergur hefur starfsaðstöðu í Austurstræti 20 (efri hæð) þar sem hann tekur viðtöl og er með hópmeðferð. Það eru allir vel- komnir á þennan fyrirlestur með- an húsrúm leyfir. Það er afar uppbyggjandi að mæta í miðborgina á góðan fyr- irlestur í vinalegu kaffihúsi þar sem hægt er að kaupa sér ljúfar veitingar. Fræðslan er öllum að kostnaðarlausu. Miðborgarstarf KFUM&K og Ömmukaffi. Gospelknall í Krossinum TÓNLISTARVEISLA verður haldin í Krossinum, Hlíðasmára 5–7, laugardaginn 26. janúar. Knallið byrjar kl. 20.30. Þeir sem koma fram eru: Hljómsveitin Zoe með Pétur Hrafnsson stórsöngvara í broddi fylkingar, Tilbúin til brottfarar, Íris Lind Verudóttir, Rúnar Ólafsson, Sigurbjörg Gunn- arsdóttir, Daney Haraldsdóttir, Einar Ólafsson, Kristín Hall- grímsdóttir og Jóhanna Gunn- arsdóttir ásamt sönghóp Krossins undir stjórn Einars Ólafssonar. Allir velkomnir. Aðgangur ókeypis. Digraneskirkja Samkoma með Þorvaldi Hall- dórssyni í Digraneskirkju MINNINGAR 42 FÖSTUDAGUR 25. JANÚAR 2002 MORGUNBLAÐIÐ Háteigskirkja. Samverustund eldri borg- ara kl. 13 í umsjón Þórdísar þjónustu- fulltrúa. Laugarneskirkja. Morgunbænir kl. 6.45–7.05 alla virka daga nema mánu- daga. Mömmumorgunn kl. 10–12 í umsjá Hrundar Þórarinsdóttur djákna. Kaffispjall fyrir mæður, góð upplifun fyrir börn. (Sjá síðu 650 í Textavarpi.) Digraneskirkja. Samkoma kl. 20.30. Tónlist og söngur, Þorvaldur Halldórs- son. Prestur sr. Gunnar Sigurjónsson. Kirkjuskólinn í Mýrdal. Samvera á morg- un laugardag kl. 11.15 í Víkurskóla. Lágafellskirkja. Kirkjukrakkafundur í Varmárskóla kl. 13.15–14.30. Landakirkja Vestmannaeyjum. Kl. 14.30 helgistund á Heilbrigðisstofnun, 3. hæð. Hjálpræðisherinn, Akureyri. Flóamark- aður frá kl. 10–18. Hvítasunnukirkjan á Akureyri. Unglinga- samkoma kl. 21. Boðunarkirkjan, Hlíðarsmára 9. Sam- komur alla laugardaga kl. 11–12.30. Lofgjörð, barnasaga, prédikun og biblíu- fræðsla. Barna- og unglingadeildir á laugardögum. Létt hressing eftir sam- komuna. Allir velkomnir. Biblíufræðsla alla virka daga kl. 10, 13 og 22 á FM 105,5. Sjöundadags aðventistar á Íslandi: Að- ventkirkjan, Ingólfsstræti: Biblíu- fræðsla kl. 10. Guðsþjónusta kl. 11. Ræðumaður Gavin Anthony. Safnaðarheimili aðventista, Blikabraut 2, Keflavík: Biblíufræðsla kl. 10. Guðs- þjónusta kl. 11. Ræðumaður Brynjar Ólafsson. Safnaðarheimili aðventista, Gagnheiði 40, Selfossi: Biblíufræðsla kl. 10. Guðs- þjónusta kl. 11. Ræðumaður Einar V. Arason. Aðventkirkjan, Brekastíg 17, Vest- mannaeyjum: Biblíufræðsla kl. 10. Loft- salurinn, Hólshrauni 3, Hafnarfirði: Guðsþjónusta/biblíufræðsla kl. 11. Ræðumaður Björgvin Snorrason. Safnaðarstarf ✝ Freylaug Eiðs-dóttir fæddist í Holárkoti í Skíðadal 2. október 1916. Hún lést á Fjórð- ungssjúkrahúsinu á Akureyri föstudag- inn 18. janúar síð- astliðinn. Foreldrar hennar voru Eiður