Morgunblaðið - 05.02.2002, Page 32
32 ÞRIÐJUDAGUR 5. FEBRÚAR 2002 MORGUNBLAÐIÐ
Hallgrímur B. Geirsson.
Styrmir Gunnarsson.
Framkvæmdastjóri:
Ritstjóri:
STOFNAÐ 1913
Útgefandi: Árvakur hf., Reykjavík.
Aðstoðarritstjórar:
Karl Blöndal, Ólafur Þ. Stephensen.
Fréttaritstjóri:
Björn Vignir Sigurpálsson.
AÐGANGUR AÐ RAFRÆNUM
GAGNASÖFNUM
Samningar um landsaðgang að raf-rænum gagnasöfnum eru stórtskref fram á við og veita óviðjafn-
anlegan aðgang jafnt fræðimönnum sem
námsmönnum og almenningi að erlend-
um heimildum. Samningurinn felur í sér
að allir tölvunotendur, sem kaupa net-
þjónustu í gegnum íslenskar veitur, geta
leitað í rafrænum gagnasöfnum og tíma-
ritum á vefnum og er þetta í fyrsta skipti,
sem slíkur samningur er gerður fyrir
hönd heillar þjóðar. Ekki er flóknara að
komast inn á rafræna gagnagrunninn en
að slá inn slóðina www.hvar.is í tölvu hér
á landi og þarf ekki einu sinni lykilorð.
Í grein um samninginn í Sunnudags-
blaði Morgunblaðsins kemur fram að
engin önnur þjóð hafi náð slíkum samn-
ingum og án þeirra hefðu íslenskir vís-
indamenn ekki aðgang að nýjustu heim-
ildum og um 2.200 nemendur í fjarnámi
hér á landi ættu erfitt með að stunda
nám.
Margir erlendir háskólar nota ekki síst
góðan kost bóka og tímarita til að laða að
nemendur og þess eru jafnvel dæmi að
skólar leggi svo mikið upp úr bókasöfn-
um sínum að nýnemar eru látnir koma í
skólann áður en kennsla hefst til að geta
kynnt sér söfnin í næði. Ef einangrun Ís-
lands hefur á einhverju sviði verið tilfinn-
anleg er það í þessum efnum. Bókakosti
Landsbókasafnsins er til dæmis í ýmsum
greinum áfátt og sömu sögu má segja um
fræðileg tímarit. Með þessum samningi
fyrir landið allt hefur staðan gjörbreyst.
Í stað þess að þurfa að bíða vikum saman
eftir að fá fræðigrein senda er hægt að
sækja hana á Netið eða skoða útdrátt til
að meta hvort greinin nýtist.
Ótrúlegar framfarir hafa verið í flutn-
ingi greina og gagna í rafræn gagnasöfn.
Sólveig Þorsteinsdóttir, forstöðumaður
bókasafns Landspítala – háskólasjúkra-
húss, lýsti því hér í blaðinu að fyrir
nokkrum árum hafi aðeins verið hægt að
nálgast þær upplýsingar, sem nú eru í
boði á www.hvar.is, í prentuðu formi á
bókasöfnum. Með tilkomu tölvunnar og
gegnum mótald hefðu bókasafnsfræð-
ingar haft aðgang að ákveðnum gagna-
grunnum og sáu þeir jafnframt um leit
fyrir einstaklinga og fræðimenn. Í fyrstu
voru upplýsingarnar mjög takmarkaðar
og nær eingöngu vísað í prentaðar grein-
ar og hvar þær væri að finna, seinna var
hægt að fá útdrætti úr greinunum og
loks urðu þær allar aðgengilegar, en þó
aðeins á bókasöfnum. Með tilkomu Nets-
ins og Vefjarins urðu þessar upplýsingar
hins vegar allar aðgengilegar.
