Morgunblaðið - 25.01.2002, Blaðsíða 50

Morgunblaðið - 25.01.2002, Blaðsíða 50
DAGBÓK 50 FÖSTUDAGUR 25. JANÚAR 2002 MORGUNBLAÐIÐ MORGUNBLAÐIÐ, Kringlunni 1, 103 Reykjavík. SÍMAR: Skiptiborð: 569 1100. Auglýsingar: 569 1111. Áskriftir: 569 1122. SÍMBRÉF: Ritstjórn: 569 1329, fréttir 569 1181, íþróttir 569 1156, sérblöð 569 1222, auglýsingar 569 1110, skrifstofa 568 1811, gjaldkeri 569 1115. NETFANG: RIT- STJ@MBL.IS, / Áskriftargjald 2.100 kr. á mánuði innanlands. Í lausasölu 190 kr. eintakið. Skipin Reykjavíkurhöfn: Í dag koma Laugarnes, Jambo og Capricorn og út fara Jambo, Skóg- arfoss og Mánafoss. Mannamót Aflagrandi 40. Kl. 9 leikfimi og vinnustofa, kl. 12.45 dans, kl. 13 bókband, kl. 14 bingó. Þorrablót verður haldið föstudaginn 1. febrúar, húsið opnað kl. 18 með fordrykk, þorrahlað- borð, borðhald hefst kl. 18.30. Skráning í Afla- granda, s. 562-2571, fyr- ir miðvikudaginn 30. janúar. Allir velkomnir. Árskógar 4. Bingó kl. 13.30. Kl. 13–16.30 er smíðastofan opin. Allar upplýsingar í síma 535- 2700. Bólstaðarhlíð 43. Kl. 8 hárgreiðsla, kl. 8.30 bað, kl. 9–12 bókband, kl. 9– 16 handavinna, kl. 10– 17 fótaaðgerð, kl. 13 spilað í sal og glerlist. Þorrablót verður föstu- daginn 1. febrúar. Þorrahlaðborð hefst kl. 17, salurinn opnaður kl. 16.30. Skráning í s. 568-5052 fyrir föstudag- inn 1. febrúar. Eldri borgarar í Mos- fellsbæ, Kjalarnesi og Kjós. Félagsstarfið í Hlaðhömrum er á þriðju- og fimmtudög- um kl. 13–16.30, spil og föndur. Kóræfingar hjá Vorboðum, kór eldri borgara í Mosfellsbæ, á Hlaðhömrum fimmtu- daga kl. 17–19. Jóga á föstudögum kl. 11. Pútt- kennsla í íþróttahúsinu kl. 11 á sunnudögum. Uppl. hjá Svanhildi í s. 586-8014 kl. 13–16. Uppl. um fót-, hand- og andlitssnyrtingu, hár- greiðslu og fótanudd, s. 566-8060 kl. 8–16. Félagsstarf aldraðra Dalbraut 18–20. Kl. 9– 12 aðstoð við bað, kl. 9– 16.45 er hárgreiðslu- stofan opin, kl. 9 er handavinnustofan opin. Félag eldri borgara í Kópavogi. Félagsvist spiluð í Fannborg 8 (Gjábakka) kl. 20.30. Félagsstarfið Löngu- hlíð 3. Kl. 8 bað, kl. 10 hársnyrting, kl. 10–12 er verslunin opin, kl. 13 „opið hús“, spilað á spil. Félagsstarf aldraðra Garðabæ. Föstud. 25. jan. kl. 9 snyrting, kl. 12 dans. Félag eldri borgara í Hafnarfirði, Hraunseli, Reykjavíkurvegi 50. Myndlist kl. 13, brids kl. 13.30. Þorrablót félagsins verður í Hraunseli á morgun, laugardaginn 26 jan., kl. 19. Verð 2.500 kr. Félag eldri borgara, Reykjavík, Ásgarði Glæsibæ. Kaffistofan opin virka daga frá kl. 10–13. Kaffi, blöðin og matur í hádeginu. Sunnudagur: Félagsvist kl. 13.30. Dansleikur kl. 20. Caprí-tríó leikur fyrir dansi. Söngvaka verður miðvikudaginn 30. janúar kl. 20.45, stjórnandi Gróa Sal- varsdóttir, umsjón Sig- urbjörg Hólmgríms- dóttir. Framsögn hefst fimmtudaginn 31. jan- úar kl. 16.15, skráning hafin á skrifstofu FEB, leiðbeinandi Bjarni Ingvarsson. Brids fyrir byrjendur hefst í febr- úar. Stjórn Ólafur Lár- usson. Aðalfundur Félags eldri borgara í Reykjavík og nágrenni verður hald- inn í Ásgarði Glæsibæ sunnudaginn 24. febr- úar kl. 13.30. Silfurlínan er opin á mánu- og mið- vikudögum kl. 10–12. Skrifstofan er flutt að Faxafeni 12, sama síma- númer og áður. Fé- lagsstarfið er áfram í Ásgarði Glæsibæ. Uppl. á skrifstofu FEB kl. 10– 16, s. 588-2111. Félagsstarfið