Morgunblaðið - 05.02.2002, Side 33
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 5. FEBRÚAR 2002 33
ningars-
varðandi
llað um
mgöngu-
efndinni,
r nefnd-
ýsluvald.
asemdir
t nefnd-
um þær
að vinna
eiðbein-
r, óeðli-
ðfinnslu-
á verður
din hafi
varðandi
sem átti
ka sjálf-
ggðist á
rsjónar-
ki skyldi
ð mat á
staklega
ar varð-
R-regln-
a útilok-
að slík
undvall-
Átti ekki að setja
skilyrði í vottorðið
Í nefndarálitinu er afdráttar-
laust hafnað rökum Flugmála-
stjórnar, sem fram komu eftir að
áfrýjunarnefndin skilaði sínu áliti,
um að Flugmálstjórn beri að skoða
hvort gefa ætti út flugskírteini til
flugmannsins með takmörkunum.
Slík afstaða sé ekki málefnaleg eða
eðlileg.
„Hafi yfirlæknir heilbrigðis-
skorar talið að niðurstaða úrskurð-
arnefndar hafi byggst á misskiln-
ingi eða ófullnægjandi eða röngum
upplýsingum um málsatvik, sem
þó verður vart ráðið af greinargerð
úrskurðarnefndarinnar, hefði ver-
ið eðlilegra að hann hefði beint fyr-
irspurn þar um til nefndarinnar og
óskað eftir endurskoðun eða aft-
urköllun ákvörðunarinnar. Sú leið
sem farin var, að skilyrða heil-
brigðisvottorðið, þrátt fyrir ský-
lausa niðurstöðu úrskurðarnefnd-
arinnar, var óheimil og fór gegn
góðum stjórnsýsluháttum,“ segir í
áliti nefndarinnar.
Nefndin var beðin um að skoða
opinberar yfirlýsingar Þengils
Oddssonar um þetta mál. Í áliti
nefndarinnar segir að hún telji sér
ekki fært að taka einstök ummæli
Þengils til skoðunar sem fram hafi
komið í fjölmiðlum undanfarnar
vikur enda í mörgum tilvikum um
að ræða óbeinar tilvitnanir eða til-
vísanir sem ekki sé fært að stað-
reyna.
„Nefndin telur þó
rétt að víkja að fyr-
irspurnum þeim
sem Þengill Odds-
son beindi til tiltek-
inna erlendra flug-
málastjórna í þessu
tiltekna máli, ann-
ars vegar á árinu
1999 og hins vegar á
árinu 2001. Gögn
varðandi þessar fyr-
irspurnir liggja fyr-
ir í málinu. Ljóst er
að fyrirspurnirnar
eru í formi stuttra
orðsendinga sem
m.a. lúta að end-
urkomuáhættu
vegna sjúkdóms
sem lýst er með al-
mennum hætti, en
upplýsingar voru
m.a. gefnar að þessu
leyti í ákveðnu hlut-
falli af hundraði (%).
Ljóst er að svör við fyrirspurn-
um þessum geta ekki talist þess
eðlis að þau hafi ein og sér getað
verið grundvöllur synjunar á út-
gáfu heilbrigðisvottorðs Á[rna G.
Sigurðssonar flugmanns] og geta
ekki talist jafngilda ítarlegum
rannsóknum og athugunum, sem
gerðar voru hér á landi að þessu
leyti. Það verður ekki talið að til-
vísuð gögn hafi getað skotið stoð-
um undir staðhæfingu um að flug-
öryggi á Íslandi væri ekki gert
jafnhátt undir höfði og í öðrum
ríkjum.“
Landlæknir með sérálit
um læknisfræðilegan
þátt málsins
Sigurður Guðmundsson land-
læknir lýsir sig sammála í megin-
dráttum áliti nefndarinnar. Hann
segist þó vilja gera sérstaka grein
fyrir nokkrum atriðum varðandi
læknisfræðilegan þátt málsins.
Sigurður segir að enginn
ágreingur hafi verið um sjúkdóms-
greiningu flugmannsins. Sjúk-
dómseinkennin hafi gengið full-
komlega til baka og vel hafi gengið
að ná tökum á megináhættuþátt-
um sjúkdómsins, háþrýstingi og
hækkaðri blóðfitu. „Telja verður
því flugmanninn heilbrigðan,“ seg-
ir Sigurður.
