Morgunblaðið - 05.02.2002, Blaðsíða 25

Morgunblaðið - 05.02.2002, Blaðsíða 25
ERLENT MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 5. FEBRÚAR 2002 25 KENNETH L. Lay, fyrrverandi forstjóri bandaríska orkusölufyrir- tækisins Enron, hætti skyndilega við að bera vitni við yfirheyrslur tveggja þing- nefnda í gær og í dag, á þeim for- sendum að útilok- að væri að yfir- heyrslurnar yrðu sanngjarnar. Fjöldi þingnefnda rannsakar nú gjaldþrot Enron, sem fyrir ekki löngu var eitt stærsta orkufyrirtæki í heimi, en varð gjaldþrota í desember sl. Lay hætti við að bera vitni eftir að þingmenn komu fram í frétta- þáttum í sjónvarpi á sunnudags- morgun og létu þar falla orð sem „benda til að þegar sé búið að fella dóma og yfirheyrslurnar yrðu eins og ákærur“, sagði lögmaður Lays, Earl J. Silbert. Lay hafði boðist til að bera vitni við yfirheyrslur við- skiptanefndar öldungadeildarinnar í gær, og fjármálaundirnefnd full- trúadeildarinnar í dag. Afboðaði Lay komu sína til beggja. Silbert sagði í bréfi til formanns viðskiptanefndarinnar að ekki væri hægt að ætlast til þess að Lay bæri vitni „þar eð þegar er búið að kom- ast að niðurstöðum án þess að Lay hafi fengið tækifæri til að tjá sig“. Lay var stjórnarformaður og yf- irframkvæmdastjóri Enron til 23. janúar sl., er hann sagði upp störf- um. Rannsókn þingnefndanna bein- ist m.a. að því, hvort óeðlilegir við- skiptahættir og bókhaldsóregla hafi leitt til gjaldþrots fyrirtækisins, sem í fyrra taldist sjöunda stærsta fyrirtæki í Bandaríkjunum. Þegar hefur komið í ljós, að tekjur þess voru ýktar og miklar skuldir faldar með því að færa þær á reikning sameignarfyrirtækja sem Enron stóð að. Um sex þúsund manns misstu vinnuna er Enron fór á hausinn, og þúsundir starfsmanna og fjárfesta glötuðu öllu sparifé sínu. Fyrrverandi yfirfjármálastjóri harkalega gagnrýndur Í skýrslu, sem þriggja manna nefnd, skipuð af stjórn Enron, lagði fram á laugardaginn, er skuldinni að mestu skellt á yfirmenn fyrir- tækisins, endurskoðendafyrirtækið Anderson, sem sá um endurskoðun og ráðgjöf fyrir Enron, lögfræðinga Enron og stjórnina sjálfa fyrir að hafa stofnað til en látið undir höfuð leggjast að hafa eftirlit með fjölda sameignarfyrirtækja sem hafi leitt til gjaldþrots fyrirtækisins. Nefndin er hörðust í gagnrýni sinni á Andrew S. Fastow, sem var yfirfjármálastjóri Enron. Fastow, og aðrir sem unnu undir hans stjórn, högnuðust um tugi milljóna dollara „á kostnað Enron“, eins og segir í skýrslu nefndarinnar, með því að falsa reikningsskil til þess að fela tap sem nam yfir einum millj- arði dollara á einu ári. Fastow hagnaðist um að minnsta kosti 30 milljónir dollara af sam- eignarfyrirtækjunum, sem hann stjórnaði. Stjórn Enron hefði sam- þykkt fyrirkomulag sem gerði ráð fyrir að Fastow stjórnaði sameign- arfyrirtækjunum, en hann faldi tekjurnar sem hann hafði af þeim, segir nefndin í skýrslu sinni. „Það sem [Fastow] lagði fram sem fyrirkomulag ætlað til að auka hag Enron varð smám saman að að- ferð til þess bæði að auka tekjur hans sjálfs og auðvelda fölsun á reikningsskilum Enron,“ sagði nefndin. Áætlað er að Fastow beri vitni fyrir orku- og viðskiptanefnd þingsins á fimmtudaginn, en margir fréttaskýrendur telja að hann muni ekkert segja. Fyrrv. forstjóri Enron hættir við að bera vitni Lay telur þing- menn þegar vera búna að komast að niðurstöðu Fastow Washington. The Los Angeles Times. RÍKISSTJÓRN Argentínu til- kynnti á sunnudagskvöld um nýja efnahagsáætlun, sem gerir ráð fyrir að argentínski pesóinn verði að fullu aftengdur Bandaríkjadoll- ar. Samkvæmt áætluninni, sem kynnt var af efnahagsmálaráð- herranum Jorge Remes Lenicov, verður öllum bankainnstæðum breytt í pesóa á genginu 1,40 gagnvart dollar. Lánum í dollur- um verður hins vegar breytt í pes- óa á genginu einn á móti einum. Breytingarnar taka gildi á morgun og fyrirskipaði ríkisstjórnin að bankar skyldu vera lokaðir í gær og í dag til að koma í veg fyrir að almenningur flykktist þangað til að taka út sparifé sitt. Í byrjun janúar tók ríkisstjórnin upp tvöfalda gengisskráningu til að reyna að bjarga efnahag lands- ins, en frá henni verður horfið með þessum aðgerðum. Áður hafði pesóinn verið fasttengdur dollar á genginu einn á móti einum. Lenicov sagði að nú væru nauð- synlegar aðstæður fyrir hendi til að setja gjaldmiðilinn á flot og að gjaldeyrisforði seðlabanka Arg- entínu næmi um 14 milljörðum dollara, eða um 1.400 milljörðum króna. Ráðherrann sagði að rík- isstjórnin æskti þess að pesóinn yrði ráðandi í efnahagslífi Argent- ínu. „Við viljum hafa fulla sjálfs- stjórn, okkar eigin gjaldmiðil,“ bætti hann við. Mikill niðurskurður ríkisútgjalda Ríkisstjórnin kunngerði enn- fremur á sunnudag að drög að fjárlögum fyrir árið 2002 yrðu lögð fyrir þingið í dag, þar sem gert væri ráð fyrir halla upp á 1,5 millj- arða dollara, en það er nær þrisvar sinnum minni halli en árið 2001. Boðaði efnahagsmálaráðherrann mikinn niðurskurð ríkisútgjalda. Nýja efnahagsáætlunin var samþykkt eftir að hæstiréttur Argentínu úrskurðaði á föstudag að takmarkanir á úttektarheimild- um sparifjáreigenda brytu í bága við stjórnarskrána. Forseti lands- ins, Eduardo Duhalde, gagnrýndi hæstarétt harðlega fyrir úrskurð- inn og varaði við að stjórnleysi gæti fylgt í kjölfarið. Samkvæmt áætluninni verður takmörkunun- um aflétt að hluta. Ný efnahagsáætlun samþykkt í Argentínu Pesóinn að fullu aftengdur dollar Buenos Aires. AFP, AP. Reuters Argentínskar konur berja potta og pönnur við argentínska sendi- ráðið í Mexíkó til að mótmæla efnahagsaðgerðunum í Argentínu.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.