Hæð- argarði 31. Kl. 9–16.30 myndlist og rósamálun á tré, kl. 9–13 hár- greiðsla, kl. 9.30 göngu- hópur, kl. 14 brids. Opið alla sunnudaga frá kl. 14–16, blöðin og kaffi. Gerðuberg, félagsstarf. Kl. 9–16.30 eru vinnu- stofur opnar. Kl. 10.30 boccia. Súpa og salatbar í veitingabúð í hádeg- inu. Frá hádegi er spila- salur opinn. Upplýs- ingar um starfsemina á staðnum og í síma 575- 7720. Gjábakki, Fannborg 8. Kl. 9.15 rammavefn- aður, kl. 9.30 málm- og silfursmíði, kl. 13 bók- band. Uppl. í síma 554- 3400. Gullsmári, Gullsmára 13. Kl. 10 glerlist, Gleði- gjafarnir syngja kl. 14– 15. Bóndakaffi. Konur, bjóðið bóndanum í bóndakaffi í Gullsmára 13. Rjómapönnukökur og upprúllaðar. Allir velkomnir. Hraunbær 105. Kl. 9–12 baðþjónusta, kl. 9–17 hárgreiðsla og fótaað- gerðir, kl. 9 handavinna, bútasaumur, kl. 11 spurt og spjallað. Þorrablót verður haldið 1. febrúar. Húsið opnað kl. 17.30. Þorrahlaðborð kl. 18. Ræðumaður Kol- brún Bergþórsdóttir blaðamaður. Barnakór. Helgi Seljan flytur gamanmál. Ólafur B. Ólafsson heldur utan um fjöldasöng og dans. Veislustjóri er Ellert Borgar Þorvaldsson skólastjóri. Skráning í síma 587-2888. Hvassaleiti 56–58. Kl. 9 bað, leikfimi og postu- lín, kl. 12.30 postulín. Fótaaðgerð og hár- snyrting. Bingó spilað kl. 14–16, spilaðar 8–10 umferðir. Norðurbrún 1. Kl. 9–13 tréskurður, kl. 9–17 hárgreiðsla, kl. 10 boccia. Myndlist- arkennsla hefst föstu- daginn 1. febrúar, leið- beinandi Hafdís Benediktsdóttir. Uppl. og skráning hjá Birnu og ritara, s. 568-6960. Vesturgata 7. Kl. 9–16 fótaaðgerðir og hár- greiðsla, kl. 9.15 handa- vinna, kl. 13.30 sungið við flygilinn, kl. 14.30 kaffi og dansað í aðalsal. Þorrablót verður fimmtud. 7. febrúar. Húsið opnað kl. 17. Veislustjóri: Gunnar Þorláksson. Ragnar Páll Einarsson verður við hljómborðið. Fordrykkur, þorrahlað- borð. Magadansmeyjar koma í heimsókn kl. 19. Skemmtiatriði, KKK syngja, fjöldasöngur og fleira. Hljómsveit Hjör- dísar Geirs leikur fyrir dansi. Aðgangsmiði gildir sem happdrætti. Upplýs- ingar og skráning í síma 562-7077. Vitatorg. Kl. 9 smíði og hárgreiðsla, kl. 9.30 bókband og morg- unstund, kl. 10 leikfimi og fótaaðgerðir, kl. 12.30 leirmótun, kl. 13.30 bingó. Háteigskirkja aldraðir. Í Setrinu kl. 13 spil, tafl, handavinna og létt leik- fimi. Kaffi og vöfflur. Bridsdeild FEBK Gjá- bakka. Brids kl. 13.15 í dag. Hana-nú, Kópavogi. Laugardagsgangan verður á morgun. Lagt af stað frá Gjábakka, Fannborg 8, kl. 10. Gott fólk, gott rölt. Gengið frá Gullsmára 13, kl. 10 á laug- ardögum. Félag fráskilinna og einstæðra. Fundur á morgun kl. 21 í Konna- koti, Hverfisgötu 105. Nýir félagar velkomnir. Munið gönguna mánu- daga og fimmtudaga. Ungt fólk með ungana sína. Hitt húsið býður ungum foreldrum (um 16–25 ára) að mæta með börnin sín á laugard. kl. 15–17 á Geysi, kakóbar, Aðalstræti 2 (gengið inn Vesturgötumegin). Opið hús og kaffi á könnunni, djús, leikföng og dýnur fyrir börnin. Öldungaráð Hauka. Spilað verður á Ásvöll- um nk. miðvikudag 30. jan. kl. 20. Hana-nú Kópavogi. „Þú þarft ekki að hafa stúd- entspróf“ nefnist kynn- ing sem verður í félags- heimilinu Gullsmára í dag, föstudaginn 25. janúar, kl. 15 á nám- skeiðum og mennt- unarmöguleikum á höf- uðborgarsvæðinu fyrir almenning. Meðal ann- ars verður sagt frá Kvöldskóla Kópavogs, Tómstundaskólanum og Endurmennt- unarstofnun Háskóla Íslands. Allir velkomnir Félag eldri borgara á Suðurnesjum, boðið verður upp á sparidaga á Hótel Örk dagana 14.