Morgunblaðið - 05.02.2002, Page 54
DAGBÓK
54 ÞRIÐJUDAGUR 5. FEBRÚAR 2002 MORGUNBLAÐIÐ
MORGUNBLAÐIÐ, Kringlunni 1, 103 Reykjavík. SÍMAR: Skiptiborð: 569 1100. Auglýsingar:
569 1111. Áskriftir: 569 1122. SÍMBRÉF: Ritstjórn: 569 1329, fréttir 569 1181, íþróttir 569 1156,
sérblöð 569 1222, auglýsingar 569 1110, skrifstofa 568 1811, gjaldkeri 569 1115. NETFANG: RIT-
STJ@MBL.IS, / Áskriftargjald 2.100 kr. á mánuði innanlands. Í lausasölu 190 kr. eintakið.
Samþykkur gagnrýni
ÉG vil taka undir gagnrýni
sem birtist í Velvakanda um
strætisvagnaþjónustu í
Grafarvogi, leið 15. Ég er
mjög ánægð með að hann
fari Húsahverfið en ekki
ánægð með að vagninn,
meira og minna tómur, þurfi
að dóla í gegnum öll hverfi
Grafarvogsins. Það tekur
mig 35–40 mínútur að kom-
ast niður á Grensásveg en
sú ferð tók áður um 20 mín-
útur.
Grafarvogsbúi.
Góðir tónleikar
á Gauknum
ÉG FÓR á Gauk á Stöng að
hlusta á KK o.fl. síðastliðið
fimmtudagskvöld og langar
mig að lýsa yfir ánægju
minni með mjög góða tón-
leika og mikla fagmennsku.
Ekki var Írinn hann Leo
síðri en hann hitaði upp fyr-
ir þá. Það mætti gefa honum
meiri gaum. Þetta var mjög
góð skemmtun og góð upp-
lifun í skammdeginu.
Helgi tattú.
Í lagi með
Johnny National
ÉG ER sammála Kristínu
sem skrifaði í Velvakanda
nýlega um það að Skjár einn
sýni mjög marga skemmti-
lega og góða þætti og á sú
sjónvarpsstöð ekkert nema
hrós skilið.
En ég var ekki sammála
henni um Johnny National.
Þátturinn er lágkúra, já. En
það er vegna þess að hann á
að vera lágkúra. Fólki á að
ofbjóða og móðgast.
Ef fólk er svona við-
kvæmt fyrir svona löguðu á
það bara að skipta um stöð
eða slökkva á tækinu og
passa að að krakkarnir sínir
horfi ekki á þessa „hrika-
legu“ þætti. Það er enginn
að neyða það til að horfa á
þáttinn.
Ég þekki margt fólk, al-
veg upp í sjötugt, sem finnst
Johnny National vera frá-
bær þáttur. Skoðanir eru
mismunandi og mér sjálfri
finnst þátturinn ekki sverta
Skjá einn.
Júlía.
Pjakkur er fundinn
KISINN okkar hann Pjakk-
ur, sem týndist 12. desem-
ber sl. úr miðbænum í
Reykjavík, fannst í Linda-
hverfi í Kópavogi.
Viljum við þakka skáta-
stelpunum Steinunni og vin-
konum hennar tveimur úr
Lindaskóla kærlega fyrir
hjálpina.
Pjakkur
og fjölskylda.
Tapað/fundið
GSM-sími
týndist
NOKIA 3310 GSM-sími
týndist sunnudaginn 27.
janúar líklega í strætisvagni
frá Engjahverfi niður í
Skeifu. Skilvís finnandi hafi
samband í síma 586-1237.
Peningaveski í óskilum
PENINGAVESKI fannst
sl. laugardag á Laugavegin-
um. Uppl. í síma 552-1892.
Dýrahald
Keli er týndur
SVARTUR og hvítur fress
týndist frá Klettahrauni 3 í
Hafnarfirði sl. þriðjudag.
Hann er með rauða hálsól
og eyrnamerktur. Upplýs-
ingar í síma 698 0867 eða
555 0867.
