Morgunblaðið - 25.01.2002, Blaðsíða 14
HÖFUÐBORGARSVÆÐIÐ
14 FÖSTUDAGUR 25. JANÚAR 2002 MORGUNBLAÐIÐ
ÝMSIR sem áttu leið hjá
Tjörninni í vikunni ráku upp
stór augu þegar þeir sáu
kafara í fullum herklæðum
svamlandi í miðri Tjörninni.
Ekki var um að ræða sérlega
kurteisisheimsókn til and-
anna og annarra íbúa Tjarn-
arinnar heldur var kafarinn
að taka sýni vegna rann-
sókna á lífríki Tjarnarinnar
sem tengjast hugmyndum
um byggingu bílastæðahúss
undir botni hennar.
Að sögn Stefáns Haralds-
sonar, framkvæmdastjóra
Bílastæðasjóðs Reykjavíkur,
eru rannsóknirnar hluti
undirbúnings vegna alút-
boðs á hönnun og útfærslu
bílastæðahússins. „Það vant-
aði pínulítið í bakgrunninn
varðandi lífríkið þarna og
upplýsingar um botnlögin. Í
rauninni er það ástæða þess-
ara rannsókna.“ Það var
Línuhönnun sem sá um
framkvæmd sýnatökunnar
sem að sögn Stefáns fór
fram á þremur til fjórum
stöðum í norðurhluta Tjarn-
arinnar.
Tilraunaholur
næsta skref
Hann segir næsta mál á
dagskrá vera að gera til-
raunaholur til að kanna
berggrunn og annað í botni
Tjarnarinnar sem ráðgert er
að gera með pramma með
borútbúnaði á. Frostið und-
anfarna daga hafi þó sett
strik í reikninginn og ekki
sé vitað hvenær hægt verði
að fara í þær rannsóknir.
„Það frysti áður en útbún-
aðurinn var kominn á flot í
Tjörninni þannig að við
verðum að bíða eftir því að
það þiðni eða það frjósi svo
rækilega að hægt verði að
keyra borinn út á ísinn og
bora í gegn um hann. Það
væri náttúrlega mjög þægi-
legt.“
Stefán segir að núna
standi yfir forval vegna alút-
boðsins og í framhaldi af því
verði farið í breytingar á
deiliskipulagi. Í þeim fasa
verði húsið kynnt með til-
heyrandi frestum til athuga-
semda.
Ljósmynd/Línuhönnun
Það er ekki á hverjum degi sem mannfólkið á erindi út í Tjörnina en það gerðist þó um dag-
inn þegar þessi maður vann að sýnatöku úr tjarnarbotninum.
Sýnataka í Tjörninni
vegna bílastæðahúss
Miðborg
BORGARRÁÐ hefur samþykkt
að Ingibjörg Sigurþórsdóttir
verði ráðin framkvæmdastjóri
Miðgarðs samkvæmt tillögu
hverfisnefndar Grafarvogs.
Ingibjörg tekur við starfinu af
Regínu Ásvaldsdóttur en 24
sóttu um stöðuna.
Nýr fram-
kvæmda-
stjóri Mið-
garðs
Grafarvogur
INGIBJÖRG Sólrún Gísla-
dóttir borgarstjóri fagnar
þeirri skoðun heilbrigðisráð-
herra að ríkið eignaðist að
fullu húsnæði Heilsuvernd-
arstöðvar Reykjavíkur við
Barónsstíg. Segist borgar-
stjóri mjög tilbúinn til við-
ræðna um slíkt.
Ráðherra lýsti þessari
skoðun sinni á Alþingi á mið-
vikudag þegar rætt var um
framtíð hússins. Sagði Ásta
Möller, þingmaður Sjálf-
stæðisflokksins, sem spurði
út í framtíðarfyrirætlanir
með húsið, að mikilvægt
væri að í því færi fram starf-
semi tengd heilbrigðisþjón-
ustu. Ríkið á hins vegar ein-
ungis 40 prósent eignarhlut í
húsinu á móti 60 prósenta
hlut borgarinnar.
Ingibjörg Sólrún segir
umræðurnar á Alþingi mjög
áhugaverðar. „Við höfum
lengi verið þeirrar skoðunar
að ríkið ætti að eignast þetta
hús vegna þess að við erum
ekki lengur með neina starf-
semi á okkar vegum inni í
húsinu. Við eigum 60 pró-
sent í því en öll starfsemi
sem þar fer fram er á vegum
ríkisins. Heilsugæslan öll og
yfirstjórn hennar er á veg-
um ríkisins og þess vegna
hefði okkur þótt bara eðli-
legt að ríkið eignaðist húsið.
