Morgunblaðið - 05.02.2002, Blaðsíða 47

Morgunblaðið - 05.02.2002, Blaðsíða 47
MINNINGAR MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 5. FEBRÚAR 2002 47 ✝ SigurborgHólmfríður Helgadóttir fæddist á Hvítanesi í Ísa- fjarðardjúpi 7. októ- ber 1920. Hún lést á Landspítalanum í Fossvogi 21. janúar síðastliðinn. For- eldrar hennar voru Helgi Salómonsson, f. 15. nóvember 1892, d. 23. janúar 1948, og Guðmund- ína Rannveig Ragú- elsdóttir, f. 21. júní 1898, d. 4. maí 1986. Sigurborg átti þrjú alsystkini og er eitt þeirra á lífi, Júlíus Helga- son, f. 4. febrúar 1923. Látin eru Matthías Helgason, f. 18. apríl 1918, d. 6. maí 1983, og Salómon Helgason sem lést barn að aldri. Frá síðara hjónabandi móður hennar eru tvö hálfsystkini á lífi, Aðalheiður Árnadóttir, f. 19. des- desember 1970. Ragnar Steinn er kvæntur Maríu Lísu Benedikts- dóttur og eiga þau Lísu Rán. Ragnar á einnig Tómas Hilmar, f. 18. september 1970. Tómas Hilm- ar á einn son, Guðmund Hilmar. Með Rósu Helgadóttur á Ragnar Rebekku Silvíu, f. 24. júní 1978. Ragnar er kvæntur Oolinu Guð- mundsson. 2) Drengur, f. 28.sept- ember 1955, hann lést sama dag. 3) Auðunn Jóhann, f. 17. júní 1957. Auðunn á þrjú börn með Önnu Maríu Antonsdóttur. Þór- unn, f. 5. janúar 1976, hún er í sambúð með Guðmundi Tryggva Ásbergssyni. Guðmundur Auð- unn, f. 30. maí 1984, og Aron Ber- tel, f. 6. nóvember 1990. Auðunn er í sambúð með Magdalenu Red- licka og á hún eina dóttur, Klau- díu. 4) Hafþór, f. 28. september 1958. Hafþór á eina dóttur með Ágústínu Pálmarsdóttur, Krist- rún Helga, f. 13. september 1983. Sigurborg var húsmóðir meðan synir hennar uxu úr grasi en eftir það starfaði hún lengst af á Hressingarskálnum. Sigurborg verður jarðsungin frá Bústaðakirkju í Reykjavík í dag og hefst athöfnin klukkan 13.30. Útförin fer fram frá Hnífs- dalskapellu hinn 9. febrúar klukkan 14. ember 1929, og Hörð- ur Líndal Árnason, f. 3. mars 1934. Látin eru Jón Guðmundur Árnason, f. 4. febrúar 1927, d. 28. júlí 1935, og Júlíana Ólöf Árna- dóttir, f. 7. júní 1930, d. 3. október 1953. Sigurborg eignað- ist fyrsta son sinn, Ásgeir Sigurðsson magister, f. 24. októ- ber 1942. Árið 1949 giftist Sigurborg Guðmundi Auðuns- syni sjómanni. Börn Sigurborgar og Guðmundar eru 1) Ragnar, f. 1. október 1949. Ragnar eignaðist tvö börn með Guðrúnu Stefaníu Guðjónsdóttir, Rúnar Steinn, f. 19. desember 1969. Rúnar Steinn er kvæntur Helgu Kristrúnu Hjálmarsdóttur og eiga þau Tönju Stefaníu og Tuma Stein. Ragnar Steinn, f. 11. Hin harðgerða og nægjusama kyn- slóð, sem lagði grundvöll að íslenska velferðarríkinu á síðustu öld, gengur nú óðum fyrir ætternisstapann. Öll- um er hollt að staldra við og hugleiða þá sögu. Sorglegt að nú skuli vegið að sjálfstæðinu sem þessi kynslóð og sú á undan fórnaði svo miklu fyrir. Móðir okkar var af þeim meiði og átti rætur langt aftur til dugandi sjómanna og bænda við