Sigurður segir hins vegar að
læknisfræðilega snúist málið ekki
um heilbrigði flugmannsins heldur
líkur á að hann fái einkenni um
heilaæðasjúkdóm sinn aftur. Nið-
urstöður rannsókna á endurkomu-
líkum séu nokkuð á reiki eins og al-
gengt sé um vandmál af þessu tagi.
Rannsóknir sem gerðar hafi verið í
Svíþjóð, miðvesturríkjum Banda-
ríkjanna (þar sem einkum býr fólk
af skandinavískum uppruna) og
Ítalíu gefi til kynna að endurkomu-
líkur sjúkdómsins geti verið á
bilinu 1–2% og upp í um það bil
10% árlega. „Því kemur það síður
en svo á óvart að lækna kunni að
greina á um hverjar hinar tölulegu
líkur á endurkomu séu á hverjum
tíma. Slíkur skoðanamunur er uppi
nánast á hverjum degi í venjulegu
klínísku starfi,“ segir í áliti Sigurð-
ar.
Sigurður víkur síðan að JAR-
reglum og segir: „Er þar miðað við
að ekki megi vera meira en 1% lík-
ur á nefndum atburði, séu líkurnar
meiri beri ekki að taka áhættuna
sem af atburðinum gæti hlotist.
Þessi regla, „1% reglan“, hefur
hvergi lagaígildi í Evrópu en er til
viðmiðunar. Hún er skynsamleg og
vel ígrunduð faglega, en er að
sjálfsögðu háð mati. Beiting ofan-
greindrar 1% reglu í því máli sem
hér um ræðir hefði þýtt að væru
líkur á endurteknum blóðþurrðar-
sjúkdómi í heila flugmanns taldar
meiri en 1% ætti ekki að veita hon-
um flughæfnisskírteini.“
Afstaða Þengils byggðist
á gildum læknisfræðilegum
rökum
Sigurður segir að í þessu máli
hafi legið fyrir umsögn taugasjúk-
dómalæknis sem taldi endurkomu-
líkur sjúkdómsins, miðað við
óbreyttar aðstæður, geta lægstar
verið 4%. Úrskurðarnefndinni hafi
verið kunnugt um 1% regluna „og
jafnframt að hún hefði ekki laga-
gildi á Íslandi“. Sigurður vekur at-
hygli á því að nefndin taldi end-
urkomulíkur sjúkdómsins mjög
litlar en hún hafi hins vegar ekki
metið áhættu í tölulegu formi.
„Í samantekt er því ljóst að nið-
urstaða trúnaðarlæknis Flugmála-
stjórnar um að skilyrða útgáfu
fluglæknisvottorðs byggðist á gild-
um læknisfræðilegum rökum.
Stjórnsýslulega hefði verið ástæða
til að standa öðruvísi að málum, í
þá veru að leita hefði átt álits úr-
skurðarnefndar á því að setja skil-
yrði fyrir flughæfnisvottorði. Hér
verður þó að minna á mjög flóknar
reglur sem að þessu máli lúta en til
þess má rekja hluta þess vanda
sem mál þetta hefur valdið.“
Ekki fengust í gær viðbrögð frá
Flugmálastjórn við skýrslunni.
rúnaðarlæknis Flugmálastjórnar skilar áliti
að leita álits
narnefndinni
Morgunblaðið/RAX
Flugmálastjórnar var óheimilt að
isvottorð til flugmanns með skil-
nefndar sem skoðað hefur störf
r telur að afstaða trúnaðarlækn-
gildum læknisfræðilegum rökum.
r spurður hvort Þengill Odds-
ftur til starfa nú þegar úttekt
á störfum hans.
málefni flugmálastjóra að svara
Oddsson hefur unnið á grund-
kasamnings sem trún-
og yfirmaður heilbrigð-
að er á ábyrgð flugmálastjóra
nn hagar þeim málum, en það
st aðFlugmálastjórn þarf að
mál alveg sérstökum tökum og
stjórnsýslan sé eins og hún á
hagsmunir, í þessu tilviki flug-
ekki fyrir borð bornir.“
efur rækt starf sitt
af trúmennsku
hannesson, lögmaður Þengils
sagði að Þengill hefði ávallt
arf af trúmennsku hvað varðar
g þá ábyrgð sem því fylgdi að
arlæknir JAA hér á landi.
óumdeilt og hann kvaðst telja
hefði mátt geta þess í skýrsl-
ngill í störfum sínum á ein-
hvern hátt misstigið sig í íslenskri stjórn-
sýslu má skrifa það á reikning þess að
það er óskýrleiki í íslensku reglunum
gagnvart þeim útlendu. Hann er ólög-
lærður maður en er að leitast við að
gegna sínu starfi af trúmennsku sem
læknir. Enda kemur það líka fram í sér-
áliti Sigurðar Guðmundssonar landlæknis,
að hann telur að þessi niðurstaða Þengils
sé byggð á læknisfræðilegum rökum.
