Morgunblaðið - 05.02.2002, Qupperneq 24
ERLENT
24 ÞRIÐJUDAGUR 5. FEBRÚAR 2002 MORGUNBLAÐIÐ
HENRIK prins og eig-inmaður MargrétarÞórhildar Danadrottn-ingar heldur sig um
þessar mundir á vínbúgarðinum
sínum í Frakklandi. Þar ætlar
hann að gera upp við sjálfan sig
stöðu sína í dönsku samfélagi og
innan konungsfjölskyldunnar en
honum finnst sem hann hafi verið
auðmýktur og lítillækkaður af
dönsku hirðinni. Kemur þetta fram
í stóru viðtali við hann í B.T. og
dönsku fjölmiðlarnir eru þegar
farnir að velta því fyrir sér hvort
skilnaður sé á næsta leiti.
„Ég er kominn hingað til Caïx til
að fara yfir lífshlaupið og stöðu
mína í Danmörku og innan fjöl-
skyldunnar,“ segir Henrik í viðtal-
inu. „Þessum virðingarstiga er
ekki hægt að breyta bara þegar
einhverjum dettur það í hug.“
Henrik segir, að hann hafi verið
auðmýktur og lítillækkaður. „Þetta
er mesta tilvistarkreppa, sem ég
hef upplifað.“
Virðingarstiginn
Henrik segir, að í öllum sam-
félögum sé ákveðinn virðingarstigi
og svo hafi verið um árþúsundir.
Þannig sé það í ríkisstjórninni og
hernum og þannig eigi það að vera
innan konungsfjölskyldunnar.
Konungur og drottning eða drottn-
ing og drottningarmaður séu núm-
er eitt og tvö og krónprinsinn eða
krónprinsessan númer þrjú. Maki
þeirra sé númer fjögur og þannig
koll af kolli. Hann leggur þó
áherslu á, að vissulega geti það
komið upp, að Friðrik krónprins sé
fenginn til að leysa föður sinn af
hólmi við einhverjar athafnir en
hitt sé meginreglan.
Henrik tekur skýrt fram, að
óánægja sín hafi ekkert að gera
með samband sitt við konu sína og
son en sagnfræðingurinn Claus
Bjørn, sem meðal annars hefur
skrifað bókina „Upp á punt?“ um
dönsku konungsfjölskylduna, hikar
ekki við að segja, að yfirlýsingar
Henriks geti haft miklar afleið-
ingar í för með sér, meðal annars
vegna þess, að þær geti haft áhrif á
afstöðu Dana almennt til kon-
ungdæmisins.
Dropinn sem
fyllti mælinn
Sagt er, að hinn árlegi nýárs-
fagnaður fjölskyldunnar hafi verið
dropinn, sem fyllti mælinn hjá
Henrik. Honum fannst sem hann
hefði verið lítillækkaður er svo var
litið á, að Friðrik krónprins væri
gestgjafinn að þessu sinni.
„Allir karlmenn vilja vera hús-
bóndi á sínu heimili og í hlutverki
gestgjafans þegar það á við. Samt
segja fjölmiðlarnir og jafnvel fólk
tengt hirðinni, að krónprinsinn hafi
verið gestgjafi þótt hann hafi í
raun aðeins verið gestur föður síns.
Vilji Danir breyta reglunum, þá
mega þeir það, en ég vil ekki taka
þátt í því,“ segir Henrik í viðtalinu
og hann segist efast um, að þessi
lítillækkun hafi bara verið eitt-
hvert hugsunarleysi.
„Eftir 30 ár þarf ekki að segja
mér, að fólk viti ekki hvaða merk-
ingu nýársfagnaðurinn hefur.
Hann er ekki nein áheyrn þar sem
krónprinsinn leysir af móður sína
þegar svo ber undir,“ segir Henrik
og bætir við, að hann sé ekki að
áfellast son sinn.
