Morgunblaðið - 05.02.2002, Qupperneq 10
FRÉTTIR
10 ÞRIÐJUDAGUR 5. FEBRÚAR 2002 MORGUNBLAÐIÐ
ANNARRI umræðu um frumvarp til
laga um lögleiðingu ólympískra
hnefaleika lauk á Alþingi í gær eftir
fjörugar umræður, eins og jafnan í
sal þingsins þegar umrætt frumvarp
hefur verið þar til meðferðar. Meiri-
hluti menntamálanefndar leggur til
að frumvarpið verði samþykkt en
minnihlutinn lýsir sig andvígan efni
þess og gagnrýnir að það skuli komið
svo skjótt á dagskrá þingsins eftir að
hafa verið fellt í akvæðagreiðslu.
Einn þingmaður, Katrín Fjeldsted,
Sjálfstæðisflokki, kynnti í gær mála-
miðlunartillögu sem gerir ráð fyrir að
æfa megi og þjálfa hnefaleika hér á
landi en keppni verði þó áfram bönn-
uð. Tvísýnt þykir um lyktir atkvæða-
greiðslu um frumvarpið í dag og
sögðu þingreyndir menn sem Morg-
unblaðið ræddi við í gær líklegt að
stuðningsmenn þess og andstæðing-
ar séu nokkurn veginn jafnmargir.
Fjarvistir einstakra þingmanna í at-
kvæðagreiðslunni við upphaf þing-
fundar í dag kunni því að ráða úrslit-
um. Verði frumvarpið samþykkt til
þriðju umræðu er gert ráð fyrir að
hún fari fram öðru hvoru megin við
næstu helgi. Hnefaleikafrumvarpið
var lagt fram sl. haust í þriðja sinn
óbreytt af Gunnari Birgissyni (D) og
fleiri þingmönnum. Með frumvarpinu
er lagt til að áhugamannahnefaleikar
verði heimilaðir og að Íþrótta- og ól-
ympíusamband Íslands (ÍSÍ) setji
reglur um íþróttina. Öll keppni, svo
og sýning eða kennsla, í atvinnu-
hnefaleikum verði þó áfram bönnuð.
Sigríður A. Þórðardóttir (D) for-
maður menntamálanefndar gerði
grein fyrir áliti meirihlutans í gær og
benti m.a. á að áhugamannahnefa-
leikar væru viðurkennd íþróttagrein
af alþjóðaólympíunefndinni og keppt
sé í íþróttinni á Ólympíuleikunum og í
öllum vestrænum löndum. Sums
staðar væru bannaðir s.k. atvinnu-
mannahnefaleikar, en munurinn á
slíkum hnefaleikum og þeim sem
áhugamenn stunda, felist í því að í
áhugamannahnefaleikum séu notað-
ar höfuðhlífar og lotur geti verið allt
að fimm talsins, en hver þeirra standi
aldrei lengur en tvær mínútur í senn.
Í hnefaleikum atvinnumanna geti
hver keppni hins vegar staðið í tólf
lotur og hver þeirra í þrjár mínútur.
„Réttlætanlegt þykir að heimila
iðkun áhugamannahnefaleika þar
sem markmið þeirra er ekki það
sama og í atvinnuhnefaleikum.
Áhugamannahnefaleikar snúast um
leikni í að fara inn fyrir varnir and-
stæðingsins en ekki um að slá and-
stæðinginn niður eða veita honum
rothögg eins og í atvinnuhnefaleik-
um,“ segir í áliti meirihluta mennta-
málanefndar.
Minnihluti menntamálanefndar,
skipaður þeim Sigríði Jóhannesdótt-
ur (S) og Kolbrúnu Halldórsdóttur
(Vg), gagnrýnir harðlega þann fram-
gang sem frumvarpið hefur fengið í
ljósi þess að Alþingi hafi hafnað því í
atkvæðagreiðslu fyrir hálfu öðru ári.
„Það er álit minnihlutans að ekkert
nýtt hafi komið fram í málinu sem
réttlætir að það skuli borið undir at-
kvæði Alþingis að nýju,“ segir í álit-
inu og undirstrikað að minnihlutinn
haldi fast við fyrri afstöðu sína um að
halda eigi fast við núgildandi bann við
hnefaleikum, enda vegi enn þyngst
rökstuddar vísbendingar um að al-
varlegt heilsutjón geti hlotist af iðkun
hnefaleika, jafnt áhugamanna sem at-
vinnumanna, og vísbendingar um að
skaðinn, sérstaklega tengdur höfuð-
áverkum, sem hljótist af iðkun þess-
ara tveggja tegunda hnefaleika sé
fyllilega sambærilegur og jafnvel sá
sami.
Málamiðlun um að leyfa æfingar
en banna alla keppni
Katrín Fjeldsted, þingmaður Sjálf-
stæðisflokksins og læknir, hefur í um-
ræðunni um hnefaleikafrumvarpið
ekki farið leynt með andstöðu sína
gegn efni þess. Hefur hún m.a. reifað
í ýtarlegu máli læknisfræðilegar rök-
semdir með áframhaldandi banni og
lýsti hún því m.a. í gær að víða erlend-
is væri litið á Ísland sem fyrirmynd
að þessu leyti í ljósi alvarlegra slysa
sem orðið hefðu á iðkendum í hnefa-
leikakeppni.