Ísafjarðardjúp. Í litla fiski- mannabænum, Hnífsdal, undir snar- bröttum hlíðum Búðarhyrnunnar, ólst hún upp. Skömmu áður hafði fall- ið þar niður eitt mesta snjóflóð Ís- landssögunnar, sópað fjölda húsa út í sjó og tuttugu manns farist. Sann- mælt er að stórbrotið umhverfi skapi stórbrotna einstaklinga. Hér ólst mamma upp og hér var hin harða lífs- barátta háð. Afi sótti sjóinn einn á trillunni sinni og framleiddi landsins besta harðfisk og seldi víða, enda nefndur Helgi sali. Nokkrar kindur og hænur skutu svo traustari stoðum undir framfærslugrundvöllinn. „Taó- ískar aðstæður“ myndu hugræktar- menn nútímans líklega kalla þetta, enda vart einhamir sem þannig lifðu. Þótt skilnaður yrði við ömmu var litlum dreng alltaf vel tekið og stór- kostlegt ævintýri að fá að fara með afa út á trillunni. Sextán ára hleypti móðir okkar heimdraganum og hélt suður í höfuð- borgarvist. Í upphafi heimsstyrjald- arinnar varð mamma fyrir því áfalli að missa sína æskuást, Ásgeir Sig- urðsson, en hann var þá tvítugur orð- inn skipstjóri á fiskibátnum Hólm- steini, sem hvarf með allri áhöfn. Allt þar til hún giftist, tæplega þrítug, stundaði hún framreiðslustörf, eink- um á Hressingarskálanum. Allan þann tíma bjó hún hjá ágætu fólki á Marargötu 4. Ógleymanlegar ferðirn- ar okkar ömmu suður, með katalínu- flugbát eða strandferðaskipi, til að heimsækja mömmu. Herbergið henn- ar svo fallegt og hlýlegt og húsið allt eins og ævintýrahöll, svo gaman að hjóla um á þríhjóli í garðinum, tína rifsber af trjánum. Á sumrin kom mamma vestur færandi hendi. Skór og stígvél á litla fætur og annað fata- kyns. Hvílíkur munur frá svörtu gúmmítúttunum skósmiðsins í þorp- inu. Stóru „skiliríin“, sem mamma hannaði og saumaði út af listfengi, vöktu athygli og voru til mikils ynd- isauka á heimilinu. Í litla fiskimanna- bænum voru heimilin ekki mörg sem gátu státað af þvílíkum listaverkum. Í huga barnsins var mamma ævintýra- persóna sem bjó við allsnægtir í stóru borginni fyrir sunnan og var ósínk á að láta aðra njóta þess. Göngutúrinn með mömmu og Júlíuönu heitinni Ós- hlíðarveginn nýja og inn í Seljadal verður alltaf ógleymanlegur. Þær systurnar áttu svo vel skap saman, stöðugt hlegið og gert að gamni sínu. Ekki má heldur gleyma góðum upp- eldissystrum Aðalheiði og Rakelu heitinni og Herði, yndislegar mann- eskjur. Mikil þáttaskil verða í lífi mömmu er hún gengur í hjónaband tæplega þrítug og eignast þrjá mannvænlega syni. Um miðja síðustu öld, á tímum hafta og skömmtunar, var ekki auð- velt fyrir venjulegt fólk að koma ár sinni fyrir borð, eignast þak yfir höf- uðið. Þetta hafðist þó með fádæma dugnaði og ráðdeildarsemi. Fjöl- skyldan eignaðist íbúð við Efstasund 70, byggði einbýlishús við Akurgerði 17, Skólagerði 6 og að lokum við Langagerði 48. Alla tíð vann mamma tvöfalda vinnu, saumaði kvenfatnað, þvoði allan þvott af Hressingarskál- anum og að