Morgunblaðið - 05.02.2002, Blaðsíða 55

Morgunblaðið - 05.02.2002, Blaðsíða 55
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 5. FEBRÚAR 2002 55 DAGBÓK Árnað heilla NORSKU landsliðspörin urðu í fyrsta og öðru sæti á Cap Gemini-boðsmótinu í Hollandi í síðasta mánuði – Helness og Helgemo unnu sinn þriðja sigur í 16 ára sögu mótsins, en landsliðs- félagar þeirra, Brogeland og Sælensminde, urðu aðrir. Í þriðja sæti enduðu Þjóðverj- arnir Sabine Auken og Klaus Reps, en Reps hljóp í skarið fyrir eiginkonu sína, Danielu von Arnim, sem veiktist á fyrsta spiladegi. Zia Mahmood og Andy Robson hafa tvívegis unnið á Cap Gemini. Þeim gekk heldur illa í þetta sinn, en hins vegar sýndi Robson glæsileg tilþrif í eftirfarandi spili úr fyrstu umferð: Suður gefur; enginn á hættu. Norður ♠ K102 ♥ G42 ♦ D973 ♣1076 Vestur Austur ♠ 83 ♠ G7 ♥ K853 ♥ ÁD976 ♦ 5 ♦ KG2 ♣DG9542 ♣ÁK3 Suður ♠ ÁD9654 ♥ 10 ♦ Á10864 ♣8 Mótherjar Zia og Rob- sons voru Bandaríkjamenn- irnir Garner og Weinstein: Vestur Norður Austur Suður Zia Garner Robson Weinstein – – – 1 spaði Pass 2 spaðar 3 hjörtu 4 tíglar 4 hjörtu 4 spaðar Pass Pass Pass Flestir unnu fjóra spaða, annaðhvort eftir útspil í tígli, ellegar þá með því að spila drottningunni úr borði í upphafi í gegnum upplýst- an styrk austurs. En Wein- stein fór hins vegar vitlaust í tígulinn og lái honum hver sem vill: Zia spilaði út hjartakóng, sem Robson yf- irdrap með ás til að skipta yfir í tígultvist! Weinstein taldi víst að tvisturinn væri einn á ferð og stakk upp ás, tók trompin og spilaði svo tígli að drottningunni. Einn niður. BRIDS Umsjón Guðmundur Páll Arnarson STJÖRNUSPÁ eft ir Frances Drake VATNSBERI Afmælisbörn dagsins: Þú ert góð(ur) í að tjá þig með orðum. Öðrum þykir þú skemmtileg(ur). Afslappaður lífsmáti þinn er engum líkur og allt sem þú gerir býr yfir þokka. Hrútur (21. mars - 19. apríl)  Hugsanir þínar eru ekki yfir- borðskenndar í dag. Þú finnur fyrir þörf til að finna eitthvað sem þú trúir á og sem getur gef- ið lífi þínu aukið gildi. Naut (20. apríl - 20. maí)  Taktu þér tíma í dag til að laga fjármálin. Minnkaðu skuldirnar, endurgreiddu lán, skilaðu því sem þú hefur fengið að láni og kannaðu hverjir skulda þér. Tvíburar (21. maí - 20. júní)  Í dag ertu ekki lengur til í að hunsa það sem hefur angrað þig í nokkurn tíma. Núna er tími til að gera breytingar til hins betra. Krabbi (21. júní - 22. júlí)  Þú er reiðubúin(n) til að taka þig saman í andlitinu í dag og jafn- vel ganga skrefi lengra. Þig langar til að taka til hjá öllum öðrum í kringum þig líka. Ljón (23. júlí - 22. ágúst)  Þig kann að langa að spreyta þig á nýrri aðferð í samskiptum þín- um við börn í dag. Með því að fylgjast betur með tíðarandan- um mun skilningur milli þín og ungs fólks aukast. Meyja (23. ágúst - 22. sept.)  Uppbyggjandi hugmyndir þínar um úrbætur á vinnustað eru áheyrnarinnar virði. Ekki hika við að hafa þær í frammi því að aðrir munu verða hrifnir af þeim. Vog (23. sept. - 22. okt.)  Afstaða þín til fjárhagslegra vangaveltna í dag getur verið frökk en árangursrík. Ef gjörðir þínar verða til þess að bæta líf annarra á einhvern máta, þá mun ávinningur þinn í framtíð- inni verða meiri. Sporðdreki (23. okt. - 21. nóv.)  