Þóra Gylfadóttir, verkefnisstjóri vefj-
arins í Landsbókasafni Íslands – Há-
skólabókasafni, segir að semjendur
gagnasafnanna líti á samningana við Ís-
land sem tilraunaverkefni, sem styðjast
megi við í framtíðinni þegar samið verði
við þjóðir, sem séu skemmra á veg komn-
ar en við og þeir líti á þetta sem mikinn
áfanga í markaðssetningu.
„Landsaðgangurinn og allt sem í hon-
um er að finna er stærsta bókasafn sem
við höfum nokkru sinni haft aðgang að og
mun stærra en okkur gat nokkurn tíma
dreymt um að koma upp,“ segir Sólveig
Þorsteinsdóttir. „Það má segja að al-
menningsbókasafnið, skólabókasafnið
og fræðabókasafnið sé þar með komið
inn á heimili til fólks.“
Oft eru stór skref stigin svo lítið beri á.
Til að átta sig á því hvað í þessu felst fær-
ir samningurinn aðgang að rúmlega 30
tilvísanasöfnum og sjö tímaritasöfnum,
sem í eru rúmlega 6.700 tímarit, bæði
fræðileg og almenns eðlis. Þá er einnig
aðgangur að fjölda bóka í heild sinni,
bæði fræðiritum og skáldskap. Þessi
bylting var ekki gerð með lúðrablæstri
og skóflustungum. Hún var hljóðlát og á
eftir að auðvelda mörgum vinnu sína og
rannsóknir auk þess að greiða aðgang al-
mennings að upplýsingum, sem fyrir
nokkrum árum hefði kostað mikla vinnu
og umstang að nálgast.
EFLING RANNSÓKNARNÁMS
VIÐ HÁSKÓLA ÍSLANDS
Í ræðu Páls Skúlasonar háskólarektorsvið brautskráningu stúdenta sl. laug-
ardag kom fram að umtalsverð fjölgun
hefur orðið á nemendum í meistara- og
doktorsnámi við Háskóla Íslands. Sem
dæmi um þessa fjölgun nefndi hann að nú
eru 750 nemendur í framhaldsnámi, þar
af 70 í doktorsnámi, en fyrir þremur ár-
um voru þeir 280 og 20 þar af í doktors-
námi. „Ef svo fer fram sem horfir verður
áætlun Háskóla Íslands um að 1.000
nemendur verði skráðir í framhaldsnám
við skólann 2005 orðin að veruleika fyrr
en varir – og þótti víst sumum sú áætlun
glannaleg þegar hún var sett fram fyrir
tæpum tveimur áratugum,“ sagði Páll.
Hákólarektor benti ennfremur á það í
ræðu sinni að auk þessarar fjölgunar
nemenda á framhaldsstigum væru aðrir
þættir tengdir rannsóknarstarfi einnig í
sókn. Nefndi hann rannsóknarsamning
við menntamálaráðuneytið sem hvetj-
andi áfanga, þar sem fjárveitingar til
skólans eru nú tengdar mati á árangri og
gæðum rannsókna og rannsóknarnáms-
ins. Aukið samstarf við rannsóknir í heil-
brigðisvísindum í samvinnu við Land-
spítala – Háskólasjúkrahús er einnig
mikilvægt, ekki síst í ljósi þess að nú hef-
ur verið tekin ákvörðun um að byggja
sjúkrahúsið upp í námunda við háskóla-
svæðið. Þá er vert að gefa aukinni sam-
vinnu Háskólans við erlenda háskóla
gaum, en hún er vel til þess fallin að
halda háskólastarfinu í nauðsynlegum
tengslum við umheiminn auk þess sem
slíkt samstarf kynnir það sem vel er gert
hér á landi á erlendum vettvangi.