lokum fór hún að vinna þar aftur. Þau eignuðust og bifreið sem var frekar fátítt á þessum árum. Draumur mömmu, að eignast glæsi- legt og gott heimili þar sem smekkvísi hennar fékk að njóta sín, rættist sannarlega. Einangrun heimilisins reyndist henni samt oft erfið jafn- mannblendin og glaðsinna og hún var að upplagi. Skapsmunirnir voru vissulega ríkir og féllu þá stundum orð sem betur hefðu verið ósögð. En réttlætiskenndin var rík, hjartað gott sem undir sló og skjót var hún til sátta. Henni verður mikið fyrirgefið, því hún elskaði mikið. Mamma var söngvin, ættfróð og fljúgandi mælsk um hin aðskiljanlegustu málefni og lét engan eiga neitt inni hjá sér. Um- gengni við fólk var hennar yndi og á mannamótum var hún oft hrókur alls fagnaðar. Barnabörnin elskuðu mömmu, því umhyggja hennar og kærleiksfaðmur stóð þeim alltaf opinn. Þessir jákvæðu eðlisþættir nutu sín betur er tuttugu ára stormasömu hjónabandi lauk og yngstu synirnir komnir á legg. Drauma sína um ferðir til suðrænna sólarlanda lét hún nú rætast. Ferð- irnar með vinkonum og ættingjum til Ítalíu og Spánar urðu nær árvissar auk ferðanna til æskustöðvanna við Djúp. Nú mun hún brátt halda í sína hinstu för til æskustöðvanna kæru í Hnífsdal og hvíla við hlið föður síns í litla kirkjugarðinum við hafið. Elskaða móðir. Brottför þín gerðist óvænt og skyndilega. Heimili þitt var okkur bræðrunum eins og miðpunkt- ur heimsins, þangað var alltaf „heim“. Þangað var gott að leita skjóls undan hretviðrum lífsins, leita ráða, reifa málin. Nú er þessi miðpunktur tilver- unnar horfinn með þér en sorgin og söknuðurinn gagntaka sálirnar. Þú varst vel lesin í dulrænum fræðum og óttaðist ekki vistaskiptin frekar en annað. Hugrekkið var þér í blóð borið, öll sjálfshyggja fjarri skapi. Þú varst stolt kona og barst þína þjáning í hljóði, kvartaðir aldrei. Við vitum að þínir ágætu eðliskostir munu tryggja þér góða heimkomu á æðri tilveru- stigum. Að leiðarlokum vottum við bræðurnir þér, elsku móðir, okkar dýpsta þakklæti og virðingu. F.h. okkar bræðranna Ásgeir Sigurðsson. SIGURBORG HÓLMFRÍÐUR HELGADÓTTIR Áskirkja. Opið hús fyrir alla aldurshópa kl. 10–14 í neðri safnaðarsal. Skemmti- ganga um Laugardalinn eða upplestur kl. 10.30. Umsjón Þóranna Þórarinsdóttir. Bæna– og fyrirbænastund kl. 12 í kirkjuni. Umsjón Guðrún K. Þórsdóttir. Léttur há- degisverður að stundinni lokinni. Samvera foreldra unga barna kl.14–16 í neðri safn- aðarsal. 12 spora starf kl. 19 í kirkjunni. Bústaðakirkja. TTT-starf fyrir 10–12 ára kl. 17. Grensáskirkja. Kyrrðarstund í hádegi kl. 12.10. Orgelleikur, ritningalestur, altaris- ganga, fyrirbænir. Léttur hádegisverður í safnaðarheimili eftir stundina. Hallgrímskirkja. Fyrirbænaguðsþjónusta í dag kl. 10.30. Beðið fyrir sjúkum. Háteigskirkja. Ævintýraklúbburinn kl. 17. Fjölbreytt og skemmtilegt starf fyrir börn úr 1.