Þengli hefur verið legið það á hálsi að
hafa verið að sverta sjúkrasögu flug-
mannsins í fyrirspurnum sínum til út-
lendra sérfræðinga. Í skýrslunni er engin
athugasemd gerð við samskipti Þengils
við útlenda sérfræðinga út af þessu máli
sem við túlkum á þann veg að þar sé ekk-
ert ámælisvert að finna.“
Helgi sagði mikilvægt að hafa í huga að
Þengill Oddsson hefði engra persónulega
hagsmuna að gæta í sambandi við hvaða
flugmenn fengju að fljúga hjá Flugleiðum
eða öðrum aðilum. „Þengill hefur ekki
horn í síðu þessa flugmanns. Hann kemur
að þessu máli sem fagmaður og leitast við
að svara þeirri spurningu hvort flugmað-
urinn uppfyllir skilyrði JAA-reglna sem
hann hefur undirgengist að vinna eftir.“
Sættum okkur ekki við að
Þengill komi aftur til starfa
Atli Gíslason, lögmaður Árna G. Sig-
urðssonar flugmanns, sagðist vera mjög
ánægður með skýrslu nefndarinnar.
„Þetta felur í sér mikinn áfellisdóm yfir
trúnaðarlækninum og Flugmálastjórn.
Flugmálastjórn hefur virt réttindi hans að
vettugi og orðið honum og öðrum til stór-
tjóns.“
Atli var spurður hvort hann teldi að í
skýrslunni væri að finna það þungan áfell-
isdóm yfir trúnaðarlækni Flugmála-
stjórnar að hann ætti ekki að koma aftur
til starfa.
„Ég hygg að umbjóðendur mínir, Félag
íslenskra atvinnuflugmanna, muni aldrei
sætta sig við að hann komi aftur til starfa.
Þeir geta ekki treyst honum eftir það sem
á undan er gengið. Komi hann til starfa
aftur munum við krefjast þess að hann
víki sæti í hvert sinn sem þeirra fé-
lagsmaður á hlut að máli,“ sagði Atli.
ráðherra um niðurstöður nefndarinnar
jórnsýslu Flugmálastjórnar BRESKA dagblaðið The Observersagði frá því í frétt um helgina aðvísindamönnum hjá Íslenskri
erfðagreiningu hefði tekist að
staðsetja erfðavísi sem stjórnar
heilbrigði og langlífi aldraðra og
nefnir blaðið umrætt gen ,,Metú-
salemsgen“. Þessi uppgötvun hafi
aukið vonir vísindamanna um að
geta búið til lyf sem auki líkurnar
á langlífi, að því er segir í frétt
netútgáfu Observer.
Haft er eftir Kára Stefánssyni,
forstjóra Íslenskrar erfðagreining-
ar, að ekkert eigi að vera því til
fyrirstöðu að þetta verði mögulegt.
Fleiri fréttamiðlar í Evrópu hafa í
kjölfarið tekið upp frétt The Ob-
server.
Rannsóknaráfanginn var
birtur í október 2000
Hópur sjö vísindamanna hjá ÍE
hefur um árabil starfað að rann-
sóknum á áhrifum erfða á langlífi
og voru þessar rannsóknarniður-
stöður, sem greint er frá í the Ob-
server, birtar í fagtímaritinu
European Journal of Human
Genetics í október árið 2000. Sam-
kvæmt upplýsingum sem fengust
hjá ÍE í gær hafa ekki verið birtar
opinberlega neinar nýjar niður-
stöður úr þessari rannsókn frá því
greinin birtist.
Í framhaldi af birtingu hennar,
eða í júlí árið 2001, var hins vegar
haldið stórt málþing á vegum sam-
starfshóps 30 innlendra og er-
lendra vísindamanna þar sem
bornar voru saman niðurstöður
rannsókna á áhrifum erfða og um-
hverfis á langlífi.
Í frásögn Morgunblaðsins af
þeirri ráðstefnu sagði Kári Stef-
ánsson, að rannsókn ÍE á langlífi
hafi sýnt fram á, svo ekki verður
um villst, að langlífi erfist milli
kynslóða. Eru miklar vonir bundn-
ar við áframhaldandi rannsóknir á
umræddum erfðavísi en næsta
skref er að einangra genið og finna
afurðir þess.