Persneskur
köttur í óskilum
PERSNESKUR köttur
fannst við Furugrund í
Kópavogi. Upplýsingar í
síma 695-8282.
VELVAKANDI
Svarað í síma 569 1100 frá 10-12 og 13-15.
Netfang velvakandi@mbl.is
Morgunblaðið/Ómar
Víkverji skrifar...
Á DÖGUNUM rifjuðust að gefnutilefni upp fyrir Víkverja um-
ræður sem urðu síðastliðið haust um
reglugerð um gerð lyfseðla og ávísun
lyfja. Þá kom fram að gerðar höfðu
verið athugasemdir við ákvæði reglu-
gerðarinnar um að útgefandi lyfseðils
skuli meðal annars tilgreina á skilj-
anlegan hátt á lyfseðlinum hvernig,
hvenær og við hverju nota eigi það lyf
sem ávísað er á. Víkverja er ekki
kunnugt um það hvort læknar til-
greina almennt á lyfseðli við hvaða
sjúkdómi lyf er gefið, en hann heyrði
nýlega sögu sem hann telur vissulega
undirstrika þörfina á því. Þannig er
að góð vinkona Víkverja er kominn á
þann ágæta aldur þegar konum getur
verið bæði hollt og gott að taka inn
svokölluð hormónalyf, en eðli málsins
samkvæmt kemur þörfin fyrir slík lyf
yfirleitt upp um svipað leyti og konur
eru að komast úr barneign. Umrædd
vinkona Víkverja er bæði lækna- og
lyfjafælin með afbrigðum, en í kjölfar
ákveðinnar vanlíðanar hafði hún á
sínum tíma mannað sig upp í að hafa
samband við kvensjúkdómalækni. Sá
var ekki í neinum vafa um hvaða
hormónalyf hentaði í þessu tilfelli og
reyndist vera sannspár eftir því sem
vinkona Víkverja segir. Hún fékk hjá
lækninum fjölnota lyfseðil sem dugði
í heilt ár og við tók jafnlangt skeið
andlegrar og líkamlegrar vellíðanar.
Þegar að því kom að lyfseðillinn var
útrunninn og vinkonan byrjuð að taka
inn síðasta mánaðarskammtinn hafði
hún samband við kvensjúkdóma-
lækninn. Varð að samkomulagi þeirra
að heppilegast væri að hún tæki
áfram sama lyfið og fékk vinkonan í
hendur nýjan fjölnotalyfseðil til 12
mánaða. Það var svo auðvitað ekki
fyrr en daginn sem eldri lyfja-
skammturinn kláraðist að hún dreif
sig í lyfjabúð með nýja lyfseðilinn og
fékk þar nýjan þriggja mánaða
skammt. Þegar heim kom og pokinn
úr lyfjabúðinni var opnaður kom í ljós
að eitthvað voru umbúðirnar öðruvísi
en áður. Við skyndiskoðun virtist
nafnið á lyfinu vera það sama og í um-
búðunum voru vissulega þrír 28 daga
lyfjaskammtar. Vinkona Víkverja
hafði auðvitað hent gömlu umbúðun-
um, en eftir nokkara leit fann hún þó
tómt lyfjahylki í skúffunni hjá sér.
Þegar hún bar svo saman lyfjanöfnin
kom í ljós að ekki var um sama lyfja-
heitið að ræða þótt vissulega væru
nöfnin mjög lík. Bölvaði hún læknin-
um í hljóði og datt helst í hug að hann
hefði haft einhverja hagsmuni af því
að ávísa annarri tegund en áður, þótt
auðvitað hlyti að vera um sama lyfið
að ræða. Til þess að vera alveg viss
um að svo væri fletti hún upp í lyfja-
skránni á netdoktor.is og þá varð vin-
kona Víkverja heldur betur hissa. Í
ljós kom að læknirinn hafði ávísað á
hana 12 mánaða skammti af getnað-
arvarnalyfi en ekki umræddu horm-
ónalyfi. Þakkaði vinkona Víkverja
sínum sæla fyrir að hafa ekki byrjað
að gleypa nýja lyfið hugsunarlaust.