Katrín kynnti þó í gær breyting-
artillögu sína við frumvarpið þar sem
leitast er við að sætta hin ólíku sjón-
armið. Snýr tillagan að þeirri breyt-
ingu á frumvarpinu, að heimilt verði
að æfa áhugamannahnefaleika en
keppni í hnefaleikum sé áfram bönn-
uð.
Önnur umræða í gær um frumvarp um lögleiðingu ólympískra hnefaleika
Tvísýnt er um lyktir
atkvæðagreiðslu í dag
GEIR H. Haarde (D) fjármálaráð-
herra sagði á Alþingi í gær að rík-
isstjórnin muni koma til móts við Rík-
isútvarpið vegna þeirra 140 milljóna
króna sem stofnunin verður af eftir að
ákveðið var að afturkalla 7% hækkun
afnotagjalda í síðustu viku. Hann seg-
ir að þótt hækkunin hafi verið dregin
til baka, sé ekki útilokað að afnota-
gjöldin verði hækkuð síðar á árinu.
Þetta kom fram við upphaf þing-
fundar á Alþingi í gær þegar Stein-
grímur J. Sigfússon, formaður Vinstri
grænna, spurði ríkisstjórnina á hvern
hátt Ríkisútvarpinu yrði bætt tekju-
tapið vegna þeirrar aðgerðar að
hætta við áður ákveðna hækkun af-
notagjalda. Lýsti hann miklum
áhyggjum af fjárhagsstöðu stofnun-
arinnar og sagði hana rekna á yfir-
drætti. Svo mikill væri vandinn að
Ríkisútvarpið hefði ekki fyrir um-
rædda hækkun getað staðið við skuld-
bindingar sínar, t.d. gagnvart Sinfón-
íuhljómsveit Íslands og fyrir vikið
væri sú menningarstofnun einnig
rekin á yfirdrætti.
Sagði Steingrímur Björn Bjarna-
son menntamálaráðherra ekki hverfa
frá góðu búi þar sem væri fjárhags-
staða þessara tveggja af öflugustu
menningarstofnunum þjóðarinnar og
lýsti raunar sérstökum áhyggjum sín-
um yfir því hversu „stirt virtist í píp-
unum“ milli fjármálaráðuneytisins og
menntamálaráðuneytisins. Kvaðst
hann eiga von á frumvarpi til fjár-
aukalaga á næstu dögum vegna þessa
máls, enda væri gert ráð fyrir um-
ræddum tekjum í fjárlögum og því
brýnt að ræða hvernig bregðast eigi
við breyttum forsendum.
Formaður Samfylkingarinnar
hælir ríkisstjórninni
Fjármálaráðherra varð til svara
fyrir ríkisstjórnina og tók af öll tví-
mæli um að frumvarp til fjáraukalaga
væri væntanlegt; svo væri ekki. „Það
mun verða rétt að öllu staðið, svo mik-
ið er víst,“ sagði Geir og sagði menn
ræða tvö óskyld mál, annars vegar
skipulag og rekstur Ríkisútvarpsins
og hins vegar nýjar aðgerðir ríkis-
stjórnarinnar í baráttunni gegn verð-
bólgu. Sagði hann samspil fjárhags
RÚV og Sinfóníuhljómsveitarinnar
vissulega geta orkað tvímælis. Þetta
megi ræða, sem og margt fleira í
rekstri Ríkisútvarpsins, en þessi
málaflokkur heyrði þó ekki undir
hann.
Athygli vakti í umræðunni, að Öss-
ur Skarphéðinsson, formaður Sam-
fylkingarinnar, tók upp hanskann fyr-
ir ríkisstjórnina. Össur sagði að
þingmenn gætu ekki bæði sleppt og
haldið. Hann hefði í síðustu viku lýst
eftir aðgerðum ríkisvaldsins til lækk-
unar verðbólgu og því hefði verið
fylgt eftir af hálfu ríkisstjórnarinnar
sem stæði í ákaflega lofsverðu sam-
spili með verkalýðshreyfingunni. Fé-
lagar hans í Samfylkingunni tóku
ekki undir þetta. Mörður Árnason,
varaþingmaður og fulltrúi í útvarps-
ráði, sagði svör fjármálaráðherra
ófullnægjandi, Sigríður Jóhannes-
dóttir gagnrýndi áralangt „fjársvelti“
Ríkisútvarpsins og Guðmundur Árni
Stefánsson sagði aðgerðir ríkisstjórn-
arinnar til marks um lausatök hennar
á efnahagsmálunum, fyrst væri
hækkað og svo lækkað og ekkert
mark tekið á þeim sem varað hefðu
við afleiðingum gjaldskrárhækkana
við afgreiðslu síðustu fjárlaga.
