Morgunblaðið - 05.02.2002, Side 15
LANDIÐ
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 5. FEBRÚAR 2002 15
BJARKI Gunnarsson var sannarlega ekki
feigur þegar hann á einum sólarhring, í ill-
viðrinu nú um síðustu helgi, slapp tvisvar
sinnum úr bráðum lífsháska.
Bjarki, sem er vélstjóri hjá rækjuvinnsl-
unni á Skagaströnd, var á leið heim til sín á
Subaru Legacy bíl sínum um fjögurleytið á
föstudag en þá var komið mikið rok og fór
veður versnandi. Er hann var að aka fram
hjá gömlu mannlausu húsi á leiðinni vildi
ekki betur til en svo að ytri hurð á inngangi,
sem sneri upp í vindinn, fauk af og kom
fljúgandi á bílinn hjá Bjarka.
Stefndi beint á framrúðuna
Á sekúndubroti sá hann útundan sér hvar
hurðin kom fljúgandi og stefndi beint á
framrúðu bílsins.
Bjarki náði að gefa í sem dugði til þess að
hurðin lenti á aftari hliðarrúðu bílsins og
braut hana. Síðan virðist hurðin hafa slegist
fram með bílnum því afturbrettið og hurðin
hægra megin eru stórskemmd. Má telja víst
að Bjarki hefði ekki þurft að kemba hær-
urnar ef hurðin hefði komið gegnum fram-
rúðuna beint í andlitið á honum.
En þar með var ekki raunum Bjarka lokið.
Fram á laugardag var veðrið kolvitlaust með
ofsaroki og mikilli snjókomu þannig að ekki
sá út úr augunum. Þess vegna var rafmagns-
laust á Skagaströnd aðfaranótt laugardags-
ins og fram undir hádegi. Þegar rafmagn
kom aftur á komu frystiklefar rækjuvinnsl-
unnar ekki inn svo Bjarki varð að fara og
koma rafmagni á þá. Eftir að vera búinn að
koma rafmagni á þann klefa sem er í gömlu
síldarverksmiðjunni fór Bjarki yfir í annan
frystiklefa, sem stendur hinum megin á hafn-
arsvæðinu á viðlegukanti sem kallast Skúffu-
garður.
Vegna veðurofsans þurfti hann að skríða
yfir stærstu skaflana á leiðinni en komst á
staðinn áfallalaust og gat fljótlega komið raf-
magni á klefann.
Lenti á bólakafi í
sjónum í höfninni
Bjarki hélt síðan út í óveðrið og ætlaði að
fara heim. Skreið hann eftir stórum skafli að
því er hann taldi sömu leið og hann kom.
Varð hann nú að fara skáhallt upp í veðrið
þannig að léleg skíðagleraugu sem hann var
með komu að engu gagni. Tók hann þau því
af sér og hélt áfram. Allt í einu sér hann eitt-
hvað dökkt fyrir framan sig í snjókófinu neð-
an við skaflinn og telur að þar sjái hann nið-
ur í autt malbik, sem var á milli skafla, og
hann hafði tekið eftir á leiðinni fram að klef-
anum.
Hoppaði hann því fram af skaflinum og
bjóst við að lenda á föstu malbikinu. Honum
brá því illilega þegar hann lenti á bólakaf í
sjónum í höfninni. Hafði hann borið svo af
leið að hann stökk fram af hengju sem náði
fram af bryggjukantinum og lenti í ísköldum
sjónum.
Það varð Bjarka, sem er góður sundmað-
ur, til happs að hann hitti strax á stiga eftir
að hafa synt nokkur sundtök í átt að Skúffu-
garðinum. Gat hann fljótlega klifrað upp
stigann þangað til hann var ekki í sjó nema
upp að hnjám. Þá komst hann ekki lengra
fyrir snjóhengju sem slútti fram af brygg-
jukantinum yfir höfði hans.
Hann reyndi að hringja eftir hjálp hang-
andi í stiganum utan á bryggjunni en komst
strax að því að síminn var ónýtur eftir baðið
í sjónum. Bjarki reyndi því að krafsa í hengj-
una en varð í fyrstu ekkert ágengt því snjór-
inn var svo harður. Það var ekki fyrr en
hann gat teygt sig upp fyrir hengjuna og
krafsað í hana ofanfrá að hann gat náð upp í
efstu rim stigans og gripið í hana með báð-
um höndum yfir hengjuna. Hann kom síðan
öðru hnénu upp á hengjuna sem lét þá und-
an þunganum og hrundi í sjóinn. Munaði
minnstu að hann missti takið við slinkinn en
komst þó loksins upp rennblautur og kaldur.
Bjarki skreið síðan eftir skaflinum áfram
og fór varlegar en í fyrra skiptið. Komst
hann að rafmagnsverkstæði sem stendur of-
an við hafnarsvæðið. Þar hitti hann tvo
björgunarsveitarmenn fyrir tilviljun. Þeir
fylgdu honum síðan heim og var hann að
eigin sögn alveg búinn þegar þangað kom.
Að sögn Bjarka var hann mjög vel búinn
þegar hann lenti í sjónum og með góða vett-
linga. Hann var líka í síðum nærbuxum og
telur hann að þessi góði klæðnaður hafi
bjargað sér. Honum varð ekki meint af volk-
inu og mætti í vinnu eins og ekkert hefði í
skorist á mánudagsmorgun.
Segja má að á Bjarka sannist enn einu
sinni máltækið: ekki verður feigum forðað
né ófeigum í hel komið.
Slapp tvisvar úr
lífsháska á ein-
um sólarhring
Morgunblaðið/Ólafur Bernódusson
Bjarki Gunnarsson bendir á snjóhengjuna sem hann hoppaði fram af.
Hurðin mölbraut rúðuna.
Skagaströnd