Morgunblaðið - 05.02.2002, Síða 2
FRÉTTIR
2 ÞRIÐJUDAGUR 5. FEBRÚAR 2002 MORGUNBLAÐIÐ
Fylgstu
með
nýjustu
fréttum
www.mbl.isWetzlar vill fá Rúnar
Sigtryggsson / B1
Guðjón Þórðarson öskureiður
eftir ósigur / B10
16 SÍÐUR48 SÍÐUR
Sérblöð í dag
Á ÞRIÐJUDÖGUM
HALLDÓR Ágrímsson utanríkis-
ráðherra fundaði með fulltrúum
framkvæmdastjórnar Evrópusam-
bandsins í gær og kom þar fram að
þeir vilja ekkert gera sem gæti
truflað eða flækt stækkunarferlið
innan ESB og eru því mjög nei-
kvæðir gagnvart því að taka inn í
ferlið samninga um Evrópska efna-
hagssvæðið.
Utanríkisráðherra sagði að fund-
irnir með þremur framkvæmda-
stjórum Evrópusambandsins í gær,
Verhaugen, Patten og Lamy, en
hann hitti þá hvern í sínu lagi, hafi
verið mjög gagnlegir. Á fundunum
hafi einkum verið til umræðu
stækkun Evrópusambandsins og af-
leiðingar þess fyrir Evrópska efna-
hagssvæðið, en stækkun innri mark-
aðarins sé jafnframt stækkun á
markaði EES.
„Við höfum haldið því fram og það
er ósk okkar að það þurfi að taka til-
lit til breytinga sem hafi orðið í Evr-
ópusambandinu við þessa stækkun.
Það hefur komið mjög skýrt fram í
dag að þeir vilja ekkert gera sem
hugsanlega gæti truflað eða flækt
stækkunarferlið. Þess vegna eru
þeir mjög neikvæðir gagnvart því að
taka inn í stækkunarferlið samninga
um Evrópska efnahagssvæðið jafn-
vel þótt það séu sjálfsagðar breyt-
ingar og leiðréttingar, “ sagði Hall-
dór.
Hann sagði að þótt fram hefði
komið fullur skilningur á nauðsyn
þess að gera breytingar á EES vilji
þeir aðskilja þetta tvennt sem geti
sett málið í mikla hættu.
„Það gæti þýtt það að við stæðum
frammi fyrir því að þurfa að sam-
þykkja stækkunarferlið og stækkun
innri markaðarins án þess að það
væri tekið tillit til eðlilegra óska
okkar og það er reynsla fyrir því að
staðfesting slíkra samninga geti
tekið mjög langan tíma,“ sagði Hall-
dór.
Hann sagðist telja að málið hefði
skýrst heilmikið á fundunum í gær
og því væri ekki lokið.
Halldór sagði að hvað markaðs-
aðgang varðaði lægi fyrir að ef eng-
ar breytingar yrðu gerðar hefðum
við betri aðgang að mörkuðum okk-
ar í Austur- og Mið-Evrópu í dag en
við hefðum gagnvart Evrópusam-
bandinu. Ef ekkert yrði gert í þeim
efnum myndu markaðsaðstæður
okkar versna allmikið í umsóknar-
löndunum. Það ætti til dæmis við
um síldarafurðir.
„Við getum ekki sætt okkur við
það að á sama tíma og verið er að
færa mál til meira frjálsræðis skuli
okkar aðstæður versna. Okkur hef-
ur tekist að koma þessu vel á fram-
færi og menn hafa tekið því með já-
kvæðum hætti að vinna í þessu máli
áfram, en eins og með allt annað er
ekkert sjálfgefið í því sambandi.
Evrópusambandið er einfaldlega
mjög upptekið af stækkunarferlinu
og öllu sem fylgir því og margir hafa
ekki almennilega áttað sig á því að
það er jafnframt verið að stækka
innri markaðinn til þessara þriggja
landa sem standa utan Evrópusam-
bandsins með þeim skuldbindingum
og réttindum sem því fylgir fyrir
okkur og viðkomandi lönd. Það á
eftir að fara fram veruleg vinna áð-
ur en niðurstaða fæst í það,“ sagði
Halldór.
