Morgunblaðið - 05.02.2002, Blaðsíða 23
ERLENT
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 5. FEBRÚAR 2002 23
ÍRANAR brugðust í gær hinir
verstu við fullyrðingum stjórnvalda
í Bandaríkjunum þess efnis að þeir
hefðu aðstoðað talibana og liðs-
menn al-Qaeda-hryðjuverkasam-
takanna við að komast frá Afgan-
istan. Jafnframt vöruðu þeir
Bandaríkjamenn við að fara með
vopnavaldi gegn Írönum en George
W. Bush Bandaríkjaforseti telur þá
í hópi „öxulvelda hins illa“ í heimi
hér.
Donald Rumsfeld, varnarmála-
ráðherra Bandaríkjanna, sagði í
viðtali á sunnudag að „enginn vafi“
léki á því að stjórnvöld í Teheran
hefðu hjálpað talibönum og liðs-
mönnum al-Qaeda-hryðjuverka-
netsins, sem Osama bin Laden kom
á fót, að flýja yfir landamærin til
Íran. Eigi þessi yfirlýsing ráð-
herrans við rök að styðjast skjóta
stjórnvöld í Íran þá skjólshúsi yfir
menn þessa, sem bandarískar sér-
sveitir hafa ákaft leitað í þeim til-
gangi að handtaka eða fella.
Í viðtali við ABC-sjónvarpsstöð-
ina sagði Rumsfeld m.a: „Við höf-
um margvíslegar upplýsingar þess
efnis að Íranar hafi verið sveigj-
anlegir mjög og heimilað al-Qaeda-
liðum að fara um íranskt land.“
Tók hann fram að sjálfur efaðist
hann ekki um að nefndar fregnir
ættu við rök að styðjast. Íranar
hefðu ekki farið að dæmi Pakistana
og komið fyrir liðsafla við afgönsku
landamærin til að tryggja að þar
um færu ekki vígamenn og hryðju-
verkaflokkar á flótta.
Er Rumsfeld var spurður hvern-
ig Bandaríkjamenn hygðust bregð-
ast við þessum upplýsingum sagði
hann: „Við erum ekki vanir að
skýra frá slíku fyrirfram.“
Tilefni þeirra spurninga sem
bornar voru upp við Rumsfeld var
frétt í tímaritinu Time þar sem
fram kemur að um 250 háttsettir
talibanar og liðsmenn al-Qaeda hafi
komist á 50 bifreiðum yfir landa-
mærin og inn í Íran skömmu áður
en andstæðingar talibana-stjórnar-
innar náðu borginni Herat í vest-
urhluta Afganistan á sitt vald í nóv-
embermánuði. Fylgdi og fréttinni
að mennirnir hefðu flúið eftir að
háttsettur embættismaður, sem
tengdist Ayatollah Ali Khameini,
hæstráðanda í Íran, hafði rætt við
þá og boðið þeim hæli.
Íranar vísuðu í gær ásökunum
þessum til föðurhúsanna. Sagði
talsmaður íranska utanríkisráðu-
neytisins þær tilhæfulausar með
öllu. Talsmaðurinn Hamid-Reza
Asefi lýsti og yfir því að það myndu
reynast „óbætanleg mistök“
ákvæðu stjórnvöld í Bandaríkjun-
um að beita hervaldi gegn Íran.
„Þíðan“ úti
Fullyrðingar Rumsfelds um liðna
helgi vöktu mikla athygli og þóttu í
anda þeirra herskáu ummæla sem
frá bandarískum ráðamönnum hafa
borist á undanliðnum vikum. Hafa
snörp umskipti orðið á því sviði.
Eftir árás hryðjuverkamanna á
Bandaríkin 11. september töldu
margir fréttaskýrendur að vænta
mætti þess að samskipti stjórn-
valda í Washington og Teheran
myndu batna. Var það mat byggt á
fyrstu yfirlýsingum Írana, sem
gáfu til kynna að ráðamenn þar
væru tilbúnir til að aðstoða Banda-
ríkjamenn í „stríðinu gegn hryðju-
verkaógninni“. Íranar studdu við-
leitni Bandaríkjamanna og
Sameinuðu þjóðanna til að koma á
nýrri ríkisstjórn í Afganistan eftir
að talibönum hafði verið komið frá
völdum þar. Þá lýstu Íranar yfir
því er herför Bandaríkjamanna
gegn al-Qaeda og talibönum hófst,
að aðstoð yrði veitt við leit að flug-
mönnum bandarískum færi svo að
flugvélar þeirra yrðu skotnar niður.
