Morgunblaðið - 05.02.2002, Síða 43
MINNINGAR
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 5. FEBRÚAR 2002 43
✝ Óskar Jónssonfæddist í Reykja-
vík 4. júní 1916.
Hann lést 23. janúar
síðastliðinn á líknar-
deild Landakotsspít-
ala.
Foreldrar Óskars
voru Jón Jónsson
frá Veiðileysu á
Ströndum, hús-
gagnasmiður í
Reykjavík, f. 5. mars
1886, d. 1969, og
Agnethe Larsen frá
Noregi, húsmóðir, f.
14. janúar 1886, d.
1954. Óskar á eina eftirlifandi
systur, Berthe Fumagalli, f. 25.
september 1914. Hún er búsett á
Englandi. Látin systkini Óskars
voru: 1) Aðalsteinn, f. 1. júní
1918, d. 14. desember 1980. 2)
Betsy, f. 5. september 1920, d. 5.
ágúst 1988.
Hinn 13. febrúar 1943 kvæntist
Óskar eftirlifandi eiginkonu sinni,
Ingibjörgu Jónsdóttur, foringja í
Hjálpræðishernum, f. 5. maí 1921.
Foreldrar hennar voru Jón Sig-
urðsson, bæjarstarfsmaður á Ak-
ureyri, og Rannveig Sigurðar-
dóttir, húsmóðir. Óskar og
Ingibjörg eignuðust fimm börn og
eru fjögur þeirra á lífi. Þau eru:
1) Rannveig Agnethe Jóna, f. 19.
vígðist í Hjálpræðisherinn 20.
september 1932 og varð foringi í
Hernum 25. júní 1936. Hann og
Ingibjörg, kona hans, hafa unnið
mikið starf á vegum Hjálpræð-
ishersins. Fyrsta skipun þeirra
var til Ísafjarðar en síðan störf-
uðu þau á Siglufirði, Akureyri og
í Reykjavík. Árin 1947–49 voru
þau í Ringkøbing og Fredericia í
Danmörku þar sem þau báru
ábyrgð á flokksstarfinu. Þau
komu heim til Akureyrar 1949 og
voru flokksstjórar þar og síðar í
Reykjavík. Þá voru þau flokks-
stjórar í Noregi 1955–59, fyrst í
Tønsberg og síðan í Gjøvik. Þau
veittu Gesta- og sjómannaheimili
Hjálpræðishersins í Reykjavík
forstöðu á árunum 1959–67. Það-
an héldu þau til Björgvinjar þar
sem þau stýrðu drykkjumanna-
heimili Hersins 1967–69 og voru
síðan fangelsisritarar Hjálpræðis-
hersins í Noregi. Þau voru leið-
togar Hjálpræðishersins á Íslandi
og í Færeyjum frá 1972 til 1978
en voru síðan send til leiðtoga-
starfa í Noregi.
Óskar og Ingibjörg létu form-
lega af störfum fyrir Hjálpræð-
isherinn 12. ágúst 1981 og hafa
búið síðan í Reykjavík. Þau sett-
ust þó ekki í helgan stein heldur
störfuðu áfram af krafti í þágu
Hersins. Óskar var sæmdur ridd-
arakrossi fálkaorðunnar 1987 fyr-
ir störf þeirra hjóna að líknar- og
félagsmálum í Hjálpræðishernum.
Útför Óskars fer fram frá Hall-
grímskirkju í dag og hefst athöfn-
in klukkan 13.30.
nóvember 1944,
sjúkraliði, nú flokks-
stjóri á Akureyri, gift
Einari Björnssyni,
starfar á meðferðar-
heimili, og eru börn
þeirra Óskar, Ingi-
björg, Björn og Jak-
obína Dögg. 2) Há-
kon, f. 6. júlí 1946,
kennari í MS. Hann
var kvæntur Guðríði
Öddu Ragnarsdóttur,
en þau skildu. Sam-
býliskona hans er
Heiður Agnes Björns-
dóttir, viðskiptafræð-
ingur, og er sonur þeirra Kjartan.
3) Daníel, f. 17. apríl 1948, kvænt-
ur Anne Gurine Óskarsson. Þau
starfa fyrir Hjálpræðisherinn í
Finnlandi. Börn þeirra eru Ester,
Inger og Daníel. 4) Óskar, f. 3.
október 1953, d. 28. desember
1996. Hann var kvæntur Unni
Kurseth og eignuðust þau dæt-
urnar Helenu og Jeanette. Þau
skildu. Eftirlifandi eiginkona er
Torhild Ajer hjúkrunarfræðingur
og eru dætur þeirra Nína Kristín
og Vigdís. 5) Miriam, f. 27. júní
1960, útvarpskona í Reykjavík og
foringi í Hjálpræðishernum.
Á unglingsárum var Óskar
sendisveinn og stundaði af-
greiðslustörf í Reykjavík. Hann
Höfðingi Hjálpræðishersins á
Íslandi er ekki lengur á meðal
okkar. Ef við nefndum nafn hans,
eða konu hans, þá vissu flestir að
þau störfuðu í Hjálpræðishernum.
