Morgunblaðið - 25.01.2002, Page 51

Morgunblaðið - 25.01.2002, Page 51
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 25. JANÚAR 2002 51 DAGBÓK Suðurlandsbraut 50 (Bláu húsin við Fákafen), sími 553 0100. Opið virka daga kl. 10–18, laugardaga kl. 10–16. 15% aukaafsláttur af völdum vöruflokkum! hefst á morgun LAUGAVEGI 1, S. 561 7760. ÚTSALAN Velkomin um borð O F S C A N D I N A V I A ALA Enn meiri verðlækkun Biblíulestrar með áherslu á siðfræðiboðskap Jesú verða haldnir í Breiðholtskirkju átta fimmtudaga frá 31. janúar til 21. mars 2002, kl. 20:00-22:00. Kennari: Dr. Sigurjón Árni Eyjólfsson héraðsprestur. Verð kr. 3.500. Upplýsingar á Biskupsstofu í síma 535 1500. Leikmannaskóli þjóðkirkjunnar Áfangar http://www.kirkjan.is/leikmannaskoli/ Námskeið um siðfræði verður haldið í Háskóla Íslands sex miðvikudaga, frá 30. janúar til 6. mars 2002, kl. 18:00-20:00. Kennarar: Dr. Sólveig Anna Bóasdóttir guðfræðingur, sr. Ingileif Malmberg og sr. Gunnar Rúnar Matthíasson. Verð kr. 4.900. Upplýsingar á Biskupsstofu í síma 535 1500. Leikmannaskóli þjóðkirkjunnar Siðferðileg álitamál samtímans http://www.kirkjan.is/leikmannaskoli/ Spegla- og rammaefni í miklu úrvali sími 581 1384 AUSTUR opnar í fyrstu hendi á tveimur veikum spöðum og síðan liggur leið NS upp í fjögur hjörtu. Austur gefur; enginn á hættu. Norður ♠ ÁKD10 ♥ 9875 ♦ Á8 ♣D32 Suður ♠ 4 ♥ ÁKDG10 ♦ D1043 ♣865 Vestur Norður Austur Suður -- -- 2 spaðar * 3 hjörtu Pass 3 spaðar Pass 4 tíglar Pass 4 hjörtu Pass Pass Pass * 5-10 punktar og sexlitur. Vestur er ekki þræll þeirrar reglu að spila út í lit makkers og kemur vörninni vel af stað með laufgosa út. Gosinn fær að eiga fyrsta slaginn og áfram kemur lauf, en nú tekur austur tvo næstu slagi á laufkóng og laufás. Spilar svo trompi. Nú er tími til kominn að lesand- inn taki við stjórninni í suð- ur. Hvernig á að spila þetta? Vörnin hefur tekið þrjá slagi og virðist fá þann fjórða á tígul nema hægt sé að nýta allan spaðann í borði. Sem er langsótt ef austur á gosann sjötta í spaða, eins og allt bendir til. Kastþröng er þó til í dæm- inu – svokallað „Vínar- bragð“. Þá er tígulásinn tek- inn og trompunum spilað til enda. Austur þvingast ef hann á tígulkóng til hliðar við spaðann. Norður ♠ ÁKD10 ♥ 9875 ♦ Á8 ♣D32 Vestur Austur ♠ 32 ♠ G98765 ♥ 62 ♥ 43 ♦ K9765 ♦ G2 ♣G1097 ♣ÁK4 Suður ♠ 4 ♥ ÁKDG10 ♦ D1043 ♣865 En svo er auðvitað ekki, því austur ætti opnun á ein- um spaða með tígulkónginn til viðbótar. Gosann getur hann þó átt og því ætti sagn- hafi að spila út tíguldrottn- ingu og yfirfæra tígulhót- unina þannig á austur. Framhaldið rekur sig sjálft: í lokastöðunni þarf austur að henda tígulgosa til að valda spaðatíuna. BRIDS Umsjón Guðmundur Páll Arnarson LJÓÐABROT ÁST Sólin brennir nóttina, og nóttin slökkvir dag; þú ert athvarf mitt fyrir og eftir sólarlag. Þú ert yndi mitt áður og eftir að dagur rís, svölun í sumarsins eldi og sólbráð á vetrarins ís. - - - Aldir og andartök hrynja með undursamlegum nið; það er ekkert í heiminum öllum nema eilífðin, guð – og við. Sigurður Nordal STJÖRNUSPÁ eft ir Frances Drake VATNSBERI Afmælisbörn dagsins: Þú ert heillandi og hæfi- leikaríkur hugsjónamaður sem býrð yfir miklum sann- færingarkrafti. Á nýju ári munu þér opnast margar nýjar leiðir. Gættu þess að velja vel. Hrútur (21. mars - 19. apríl)  Þú ert mjög náinn vini þín- um í dag og þú gerir þér grein fyrir því að það er vin- áttan sem gefur lífi þínu hvað mest gildi. Naut (20. apríl - 20. maí)  Þig langar til að fegra heim- ili þitt. Það er góð hugmynd því umhverfi þitt hefur áhrif á afköst þín og sköpunar- gáfu. Tvíburar (21. maí - 20. júní)  Fegurðarskyn þitt er óvenju næmt í dag. Reyndu að vera í þægilegu umhverfi því það mun létta lund þína. Krabbi (21. júní - 22. júlí)  Þú nýtur gjafmildi einhvers í dag. Sá rausnarlegi er að öll- um líkindum vinur eða maki. Ljón (23. júlí - 22. ágúst)  Tilfinningar þínar til ástvin- ar þíns eru lausar við alla sjálfselsku í dag. Þú gætir jafnvel fengið á tilfinninguna að þú hafir fundið sálufélaga í maka þínum og það gerir þig mjög hamingjusaman. Meyja (23. ágúst - 22. sept.)  