Ekki við Friðrik
að sakast
„Þetta er ekki hans sök og ég
veit, að honum líkar þetta ekki. Ég
öfunda ekki son minn. Hann er
mér ákaflega kær og það er ekki
hann, sem hefur breytt virðing-
arstiganum.“
Henrik prins segist ekki vera
óánægður með stöðu sína númer
tvö innan dönsku konungsfjöl-
skyldunnar.
„Ég hef verið sáttur við hana
alla tíð en hér dreg ég líka mörkin.
Ég sætti mig ekki við að vera núm-
er þrjú.“
Ekki til í ríkisréttar-
legum skilningi
Danski lagadoktorinn Jens Pet-
er Christensen segir í viðtali við
Jyllands-Posten, að staða Henriks
prins innan dönsku konungsfjöl-
skyldunnar sé vissulega mjög
óljós.
„Henrik prins hefur í raun ekk-
ert númer hvað varðar erfðarétt og
í ríkisréttarlegum skilningi er
hann ekki til. Drottningarmaður
skiptir engu máli fyrir kon-
ungdæmið og gestirnir í nýárs-
fagnaðinum komu þangað í krafti
síns embættis,“ sagði Christensen.
Claus Bjørn segist hins vegar
vel geta skilið óánægju prinsins
með nýársfagnaðinn en hugs-
anlega sé um að ræða einhvern
misskilning vegna sambandsleysis
þeirra hjóna. Líklega þurfi þau á
hjónameðferð að halda.
Vonbrigði á
vonbrigði ofan
Í viðtalinu við B.T. segir Henrik
prins, að Danir og Danmörk séu
sér mjög kær.
„Ég hef reynt að gera hvað ég
get fyrir land og þjóð en hvers
vegna þetta virðingarleysi? Von-
brigði á vonbrigði ofan og lít-
illækkun, sem grafið hefur undan
virðingu minni fyrir sjálfum mér,“
segir Henrik og bætir við, að út af
þessu öllu saman hafi hann ekki
viljað vera við brúðkaup hollenska
krónprinsins um síðustu helgi.
Hann muni aftur á móti taka þátt í
enduropnun Det Danske Hus í
París í dag ásamt konu sinni.
Skilnaður á döfinni?
Danska konungsfjölskyldan boð-
aði til blaðamannafundar í gær í
Caïx, búgarðinum í Frakklandi, og
búist var við, að þar yrði allt í ást
og eindrægni. Í umfjöllun dönsku
fjölmiðlanna kemur þó orðið
„skilnaður“ fyrir hvað eftir annað
og sum spyrja hve lengi verði
reynt að halda við glansmyndinni,
sem Henrik prins sé raunar búinn
að rífa í sundur.
Extra Bladet segir, að skúrkarn-
ir í augum Henriks séu hinir valda-
miklu embættismenn við hirðina
en að slást við þá muni ekki koma
sér vel fyrir konungsfjölskylduna.
Hætt sé við, að útlendingar muni
hafa litla samúð með prinsinum og
því sé best að kveða þetta mál nið-
ur og það sem fyrst. „Konungs-
fjölskyldan verður að hafa frum-
kvæðið og best að aðrir haldi sig til
hlés um sinn. Henrik prins verður
að sýna það svart á hvítu, að hann
vilji leysa þennan vanda en ekki
bara vera í fýlu, og fjölskyldan öll
verður að slá um hann skjaldborg
og styðja hann í þessum erf-
iðleikum,“ sagði í Extra Bladet.
Henrik prins, eiginmaður Danadrottningar, segist hafa verið auðmýktur og lítillækkaður
„Mesta til-
vistarkreppa
sem ég hef
upplifað“
’ Ég vil ekki takaþátt í þessu. Ég er
númer tvö og á að
vera það ‘
AP
Margrét Danadrottning og eiginmaður hennar, Henrik prins (t.h), ásamt sonum þeirra, Friðrik og Jóakim,
á vínbúgarði prinsins, Caïx, í Frakklandi í gær. Henrik segist hafa verið auðmýktur af dönsku hirðinni.