Hann sagði að stefnt væri að því
að ljúka öllum samningum sem
varða stækkunina fyrir lok ársins,
þannig að samþykkt þjóðþinganna
geti átt sér stað á árinu 2003 og hún
komið til framkvæmda í ársbyrjun
2004.
Aðspurður hvort það væri ljóst að
ekki yrði um uppfærslu EES-samn-
ingsins að ræða fyrr en stækkunar-
ferlið væri í höfn, sagði Halldór svo
ekki vera. Viðræður hefðu átt sér
stað undanfarið og það yrði fram-
hald á þeim. „Það er mikilvægt fyrir
okkur að um leið og við leggjum
stækkunina fyrir Alþingi á Íslandi,
væntanlega 2003, þá liggi fyrir hver
staða okkar er á þessum sameig-
inlega innri markaði. Þar af leiðandi
komum við til með að leggja höf-
uðáherslu á að þessi mynd sé alveg
skýr,“ sagði Halldór.
Hann bætti því við að ESB vildi
aðskilja þessi mál. „Það er hugs-
anlegt að hafa þau í sitthvoru skjal-
inu en að okkar mati nauðsynlegt að
málin fylgist að í gegnum staðfest-
ingarferli um gjörvalla Evrópu.“
Utanríkisráðherra ræddi við þrjá framkvæmdastjóra ESB í gær
Neikvæðir fyrir því að taka
EES-samninga í stækkunarferlið
Reuters
Halldór Ásgrímsson utanríkisráðherra hitti þrjá framkvæmdastjóra
Evrópusambandsins í Brussel í gær. Hér er hann með Chris Patten, sem
fer með erlend samskipti innan framkvæmdastjórnarinnar.
VEL á fimmta þúsund manns tók á
móti íslenska landsliðinu, sem varð
í fjórða sæti á Evrópumótinu í
handknattleik í Svíþjóð, í versl-
unarmiðstöðinni Smáralind í gær
en þangað kom liðið beint frá
Keflavíkurflugvelli. „Strákarnir
okkar“ gengu inn í Vetrargarðinn
við dynjandi lófatak og mikinn
fögnuð gestanna sem beðið höfðu
drjúga stund eftir að fagna liðinu.
Greinilegt var að leikmenn íslenska
liðsins voru hrærðir yfir móttökun-
um og öllum þeim fjölda sem kom-
inn var til að fagna árangri þeirra.
Forseti Íslands, Ólafur Ragnar
Grímsson, ávarpaði landsliðið og
sagði m.a. að liðið hefði veitt þjóð-
inni mikla gleði. „Árangur lands-
liðsins telst tvímælalaust til merk-
ustu afreka í íþróttasögu okkar
Íslendinga. Aldrei fyrr hefur ís-
lenskt lið náð jafnlangt í keppni við
öflugustu íþróttaþjóðir í heimi. Það
er mikil gæfa fyrir litla þjóð að eiga
slíka afreksmenn, íþróttahetjur
sem vekja stolt með þjóðinni og eru
æskunni fyrirmyndir.“
Að loknu ávarpi forseta Íslands
afhenti Ellert B. Schram, forseti
Íþróttasambands Íslands, hverjum
leikmanna blóm á meðan gestir
kölluðu eftirnafn leikmannsins og
klöppuðu honum lof í lófa.
Björn Bjarnason mennta-
málaráðherra afhenti formanni
HSÍ bréf til staðfestingar á 15 millj-
óna króna styrk til HSÍ sem sam-
þykktur var í ríkisstjórn á föstudag
og HSÍ fékk afhentar tæpar 17
milljónir, sem söfnuðust meðal al-
mennings og fyrirtækja hér á landi
síðustu daga vegna árangurs lands-
liðsins í Svíþjóð. Þá afhenti banka-
stjóri Landsbankans HSÍ eina millj-
ón króna vegna árangursins í
Svíþjóð, en Landsbankinn hefur
lengi verið helsti styrktaraðili HSÍ.
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Á fimmta
þúsund
manns
fagnaði
landsliðinu
Sigfús Sigurðsson og Ólafur
Stefánsson, markahæsti leik-
maður Evrópumótsins, sem var
greinilega mjög hrærður yfir
hinum góðu móttökum.