Viðbrögð Bandaríkjamanna við
þessum þreifingum voru jákvæð og
töldu því ýmsir að „nýrrar þíðu“
væri að vænta í samskiptum þess-
ara fjandríkja.
Þetta ástand ríkti allt þar til fyr-
ir um fjórum vikum. Þá lýsti Bush
forseti yfir því að Íranar hefðu
reynt að beita áhrifum sínum í Afg-
anistan í því skyni að grafa undan
bráðabirgðastjórninni sem þar hef-
ur tekið við völdum. Varaði hann
ráðamenn í Teheran við afleiðing-
um þess að hafa afskipti af afg-
önskum innanríkismálum. Virtu Ír-
anar þessi tilmæli að vettugi yrði
brugðist við og þá „fyrst með dipló-
matískum hætti“.
Sakaðir um undirróður
og vígvæðingu
Í stefnuræðu sinni í liðinni viku
lýsti Bush síðan yfir því að Íran,
Írak og Norður-Kórea mynduðu
saman „öxul hins illa“ í heiminum
og að ríki þessi hefðu einsett sér að
komast yfir gereyðingarvopn. Und-
ir þessi orð tók síðan Codoleezza
Rice, þjóðaröryggisráðgjafi forset-
ans, í sjónvarpsviðtali um helgina
er hún sagði að Íranar leituðust við
að koma sér upp efna- og sýkla-
vopnum auk þess sem unnið væri
að endurbótum á langdrægum eld-
flaugum sem þar væri að finna. Þá
vildu stjórnvöld í Teheran færa rík-
ið í hóp kjarnorkuvelda. Rice tiltók
einnig að Íranar hefðu reynt að
skapa óróa og usla í Afganistan
með því að bjóða valdamiklum ætt-
bálkahöfðingjum þar aðstoð sína.
Íranar hafa jafnan sagt fullyrð-
ingar Bush og undirsáta hans blá-
beran tilbúning. Hafa þeir og minnt
á að ráðamenn í Teheran hafi verið
einna eindregnustu fjendur talib-
ana-stjórnarinnar í Afganistan. Ír-
anar eru sjítar en talibanar leiddu
sunni-íslamska bókstafstrú yfir afg-
önsku þjóðina.
Á hinn bóginn hafa Íranar
löngum tekist á við aðrar þjóðir um
ítök í Afganistan einkum Rússa og
Pakistana en þeir síðarnefndu
studdu talibana-stjórnina fram til
hryðjuverkanna í Bandaríkjunum
11. september.
Þrýstingur-
inn enn auk-
inn á Írana
AP
Donald Rumsfeld, varnarmálaráðherra Bandaríkjanna, ræðir við
fréttamenn eftir viðtal við ABC-sjónvarpsstöðina.
’ Við erum ekkivanir að skýra frá
slíku fyrirfram ‘
Bandaríkjastjórn segir Írana hafa hjálpað talibönum og al-Qaeda-liðum að flýja frá Afganistan
NÍGERÍSKIR hermenn gengu um götur Lagos í gær í
því skyni að stilla til friðar en 55 hafa nú látist í átök-
um sem blossuðu upp í einu hverfa borgarinnar um
helgina milli manna af þjóð Yoruba annars vegar og
Hausa hins vegar. 200 hafa særst í átökunum. Má á
myndinni sjá hvar maður af ætt Hausa beitir sverði
sínu gegn Yoruba-manni í gær.
Rauði kross landsins sá um að flytja særða á sjúkra-
hús en átökin áttu sér stað í Mushin-borgarhlutanum,
sem er niðurnítt hverfi í útjaðri Lagos. Sagði Kristín
Ólafsdóttir, sem starfar fyrir Alþjóða Rauða krossinn
í Lagos, að menn vonuðust til að ekki yrði um frekari
víg að ræða. Mörg hundruð þjóðarbrot byggja Níger-
íu og hefur oft og tíðum verið grunnt á því góða milli
þeirra. Átökin nú um helgina munu hafa blossað upp
eftir að Hausa-menn komu að manni af þjóð Yoruba,
en hún er kristin, þar sem hann gekk örna sinna í ná-
grenni mosku Hausa-mannanna, sem eru íslamstrúar.
AP
55 falla í átökum í Lagos