THORBJØRN Jagland
tilkynnti á sunnudag að
hann hygðist láta af for-
mennsku í norska
Verkamannaflokknum
og talið er að Jens Stol-
tenberg, fyrrverandi
forsætisráðherra, verði
eftirmaður hans. Jagl-
and hefur verið formað-
ur flokksins í 10 ár.
Jagland sagði að hann
hygðist segja af sér sem
formaður Verkamanna-
flokksins til að reyna að
binda enda á deilur í for-
ystu flokksins eftir mik-
ið fylgistap hans í þingkosningunum
í haust.
Norska dagblaðið Aftenposten
sagði í gær að þetta virtist hafa tek-
ist því eining væri meðal helstu for-
ystumanna Verka-
mannaflokksins um að
Stoltenberg tæki við
formennskunni. Flest
benti til þess að hann
yrði kjörinn formaður
án mótframboðs. Helstu
stuðningsmenn Jag-
lands segjast ætla að
styðja Stoltenberg.
Meiri óvissa er hins
vegar um hver verði
kjörinn eftirmaður Stol-
tenbergs sem varafor-
maður Verkamanna-
flokksins. Talið er að
nokkrir menn verði í
framboði í varaformannskjörinu.
Ekki er ljóst hvenær Jagland fer
frá, en hann verður ekki í framboði á
landsfundi Verkamannaflokksins í
haust.
Verkamannaflokkurinn í Noregi
Jagland ætlar
að láta af
formennsku
Thorbjørn Jagland
LÍK 45 manna hafa fundist eftir
jarðskjálfta sem reið yfir miðhluta
Tyrklands á sunnudag. 318 manns
slösuðust í skjálftanum og meira en
600 hús eyðilögðust eða skemmdust.
Skjálftinn var 6,2 stig á Richters-
kvarða og er sá öflugasti sem riðið
hefur yfir Tyrkland frá 1999 þegar
um 20.000 manns fórust í tveimur
skjálftum sem mældust 7,4 og 7,2
stig á Richters-kvarða. Allt að tíu
stiga frost var á skjálftasvæðinu og
fólk hélt sig utandyra þar sem það
þorði ekki heim af ótta við eftir-
skjálfta.
Yfirvöld lögðu kapp á að koma
tjöldum og ofnum á svæðið fyrir sól-
setur í gær. Rauði hálfmáninn í
Tyrklandi sagði að allir á skjálfta-
svæðinu hefðu fengið tjöld innan sól-
arhrings eftir skjálftann en frétta-
stofan Anatolia hafði eftir
embættismönnum á svæðinu að mik-
ill skortur væri á hjálpargögnum.
Fólkið þyrfti að minnsta kosti 20.000
teppi en aðeins nokkur þúsund hefðu
borist, auk þess sem skortur væri á
matvælum og vatni.
Björgunarmenn og íbúar á svæð-
inu röktu manntjónið og eyðilegg-
inguna til lélegra bygginga og sögðu
að skjálftinn sýndi að stórherða
þyrfti byggingarreglugerðir í Tyrk-
landi.
Átta af hverjum tíu húsum bæj-
arins Eber, sem er með 2.000 íbúa,
eyðilögðust í skjálftanum. Þau voru
öll úr leirsteini og aðeins steinsteypt
hús bæjarins stóðu uppi. „Okkur var
aldrei sagt að við ættum ekki að
reisa leirsteinshús,“ sagði einn íbú-
anna.
Eyðileggingin var einnig rakin til
þess að bærinn var reistur á mýri.
„Bærinn eyðilagðist á nokkrum sek-
úndum,“ sagði einn björgunarmann-
anna. „Hverjum datt í hug að byggja
á þessu landi?“
Skjálftamiðjan var nálægt Bolvad-
in, um 300 km suðvestan við Ankara.
Jarðskjálfti kost-
aði 45 Tyrki lífið
!"
#$ %
& '
'(
)
*
+,
-
. / / , 0/
(
12
/
4
56
+%%