Við höfum svo sem nálgast
ríkið með þetta mál oftar en
einu sinni þannig að það er
mjög ánægjulegt ef þetta
viðhorf er ríkjandi.“
Hún segist alveg sammála
því að byggingin verði áfram
tengd heilsugæslu og heilsu-
vernd og borgin sé mjög
tilbúin til að selja húsið til
ríkisins til að tryggja að það
verði áfram á þeim nótum.
Ingibjörg segir óljóst
hversu verðmætt húsið er í
peningum talið. „Það var
gert verðmat á húsinu fyrir
nokkrum árum en ég þori
ekki að segja hvort það sé
enn þá í fullu gildi. Það má
auðvitað skoða auk þess sem
alls konar viðskipti eiga sér
stað milli borgar og ríkis
sem þetta gæti þá orðið hluti
af.“
Borgin tilbúin
að selja heilsu-
verndarstöðina
Morgunblaðið/Golli
Borgarstjóri er tilbúinn til viðræðna við ríkið um kaup þess
á hlut borgarinnar í heilsuverndarstöðinni við Barónsstíg.
Austurbær
UNDIR Esjunni er yfir-
skrift opins íbúaþings um
vistvæna byggð sem haldið
verður í félagsheimilinu
Fólkvangi á Kjalarnesi á
morgun. Þetta er í fyrsta
sinn sem svokölluðu íbúa-
lýðræði er beitt í skipulags-
vinnu hérlendis.
Að sögn Ingibjargar R.
Guðlaugsdóttur hjá skipu-
lags- og byggingarsviði
Reykjavíkur, er tilgangur-
inn með þinginu að fá fram
hugmyndir fólks um vist-
væna byggð á Kjalarnesi og
hvað sé vistvæn byggð al-
mennt. Þær hugmyndir
gætu síðan nýst í ramma-
skipulag svæðisins.
„Við viljum fá fram heild-
arsýn fyrir svæðið og við-
horf sem flestra. Ekki bara
Kjalnesinga heldur líka
þeirra sem hafa áhuga á
þessu málefni almennt.
Þannig að þingið er opið öll-
um,“ segir Ingibjörg.
Hún segir þetta líka lið í
því að auka íbúalýðræði
með því að láta fleiri en sér-
fræðinga koma að skipu-
lagsvinnunni en þetta er í
fyrsta sinn sem íbúalýðræði
er stundað á þennan hátt í
borginni. „Við höfum haft
grenndarkynningu þegar
skipulagsverkefni eru að
fara af stað og við höfðum
t.d. kosningu um flugvöllinn
sem var náttúrlega liður í
því að auka íbúalýðræðið.
En við höfum ekki efnt til
svona þings áður.“
Vandamálin, draum-
arnir og lausnirnar
Að sögn Sigurbjargar
Kr. Hannesdóttur, verk-
efnastjóra hjá ráðgjafarfyr-
irtækinu Alta, sem sér um
þinghaldið, er þátttakend-
um þingsins skipt upp í
vinnuhópa. „Dagskráin er
þannig sett upp að fólk get-
ur komið og verið með í ein-
um vinnuhópi eða fleirum
eða setið þingið allan dag-
inn.“
Tveir vinnuhópar verða í
gangi á hverjum tíma. „Til
klukkan þrjú förum við í
gegnum ákveðin viðfangs-
efni og þá erum við að
vinna með mjög einföldum
hætti og förum yfir það
hver vandamálin, draum-
arnir og lausnirnar eru.
Klukkan þrjú byrja svo
skipulagshópar og þá sest
fólk yfir loftmyndir af Kjal-
arnesi, velta fyrir sér
mögulegu skipulagi og
koma sínum hugmyndum
þannig á blað. Í hverjum
hópi eru svo fagmenn sem
leiða vinnuna.“
Unnið er úr niðurstöðum
þingsins á þremur dögum
og stendur til að kynna nið-
urstöðurnar í Fólkvangi
klukkan 20 á þriðjudags-
kvöld.
Það er Ingibjörg Sólrún
Gísladóttir borgarstjóri
sem setur þingið klukkan
10:00 á morgun en um-
ræðuefnin í vinnuhópunum
tengjast umhverfi og úti-
vist, samgöngum, atvinnu-
málum, vistvænni byggð og
mannlífi auk skipulagsvinn-
unnar sem hefst klukkan
15:00.
Aðgangur að þinginu,
sem er opið öllum, er
ókeypis og verður boðið
upp á kaffiveitingar og
barnapössun á meðan það
stendur yfir.
Íbúaþing um
vistvæna byggð
Kjalarnes
Félagsheimilið Fólkvangur á laugardag
Golfkúlur 3 stk.
í pakka
aðeins 850 kr.
NETVERSLUN Á mbl.is