Morgunblaðið - 05.02.2002, Blaðsíða 26

Morgunblaðið - 05.02.2002, Blaðsíða 26
ERLENT 26 ÞRIÐJUDAGUR 5. FEBRÚAR 2002 MORGUNBLAÐIÐ SHI Guangsheng, utanríkis-viðskipta- og efnahags-málaráðherra Kína, segirað Kínverjar og Íslendingar geti margt lært hverjir af öðrum og að tvíhliða samstarf landanna geti aukist til muna á næstu árum. Nefnir hann sérstaklega sjávarútvegs-, orku- og landbúnaðarmál en að hans sögn námu tvíhliða viðskipti land- anna í fyrra um 50 milljónum doll- ara, þ.e. rúmlega 5 milljörðum ísl. króna, sem var 60% aukning frá árinu áður. Guangsheng fer af landi brott í dag en hann heimsótti Ísland nú um helgina. Átti hann m.a. fund með Valgerði Sverrisdóttur, iðnaðar- og viðskiptaráðherra, og þáði einnig há- degisverð í boði Geirs H. Haarde fjármálaráðherra. Þá tók ráð- herrann þátt í morgunverðarfundi með hagsmunaaðilum úr viðskipta- lífinu í gær, auk þess sem hann kynnti sér starfsemi nokkurra ís- lenskra fyrirtækja. Aðspurður hver tilgangur heim- sóknarinnar til Íslands væri sagði Guangsheng fyrst að þrátt fyrir mikla fjarlægð hefðu Íslendingar og Kínverjar átt mjög vinsamleg sam- skipti um nokkurra ára skeið. Efna- hags- og viðskiptaleg tengsl land- anna tveggja hefðu undið upp á sig á sama tíma en þó væri ljóst að þau gætu aukist mjög enn á næstu árum. „Ég hef því lengi viljað koma hingað til Íslands í því skyni að sjá landið og kanna hvaða tækifæri eru í boði í samvinnu þjóða okkar,“ sagði Guangsheng. Ráðherrann er inntur eftir því hvar hann sjái helst vaxtarbrodda, þ.e. hvar hann telji helst að megi auka samvinnu Íslendinga og Kín- verja. „Ef við ræðum um verslun og við- skipti,“ segir hann, „þá get ég nefnt að á síðasta ári voru tvíhliða viðskipti landanna 50 milljóna dollara virði [um 5 milljarðar ísl. króna] sem telst aukning upp á 60% frá árinu áður. Löndin tvö hafa einnig átt mjög góða samvinnu í málum er varða fiskveið- ar, sem og í tengslum við skipasmíð- ar. Loks má nefna tæknilegt sam- starf vegna nýtingar jarðvarma. Ég tel því að Kínverjar og Íslendingar geti margt lært hver af öðrum og að tvíhliða samstarf okkar geti aukist til muna á næstu árum.“ Guangsheng nefnir sérstaklega í tengslum við kaup Kínverja á fiski frá Íslandi að þau viðskipti hafi mjög aukist á undanliðnum árum. „Nýver- ið hefur það síðan gerst að færst hef- ur í vöxt að fiskurinn sé keyptur af Íslendingum, fluttur til Kína og unn- inn þar til sölu á öðrum mörkuðum í Asíu.“ Segir hann þetta til marks um framþróun þeirrar samvinnu, sem nú sé með þjóðunum, og að slík framþróun geti átt sér stað á fleiri sviðum. Hvetja kínversk fyrirtæki til að færa út kvíarnar Viðskipti með fisk voru hins vegar ekki það eina sem Guangsheng hugðist ræða við fulltrúa íslenskra stjórnvalda. Sagði hann að samstarf í orkumálum myndi einnig verða of- arlega á baugi. „Löndin tvö hafa nú þegar átt náið samstarf vegna tiltekinna verkefna er tengjast nýtingu jarðvarma í Pek- ing-borg. Við fögnum hins vegar öll- um frekari tækifærum til að kynna okkur tæknikunnáttu Íslendinga og þekkingu á nýtingu náttúrulegra orkugjafa. Það liggur síðan fyrir að Íslendingar hyggjast byggja mikla virkjun í því skyni að beisla orku vatnsins og þar held ég að séu sam- starfsmöguleikar fyrir kínversk fyr- irtæki því staða okkar fyrirtækja í þessum geira er sterk.