Framfarir innan Háskóla Íslands í
námi á framhaldsstigi eru þó án efa einn
mikilvægast þátturinn í uppbyggingu
skólans um þessar mundir, ekki síst hvað
trúverðugleika hans sem rannsóknarhá-
skóla varðar. Ekki má horfa framhjá
þeirri staðreynd að þær rannsóknir sem
nemendur í meistara- og doktorsnámi
vinna, hafa mikil áhrif á starfsemi há-
skólans í heild. Sú vitneskja sem safnast
með rannsóknum þessara nemenda nýt-
ist ekki einungis þeim sjálfum í sínu
námi, heldur stuðlar hún einnig að ný-
sköpun og öflugra starfi í grunnnámi
hverrar deildar, auk þess að efla hug-
myndaauðgi og það akademíska aðhald
er gerir háskólann samkeppnisfærari við
erlendar háskólastofnanir. Án fjöl-
breytts framhaldsnáms er sú hætta fyrir
hendi að háskólinn standi ekki undir
nafni sem virkt fræðasamfélag og bjóði í
raun einungis upp á kennslu í grunnþátt-
um hverrar námsgreinar fyrir sig. Einn-
ig má ljóst vera að ef Háskóli Íslands á að
standa undir þeim væntingum sem sam-
tíminn gerir til hans þarf hann að vera
nógu öflugur sem rannsóknarstofnun til
að hafa raunverulegt vægi í íslensku
samfélagi. Framhaldsnámið kemur því
ekki aðeins nemendum háskólans á öllum
skólastigum til góða, þau áhrif sem rann-
sóknarstarfið skilar út til samfélagsins
geta einnig skipt sköpum fyrir nýsköpun
og framþróun í þjóðlífinu öllu.
MIKLAR deilur hafastaðið um útgáfu heil-brigðisvottorðs tilflugmanns, sem
fékk blóðþurrðarsjúkdóm til heila í
nóvember 1998. Hann jafnaði sig
fljótlega og fór í framhaldi af því í
ítarlegar læknisskoðanir. Málið
kom inn á borð Þengils Oddssonar,
trúnaðarlæknis Flugmálastjórnar,
en hann þurfti að meta hvort líkur
á endurteknum sjúkdómseinkenn-
um væru það miklar að hann upp-
fyllti ekki skilyrði reglna Flugör-
yggissamtaka Evrópu (JAA) um
útgáfu flugskírteina. Niðurstaða
Þengils var sú að hann uppfyllti
ekki skilyrðin.
Þessari niðurstöðu áfrýjaði flug-
maðurinn, Árni G. Sigurðsson, til
sérstakrar áfrýjunarnefndar sem
skipuð var þremur læknum. Nið-
urstaða hennar var að flughæfni
flugmannsins væri óskert og að
hann uppfyllti skilyrði reglugerðar
Flugmálastjórnar. Í framhaldi af
þessu gaf Þengill út heilbrigðis-
vottorð til flugmannsins með þeim
takmörkunum að hann mætti ekki
fljúga einn og að hann færi í lækn-
isskoðun á fjögurra mánaða fresti
en ekki sex mánaða fresti.
Þessa niðurstöðu sætti flugmað-
urinn sig ekki við og vísaði málinu
til samgönguráðuneytisins sem
gerði Þengli skylt að taka út þær
takmarkanir sem hann hafði sett í
heilbrigðisvottorðið.
Í framhaldi af því sagði Þengill
sig frá málinu og 21. desember sl.
vék flugmálastjóri honum tíma-
bundið frá störfum eftir að alvar-
legar athugasemdir höfðu borist
frá Félagi íslenskra atvinnuflug-
manna og samgönguráðuneytinu
um störf Þengils.
Í byrjun janúar skipaði sam-
gönguráðherra fjögurra manna
nefnd til að fara ofan í störf Þeng-
ils. Í nefndinni sátu lögmennirnir
Andri Árnason formaður og Gest-
ur Jónsson, Sigurður Guðmunds-
son landlæknir og Ragnhildur
Hjaltadóttir, skrifstofustjóri í
samgönguráðuneytinu, sem sagði
sig úr nefndinni 25. janúar sl.