Brigader Óskar Jónsson fæddist
4. júní 1916 og mætti snemma kalli
Guðs, bæði til frelsis og þjónustu.
Hann hóf nám við foringjaskóla
Hjálpræðishersins 1935 og næsta
ár varð hans fyrsta verkefni að
starfa á Akureyri. Þar með hófst
ríkur þjónustuferill í þeirri hreyf-
ingu, sem hann hafði vígt líf sitt
til.
Frá Akureyri lá leiðin til
Reykjavíkur og þaðan til Þórs-
hafnar í Færeyjum. Aftur til Ís-
lands og Siglufjarðar 1939. Þá
fylgdi margra ára þjónusta á Ís-
landi, þar sem hann starfaði ýmist
á Siglufirði eða í Reykjavík.
Hinn13. febrúar 1943 kvæntist
Óskar Ingibjörgu Jónsdóttur. Hélt
hann starfinu áfram, með konu
sinni, bæði hér á Íslandi og erlend-
is. Fyrsta starf þeirra saman var á
Ísafirði. Störfuðu þau einnig í
Reykjavík, áður en þau fóru til
Fredricia í Danmörku 1946. Árið
1952 komu þau aftur til flokksins í
Reykjavík. Meðan þau voru þar
fór Óskar til London, þar sem hon-
um bauðst tveggja mánaða fram-
haldsnám fyrir foringja. Komu þar
saman foringjar víðs vegar að frá
þeim löndum þar sem Hjálpræð-
isherinn starfar. Á þessum nám-
skeiðum kynnast foringjarnir
starfsemi Hjálpræðishersins um
allan heim.
Árið 1955 lá leiðin til Noregs,
fyrst til Tönsberg, síðan til Gjövik
og aftur lá leiðin til Íslands haust-
ið 1959. Stjórnuðu Óskar og Imma
þá gistiheimilinu í Reykjavík fram
til haustsins 1967. Þá lá leiðin til
Bergen í Noregi, þar sem þau
stjórnuðu heimili fyrir áfengis-
sjúklinga. Næsta starf Óskars var
að heimsækja fanga í öllum fang-
elsum Noregs.
Haustið 1972 lá leiðin enn á ný
til Íslands, sem yfirmaður Íslands
og Færeyjadeildar Hjálpræðis-
hersins. Þetta starf hafði Óskar
fram til haustsins 1978, þegar
sams konar starf beið hans í Upp-
landadeild Hersins í Noregi fram
til 1980. Síðasta starf Óskars áður
en hann komst á eftirlaun var
starf trúboða í Noregi. Ferðuðust
þau hjónin þá víða um Noreg og
héldu samkomur. Opinber starfs-
lok Óskars voru 12. ágúst 1981,
eftir 45 ára þjónustu í Hjálpræð-
ishernum. Hafði Óskar þá unnið
mikið og gott starf og árið 1987
var hann heiðraður með Riddara-
krossi Fálkaorðunnar af þáverandi
forseta Íslands, frú Vigdísi Finn-
bogadóttur.
Þegar Óskar náði eftirlaunaaldr-
inum hefðu þau hjónin getað sest
niður og notið tilverunnar. En
hvorki Óskar né Imma voru þann-
ig. Þau vildu áfram hjálpa til og
svo lengi sem kraftarnir leyfðu var
Óskar með í starfi Hjálpræðis-
hersins af lífi og sál. Í mörg ár var
Óskar hermannaleiðtogi flokksins í
Reykjavík. Lét hann af því starfi í
mars 2001.
Leiðtogar Hjálpræðishersins,
kommandörarnir Berit og B. Do-
nald Ödegaard, ásamt okkur í Ís-
lands- og Færeyjadeild þakka, fyr-
ir hönd Hjálpræðishersins, af öllu
hjarta félaga okkar, sem nú er far-
inn heim. Við biðjum þess að Guð
huggunarinnar verði með Immu og
börnunum og fjöskyldunni allri. Að
hann veiti kraft og styrk í sorginni
og söknuðinum. Við lýsum friði yf-
ir minningu Óskars Jónssonar.
Majórarnir Turid og
Knut Gamst.
Í dag verður jarðsunginn frá
Hallgrímskirkju Óskar Jónsson,
leiðtogi í Hjálpræðishernum á Ís-
landi. Hann hefur verið kallaður
heim. Óskar var einn af fyrir-
myndardrengjum þessarar þjóðar.
Maður sem af heilum hug og í
staðfastri trú helgaði líf sitt þjón-
ustunni við samferðafólk sitt sam-
kvæmt hinum kristnu gildum og
eftir boðorðum föðurins á himnum.
Það var okkur sem þessar línur
rita einstök gæfa þegar við kynn-
umst Ingibjörgu, Óskari og dætr-
um þeirra, Miriam og Rannveigu.
Með okkur skapaðist strax einlæg
og náin vinátta.