– 19. apríl. Áhugasamir hafi samband við ferða- nefnd sem fyrst. Í dag er föstudagur, 25. janúar, 25. dagur ársins 2002. Orð dagsins: Og hann sagði við þá: „Hví sofið þér? Rísið upp og biðjið, að þér fallið ekki í freistni.“ (Lúk. 22, 46.) 6 8 11 15 22 1 24 12 3 10 17 21 4 9 13 18 23 14 5 19 7 20 2 16 LÁRÉTT: 1 hræsni, 8 hestar, 9 skíma, 10 guð, 11 rétta, 13 virðir, 15 hrasa, 18 eyktamörkum, 21 ótta, 22 lítil saurkúla, 23 granni málmpinninn, 24 vofa. LÓÐRÉTT: 2 eldiviðurinn, 3 kroppa, 4 reika, 5 klúrt, 6 eld- stæðis, 7 langur sláni, 12 veiðarfæri, 14 glöð, 15 fák, 16 stétt, 17 hægt, 18 skelfingin, 19 freistuðu, 20 hönd. LAUSN SÍÐUSTU KROSSGÁTU: Lárétt: 1 lyfta, 4 kesja, 7 gervi, 8 loppa, 9 net, 11 náin, 13 hrín, 14 ýlfra, 15 sjór, 17 ljón, 20 eða, 22 tréni, 23 gælur, 24 metta, 25 sinna. Lóðrétt: 1 lygin, 2 forði, 3 alin, 4 kalt, 5 sópar, 6 afann, 10 erfið, 12 nýr, 13 hal, 15 sátum, 16 ólétt, 18 jólin, 19 narra, 20 eina, 21 agns. K r o s s g á t a Víkverji skrifar... SAMKVÆMT nýju tóbaksvarn-arlögunum má ekki selja börn- um yngri en 18 ára tóbak og fólk yngra en 18 ára má heldur ekki selja tóbak í verzlunum. Kaupmenn hafa gagnrýnt það síðarnefnda og bent á að starfsmenn þeirra væru oft undir 18 ára aldri, t.d. starfsfólk í söluturnum að kvöldlagi. Víkverja finnst nú að það sé eðlilegt að hafi fólk ekki aldur til að kaupa tiltekna vöru, eigi það heldur ekki að hafa leyfi til að selja hana. Jafnframt hlýtur að vera orðið álitamál hvort unglingar yngri en 18 ára eiga nokkurt erindi í störf, þar sem þeir eru einir við afgreiðslu á kvöldin og jafnvel fram á nætur. Að afgreiða í sjoppu er orðið þvílíkt áhættustarf með fjölgun rána og ofbeldishótana að það er varla fyrir óharðnaða unglinga. x x x EN NÝJU lögin koma greinilegaekki bara við sjoppueigendur og smákaupmenn. Nýlega var Vík- verji staddur í stórverzlun, sem er opin fram eftir kvöldi. Á undan honum við kassann var reykinga- maður, sem langaði að kaupa sér tóbak. Því miður, svaraði starfs- maðurinn á kassanum, ég hef ekki aldur til að selja þér það. Eins og áður sagði var þetta stórverzlun og við afgreiðslu voru tveir eða þrír aðrir starfsmenn. Reykingamaður- inn horfði spyrjandi á þá en allir ypptu þeir öxlum og sögðust ekk- ert geta hjálpað honum, enda voru þeir allir yngri en átján ára. Með öðrum orðum var stórverzlunin eingöngu mönnuð unglingum. Það er að sjálfsögðu virðingarvert að verzlanir fari að lögum og láti fólk undir aldri ekki selja tóbak - en ef þær vilja selja tóbak á annað borð ætti að sjá til þess að við störf sé fólk sem hefur aldur til að selja eitrið. Að vísu má gera ráð fyrir að þessi uppákoma í verzluninni hafi ekki verið alslæm fyrir reykinga- manninn – kannski hefur hún lengt líf hans um einhverjar mínútur ef hann hefur þurft að eyða tíma í að leita uppi sjoppu í nágrenninu þar sem mátti selja honum tóbak. x x x VÍKVERJI vill leyfa sér aðhrósa Nóatúni fyrir að hafa á boðstólum ekta Ricotta-ost og ekta Mozzarella-ost, sem eru fluttir inn frá Ítalíu. Sumir keppinautar Nóa- túns geta ekki einu sinni tryggt stöðugt framboð af íslenzku eftir- líkingunum