Í dag er kjörið tækifæri til að hreinsa til í þínu nánasta um- hverfi. Betrumbættu þær kring- umstæður sem þú hefur veri óánægð(ur) með í nokkurn tíma. Bogmaður (22. nóv. - 21. des.) Þú gætir þurft að ganga þvert á vilja hóps sem þú átt dagleg samskipti við. Besti möguleik- inn í stöðunni er að breyta áformum þínum og gera vel- gengni þeirra jafnframt að þinni eigin. Steingeit (22. des. - 19. janúar) Gaumgæfileg athugun gæti leitt af sér nýjar fjáröflunarleiðir. Séu aðrir teknir með inn í þetta gæfuspor munu líkur þínar á ár- angri aukast því þannig orkar Plútó. Vatnsberi (20. jan. - 18. febr.) Gríptu sérhvert tækifæri til að beita mætti þínum til góðs. Þú skalt aldrei vanmeta þau áhrif sem þú hefur á aðra – hvort sem þú ert meðvitandi um það eður ei. Fiskar (19. feb. - 20. mars) Þér líst vel á hugmyndir um það hvernig þú getur betur náð settu marki í lífinu. Þar sem þú ert draumóramanneskja í hjarta þínu hefur þig ætíð langað til að bjarga heiminum. Stjörnuspána á að lesa sem dægradvöl. Spár af þessu tagi eru ekki byggðar á traustum grunni vísindalegra staðreynda. LJÓÐABROT ANDLÁTSORÐ Heyr, himna smiðr! hvers skáldit biðr; komi mjúk til mín miskunnin þín; því heit ek á þik, þú hefr skaptan mik; ek em þrællinn þinn, þú ert dróttinn minn. Guð! heit ek á þik, at þú græðir mik; minnsktu, mildingr! mín, mest þurfum þín; ryð þú, röðla gramr ríklundr ok framr! hölðs hverri sorg ór hjarta borg. - - - Kolbeinn Tumason 80 ÁRA afmæli. Í dag,þriðjudaginn 5. febr- úar, er áttræður Þorsteinn Sigurðsson, fyrrum bóndi á Brúarreykjum, Borgar- byggð. Þorsteinn verður fjarverandi á afmælisdaginn en vonar að vinir og vanda- menn heimsæki hann og Kristjönu, konu hans, laug- ardaginn 9. febrúar í Gull- smára 11 kl. 15–18, 10. hæð, (sal). FRÉTTIR Þessir duglegu krakkar héldu hlutaveltu til styrktar Björg- unarsveitinni Súlum á Akureyri og söfnuðust 2.716 krónur. Þau heita Jóna Brynja Birkisdóttir og Hjalti Jón Guð- mundsson. Morgunblaðið/Kristján 1. c4 c6 2. g3 d5 3. Bg2 e6 4. Dc2 Rd7 5. b3 Bd6 6. Bb2 Rgf6 7. Rf3 e5 8. cxd5 cxd5 9. Rc3 a6 10. 0–0 b5 Staðan kom upp á Skák- þingi Reykjavíkur sem lauk fyrir skömmu. Lenka Ptacníková (2.225) hafði hvítt gegn Jóhanni H. Ragn- arssyni (1.955). 11. Rxd5! Rxd5 12. Dc6 Dc7 13. Dxd5 Bb7 14. Dd3 e4 15. De3 O-O 16. Rd4 Hfe8 17. Rf5 Bf8 17. ...Be5 var skynsamlegri leik- ur. 18. Hfc1 Dd8 19. Df4 Db6 20. Bxg7! Eftir þetta á svartur sér ekki viðreisnar von enda verður hann tveim peðum undir og með verri stöðu. 20. ...Bxg7 21. Rxg7 Kxg7 22. Dg4+ Dg6 23. Dxd7 Hab8 24. Hc5 Hed8 25. De7 h6 26. Hac1 Df6 27. Dxf6+ Kxf6 28. H1c2 Hd7 29. Hc7 Hbd8 30. Hxd7 Hxd7 31. Kf1 Ke5 32. Ke1 f5 33. Hc5+ Bd5 34. e3 Kd6 35. d4 h5 36. h4 Hd8 37. Bh3 Hf8 38. Kd2 og svartur gafst upp. Lokastaða efstu manna varð þessi: 1.–2. Stefán Krist- jánsson og Páll Agnar Þór- arinsson með 9 vinninga af 11 mögulegum. 3.–5. Júlíus Friðjónsson, Sævar Bjarna- son og Sigurður Páll Stein- dórsson með 8 v. 6.