Sigurðsson bóndi, f. 24. nóv. 1890, d. 5. mars 1981, og kona hans, Valgerður Júl- íusdóttir, f. 22. okt. 1888, d. 24. júní 1959. Systkini Frey- laugar eru Kristbjörg, f. 27. júlí 1913, d. 12. júlí 1991, Rósant Steingrímur, f. 2. ágúst 1915, d. 2. júlí 1976, Júlíus, f. 4. jan. 1919, búsettur á Dalvík, Rósfríður, f. 9. mars 1921, búsett á Akureyri, Sigurður, f. 20. mars 1923, d. 6. okt. 1995, og Kristín, f. 6. maí 1928, búsett á Dalvík. Freyja ólst upp í Svarfaðar- 1948, búsett í Noregi, gift Gunn- ari Stören og eiga þau tvær dæt- ur, a) Silju, b) Rúnu. 3) Bjarki Þór Skjaldarson, starfsmaður Vega- gerðarinnar, f. 31. jan. 1953, bú- settur á Akureyri og á hann þrjá syni, a) Þröst Frey, b) Brynjar Þór og c) Ómar Óðin. Fyrri kona hans var Henrietta Kristinsdóttir. Þau slitu samvistum. Sambýlis- kona hans er Ólöf Minny Guð- mundsdóttir. 4) Ármann Hólm Skjaldarson bóndi, f. 14. maí 1957, búsettur í Eyjafjarðarsveit og á hann sex börn, a) Arnar Hólm, b) Skjöld Hólm, c) Freyju Hólm, d) Hauk Hólm, e) Vigni Loga, f) Gunnar Smára. Fyrri kona hans var Signý Aðalsteins- dóttir. Þau slitu samvistum. Hann er kvæntur Kolbrúnu Elfarsdótt- ur. 5) Helgi Garðar Skjaldarson prentari, f. 3. ágúst 1961, búsett- ur á Akureyri, kvæntur Þórhildi Þórhallsdóttur og eiga þau tvær dætur, a) Helgu Nínu, b) Áslaugu Björk. Langömmubörn Freyju eru ellefu. Freyja verður jarðsungin frá Akureyrarkirkju í dag og hefst athöfnin klukkan 13.30. Jarðsett verður á Hólum í Eyjafjarðar- sveit. dalnum og fluttist í Eyjafjörðinn 1951 þar sem hún kynntist eiginmanni sínum, Skildi Brynjari Stein- þósrssyni, f. 22. nóv. 1931, d. 18. mars 1996. Þau byrjuðu bú- skap sinn á Kolgríma- stöðum í Eyjafirði, en fluttu í Skáldsstaði 1959 þar sem þau bjuggu til ársins 1980. Þá fluttu þau í Nes í sömu sveit og bjuggu þar til 1994, er þau hættu búskap, og fluttu síðan til Akureyrar í febrúar 1996. Börn Freyju eru: 1) Anton Ófeigur Antonsson smiður, f. 21. des. 1944, búsettur í Eyja- fjarðarsveit og á hann fjögur börn, a) Gerði, b) Ragnheiði, c) Ólaf Þór, d) Elvar. Sambýliskona hans er Sigríður Kolbrún Guð- mundsdóttir. 2) Sigrún Hulda Jónsdóttir húsmóðir, f. 4. sept. Freyja mín, þú varst svo sterk í veikindum þínum. Nú þegar þú ert farin frá okkur trúi ég því að þú sért komin á góðan og fallegan stað, þar sem ástvinir þínir taka á móti þér, og þér líði vel eins og þér leið áður en þú veiktist, jafn ung- leg og hraust eins og þú varst allt- af. Mig langar að þakka þér þann góða tíma sem við áttum saman og kveðja þig með fallegum sálmi: Hin langa þraut er liðin, nú loksins hlaustu friðinn, og allt er orðið rótt, nú sæll er sigur unninn og sólin björt upp runnin á bak við dimma dauðans nótt Fyrst sigur sá er fenginn, fyrst sorgar þraut er gengin, hvað getur grætt oss þá? Oss þykir þungt að skilja, en það er