af þessum fersku ost- um í hillunum hjá sér, þótt þá sé að finna í ótalmörgum algengum mat- aruppskriftum. x x x MEIRA um osta: Víkverjaáskotnaðist nýlega bókin Brunch á 100 vegu frá PP forlagi. Þetta er reyndar ágæt bók, en hún virðist þýdd úr dönsku og ekki hef- ur alls staðar tekizt vel til með þýð- inguna. Þar sem fjallað er um osta, stendur m.a.: „Harðir kinda- og geitaostar eru vinsælir ostar. Má þar nefna korsikansk brin d’amour, saint pierre de vanaco, spansk manchego og italiensk pecorino.“ Hér bendir flest til þess að þýðand- inn hafi hvorki þekkt haus né sporð á ostunum, sem um ræðir og haldið að dönsk lýsingarorð væru hluti af heiti þeirra. Síðar í sama kafla er Mozzarella kallaður íslenzkur harð- ur ostur og þá sannfærðist Víkverji enn frekar um að þýðandinn og staðfærandinn væri úti að aka. Ógnvaldurinn ÞAÐ eru margir samverk- andi þættir, sem bera ábyrgð á hnignandi siðferðisvitund þessarar vindbörðu íslenzku þjóðar, þ.e.a.s. íslenzks aðals, ef eitthvað er eftir af honum. Til að mynda framleiðend- ur, innflytjendur, dag- skrárstjórar, markaðs- stjórar o.s.frv. á sífellt ofbeldisfyllri kvikmyndum, tölvuleikjum og blautlegum opinberum athöfnum fyrir neðan nafla. Allt er sýnt kinnroðalaust í nafni frels- isins. Undirspilið er þunga- rokk og rapp í sinni ógeðs- legustu mynd, þar sem sonur formælir móður, dóttir föður, bróðir systur. Til að sem flestir ánetjist þessari frelsishugsjón nú- tímans er e-taflan boðin gestum og gangandi innan öldurhúsa og utan og þá er fólk komið í djúpan skít, sem ekkert meðferðar- heimili vinnur bug á, hafi neytandinn hvorki dug né löngun til annars en safna kröftum til að komast í skít- inn aftur. Hvað á að gera við hann? Ég veit það ekki. Nú eru þeir margir sauð- irnir, svo kölluð burðardýr eiturlyfja, sem fá margra ára innisetudóm, frítt hús- næði, fæði, sjónvarp, út- varp, líkamsrækt, vinnu, nám, kannski vasapeninga, sem er meira en hinn al- menni láglaunavinnuþræll ber úr býtum, svo fangar eiga ekki mína samúð, hins vegar er ég að velta fyrir mér að allir sauðir eiga sér forystusauð. Ég trúi ekki öðru en sá guðfaðir leiki einhvers staðar lausum hala, líkt og bin Laden. Löggjafarvaldið þarf bara að leggja alla sína krafta í að ná í skottið á honum, svo að hægt sé að losa eitur- lyfjaóværuna af landinu í eitt skipti fyrir öll, áður en fleiri ungmenni missa eðli- legan lífsvilja. Guðrún Jacobsen. Tapað/fundið Símboði týndist SÍMBOÐI (kalltæki) týnd- ist mánudagsmorguninn 21. janúar sl. í eða við Landsbankann í Mjódd. Finnandi vinsamlegast hringi í síma 892 3737. Fundarlaun. Boðtæki týndist Supergardtæki (boðtæki) týndist á leiðinni frá Granda upp í Grafarvog. Skilvís finnandi hafi sam- band í síma 692 2508. Fundarlaun. Dýrahald Svartur kettlingur í óskilum SVARTUR kettlingur fannst í Bleikargróf sl. þriðjudag. Uppl. í síma 588 1731. Kolla er týnd LÆÐA, kolsvört, sem svarar nafninu Kolla týnd- ist aðfaranótt þriðjudags frá Bólstaðarhlíð. Hún er með ól og eyrnamerkt. Gæti hafa lokast einhvers staðar inni. Þeir sem gætu gefið uppl. hringi í síma 551 1430 eða 696 5340. VELVAKANDI Svarað í síma 569 1100 frá 10-12 og 13-15. Netfang velvakandi@mbl.is Morgunblaðið/Brynjar Gauti Í sundlaug Kópavogs.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.