–12. Björn Þorfinnsson, Sigur- björn J. Björnsson, Arnar E. Gunnarsson, Ingvar Þór Jó- hannesson, Bergsteinn Ein- arsson, Lenka Ptácniková og Jón Árni Halldórsson með 7 v. Stefán og Páll munu heyja einvígi um titilinn Skákmeistari Reykjavíkur. SKÁK Umsjón Helgi Áss Grétarsson Hvítur á leik. Bankastræti 14, sími 552 1555 Viltu ennþá vera með! Allt að 90% afsláttur Vakin er athygli á að skilafrestur vegna könnunar fulltrúaráðsins er til miðvikudagsins 6. febrúar. Fulltrúaráðsmenn eru vinsamlega beðnir að koma tilnefningum á skrifstofu Sjálfstæðisflokksins í Valhöll eða póstlegga þær fyrir þann tíma. Tökum þátt í að setja saman sterkan og sigurstranglegan lista sjálfstæðismanna í Reykjavík fyrir borgarstjórnarkosningarnar í vor. Stjórnin. Fulltrúaráð sjálfstæðisfélaganna í Reykjavík Guðrún Arnalds, símar 896 2396 og 551 8439 Líföndun Guðrún Arnalds verður með helgarnámskeið í líföndun helgina 9. og 10. febrúar. Djúp öndun hreinsar líkama og sál, eykur bjartsýni og lífsorku og blæs burtu kvíða og kvillum. Gefur þú þér tíma til að lifa? „Tíminn er líf og lífið býr í hjartanu“. EINKATÍMAR: HÓMÓPATÍA - NUDD - LÍFÖNDUN Er ekki allt frekar dýrt hérna, Magnús? Hlutavelta 60 ÁRA afmæli. Í dagþriðjudaginn 5. febr- úar er sextugur Guðjón Davíðsson, húsasmíða- meistari, Suðurtúni 27, Bessastaðahreppi. Eigin- kona hans er Anna M. Ey- mundsdóttir. Þau eru að heiman í dag. Mamma, hættu nú. Þessi lota er búin. ... og svo er þetta fína útsýni til hafsins. GEIR Þórólfsson heldur fyrirlestur til meistaraprófs við véla- og iðnað- arverkfræðiskor fimmtudaginn 7. febrúar, kl. 16.15 í stofu 158 í VR-II. Bestun á nýtingu lághita jarðvarma til raforkuframleiðslu. Geir lauk CS gráðu í vélaverk- fræði frá Háskóla Íslands 1976 og hefur starfað undanfarin 20 ár hjá Hitaveitu Suðurnesja. Hann hefur stundað nám til meistaraprófs við véla- og iðnaðarverkfræðiskor frá haustmisseri 2000. Verkefnið fjallar um nýtingu lághitajarðvarma til raforkufram- leiðslu. Sérstaklega er skoðuð nýleg tækni, svokölluð Kalina varmavinnu- hringrás og notkun hennar á lághita- svæðum. Sett er fram líkan af Kalina varmavinnuhringrás, en líkanið er á formi hugbúnaðar. Líkanið auðveld- ar hönnuði að finna bestu gildi á stik- um í vinnuhringrásinni og kemur til með að auðvelda hönnun jarðvarma- virkjana. Við sannprófun á líkaninu er stuðst við gögn frá 2 MW raforku- verinu á Húsavík. Nýjung í þessari rannsókn er, að varmafræðilegar grundvallarbreytur eru bestaðar miðað við hagrænar forsendur. Við rannsóknir á líkaninu kemur fram mikilvægi umhverfisþátta, en þeir eru hitastig og rennsli bæði jarðhita- vökva og kælivatns. Einnig voru gerð líkön af öðrum varmavinnuhringrásum, svo sem „Organic Rankine Cycle“, en það var sannprófað með gögnum frá Orku- verinu í Svartsengi. Samanburður á Kalina hringrásinnni við aðrar vinnsluaðferðir sýnir að hún hefur yfirburðanýtni á lághitajarðvarma. Kalina hringrásin gerir raforku- framleiðslu mögulega á lághitasvæð- um víða um landið. Verkefnið var unnið undir leið- sögn Birnu Pálu Kristinsdóttur, dós- ents við véla- og iðnaðarverkfræði- skor og Páls Valdimarssonar, prófessors við véla- og iðnaðarverk- fræðiskor. Prófdómari er Runólfur Maack, MSc, framkvæmdastjóri VGK verkfræðistofu. Fyrirlesturinn er öllum opinn á meðan húsrúm leyfir. Fyrirlestur til meistaraprófs BORGARFULLTRÚAR Sjálf- stæðisflokksins kynna tillögur sínar vegna Aðalskipulags Reykjavíkur 2002–2024 á fundi á Grand hótel Reykjavík í dag, þriðjudaginn 5. febrúar kl. 17.15. Opinn fund- ur um skipu- lagsmál ATVINNA mbl.is
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.