“ Kvaðst Guangsheng þar vera að vísa til þess að kínversk fyrirtæki framleiddu mikið af rafmagnstækj- um til heimilisnota, vefnaðarvöru, fatnað og skó og að í öllum tilfellum væri um að ræða gæðavöru á góðu verði. „Við höfum því um margt að tala því enn er hægt að auka mjög gagnkvæm viðskipti landanna,“ sagði hann. Guangsheng var spurður hvort heimsókn hans væri angi af nýrri efnahagsstefnu kínverskra stjórn- valda en Kínverjar hafa undanfarin misseri verið mjög áfram um að auka erlendar fjárfestingar í Kína og ger- ast virkir þátttakendur í alþjóðavið- skiptum. Sagði hann að vissulega væri það svo. „Auk þess að vinna nú að efna- hagsumbótum heima fyrir þá hvetja stjórnvöld í Peking kínversk fyrir- tæki til að horfa til tækifæra erlend- is, þ.m.t. á Íslandi. Og við vitum að Kínverjar og Íslendingar geta átt gott samstarf á ýmsum sviðum. Vil ég þá nefna, auk þeirra þátta sem ég ræddi um áður, landbúnaðarmál, einkum framleiðslu grænmetis í gróðurhúsum. Þar kemur aftur til sögunnar hversu ríkt Ísland er af jarðhita, fersku vatni og orku en hugsanlegt er að kínverskir og ís- lenskir aðilar geti lært nokkuð hver af öðrum þegar kemur að gróðurhús- aframleiðslu grænmetisafurða.“ Innganga í WTO afar mikilvæg Á fundi Heimsviðskiptastofnunar- innar, WTO, í Doha í Katar í nóv- ember var gengið frá inngöngu Kín- verjar í samtökin eftir langar og strangar samningaviðræður. Gu- angsheng sagði aðspurður að þar hefði verið um afar mikilvægt skref að ræða fyrir Kínverja. „Innganga Kína í WTO er afar mikilvægt skref í þeirri viðleitni stjórnvalda að aðlaga landið breytt- um aðstæðum í efnahagsmálum, þ.e. aukinni hnattvæðingu verslunar og viðskipta. Við höfum mótað þá stefnu að opna landið mjög í efnahagslegu tilliti og fyrir vikið verðum við Kín- verjar að aðlagast aðstæðum í al- þjóðlegum viðskiptum. Innganga okkar í WTO gefur einmitt til kynna að okkur hafi tekist og sé að takast að ná þessu markmiði okkar. Loks má fullyrða að innganga okkar muni hraða umbótaferlinu í efnahagsmál- um, umbætur og aukið aðgengi er- lendra aðila að kínverskum mörkuð- um eru lykilþættir í því ferli. Að sjálfsögðu hefur innganga í WTO einnig í för með sér ýmsa erf- iðleika og ýmis vandamál fyrir Kín- verja en ég er sannfærður um að við séum í stakk búnir til að takast á við þau vandamál og leysa þau með við- unandi hætti,“ sagði hann. Fram kom í máli ráðherrans á fundi sem haldinn var í gær á vegum Íslensk-kínverska viðskiptaráðsins, Verslunarráðs Íslands, Útflutnings- ráðs Íslands og Viðskiptaþjónustu utanríkisráðuneytisins að við erfiðar aðstæður efnahagssamdráttar í heiminum og slæmt efnahagsástand í Asíu hefðu kínversk stjórnvöld lagt hart að sér við að finna leiðir til enn frekari þróunar kínverska hagkerf- isins. Tryggja yrði stöðuga efna- hagsþróun til að skapa hinum gríð- arlega fjölda fólks í Kína (um 1,3 milljarðar) mannsæmandi lífsskil- yrði. Þess vegna hefði Kína unnið að umbótum og opnun hagkerfisins í tvo áratugi. Hann sagði kínverska hagkerfið vaxa afar hratt, hagvöxtur hefði ver- ið allt að 7% á ári og í fyrra hefðu er- lendar fjárfestingar í Kína aukist um 50% frá árinu áður. Ástæður þessa mikla vaxtar rakti hann til stefnu kínversku ríkisstjórnarinnar á ýms- um sviðum, s.s. til virkrar efnahags- stefnu, forsjállar peningastefnu, neysluhvetjandi aðgerða og opnunar hagkerfisins gagnvart umheiminum. Guangsheng kom til Íslands frá Brussel í Belgíu en þar stýrði hann fundi nefndar um samskipti Kína og Evrópusambandsins í verslun og viðskiptum. Var þar um hitafund að ræða ef marka má fregnir sem af honum bárust en Kínverjar gagn- rýndu þar ákvörðun ESB að banna innflutning kínverskra matvæla á þeirri forsendu að leifar ólöglegra sýklalyfja hefðu fundist í vörunum. Guangsheng gerir hins vegar lítið úr þessum deilum og segir óhjá- kvæmilegt að upp komi ágreinings- efni þegar tveir aðilar setjist niður við samningaborðið. Verkefnið sé þá einfaldlega að finna lausn á ágrein- ingsmálunum og að því muni Kín- verjar vinna í samvinnu við fram- kvæmdastjórn ESB. Án efa muni það takast. Bush til Kína í lok mánaðarins Guangsheng var spurður að því hvaða áhrif hryðjuverkaárásirnar á Bandaríkin 11. september sl. hefðu haft á samskipti stórveldanna tveggja, Kína og Bandaríkjanna. Svaraði hann því til að samskiptin hefðu þróast í jákvæða átt og nefndi hann í því sambandi að George W. Bush Bandaríkjaforseti