Afnotagjöld RÚV gætu
hækkað síðar á árinu
FÉLAG leikskólakennara
bendir á að yfir 90% 5 ára
barna hér á landi eru í leikskóla
sem samkvæmt lögum er fyrsta
skólastigið í íslensku skóla-
kerfi. Félagið telur tímabært
að skoða hvort ekki eigi að
lækka skólaskyldu með því
móti að gera síðustu ár leik-
skólagöngu að skyldu þannig
að hluti leikskólanáms verði
foreldrum að kostnaðarlausu.
Á fundi sínum 31. janúar sl.
samþykkti stjórn Félags leik-
skólakennara ályktun í tilefni
af hugmyndum sem fram koma
í skýrslu Hagfæðistofnunar
Háskóla Íslands um styttingu
grunn- og framhaldsskóla.
Lögð megináhersla
á félags- og
tilfinningaþroska
Í ályktuninni segir: „Félag
leikskólakennara bendir á að í
dag eru yfir 90% 5 ára barna í
skóla, leikskóla, sem sam-
kvæmt lögum er fyrsta skóla-
stigið í íslensku skólakerfi.
Löngu er orðið tímabært að
skoða hvort ekki eigi að lækka
skólaskyldu með því móti að
gera síðustu ár leikskólagöngu
að skyldu þannig að hluti leik-
skólanáms verði foreldrum að
kostnaðarlausu.
Í leikskóla er lögð áhersla á
leik sem náms- og þroskaleið og
byggist leikskólastarf fyrst og
fremst á þeirri hugmyndafræði
sem er frábrugðin kennslu-
fræði grunnskólans. Lögð er
megináhersla á félags-, tilfinn-
inga- og siðgæðisþroska ásamt
því að efla samskiptahæfni og
byggja upp sterka sjálfsmynd.
Rannsóknir síðari tíma sýna að
árangursríkasta leiðin fyrir
nám barna á leikskólaaldri og
besti undirbúningur fyrir frek-
ara nám og starf síðar á lífsleið-
inni er að læra í gegnum leik og
eigin upplifanir í virkum sam-
skiptum við börn og fullorðna.“
Tímabært
að skoða
hvort lækka
eigi skóla-
skyldu
MÖRÐUR Árnason, varaþingmaður
Samfylkingarinnar, kvaddi sér hljóðs
við upphaf þingfundar í gær og gat
þess að fyrir helgi hefði sér verið bent
á galla í frumvarpi þeirra Ástu R. Jó-
hannesdóttur um afnám gjalds á
menn utan trúfélaga, galla sem að
óbreyttu hefði orðið til þess að frum-
varpið hefði við samþykkt þess ekki
náð þeim tilgangi sínum sem fram
kemur í heiti þess.
Þakkaði Mörður sérstaklega Ástu
Möller, þingmanni Sjálfstæðisflokks-
ins, fyrir þessa ábendingu. Frum-
varpið hefði nú verið lagfært og
prentað upp að sinni ósk.
„Ég tel við hæfi að vekja athygli á
þessu hér úr ræðustól þingsins til að
menn geti áhyggjulausir búið sig und-
ir efnisumræðu um þetta frumvarp
um afnám þess gjalds á menn utan
trúfélaga sem nú er innheimt með
tekjuskatti,“ sagði Mörður Árnason.
Ágalli
lagfærður
UM FJÖGUR hundruð manns
mættu á opinn borgarafundi í
Vestmannaeyjum með Sturlu
Böðvarssyni samgönguráð-
herra og hafa ekki fleiri mætt
á borgarafund í Eyjum um
áratuga skeið. Fundurinn bar
yfirskriftina Vestmannaeyjar á
nýrri öld og voru samgöngu-
málin í brennidepli.
Nokkur óánægja hefur verið
með það að ákveðið var að
setja Herjólf í slipp um miðjan
maímánuð og fá hvalaskoðun-
arbát í staðinn. Ráðherra gaf
það sterkt í skyn að ferðum
með Herjólfi milli lands og
Eyja yrði fjölgað og eins að
settur yrði á fót sérstakur
vinnuhópur sem yrði falið það
hlutverk að skoða samgöngur
milli lands og Eyja. Honum
verði væntanlega einnig falið
að standa fyrir rannsókn á því
hvort mögulegt sé að koma
fyrir ferjuhöfn eða lægi fyrir
loftpúðaskip í Bakkafjöru í
Landeyjum.
Samgöngur
ræddar á 400
manna fundi
Borgarafundur
í Vestmannaeyjum
Vestmannaeyjum. Morgunblaðið.
Morgunblaðið/Golli
FUNDAÐ var fram á kvöld, eða til kl. 23 á alþingi í gær og lengi karpað um jafn óskyld mál og hnefaleika og
áfengissölu, svo fátt eitt sé talið. Hér stinga Steingrímur J. Sigfússon og Hjálmar Árnason saman nefjum, en þær
Lára Margrét Ragnarsdóttir og Þorgerður K. Gunnarsdóttir sitja álengdar.
Kvöldfundur á þingi
INNLENT