Áfrýjunarnefndin hluti af
stjórnsýslu Flugmálastjórnar
Í niðurstöðu nefndarinnar segir
að yfirlæknir heilbrigðisskorar
Flugmálastjórnar sé hluti af
stjórnsýslu ríkisins þegar hann
taki ákvarðanir um rétt og skyldur
manna. „Af því leiðir að við útgáfu
heilbrigðisvottorðs, eða afturköll-
un þess, ber að fara að stjórnsýslu-
lögum og þeim viðhorfum sem á
því sviði gilda að öðru leyti. Mjög
ríkar kröfur verði að gera til vand-
aðrar málsmeðferðar þegar fjallað
er um stjórnarskrárvarin atvinnu-
réttindi manna, svo sem er í því til-
viki sem hér um ræðir.“
Í úttekt Flugöryggissamtaka
Evrópu frá 14. nóvember er gerð
athugasemd við að áfrýjunar-
nefndin skyldi sækja umboð sitt til
aðila sem standa utan við reglur
samtakanna. Nefndin kemst hins
vegar að þeirri niðurstöðu að
nefndin sé hluti af stjórnsýslu
Flugmálastjórnar.
„Málskoti um heilbrigði skal
beina til úrskurðarnefndarinnar
og er niðurstaða
hennar þar um end-
anleg á sviði stjórn-
sýslu vegna útgáfu
heilbrigðisvottorða.
Umrædd skipan
nefndarinnar, sem þó
á sér ekki beina laga-
stoð, er ætlað að
tryggja sérhæfða,
hlutlausa og málefna-
lega endurskoðun á
þeirri stjórnsýsluat-
höfn sem kærð er á
þessu sviði. Verður að
líta svo á að nefnd
sem skipuð er sam-
kvæmt reglugerð nr.
419/1999, gr. 1.2.4.10,
sé hluti stjórnsýslu
flugmálastjórnar hér
á landi og hafi réttar-
stöðu sem slík.
Nefndinni ber því í
málsmeðferð sinni að
gæta að öllum þeim
reglum og kröfum,
skráðum sem óskráðum, sem gilda
á því sviði sem um er fjallað í hvert
sinn, þ.m.t. JAA-kröfum (JAR), ef
við á.“
Nefndin tók tillit
til 1% reglunnar
Nefndin bendir á að engar at-
hugasemdir hafi verið gerðar af
hálfu Flugmálastjórnar við skipan
úrskurðarnefndar jafnvel þó að
legið hafi fyrir að nefndarmenn
hafi ekki verið fluglæknar. Tekið
er fram að í reglugerðinni séu ekki
gerðar kröfur um að fluglæknar
sitji í nefndinni.
Í niðurstöðum nefndarinnar
segir að áfrýjunarnefndin, sem
kvað upp úrskurð í málinu 7. maí í
fyrra, hafi við ákvarðanatöku m.a.
lagt til grundvallar leiðbeininga-
handbók JAR-FCL 3 MED.
„Af niðurstöðu úrskurðarnefnd-
arinnar og að teknu tilliti til und-
irbúnings hennar, sbr. erindi for-
manns nefndarinnar til
samgönguráðuneytisins, dags. 28.