Samstarfshópurinn sem kom
saman á málþinginu sl. sumar nýt-
ur styrks frá Heilbrigðisstofnun
Bandaríkjanna og er gert ráð fyrir
að hann komi saman á nýjan leik á
þessu ári þar sem vísindamenn-
irnir beri saman bækur sínar.
Rannsóknir ÍE á
langlífi vekja
athygli erlendis
GERT er ráð fyrir að kostnaður
við bólusetningu barna frá fyrsta
ári og til 18 ára unglinga vegna
meningókokka C hlaupi á tugum
milljóna, að sögn Haraldar Briem
sóttvarnalæknis. Þessi hópur er
kringum 50 þúsund manns.
Heilbrigðisráðherra hefur falið
honum að hefja undirbúning og
segir Haraldur fyrsta skrefið að
leita tilboða í bóluefni.
Sýking af völdum meningókokka
baktería getur leitt til heilahimnu-
bólgu en hérlendis hafa gerðirnar
B og C einkum valdið sjúkdómum.
Einkenni um heilahimnubólgu seg-
ir Haraldur einkum vera hita,
breytingu á meðvitundarástandi,
útbrot, marbletti og blæðingar.
Segir hann brýnt að greina sjúk-
dóminn snemma og hefja sýkla-
lyfjagjöf en hann segir hana oft
ekki duga til.
Bólusetning sé öflugasta vörnin
og segir hann öflugt bóluefni kom-
ið á markað og dugi ein bólusetn-
ing hjá þeim sem eru 12 mánaða
og eldri. Hann segir bólusett fólk
sjaldnast sýkjast og bólusetning
geti komið í veg fyrir faraldur.
Tæpur aldarfjórðungur er síðan
sjúkdómurinn gekk sem faraldur
hérlendis. Reynsla í Bretlandi hafi
verið góð en þar og á Írlandi hefur
verið tekin upp al-
menn ungbarnabólu-
setning.
Haraldur segir
bóluefni fáanlegt gegn
C-gerðinni en árlega
koma upp hér um 10 tilfelli sem
rakin eru til hennar.
Einn af þeim tíu að meðaltali
deyr af sjúkdómnum og segir sótt-
varnalæknir því mikilvægt að
grípa til aðgerða til að koma í veg
fyrir dauðsföll. Ástæðan fyrir
miklum kostnaði við bólusetningu
er að í byrjun þarf að bólusetja
alla árganga frá þriggja mánaða
aldri til 18 ára, alls um 50 þúsund
manns. Haraldur segir það e.t.v.
unnt á einu ári en telur líklegra að
verkinu verði skipt í áfanga.
Fyrst verði mestu áhættuhóp-
arnir bólusetttir, þ.e. börn á fyrsta
ári til fimm ára aldurs og 14 til 18
ára unglingar. Þegar þessum
áföngum væri náð yrðu börn bólu-
sett á fyrsta ári. Gert er ráð fyrir
að bólusetning gæti hafist seint á
árinu gangi vel að fá nægilegt
bóluefni.
Há tíðni á Íslandi,
Bretlandi og Írlandi
Útbreiðsla sjúkdómsins er oft
tilviljanakennd og segir sóttvarna-
læknir að einn af hverjum tíu beri
bakteríuna. Ekki sé vitað af hverju
hún láti skyndilega og stundum á
sér kræla svo skyndilega.
Tíðnin sé mikil hérlendis, eins
og í Bretlandi og Írlandi, og því sé
rétt að taka upp þessar bólusetn-
ingar.
„Rétt er þó að taka fram að
meningókokkasjúkdómi verður
ekki með öllu bægt frá því enn er
ekki til gott bóluefni gegn B-gerð-
inni,“ segir Haraldur.
Hann er að síðustu beðinn að
rifja upp hvaða ung-
barnabólusetningar
séu gerðar hérlendis:
„Þær beinast gegn
barnaveiki, stíf-
krampa, kíghósta, he-
mophilus influenza b, sem tekin
var upp árið 1989, rauðum hund-
um, mislingum, hettusótt og löm-
unarveiki.
Ég geri svo ráð fyrir að bólu-
setning gegn meningókokkum C
falli að öðrum bólusetningum á
börnum á fyrsta ári.“
Leitað tilboða í bóluefni vegna
heilahimnubólgu
Kringum 50
þúsund börn og
unglingar bólu-
sett í byrjun
Útbreiðsla
sjúkdómsins oft
tilviljanakennd