–3. bekk í umsjón Guðrúnar Helgu, Sig- rúnar, Völu og Jóhönnu. Öll börn velkomin og alltaf hægt að bætast í hópinn. Ung- lingaklúbburinn MeMe kl. 19.30. Kröftugt starf fyrir unglinga í umsjón Gunnfríðar og Jóhönnu. Laugarneskirkja. Morgunbænir kl. 6.45– 7.05 alla virka daga nema mánudaga. TTT-fundur kl. 16 fyrir krakka í 5.–7. bekk. Fullorðinsfræðsla kl. 20. Yfirskrift nám- skeiðsins er Líf og dauði, sorg og gleði. Í kvöld fjallar Sigurbjörn Þorkelsson um ný- útkomna bók sína Lífið heldur áfram. Að- gangur ókeypis og öllum heimill. Gengið inn um merktar dyr á austurgafli kirkjunn- ar. Þriðjudagur með Þorvaldi kl. 21. Lof- gjörðarstund þar sem Þorvaldur Halldórs- son leiðir sönginn. Sigurvin Jónsson, guðfræðinemi, talar og stjórnar bæna- stund við altarið. Fyrirbænaþjónusta kl. 21.30 í umsjá bænahóps kirkjunnar undir stjórn Margrétar Scheving og hennar sam- starfsfólks. (Sjá síðu 650 í Textavarpi). Neskirkja. Litli kórinn, kór eldri borgara kl. 16.30. Stjórnandi Inga J. Backman. Nýir félagar velkomnir. Foreldramorgunn mið- vikudag kl. 10–12. Fræðsla frá Málbjörg, félagi um stam. Umsjón Elínborg Lárus- dóttir. Seltjarnarneskirkja. Foreldramorgunn kl. 10–12. Starf fyrir 7–9 ára kl. 16 og fyrir 10–12 ára kl. 17.30. Fríkirkjan í Reykjavík. Kyrrðar- og bæna- stund í dag þriðjudag kl. 12 í kapellu safn- aðarins á 2. hæð í safnaðarheimili kirkj- unnar, Laufásvegi 13. Allir velkomnir til þátttöku. Árbæjarkirkja. Foreldramorgnar kl. 10– 12. Hittumst, kynnumst, fræðumst. TTT- klúbburinn í Ártúnsskóla kl. 14.20–15.20. Barnakóraæfing kl. 17–18. Breiðholtskirkja. Bænaguðsþjónusta með altarisgöngu kl. 18.30. Bænaefnum má koma til sóknarprests í viðtalstímum hans. Digraneskirkja. Kirkjustarf aldraðra. Leik- fimi ÍAK kl. 11.15. Léttur málsverður. Helgistund, samvera og kaffi. Ólafur Skúlason biskup og frú Ebba Sigurðardótt- ir koma í heimsókn og sjá um dagskrá. Æskulýðsstarf fyrir 10–12 ára á vegum KFUM&K og Digraneskirkju kl. 16.30– 18.15. Fella- og Hólakirkja. Bæna- og kyrrðar- stund kl. 12. Guðmundur E. Eiríksson les úr passíusálmum Hallgríms Péturssonar. Bænaefnum má koma til djákna í síma 557-3280 og í sama síma er hægt að panta keyrslu til og frá kirkju. Léttur hádeg- isverður í safnaðarheimilinu eftir stundina og húsið opið áfram til kl. 15. Starf fyrir 11–12 ára drengi kl. 17 Grafarvogskirkja. Opið hús fyrir eldri borg- ara kl.13.30. Helgistund, handavinna, spil og spjall. Kaffiveitingar og alltaf eitt- hvað gott með kaffinu. TTT (10–12 ára) í Engjaskóla kl. 18.30–19.30. Kirkjukrakk- ar í Engjaskóla fyrir börn 7–9 ára kl. 17.30–18.30. Æskulýðsfélag í Grafar- vogskirkju, eldri deild, kl. 20–22. Hjallakirkja. Bæna- og kyrrðarstundir kl. 18. Kópavogskirkja. Foreldramorgunn í dag í safnaðarheimilinu Borgum kl. 10–12. Seljakirkja. Mömmumorgunn. Opið hús milli kl. 10 og 12. Kaffi og spjall. Vídalínskirkja. Opið hús fyrir eldri borgara kl. 13.30–16 í