febrúar 2001, verður ekki annað
ráðið en að nefndin hafi haft undir
höndum og tekið viðeigandi tillit til
reglna og viðmiðunarsjónarmiða,
þ.m.t. JAR-FCL 3, leiðbein
djónarmiða JAR-FCL v
svokallaða 1% reglu.“
Í nefndarálitinu er fjal
þær leiðbeiningar sem sam
ráðuneytið gaf áfrýjunarne
en samkvæmt reglugerð fer
in með endanlegt stjórnsý
Nefndin gerir ekki athuga
við að ráðuneytið hafi veitt
inni almennar upplýsingar
reglur sem nefndinni bar a
eftir. „Ekki verður séð að l
ingarnar hafi verið rangar
legar eða á annan hátt að
verðar. Eins og hér stóð á
að telja að úrskurðarnefnd
fengið þær leiðbeiningar v
fluglæknisfræðilegt mat s
að gera henni kleift að tak
stæða ákvörðun sem byg
reglum og þeim viðmiðunar
miðum sem í hverju tilvik
leggja til grundvallar við
heilbrigði flugmanns. Sérs
skal bent á að leiðbeininga
andi hina óbirtu hluta JAR
anna sem skýringargagna
uðu ekki á neinn hátt
sjónarmið yrðu lögð til gru
ar, ef við átti.“
Nefnd sem gerði úttekt á störfum tr
Hefði átt
hjá áfrýjun
Trúnaðarlækni F
gefa út heilbrigði
yrðum að mati n
hans. Landlæknir
isins hafi byggst á g
STURLA Böðvarsson samgönguráðherra
sagði að niðurstaða úttektar nefndarinnar
væri einróma og ótvíræð. „Flugmálastjórn
og trúnaðarlækni hennar var skylt að
virða ákvörðun þeirrar áfrýjunarnefndar
lækna sem úrskurðaði að flugmaðurinn
teldist heilbrigður og ætti rétt á flug-
skírteini án takmarkana,“ sagði Sturla.
„Niðurstaða áfrýjunarnefndarinnar, en
í henni sátu þrír sérfræðingar í lækn-
isfræði, var afdráttarlaus og fól ekki í sér
neina ráðagerð um að viðkomandi flug-
maður fullnægði ekki kröfum sem gerðar
voru eða að skilyrða ætti heilbrigðisvott-
orð hans,“ sagði samgönguráðherra.
Sturla vitnaði í því sambandi til skýrslu
úttektarnefndarinnar þar sem segir: „Það
er niðurstaða nefndarinnar að synjun á
útgáfu heilbrigðisvottorðs, að fenginni
niðurstöðu áfrýjunarnefndarinnar, hafi
ekki verið byggð á neinum rökum sem
talin verða málefnaleg eða eðlileg.“
„Því voru stjórnsýslulög brotin þrátt
fyrir ítrekuð fyrirmæli ráðuneytisins um
að mál flugmannsins yrði afgreitt í sam-
ræmi við niðurstöðu áfrýjunarnefnd-
arinnar og gildandi lög og reglur,“ sagði
Sturla.
Sturla lagði áherslu á að nefndin hefði
komist að þeirri niðurstöðu að stjórn-
sýsluúrskurður samgönguráðuneytisins
um málsmeðferðina hefði verið í samræmi
við stjórnsýslureglur. Ráðuneytið hefði
engin afskipti haft af efni heilbrigðisvott-
orðs eða læknisfræðilegum álitamálum.
„Samgönguráðuneytið hefur sent Flug-
málstjórn Íslands skýrslu úttektarnefnd-
arinnar. Jafnframt hefur ráðuneytið lýst
þeirri skoðun sinni að í skýrslunni felist
alvarleg áminning um að stjórnsýslu
Flugmálastjórnar hafi verið áfátt við út-
gáfu heilbrigðisvottorðs og flugskírteinis
til flugmannsins. Ráðherra mun fara yfir
málið í heild sinni með flugmálastjóra og
óska skýringa hans og tillagna um að-
gerðir í kjölfar álits úttektarnefnd-
arinnar,“ sagði samgönguráðherra og
bætti við. „Ég er mjög sáttur við nið-
urstöðu nefndarinnar fyrir hönd ráðu-
neytisins, en er að sjálfsögðu leiður yfir
þeirri stjórnsýslu sem viðkomandi flug-
maður hefur þurft að sæta.“
Sturla var
son kæmi af
væri lokið á
„Það er m
því. Þengill
velli verktak
aðarlæknir
isskorar. Þa
hvernig han
er alveg ljós
taka þessi m
tryggja að s
að vera og h
manna, séu
He
Helgi Jóh
Oddssonar,
rækt sitt sta
læknalög og
vera trúnað
Þetta væri ó
að nefndin h
unni.
„Hafi Þen
Sturla Böðvarsson samgöngur
Alvarleg áminning á stj