Morgunblaðið - 05.02.2002, Page 17
AKUREYRI
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 5. FEBRÚAR 2002 17
UMHVERFISRÁÐ Akureyrar-
bæjar hefur synjað tveimur erind-
um þar sem sótt var um bygg-
ingalóðir á svæðinu milli
Þórunnarstrætis og Hrafnagils-
strætis. Á þessu svæði er nú tjald-
stæði Akureyrarbæjar.
Íslenskir aðalverktakar sóttu
um lóðina, en hún afmarkast af
Hrafnagilsstræti, Byggðavegi,
Þingvallastræti og Þórunnar-
stræti, en þar hafði félagið hug á
að byggja um 150 íbúðir í fjölbýlis-
húsahverfi. Hyrna ehf. á Akureyri
sótti einnig um þessa lóð, en áform
þess byggingafélags voru að reisa
þar íbúðir fyrir aldraða. Umhverf-
isráð synjaði þessum erindum þar
sem þetta svæði er skilgreint sem
tjaldsvæði í aðalskipulagi.
Vill byggja á svæði
austan Glerárkirkju
Meirihluti umhverfisráðs tók
hins vegar jákvætt í erindi frá
Trésmíðaverkstæði Sveins Heiðars
sem sótti um að fá úthlutað svæði
austan lóðar Glerárkirkju, milli
Arnarsíðu og nýskipulagðra lóða
við Lindarsíðu. Óskaði ráðið eftir
nánari hugmyndum um nýtingu
svæðisins. Tveir nefndarmanna
höfnuðu erindinu, þar sem umrætt
svæði er skilgreint sem opið al-
mennt útivistarsvæði í aðalskipu-
lagi. Á umhverfisdeild bæjarins sé
nú unnið að verkefni um þéttingu
byggðar, en að því loknu verði
auglýst þau svæði sem ætluð verða
til byggingar.
Áhugi á að byggja íbúðir á tjaldstæðinu
Umhverfis-
ráð synjar
umsóknum
EINN af föstu liðunum í skólastarfi
Grunnskólans í Grímsey er áheita-
sund sem skólabörnin standa fyrir,
til að safna fyrir væntanlegu vor-
ferðalagi.
Öll skólabörnin syntu samtals 6
kílómetra, við góða hvatningu frá
foreldrum og ættingjum sem komu
til að fylgjast með í sundlauginni.
Fljótlega eftir sundið fóru börn
eldri deildarinnar í Félagsheimilið
Múla og tóku til hendinni við að
steikja hamborgara og franskar
kartöflur, til að selja íbúum.
Vel var mætt, um 60 manns
snæddu gómsæta borgara með
frönskum og ýmsu góðu meðlæti.
Skólabörnin þjónuðu gestum sín-
um til borðs með bros á vör og allir
héldu síðan til síns heima, saddir og
sælir eftir vellukkaðan dag og
skólasjóðurinn talsvert feitari.
Morgunblaðið/Helga Mattína
Börn í Grímsey syntu áheitasund til að safna fé í ferðasjóð sinn.
Öll skólabörnin
syntu áheitasund
ÞORSTEINN Gauti Sigurðsson pí-
anóleikari heldur einleikstónleika í
Laugarborg í Eyjafjarðarsveit í kvöld
20.30.
Þorsteinn Gauti hóf ungur píanó-
nám og lauk einleikaraprófi frá Tón-
listarskólanum í Reykjavík. Fram-
haldsnám stundaði hann við Juilliard
School of Music í New York og í Róm
á Ítalíu. Þorsteinn Gauti hefur komið
fram á tónleikum víða um heim og
verið einleikari með Sinfóníuhljóm-
sveit Íslands og hljómsveitum á
Norðurlöndunum, segir í fréttatil-
kynnngu. Þorsteinn Gauti hefur m.a.
sigrað í keppni einleikara og ein-
söngvara, hinum samnorræna tvíær-
ingi. Árið 1993 sigraði Þorsteinn
Gauti í keppni Ríkisútvarpsins, Tón-
vakanum, sem haldin er fyrir einleik-
ara og einsöngvara.
Á efnisskrá tónleika Þorsteins
Gauta í Laugarborg eru mörg af vin-
sælustu verkum píanóbókmenntanna
eftir m.a. Chopin, Liszt, Ravel, De-
bussy og Rachmaninov.
Þorsteinn Gauti býr nú tímabundið
á Ítalíu. Tónleikarnir eru liður í und-
irbúningi hans fyrir tónleika sem hon-
um hefur verið boðið að halda í Sviss.
Þorsteinn
Gauti leikur í
Laugarborg