Kirkjuhvoli. Spilað og spjall- að. Helgistund í kirkjunni kl. 16. Fjölbreytt kristilegt starf fyrir 9–12 ára stúlkur í Kirkjuhvoli kl. 17.30 í umsjón KFUK. Bessastaðasókn. TTT-kristilegt æskulýðs- starf fyrir 10–12 ára í Álftanesskóla, stofu 104, kl. 17.30. Rúta ekur börnunum heim. Fríkirkjan í Hafnarfirði. Opið hús kl. 17– 18.30 fyrir 7–9 ára. Kl. 20–22 æskulýðs- félag yngri félaga. Víðistaðakirkja. Barnastarf fyrir 8–9 ára börn í dag kl 17.00. Kyrrðar- og fyrirbæna- stund með Taizé-söngvum í dag kl. 18.00. Hægt er að koma fyrirbænaefnum til sókn- arprests eða kirkjuvarðar. Hafnarfjarðarkirkja. Opið hús fyrir 10–12 ára börn í safnaðarheimilinu Strandbergi, Vonarhöfn frá kl. 17–18.30. Lágafellskirkja. Kirkjukrakkafundur í Lágafellsskóla frá kl. 13.15–14.30. Landakirkja í Vestmannaeyjum. Kl. 16.30 kirkjuprakkarar fyrir 7–9 ára krakka. Kl. 17.30 TTT-kirkjustarf 10–12 ára krakka. Keflavíkurkirkja. Kirkjulundur opinn kl. 14–16 með aðgengi í kirkjuna og kapellu vonarinnar eins og virka daga vikunnar. Aðgengi frá Kirkjuteig. Starfsfólk verður á sama tíma í Kirkjulundi. Fermingarundir- búningur í Kirkjulundi kl. 14.30–15.10, 8.A&B í Holtaskóla, kl. 15.15–15.55, 8. ST í Myllubakkaskóla, kl. 16–16.40, 8. IM Myllubakkaskóla. Umræður um málefni fjölskyldunnar kl. 20.30. Ytri-Njarðvíkurkirkja. Biblíulestrar þriðju- dag 5. febrúar kl. 19.30 í umsjá Ástríðar Helgu Sigurðardóttur guðfræðings. Farið verður í Jóhannesarguðspjall. Sóknar- prestur. Grindavíkurkirkja. Foreldramorgnar alla þriðjudaga kl. 10–12. Hveragerðiskirkja. Foreldramorgnar þriðjudagsmorgna kl. 10–11.30. Borgarneskirkja. TTT tíu–tólf ára starf alla þriðjudaga kl. 17–18. Helgistund í kirkj- unni sömu daga kl. 18.15–19. Þorlákskirkja. Fermingarfræðsla í dag kl. 13.40. Hvammstangakirkja. Æskulýðsfundur í Hrakhólum í kvöld kl. 20. Krossinn. Almenn samkoma kl. 20.30 í Hlíðasmára 5. Allir velkomnir. Kefas. Bænastund kl. 20.30. Allir vel- komnir. Fíladelfía. Samvera eldri borgara fellur niður í dag vegna útfarar Óskars Jónsson- ar frá Hjálpræðishernum. Kefas. Brauðsbrotning og bænastund kl. 20.30. Allir velkomnir. Akureyrarkirkja. Morgunsöngur kl. 9. Fermingarfræðsla kl. 16. 8.B Brekkuskóla og 8.G í Lundarskóla. Safnaðarstarf 0        F 4 !  >6  )  % (%' / 0 @ Q    ($' 4# 0 ' ' 1  2 $(() %    " :!      ; $<))  /&''  1 /  ''%+  '1 6'(   /&''  0%% F%  6 1   + /&'1 (  )''  '/ /&'1 7  1 6 '  4%+ /&'1  % 8' '  !  /&'1 F%( )%' ''  %  /&'1 % 7  )%' ''  0%%1 /&''     9   6       #   6   .  .         #   #   (  044 ?# %/) Q= *&+./&       /6   =, 0  ,           !" 21/' 2.%'1 2.%  1 ''  )% + 21)1 )7 1 '1 L(  4  0 &''   21 1 ''  7 4  1 '1 + 4  '' 8#     .      .               #   #     #  0 4 ! !   %+%/) 0+%%'% JJ *&+./& /6      / ' " ,   #     > + /('1 1%  %R8' '  6'%  /('1 D .%%   ' /(''  )7 *+1%'1 1(' /(''      % ((   % % (( 
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.