Morgunblaðið - 05.02.2002, Page 16
AKUREYRI
16 ÞRIÐJUDAGUR 5. FEBRÚAR 2002 MORGUNBLAÐIÐ
ÞEIR eru eflaust nokkuð
margir sem láta vefjast fyrir
sér að moka tröppurnar að
heimili sínu sem þó eru ekki
svo ýkja margar í flestum til-
fellum. Þeir félagar, Sigurður
Blöndal og Pétur Ásgeirsson,
starfsmenn Akureyrarbæjar,
fengu hins vegar það verkefni
í gærmorgun að moka kirkju-
tröppurnar svonefndu, leiðina
frá miðbænum og upp á
brekkubrúnina að Akureyr-
arkirkju. „Þetta er ekki verra
en hvað annað,“ sagði Pétur
sem taldi að þrepin væru 107
talsins. Sigurður bætti við að
þetta verkefni gæfi góða
hreyfingu. „Þetta er fínasta
tröppuþrek“. Hitaleiðsla er
undir kirkjutröppunum og því
afar fátítt að grípa þurfi til
skóflunnar við að hreinsa þær,
en að sögn Péturs gerist það
svona tvisvar til þrisvar á ári.
Aðstæður voru með þeim
hætti fyrir helgi að lofkæling
var mikil og svo tók að snjóa
ótæpilega um helgina, þannig
að hitaleiðslur höfðu ekki und-
an að bræða. Því safnaðist
mikill snjór í þrepin sem voru
þar af leiðandi afar ógreiðfær.
Þeir Pétur og Sigurður gerðu
ráð fyrir að vera tvo og hálfan
til þrjá klukkutíma með verk-
ið, en þá er aðeins miðað við
að mokað sé öðrum megin
handriðs.
Morgunblaðið/Kristján
Sigurður Blöndal og Pétur Ásgeirsson, starfsmenn Akureyrarbæjar, við
snjómokstur í kirkjutröppunum, sem eru rétt rúmlega 100 talsins.
Fínasta
tröppu-
þrek
Hitaleiðslur höfðu ekki undan að bræða snjóinn
TVÖ snjóflóð féllu á Ólafsfjarðarveg,
utan við Sauðanes norðan Dalvíkur
um helgina og var vegurinn lokaður
frá því seinnipartinn á föstudag og
fram á sunnudagsmorgun. Fyrra
flóðið féll á veginn um kl. 18 á föstu-
dag en lögreglunni á Dalvík var ekki
kunnugt um hvenær seinna flóðið
féll. Snjóflóðin féllu á svipuðum stað,
það fyrra var um 30–40 metra breitt
og 2–3 metra hátt en seinna flóðið
var heldur minna, að sögn Sævars
Ingasonar, lögreglumanns á Dalvík.
Vinna við að opna Ólafsfjarðarveg
hófst á laugardagskvöld og var langt
komin þegar ákveðið var að hætta
mokstri. Vinna við verkið hófst síðan
aftur aðfaranótt sunnudags, þar sem
koma þurfti tveimur sjúklingum frá
Ólafsfirði á sjúkrahús á Akureyri.
Misræmi í upplýsingagjöf
Snjóflóðin féllu í umdæmi Dalvík-
urlögreglunnar en Sævar sagði að
misræmis hafi gætt milli lögreglunn-
ar og Vegagerðarinnar varðandi
upplýsingar til almennings um hve-
nær Ólafsfjarðarvegur yrði opnaður
og að það þyrfti að laga. „Þetta varð
m.a. til þess að fólk sem komst frá
Akureyri til Dalvíkur við erfiðar að-
stæður, komst svo ekki áfram til
Ólafsfjarðar og varð að snúa við.“
Sævar sagði að helgin hefði verið
róleg á Dalvík og að aðeins eitt
óhapp hafi orðið í umferðinni, þar
sem vélsleði rakst utan í kyrrstæðan
bíl. „Það er rosalegt snjómagn í bæn-
um og erfið færð en því miður er
minna snjómagn í fjallinu en menn
vonuðu,“ sagði Sævar en sem kunn-
ugt er fer Skíðamót Íslands fram á
Dalvík og Ólafsfirði í byrjun apríl nk.
Félagar í björgunarsveinni Lands-
björg voru til taks og aðstoðuðu
heimamenn eftir mætti. Þá varð að
fresta snjósleðakeppni sem fram átti
að fara á Dalvík um helgina.