Þar sem þetta var um helgi hafði hún
strax samband við lyfjafræðing þar
sem lyfið hafði verið keypt og sagði
honum málavöxtu. Hann sá í tölvunni
hjá sér að hún hafði áður fengið um-
rætt hormónalyf í lyfjabúðinni og
vafningalaust leiðrétti hann mistök
læknisins. Vinkona Víkverja á hins
vegar eftir að ræða málið við hann og
verður fróðlegt að frétta hvaða skýr-
ingar hann gefur á þessum mistökum.
LÁRÉTT:
1 gustur, 4 konungs, 7
höfum í hyggju, 8 gróði, 9
beisk, 11 stund, 13 stakt,
14 get um, 15 himna, 17
stjórna, 20 stór geymir,
22 á, 23 þunnur ís, 24
lóga, 25 siglutré með
seglabúnaði.
LÓÐRÉTT:
1 bjart, 2 flennum, 3
rekkju, 4 hestur, 5 jurt, 6
þrautgott, 10 rándýr, 12
greinir,13 málmur, 15
titra, 16 kjáni, 18 þor, 19
þátttakandi, 20 þroska,
21 reykir.
LAUSN SÍÐUSTU KROSSGÁTU:
Lárétt: 1 snjókoman, 8 vegur, 9 goðum, 10 úra, 11 tjara,
13 nýrum, 15 skafa, 18 salli, 21 tík, 22 signa, 23 eiður, 24
niðurlags.
Lóðrétt: 2 negra, 3 ótrúa, 4 organ, 5 auðar, 6 hvet, 7 ám-
um, 12 rif, 14 ýsa, 15 sess, 16 angri, 17 ataðu, 18 skell, 19
liðug, 20 iðra.
K r o s s g á t a
1
7
11
15
22
24
12
14
3
9
20
10
4
8
21
23
25
13
17
5
18
6
19
2
16
Skipin
Reykjavíkurhöfn:
Vædderen, Lagarfoss,
Dettifoss og Helgafell
koma í dag.
Hafnarfjarðarhöfn: Sel-
foss kom í gær til
Straumsvíkur.
Fréttir
Mæðrastyrksnefnd
Kópavogs, Hamraborg
20a. Fataúthlutun í dag
kl. 17–18.
Mannamót
Aflagrandi 40. Kl. 9
vinnustofa, leirkera-
smíði, kl 10 boccia, kl 10
enska, kl 11 enska og
dans Lance, kl 13 vinnu-
stofa, postulínsmálning
og bað. Kl. 10.15 Bún-
aðarbankinn.Versl-
unarferð í Hagkaup
miðvikud. 6. feb. kl. 10
frá Grandavegi 47 með
viðkomu í Aflagranda
40. Kaffiveitingar í boði
Hagkaupa. Skráning í
Aflagranda s. 562-2571.
Fimmtud. 7. feb. er opið
hús frá kl. 19.30, fé-
lagsvist kl. 20. Kaffi á
könnunni.
Árskógar 4. Kl. 9 bók-
band og öskjugerð, kl.
13 opin smíðastofa.
Þorrablót verður 8.
febrúar Hjördís Geirs
og hljómsveit. Bingóið
fellur niður 8. febrúar.
Upplýsingar í síma 535-
2700.
Bólstaðarhlíð 43. Kl. 8
hárgreiðsla, kl. 8.30 böð-
un, kl. 9–9.45 leikfimi,
kl. 9–12 tréskurður, kl.
9–16 handavinna, kl. 10–
17 fótaaðgerð, kl. 10
sund, kl. 13 leirlist, kl.
14. dans.
Eldri borgarar Mos-
fellsbæ, Kjalarnesi og
Kjós. Félagsstarfið
Hlaðhömrum er á
þriðju- og fimmtudögum
kl. 13–16.30, spil og
föndur.
Félagsstarfið Dalbraut
18–20. Kl. 9–12 aðstoð
við böðun, kl. 9–16.45
hárgreiðslustofan opin,
kl. 10 samverustund,
kl.14 félagsvist.