guðs að vilja, og gott er allt sem Guði er frá. (V. Briem.) Guð blessi þig. Þín tengdadóttir, Þórhildur. Nú ert þú farin til Guðs, elsku amma, og við eigum eftir að sakna þín mikið. Okkur þótti svo gott að koma í heimsókn til þín á sunnu- dagsmorgnum, þú varst alltaf búin að baka fyrir okkur pönnsur sem biðu okkar ásamt ískaldri mjólk. Elsku amma Pannsa, um leið og við litlu lóurnar þínar kveðjum þig látum við vísuna sem þú sagðir okkur svo oft fylgja með til þín: Stígur hún við stokkinn, stuttan hefur hún sokkinn, ljósan ber hún lokkinn litli telpuhnokkinn. (Jónas Hallgr.) Guð geymi þig. Helga Nína og Ása Björk. FREYLAUG EIÐSDÓTTIR :  %  !)   "  '     #'#    !"           "    &22G35 7&2 7  ' ! ( +, /!  0- # / !!' !B:" 8   %    !! =   =  = 1 $ "  ; H  !,#$  /!# !% $##  & +  ! !,#$   ! (##   !,! !,##  ! <  8 $  '#,! $!   ##    &* 8 $  $ $-  > #  8 #  !1  '(!. #$  )* . 8 $    - !1 8 $     $  ##  8 8 #  &  "; #    %  %'  %  %  %' " KIRKJUSTARF Ég vil reyna í nokkrum orðum að heiðra minningu Helga Guðmunds- sonar, sem var um langt skeið vinnufélagi föður míns heitins, Ara Jónssonar, og sem ég og bræður mínir vorum svo lánsamir að kynn- ast og vinna með á námsárum okk- HELGI GUÐMUNDSSON ✝ Helgi Guð-mundsson, síðast til heimilis í Furu- gerði 1 hér í borg, fæddist í Reykjavík hinn 18. janúar 1926. Hann lést á gjör- gæsludeild Landspít- alans í Fossvogi að morgni 11. janúar og fór útför hans fram frá Kristskirkju í Landakoti 18. jan- úar. ar, þegar við störfuð- um á sumrin hjá Mjólkurfélagi Reykja- víkur. Helgi var þá sjálfstætt starfandi bílstjóri á eigin vöru- bifreið, og fór ófáar ferðir fyrir MR með sekkjað fóður til við- skiptavina. Fylgdi þá jafnan aðstoðarmaður með í ferðina og hjálpuðust báðir að við affermingu. Helgi sparaði sig hvergi við þá vinnu þó lýjandi væri og hann hjart- veikur. Mér er óhætt að segja að hann hafi verið öllum kær. Hann var vinnusamur og hlýr og heill í allri sinni framkomu, og það var alltaf glaðlegt andrúmsloft í ná- lægð hans því hann var hressilegur og glaðbeittur og þó laus við að draga athyglina að sjálfum sér. Miðdepill hans var fremur viðmæl- andinn. Hann áttaði sig strax á því þeg- ar ég byrjaði hjá MR að hann hefði áður haft mig með sér í sendiferð á vörubílnum. Þá var ég að vinna hjá Trésmiðjunni Víði. Hann minnti mig svo á það löngu eftir þessi ár hjá MR, með strákslegan stríðn- isglampa í augum, hvernig við af- fermdum eitt sinn í hífandi vind- streng í þröngu húsasundi, og ég hafði í einfeldni minni haldið að þetta yrði ekki hægt. Hann hló nú að því. Ég man að ég trúði honum ekki fyllilega fyrr en hann steig út úr bílnum og byrjaði að leysa niður yfirbreiðslur og pallborð eins og ekkert væri. Ég komst svo að því að ég gat náð nokkurn veginn til jarðar í öðru hverju skrefi, þá létt- ur og lítt burðugur, meðan ég þyngdi mig með fóðurpoka á öxl- inni. Sem fyrr segir var Helgi veill fyrir hjarta og mér stóð ekki á sama um þetta allt hans vegna, en þær áhyggjur reyndust óþarfar – ég held að hviðurnar hafi orkað á hann eins og það væri fiðrildi að hnerra á klettavegg. „Manstu þeg- ar við vorum í rokinu úti á Álfta- nesi? Ég greip svona um handlegg- inn á þér og þú blaktir þráðbeint út í vindinn eins og flagg.