Morgunblaðið - 05.02.2002, Blaðsíða 13

Morgunblaðið - 05.02.2002, Blaðsíða 13
FRÉTTIR MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 5. FEBRÚAR 2002 13 FYRIRHUGAÐ er að segja upp starfsmönnum Múlalundar en það hefur ekki verið ákveðið eins og kom fram hjá SÍBS fyrir helgi og greint var frá í Morgunblaðinu á laugardag. Pétur Bjarnason, framkvæmda- stjóri SÍBS, segir að í bréfi til Vinnu- miðlunar höfuðborgarsvæðisins komi fram að fyrirhugaðar séu upp- sagnir starfsmanna frá og með 1. mars með þriggja mánaða uppsagn- arfresti og það sé rétt, en í tilkynn- ingu til fjölmiðla hafi verið sagt að ákveðið hafi verið að segja upp öllum starfsmönnum vinnustofunnar. „Okkur yfirsást þetta,“ segir Pétur. „Ég harma þessi mistök sem eru mannleg og skrifast á mig,“ segir hann. SÍBS sendi í gær frá sér yf- irlýsingu þessa efnis. Pétur Bjarnason segir að samt sem áður sé staðan þannig að að óbreyttu komi þessar uppsagnir til framkvæmda um næstu mánaðamót. Uppsagnir fyrirhugaðar á Múlalundi – ekki ákveðnar HÉRAÐSDÓMUR Vestfjarða hef- ur dæmt karlmann á fimmtugsaldri í eins mánaðar skilorðsbundið fangelsi fyrir að hafa meðhöndlað haglabyssu inni í íbúðarhúsi á Ísa- firði í september 2000, undir áhrif- um áfengis, þar sem annað fólk var samankomið og haft í frammi hót- un um að fremja refsiverðan verknað með því að beina hlaupi haglabyssunnar að einum við- staddra, en framferði ákærða var til þess fallið að vekja ótta um líf sitt og velferð hjá þeim sem byss- unni var beint að. Þá mun ákærði hafa vanrækt að geyma haglabyssuna og önnur skotvopn, sem voru í húsinu og í hans vörslu, í læstri hirslu. Ákærði viðurkenndi fyrir dómi að hafa handleikið skotvopnið ölv- aður, en neitaði að hafa notað það til að hóta kæranda með því. Hann sagðist hafa tekið vopnið um nótt- ina úr fataskáp í íbúð sinni, þar sem hann hafi venjulega geymt það og hafi haft í hyggju að sýna vopn- ið leigjanda á neðri hæð hússins, en hann hafi reynst fjarstaddur. Hann hafi tekið byssuna úr pok- anum er ofan var komið. Þar hafi hann mætt einhverjum mönnum í þröngum ganginum. Hafi þeir orð- ið órólegir er þeir sáu byssuna. Hafi hann þá rekið fingur í hnapp, sem loki valsi á byssunni með smelli. Hafi kærandi trúlega orðið hræddur við að heyra smellinn. Dómurinn taldi að í háttsemi ákærða hefði falist hótun sem hefði verið til þess fallin að valda kær- anda, sem ekki gat vitað hvort byssan væri hlaðin eða ekki, ótta um líf sitt eða heilbrigði. Erlingur Sigtryggsson dómstjóri kvað upp dóminn. Dæmdur fyrir hótun með haglabyssu MJÓLKURBÚ Flóamanna á Sel- fossi hefur keypt mjólkursamlag Kaupfélags Héraðsbúa á Egilsstöð- um Kaupin eru gerð með fyrirvara um samþykki stjórna og fulltrúaráða félaganna. „Við erum búnir að eiga margháttað samstarf á síðari árum sem hefur skilað ágætum árangri og menn sjá að hægt er að ná enn betri árangri með þessu móti,“ sagði Birg- ir Guðmundsson, mjólkurbússtjóri Mjólkurbús Flóamanna. Með kaupum MBF á mjólkursam- laginu á Egilsstöðum stækkar fé- lagssvæði MBF og nær þá frá Hellis- heiði syðri að Hellisheiði eystri. Eftir kaupin verður árleg mjólkurframleiðsla hjá MBF 43,5 milljónir lítra eða um 42% af heildarmjólkurmagni alls lands- ins, en árlegt mjólkurinnlegg á Eg- ilsstöðum er u.þ.b. 3,5 millj. l. Gert er ráð fyrir að MBF taki við rekstrin- um á Egilsstöðum 1. mars nk. Á Egilsstöðum verður áfram rekin mjólkurvinnslustöð. Fyrst í stað í lít- ið breyttri mynd en starfsemin verð- ur þróuð í átt til þess að samlegð- aráhrif mjólkurvinnslustöðvanna nýtist sem best. Samkvæmt sam- komulagi um kaupin mun MBF taka við ráðningarsamningi allra starfs- manna sem vinna við mjólkur- vinnslustöðina á Egilsstöðum. Mjólkurframleiðendur fyrir austan gerast félagsmenn í MBF og njóta sömu félagslegra réttinda og aðrir félagsmenn í Mjólkurbúi Flóa- manna. MBF kaupir Mjólkur- samlag Héraðsbúa Selfossi. Morgunblaðið. Morgunblaðið/Sig. Jónsson Mjólkurbíll með aftanívagn kemur úr austurátt inn á athafnasvæði MBF á Selfossi í gærdag. ♦ ♦ ♦
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.