Félagsstarfið, Löngu-
hlíð 3. Kl. 8 böðun, kl.
10 hársnyrting, kl. 13
föndur og handavinna.
Kl. 14.45 söngstund í
borðsal með Jónu
Bjarnadóttur
Félag eldri borgara
Kópavogi. Almennur
fundur í Gjábakka, laug-
ard. 9. febrúar. Fund-
arefni: Kjara- og fram-
boðsmál. Óskað hefur
verið eftir að fulltrúar
stjórnmálaflokkanna
mæti og ræði málin og
svari fyrirspurnum.
Félagsstarf aldraðra
Garðabæ. Kl. 9 vinnu-
hópur gler, kl. 13 málun,
kl. 13.30 tréskurður, kl.
13.30 spilað í Kirkju-
hvoli, kl. 16 bútasaumur.
Félag eldri borgara
Hafnarfirði, Hraunseli,
Reykjavíkurvegi 50.
Saumur og brids kl.
13:30 Á morgun línu-
dans kl. 11, pílukast kl
13:30, myndlist kl. 13.
Fimmtudagin 7 febr.
Verður farið í heimsókn
í Menningarmiðstöðina
Gerðuberg að skoða
þýskar tískuljósmindir
1945–1995. Rúta frá
Hraunseli kl. 13:30.
Skráning í Hraunseli s.
555-0142
Félag eldri borgara,
Reykjavík, Ásgarði
Glæsibæ. Þriðjud: skák
kl. 13. Myndaafhending
frá haustmóti fer fram.
Meistaramót deild-
arinnar hefst þriðjud. 5.
mars. Telft í tveim
flokkum A og B.Veitt
verða þrenn verðlaun í
hvorum flokki fyrir
þrjú efstu sætin. Skrán-
ing þriðjudaga í febrúar
kl. 13 og 16.30 í Ás-
garði. Alkort spilað kl.
13.30. Miðvikud:
Göngu-Hrólfar fara í
göngu frá Hlemmi kl.
9.45. Heilsa og ham-
ingja á efri árum laug-
ard. 9. feb. kl. 13.30. 1.
Minnkandi heyrn hjá
öldruðum. 2. Íslenskar
lækningajurtir. Á eftir
hverju erindi gefst
tækifæri til spurninga
og umræðna. Allir vel-
komnir. Brids fyrir
byrjendur hefst fimm-
tud. 7. feb. kl. 20.30.
Stjórn Ólafur Lárusson.
Uppl. á skrifstofu FEB.
kl. 10–16 s. 588-2111.
Félagsstarfið, Hæð-
argarði 31. Kl. 9–16.30
vinnustofa, tréskurður,
kl. 9–13 hárgreiðsla, kl.
10 leikfimi, kl. 12.40
Bónusferð, kl. 13.15
bókabíll. Opið alla
sunnudaga frá kl. 14–16
blöðin og kaffi.
Gerðuberg, félagsstarf.
Kl. 9–16.30 vinnustofur
opnar, kl. 13 boccia og
spilamennska. Á morg-
un er þorrahlaðborð í
hádeginu í veitingabúð.
Fimmtud. 7. feb. koma
eldri borgarar úr Hafn-
arfirði í heimsókn kl.
14. Föstudaginn kl. 16
verður opnuð myndlist-
arsýning Braga Þórs
Guðjónssonar. Uppl.
um starfsemina á
staðnum og í s. 575-
7720.
Gjábakki, Fannborg 8.
Kl. 9.05 og kl. 9.50 leik-
fimi, kl. 9.30 gler-
skurður, kl. 10 handa-
vinna, kl. 13 enska, kl.
14 þriðjudagsganga, kl.
15.30 spænska, kl. 16.20
og kl. 17.15 kínversk
leikfimi, kl. 19 brids.
Gullsmári, Gullsmára
13. Kl. 9 og kl. 10 jóga,
kl. 9.15 postulínsmálun,
kl. 13–16 handa-
vinnustofan opin, leið-
beinandi á staðnum, kl.