væri vænt- anlegur í heimsókn til Kína í lok febrúar. „Löndin tvö hafa áttað sig á því að eðlileg og góð samskipti þeirra eru báðum í hag og að þau stuðla að friði í heiminum sem og efnahags- legri framþróun,“ sagði Guangs- heng. Um árásinar almennt sagði ráðherrann að öll veröldin væri sam- mála um að berjast þyrfti gegn öllum hryðjuverkum. „Kína er algerlega mótfallið hryðjuverkum af nokkurri tegund. Raunar höfum við mátt þola okkar eigin hryðjuverkavá og kín- verska stjórnin hefur því fordæmt ódæðin sem framin voru í Bandaríkj- unum af öllum mætti,“ segir hann. „Á sama tíma erum við einnig þeirr- ar skoðunar að mikilvægt sé að sömu viðmiðum sé beitt gagnvart öllum hryðjuverkum, sama hver fremur þau,“ bætir hann við án þess að út- skýra betur hvað í þeim orðum felst. Um efnahagslegar afleiðingar hryðjuverkanna segir Guangsheng að sannarlega hafi þau ekki hjálpað til einmitt þegar samdráttar hafi orðið vart á heimsvísu. „Við vonum auðvitað að senn rofi til í efnahagsmálum,“ sagði Guangsheng. „Kínverskt hagkerfi er kannski ekki ýkja stórt nú um stund- ir en þó mjög mikilvægt þegar horft er til heimsins í heild sinni. Á síðasta ári óx verg þjóðarframleiðsla í Kína um 7,3%, svo dæmi sé tekið, og inn- flutningur og útflutningur óx sam- anlagt um 7,5%. Kína leikur því stórt hlutverk í því verkefni að blása lífi í alþjóðlegan efnahag og auka verslun og viðskipti á nýjan leik,“ sagði Shi Guangsheng, utanríkisviðskipta og efnahagsmálaráðherra Kína. Víða vaxtar- broddur í samskiptum ríkjanna Morgunblaðið/Ásdís Shi Guangsheng, utanríkisviðskiptaráðherra Kína, segir að hægt sé að auka samstarf Kína og Íslands. ’ Innganga Kína íWTO er afar mik- ilvægt skref ‘ Viðskipti Íslendinga og Kínverja hafa auk- ist stórlega á undanliðnum árum. Samstarf þjóðanna má þó enn auka, að mati Shi Guangsheng, utanríkisviðskipta- og efnahagsmálaráðherra Kína. Utanríkisviðskipta- og efnahagsmálaráðherra Kína í opinberri heimsókn á Íslandi STJÓRN Pakistans kvaðst í gær vera vongóð um að bandaríski blaðamaðurinn Daniel Pearl, sem var rænt í borginni Karachi 23. janúar, fyndist á lífi þótt ekkert hefði heyrst frá mannræningjunum í fimm daga. Kenneth Dam, aðstoðarfjár- málaráðherra Bandaríkjanna, ræddi málið í gær við Pervez Musharraf, forseta Pakistans, og fleiri pakistanska embættismenn. Dam hvatti stjórn landsins til að gera allt sem í valdi hennar stæði til að bjarga blaðamanninum. Pearl starfaði fyrir Wall Street Journal og blaðið hefur hvatt mannræningjana til að sanna að hann sé enn á lífi. Þeir hafa ekki sent frá sér neinar myndir af blaðamanninum frá því á miðviku- dag. „Við erum bjartsýnir á að hægt verði að bjarga Pearl,“ sagði Moin- uddin Haider, innanríkisráðherra Pakistans. Þegar Pearl var rænt var hann að skrifa grein um ísl- ömsk öfgasamtök og reyna að kom- ast í samband við leiðtoga þekktrar öfgahreyfingar, Mubarak Ali Shah Gilani, sem var handtekinn í Kar- achi í vikunni sem leið. Pakistönsk yfirvöld sögðust ekki vita hvort Gilani væri viðriðinn mannránið og neituðu fréttum um að hann yrði framseldur til Bandaríkjanna. Pakistanskur embættismaður sagði í gær að lögreglan væri að leita að íslömskum öfgamanni, Mo- hammads Hashims Qadeer, sem hefði aðstoðað Pearl við að komast í samband við leiðtoga íslamskra öfgasamtaka. Lögreglan vonast til að Qadeer geti upplýst málið og vísað henni á mannræningjana. Fréttir um að lík Pearls hefði fundist voru dregnar til baka í gær. Lögreglunni höfðu borist tölvu- skeyti um að blaðamaðurinn hefði verið líflátinn en í ljós kom að um gabb var að ræða. Lögreglan í Karachi handtók um helgina 16 ára dreng sem grunaður er um að hafa sent lögreglunni tvö tölvuskeyti um mannránið til að blekkja hana. Vonast til að finna blaða- manninn á lífi í Pakistan Karachi. AP, AFP.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.