Þú ættir að þiggja hjálp samstarfsmanna þinna. Hún gerir þig ekki endilega skuldbundinn þeim en sýnir að þú vinnir með góðu fólki. Vog (23. sept. - 22. okt.)  Sum ykkar fá tækifæri til að hefja nýtt ástarsamband í dag. Það sem gerir þetta samband sérstakt er sú hlýja og hugulsemi sem ein- kennir það. Sporðdreki (23. okt. - 21. nóv.)  Gefðu þér tíma til að gera heimili þitt meira aðlaðandi. Sýndu fjölskyldu þinni hlýju og ástúð því þú vilt að ham- ingja ríki á heimilinu. Bogmaður (22. nóv. - 21. des.) Dagdraumar eru skaðlaus skemmtun svo framarlega sem við missum ekki tengsl- in við raunveruleikann. Ein- stein sagði að snilld sín fæl- ist í ímyndunaraflinu. Steingeit (22. des. - 19. janúar) Þig langar til að kaupa eitt- hvað fallegt handa sjálfum þér eða ástvini þínum í dag. Þú ættir að láta það eftir þér. Vatnsberi (20. jan. - 18. febr.) Í dag einkennast samskipti þín við aðra af háttvísi og hugulsemi. Þú gefur þér tíma til að skilja sjónarmið annarra. Fiskar (19. feb. - 20. mars) Þú átt óvenju auðvelt með að sjá hlutina fyrir þér í dag. Þetta getur komið sér vel í listsköpun eða annarri sköp- un. Stjörnuspána á að lesa sem dægradvöl. Spár af þessu tagi eru ekki byggðar á traustum grunni vísindalegra staðreynda. 1. d4 Rf6 2. c4 e6 3. Rf3 b6 4. e3 Bb7 5. Bd3 d5 6. b3 Rbd7 7. O-O Bd6 8. Rc3 O-O 9. Bb2 c5 10. cxd5 exd5 11. Hc1 He8 12. Bf5 De7 13. Dc2 Re4 14. Hfd1 Had8 15. dxc5 Rdxc5 16. b4 Ra6 17. a3 Rc7 18. Rd4 g6 19. Rxe4 dxe4 20. g3 Rd5 21. Bh3 Be5 22. b5 Dg5 23. Db3 Rf6 24. Da4 Dh5 25. Kg2 Bc8 26. Bxc8 Hxc8 27. h3 Dg5 Staðan kom upp í A-flokki Corus-stór- meistaramótsins í Wijk aan Zee. Ung- verjinn Peter Leko (2713) sem ætlaði sér að verða heimsmeist- ari 1999 hafði svart gegn Rússanum Ev- geny Bareev (2707) sem nýtti sér til hins ýtrasta ólánlega stöðu svörtu mann- anna. 28. Hxc8! Hxc8 29. Rc6! Bxb2 Ekki gekk upp að leika 29...Hxc6 vegna 30. bxc6 Bxb2 31. c7. 30. Re7+ Kg7 31. Rxc8 Df5 32. Rd6 Df3+ 33. Kg1 Be5 34. Dc2 h5 35. h4 Dg4 36. Kg2 Df3+ 37. Kg1 Dg4 38. Db3 Bxg3 39. Dxf7+ Kh6 40. Df8+ Kh7 41. De7+ og svartur gafst upp. Úrslit Íslandsmótsins í at- skák hefjast í kvöld kl. 20 í húsakynnum Taflfélags Reykjavíkur. Margir stór- meistarar eru skráðir til leiks og eru allir áhorfendur velkomnir. SKÁK Umsjón Helgi Áss Grétarsson Hvítur á leik. Árnað heilla Ljósmynd/Sissa BRÚÐKAUP. Gefin voru saman 14. júlí sl. í Kópa- vogskirkju af sr. Ægi Fr. Sigurgeirssyni Kristjana Lilja Hendriksdóttir og Sabri Einar Ómarsson Kikkmitto. Ljósmynd/Sissa BRÚÐKAUP. Gefin voru saman 18. ágúst sl. í Laug- arneskirkju af sr. Bjarna Karlssyni Pálína Pálma- dóttir og Ingólfur Péturs- son. Með morgunkaffinu Varstu að gefa henni hundamat aftur?! MORGUNBLAÐIÐ birtir tilkynningar um afmæli, brúðkaup, ættarmót og fleira lesendum sínum að kostnaðarlausu. Tilkynning- ar þurfa að berast með tveggja daga fyrirvara virka daga og þriggja daga fyrir- vara fyrir sunnudagsblað. Fólk getur hringt í síma 569-1100, sent í bréfsíma 569-1329, eða sent á net- fangið ritstj @mbl.is. Einnig er hægt að skrifa : Árnað heilla, Morgunblaðinu, Kringlunni 1, 103 Reykjavík       Ég er bara með kvef. Annars er ekkert að frétta. Gæti verið að þú haf- ir sett of mikið lyfti- duft í þessa köku?

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.