Óskar og Ingibjörg helguðu líf
sitt og starf þjónustunni í Hjálp-
ræðishernum. Í starfi sínu og leik
voru þau sannir, vitrir og virtir
trúboðar og glæsilegir fulltrúar
fyrir söfnuð sinn og samstarfsfólk.
Í huga flestra Íslandinga eru þau
hjón tákn og einkenni Hjálpræð-
ishersins. Þau voru fólkið sem
bauð okkur Herópið á Laugaveg-
inum eða í Kringlunni fyrir jólin.
Hjónin sem birtust þegar Herinn
var kynntur og þar sem hann kom
fram. Fulltrúarnir sem fólkið
þekkti og heyrði segja frá starfinu
og verkefnum í Hjálpræðishern-
um.
Við lifum á tímum sem eru eng-
um öðrum líkir. Heimurinn stefnir
að hátindi tækniþróunar. Menn
krefjast valda og yfirráða með
góðu eða illu. Samtímis er veröldin
á hraðri leið til tortímingar. Fólk
er gripið ótta og skelfingu yfir því
sem koma skal. Við þessar að-
stæður starfaði og þjónaði Óskar
ásamt eiginkonu sinni Ingibjörgu
allt sitt líf. Það virtist sem ekkert
fengi raskað hans hugarró. Traust
hans og trú á frelsarann og fyr-
irheit hans um fyrirgefningu synd-
anna og eilíft líf var hans sverð og
skjöldur. Bænin var hans vopn í
sókn og vörn. Á hverjum degi
gengu þau hjón til bæna fyrir
mönnum og málefnum, fólki sem
þarfnaðist hjálpar og átti erfitt.
Allir voru jafnir í þeirra augum.
Óskar var gæfumaður. Guð sá
honum fyrir öllum hans þörfum.
Hann eignaðist einstaka eiginkonu
og stóra fjölskyldu. Börnin hafa
fetað í fótspor feðranna. Hákon,
elsti sonurinn, hefur staðið með
foreldrum sínum í þeirra starfi.
Hann er líffræðingur og starfar
sem kennari og leiðsögumaður.
Rannveig er leiðtogi fyrir Hjálp-
ræðisherinn á Akureyri. Daníel
starfar, ásamt eiginkonu sinni, fyr-
ir Hjálpræðisherinn í Finnlandi.
Óskar yngri lést úr krabbameini
fyrir nokkrum árum, en hann var
búsettur í Noregi þar sem hann
vann að meðferðar- og forvarn-
armálum. Miriam er yngst barna
Óskars og Ingibjargar. Hún hefur
fylgt foreldrunum í starfi þeirra og
þjónustu. Hún hefur gegnt fjöl-
mörgum trúnaðarstörfum fyrir
Hjálpræðisherinn á Íslandi og í
Noregi. Einnig hefur hún verið við
trúboð og kennslustörf í Panama.
Hún starfar nú m.a. sem þátta-
gerðarmaður við Kristilegu út-
varpstöðina Lindina. Henni er gef-
in gnægð hæfileika til að flytja
hinn kristilega boðskap jafnt í töl-
uðu orði og með framúrskarandi
söng. Fjölmörg barnabörn Óskars
eru virkir þátttakendur í kristilegu
starfi og þjónustu.
Enginn okkar er fullkominn eða
syndlaus sagði Óskar stundum.
Það kemur ekki að sök, því frels-
arinn okkar, Jesú Kristur, hefur
tekið á sig syndir okkar og gefið
okkur fyrirheit um eilift líf með
sér á himnum. Syndalisti Óskars
er ekki langur. Lífshlaupi hans má
lýsa með orðum skáldsins sem
sagði:
Hrygga vil ég geta glatt,
gjört hið fagra, talað satt,
verið til hins góða gjarn
gott og ljúft og hlýðið barn.
Guð blessi og styrki Ingibjörgu
og aðstandendur Óskars.
Helgi og Ómar.
ÓSKAR
JÓNSSON
!"#!
!
!"
$
%&&'()
*+ && ,-
*&+./&
!"
#
#
$ %#
&
'
$$ $(()
% 0+1
1' % '1 0) *''
)
)( '' 0 % 0 &%'1
2'
)( '' 03 0 &'1
*
!"
) % (%'
4 '. 5-
*&+./&
" +,'"
( 6'
)7 1('1 8% ''
) % 2 + '' 6'/' '( '1
1(' 91 2 + ''
21 # 2 + ''
)7 67''1
$
') &&
1) ,:
*&+./&
'
!" " -
( %#
."
)7 1'3'1
1 ''
)7 2' '1
&7% '' % %'1
21 '' ! '1
.
'1 ;% * ''
1 '' '+ '1
2' '' + 0)'1
0%%1'1
/
0" #6 !"
)% + 0+1 '+ 1 ''
0
"
04
2 2$
&
7' ( <=
*&+./&
!"
-
($'
%
&
'
1
2 $(()
+ 0 1 ''
+& + ''
'/ + '1
+ '1