Morgunblaðið - 25.01.2002, Blaðsíða 21

Morgunblaðið - 25.01.2002, Blaðsíða 21
VIÐSKIPTI/ATHAFNALÍF MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 25. JANÚAR 2002 21 UM 97% sýningarrýmis á Íslensku sjávarútvegssýningunni 2002 eru frátekin. Marianne Rasmussen, sölustjóri sýningarinnar, segir að þar sem hátt í átta mánuðir séu til stefnu sé útlit fyrir að flytja verði inn til landsins bráðabirgðahúsnæði vegna sýningarinnar. Það verði þó ekki gert nema fyrir liggi að sýn- endur muni fylla það húsnæði. Verði af því muni sýningin í ár verða enn stærri en sú síðasta, sem var sú stærsta til þess tíma. Íslenska sjávarútvegssýningin 2002 verður á íþrótta- og sýningar- svæðinu í Smáranum í Kópavogi dagana 4. til 7. september næstkom- andi. Þetta er í annað skiptið sem sýningin verður á þessum stað en hún hefur verið á þriggja ára fresti frá árinu 1984. Viðameiri sýning en áður John Legate, aðalhvatamaðurinn að fyrstu sjávarútvegssýningunni og ráðgjafi núverandi sýningarhaldara, segir að skortur á hentugu húsnæði hafi verið stærsta vandamálið við sýninguna til þessa. Aðstæður verði hins vegar allt aðrar að þessu sinni og vel sambærilegar við sams konar sýningar annars staðar í heiminum. Umbreytingin frá um 3 þúsund fer- metra gólffleti á fyrstu sýningunni í um 13 þúsund fermetra eða meira í ár sé mikil. Breska fyrirtækið Nexus Media Ltd. er skipuleggjandi Íslensku sjáv- arútvegssýningarinnar 2002 og Ís- lensku sjávarútvegsverðlaunanna, sem veitt eru í tengslum við hana. Marianne Rasmussen, sölustjóri sýningarinnar og starfsmaður Nex- us, segir að sýningin á árinu 1999 hafi verið í sex húsum, sem að hluta hafi verið bráðabirgðahúsnæði sem flutt hafi verið inn frá Hollandi. Nú verði sýningin hins vegar að stórum hluta á hinum nýja yfirbyggða knatt- spyrnuvelli í Kópavogi. Þetta breyti miklu fyrir sýninguna. Marianne segir að þátttaka er- lendra aðila verði meiri í ár en áður hafi verið. Til þessa hafi sýningin að stærstum hluta verið tæknilegs eðl- is. Í ár verði hún hins vegar enn viða- meiri og muni ná yfir enn fleiri þætti sjávarútvegsins en áður. Bjarni Þór Jónsson, ráðgjafi við sýninguna, segir að yfirbyggði fót- boltavöllurinn í Kópavogi henti mjög vel til sýningarhalds af þessu tagi. Húsnæðið hafi verið hannað með til- liti til slíkra sýninga hvað varðar raf- lagnir, vatnslagnir og fleira. Þetta geri að verkum að hægt verður til að mynda að sýna vélar og tæki í sjáv- arútvegi og fiskvinnslu að störfum. Íslenska sjávarútvegssýningin hafi því ýmislegt fram yfir flestar aðrar sjávarútvegssýningar í heiminum. Íslenska sjávarútvegssýningin 2002 Útlit fyrir stærstu sýninguna til þessa Morgunblaðið/Þorkell John Legate, Marianne Rasmussen og Bjarni Þór Jónsson vinna að und- irbúningi Íslensku sjávarútvegssýningarinnar 2002, sem verður í Smár- anum í Kópavogi dagana 4.–7. september næstkomandi. STAÐFESTING á lögbanni í mál- efnum Lyfjaverslunar Íslands var tekin fyrir í Héraðsdómi Reykjavík- ur í gær. Frávísunarkröfur eru hafð- ar uppi í þessu máli og verða þær teknar fyrir fyrst áður en farið verð- ur í efni meginmálsins, þ.e. staðfest- ingu á lögbanninu. Aðdragandi þessa máls er sá að þrír hluthafar í Lyfjaverslun Ís- lands, þeir Aðalsteinn Karlsson, Guðmundur A. Birgisson og Lárus Blöndal, kröfðust þess um mitt ár í fyrra að sýslumaðurinn í Reykjavík setti lögbann á að Jóhann Óli Guð- mundsson fengi að hagnýta þann rétt sem fylgdi 170 milljóna króna hlutafjáreign hans í Lyfjaverslun. Jóhanni Óla höfðu verið afhent hlutabréfin sem endurgjald fyrir Frumafl ehf. 20. júní 2001. Sýslu- maður synjaði kröfu hluthafanna þriggja. Þeir skutu málinu til Hér- aðsdóms Reykjavíkur, sem staðfesti úrskurð sýslumanns. Hæstiréttur hnekkti hins vegar úrskurði Héraðs- dóms hinn 10. júlí 2001 og úrskurð- aði að sýslumaður legði lögbann við því að Jóhann Óli hagnýtti sér þann rétt sem fylgdi hlutabréfunum. Lyfjaverslun Íslands stefndi sér inn í þetta mál með svonefndri með- algöngusök. Stefndi, þ.e. Jóhann Óli, höfðaði síðan gagnsök. Í viðbót við það krafðist hann frávísunar á með- algöngusökinni. Lögmenn stefnenda og Lyfjaverslunar hafa svo krafist frávísunar á gagnsökinni. Þess vegna var ákveðið í gær að fyrst verður málið flutt um frávís- unarkröfu á meðalgöngusökinni. Það verður gert 1. febrúar næst- komandi. Í framhaldi af því verður málflutningur um frávísunarkröfu gagnvart gagnsökinni. Þriðja atriðið varðar svo það að í greinargerð stefnda, þ.e. Jóhanns Óla, í staðfest- ingarmálinu er talið að leita þurfi forúrskurðar hjá EFTA-dómstóln- um. Stefnendur mótmæla því og telja ekki efni til þess. Þessa þrjá þætti verður því að fjalla um áður en hægt verður að fara í efni megin- málsins. Deilurnar innan Lyfjaverslunar Íslands Frávísunarkröfurnar verða fyrst teknar fyrir  Bestu þakkir færi ég þeim fjölmörgu, sem á margvíslegan hátt sýndu mér hlýja vinsemd með símtölum, skeytum og gjöfum í tilefni níutíu ára afmælis míns 10. þ.m., ásamt þeim heiðri, er ég var sæmdur af Blönduóssbæ og Ríkisútvarpinu á afmælisdaginn. Allt mun þetta verma vitund mína meðan hún endist. Blönduósi, 20. janúar 2002. Grímur Gíslason.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.