Fjölmennt þorrablót en hljóm-
sveitarmeðlimir veðurtepptir
Jón Konráðsson, lögreglumaður í
Ólafsfirði, hafði svipaða sögu að
segja, helgin hefði verið róleg en að
ekki væri mikill snjór í bænum og
enn minna í fjallinu. „Það er frekar
að snjórinn hafi fokið úr hlíðunum of-
an í bæinn.“ Ólafsfirðingar héldu
fjölmennt þorrablót á laugardags-
kvöld og fór það vel fram þrátt fyrir
að um helmingur hljómsveitarinnar
hefði orðið veðurtepptur á Dalvík,
m.a. söngvarinn og trommuleikar-
inn. Gítarleikarar hljómsveitarinnar
fengu þriðja gítarleikarinn til liðs við
sig á staðnum og var leikið á þrjá gít-
ara fyrir þorrablótsgesti, að sögn
Jóns.
Tvö snjóflóð féllu
á Ólafsfjarðarveg
KRISTJÁN Már Magnússon sál-
fræðingur flytur fyrirlestur um
uppeldishætti og forvarnir í kvöld,
þriðjudagskvöldið 5. febrúar. Fyr-
irlesturinn verður fluttur í sam-
komusal Lundarskóla og hefst hann
kl. 20.
Bryndís Arnarsdóttir forvarnar-
fulltrúi svarar fyrirspurnum ásamt
Kristjáni að fyrirlestrinum loknum.
Það eru foreldra- og kennara-
félög grunnskóla Akureyrar sem
standa sameiginlega að þessum
fræðslufundi, en þau efndu til nokk-
urra slíkra sameiginlegra funda á
síðasta vetri.
ERILSAMT hefur verið hjá lögregl-
unni á Akureyri síðustu daga við að
aðstoða ökumenn sem hafa fest bíla
sína á götum bæjarins eftir mikla
snjókomu um helgina.
„Við höfum mikið verið í því að
kippa mönnum úr sköflum,“ sagði
varðstjóri lögreglunnar. Lítið hefur
þó verið um óhöpp, en ein bílvelta var
á Svalbarðsströnd, við bæinn Breiða-
ból, aðfaranótt sunnudags. Þá fipaðist
ökumanni í slæmu skyggni er hann
lenti á ójöfnu á veginum. Alfeiðing-
arnar voru þær að bifreiðin valt út
fyrir veg, en þeir þrír sem í bílnum
voru sluppu án meiðsla.
Um 20 tæki við snjómokstur
Gunnþór Hákonarson, yfirverk-
stjóri hjá Framkvæmdamiðstöð Ak-
ureyrar, sagði að snjórinn væri
óvenju klesstur, blautur og þungur og
því tæki heldur lengri tíma að hreinsa
götur en vanalega. Um 20 tæki voru
við snjómokstur á götum bæjarins í
gær, mánudag og var hafist handa við
hreinsun kl. 5 að morgni og einhver
tæki voru að til miðnættis. Þá hófst
vaktin hjá starfsmönnum á tækjun-
um að nýju kl. 5 nú í morgunsárið.
„Við verðum búnir að hreinsa allt upp
á miðvikudagskvöld,“ sagði Gunnþór,
en þó gæti sett strik í reikninginn að
áfram er spáð éljum norðanlands.
Sakna Marra!
Bæjarbúar kvörtuðu nokkuð, m.a.
til lögreglu, vegna þess hve ógreið-
færar götur voru í gærdag og höfðu
jafnvel á orði að þeir söknuðu Marra,
Hilmars Gíslasonar sem nýlega hefur
látið af störfum bæjarverkstjóra.
„Við erum að vinna eftir sama plani
og áður hefur verið gert, en snjórinn
er mjög erfiður viðureignar nú,“
sagði Gunnþór. Þá nefndi hann einnig
að bæjarbúar væru orðnir góðu vanir,
þar sem lítið hefði þurft að hreina göt-
ur síðustu misseri, en þau hefðu verið
óvenju snjólétt.
Snjó kyngdi niður á Akureyri um helgina
Þungur og klesstur
snjórinn erfiður
viðureignar
HALLFRÍÐUR Kolbeinsdóttir
opnar sýningu á batikverkum á
veitingastaðnum Friðriki V. á Ak-
ureyri í dag, þriðjudaginn 5. febr-
úar. Á sýningunni, sem stendur út
febrúarmánuð, eru 11 verk sem
unnin voru á síðasta ári.
Í sýningarskrá segir að batik sé
samkvæmt heimildum bæði æva-
forn og næsta ný listgrein. Batik
er fyrst getið í Egyptalandi fyrir
að minnsta kosti 2000 árum. Á
Java og í Indónesíu mun hún hafa
verið stunduð sem iðn- og list-
grein. Batik hefur lítt verið stund-
uð hér á landi, nema af Sigrúnu
Jónsdóttur listakonu, sem nú er
látin.
Batiksýning á
Friðriki V.
Uppeldis-
hættir og
forvarnir