19 gömlu dansarnir.
Hvassaleiti 56–58. Kl. 9
böðun og leikfimi, kl.
9.45 bankaþjónusta, kl.
13 handavinna, kl. 13.30
helgistund. Fótaaðgerð,
handsnyrting.
Hraunbær 105. Kl. 9
postulínsmálun, kl. 9
glerskurður og tré-
málun, kl. 10 boccia, kl.
12.15 verslunarferð í
Bónus, kl. 13–17 hár-
greiðsla, kl. 13 myndlist.
Háteigskirkja eldri
borgara á morgun mið-
vikudag, samvera fyrir
bænastund í kirkjunni
kl. 11, súpa í Setrinu kl.
12, spil kl. 13.
Norðurbrún 1. Kl. 9–
16.45 tréskurður og opin
vinnustofa, kl. 10 boccia,
kl. 9–17 hárgreiðsla.
Þorrablót verður haldið
föstud. 8. feb. kl. 19.
Skráning í s. 568-6960.
Vesturgata 7. Kl. 9 fóta-
aðgerðir og hárgreiðsla,
kl.9.15–16 bútasaumur,
kl. 9.15–15.30 handa-
vinna, kl. 11 leikfimi. kl.
13 spilamennska. Þorra-
blót verður fimmtudag-
inn 7. febrúar. Húsið
opnað kl. 17, skráning í
afgreiðslu.
Vitatorg. Kl. 9 smíði og
hárgreiðsla, kl. 9.30
glerskuður og morg-
unstund, kl. 10 fótaað-
gerðir og leikfimi, kl. 11
boccia, kl. 13 hand-
mennt og körfugerð. Kl.
14 félagsvist.
ÍAK, Íþróttafélag aldr-
aðra í Kópavogi. Leik-
fimi kl. 11.15 í Digra-
neskirkju.
Bridsdeild FEBK Gjá-
bakka. Brids í kvöld kl.
19.
Félag áhugafólks um
íþróttir aldraðra, leik-
fimi kl. 11 í Bláa saln-
um.
Félag ábyrgra feðra.
Fundur í Shell-húsinu,
Skerjafirði, á mið-
vikudögum kl. 20, svar-
að í síma 552 6644 á
fundartíma.
ITC-deildin Fífa Kópa-
vogi, fundur á morgun
kl. 20.15–22.15 í Safn-
aðarheimili Hjalla-
kirkju. Allir velkomnir.
Upplýsingar gefur Guð-
björg í síma 586 -2565.
Kvenfélagið Fjallkon-
urnar heldur fund í
kvöld kl. 20. Snyrtivör-
ur, veitingar. Gestir vel-
komnir.
Kvenfélag Fríkirkj-
unnar í Hafnarfirði. Að-
alfundurinn er í kvöld í
safnaðarheimilinu við
Linnetstíg 6, kl. 20.30.
Kvenfélag Bústaða-
sóknar heldur aðalfund
í Safnaðarheimilinu
mánudaginn 11. febrúar
kl. 20. Venjuleg aðal-
fundarstörf.
ITC-deildin Irpa heldur
fund í kvöld kl. 20 í
Hverafold 5. Á dagskrá
verður m.a. þjálfun fyrir
ræðukeppni, en keppnin
verður haldin hinn 19.
febrúar nk. Allir vel-
komnir. Uppl. í s. 699-
5023.
Kvenélag Fríkirkj-
unnar í Reykjavík. Að-
alfundurinn verður
fimmtud. 7. feb. kl. 20 í
safnaðarheimilinu Lauf-
ásvegi 13. Aðalfund-
arstörf. Kaffiveitingar.
Kvenfélag, Langholts-
sóknar. Aðalfundurinn
verður haldinn í safn-
aðarheimilinu í kvöld kl.
20. Þorramatur.
Í dag er þriðjudagur 5. febrúar, 36.
dagur ársins 2002. Agötumessa. Orð
dagsins: Trúið á ljósið, meðan þér
hafið ljósið, svo að þér verðið börn
ljóssins.
(Jóh. 12, 36.)