“ Það var hans lýsing þegar hann rifjaði þetta upp. Og hjartanlegur hlátur. Og augu svo rík af heilindum. Það er söknuður að slíkum manni þegar leiðir skiljast milli til- vistarheima, og ég votta dætrum hans og fjölskyldum þeirra inni- lega samúð. Það er um leið auðvelt að sjá fyrir sér að þeir gleðjist sem nú fá þennan góða félaga í sinn hóp. Guð blessi þig og varðveiti, kæri vinur, við bræðurnir óskum þér velfarnaðar við að læra á hörp- una. Það vefst nefnilega ekkert fyrir mér að þú ferð nú þangað upp sem þú svaraðir strax að faðir minn hefði farið þegar ég sagði þér andlát hans. Og nú sem fyrr rat- arðu fljótt og vel án þess að þurfa kort eða spyrja til vegar. Minn- ingar þeirra sem þekktu þig verði þér meðbyr. Aðalgeir Arason. Suðurlandsmót í sveitakeppni Suðurlandsmót í sveitakeppni sem jafnframt var undankeppni fyrir Ís- landsmótið fór fram um sl. helgi á Þingborg. Tíu sveitir tóku þátt í mótinu og 4 efstu sveitirnar komust í undanúrslit á Íslandsmóti. Mótið tókst í alla staði vel undir öruggri stjórn spilastjórans Eiríks Hjalta- sonar. Úrslit urðu þessi: Sv. Kristjáns M. Gunnarssonar Selfossi 194 Kristján, Björn Snorrason, Helgi G. Helga- son, Ísak Ö. Sigurðsson, Ómar Olgeirsson. Sv. Vilhjálms Þórs Pálssonar Selfossi 161 Vilhjálmur, Þórður Sigurðsson, Gísli Þórar- insson, Guðjón Einarsson. Sv. Kjartans Ásmundssonar (Bl. sveit) 154 Kjartan, Kjartan Aðalbjörnsson, Ari Kon- ráðsson, Hlynur Garðarsson, Kjartan. Sv. Sigfúsar Þórðarsonar, Selfossi 143 Sigfús, Gunnar Þórðarson, Runólfur Þ. Jónsson, Ólafur Steinason. Sv. Óskars Pálssonar, Hvolsvelli 136 Sv. Búnaðarbankans Hellu 135 Ný stjórn var kosin fyrir Bridge- samband Suðurlands. Forseti Þröstur Árnason, með- stjórnendur Garðar Garðarsson og Sigurður Skagfjörð. BRIDS Umsjón Arnór G. Ragnarsson Bridshátíð Flugleiða, BSÍ og BR Bridshátíðin verður haldin á Hótel Loftleiðum 15.–18. febrúar nk. Tveimur sveitum er að þessu sinni boðið á hátíðina. Norsk-ensk sveit sem verður skipuð þekktasta spilara Norðmanna, Geir Helgemo, og Englendingunum Paul Hackett og Jason og Justin Hackett en tví- burarnir sigruðu í tvímenningnum í fyrra. Hin sveitin er skipuð hollenskum landsliðspörum. Að venju verða all- ir sterkustu íslensku spilararnir meðal keppenda. Upplýsingar um mótið er að finna á www.bridge.is þar sem einnig er hægt að skrá sig eða í s. 587 9360.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.