Morgunblaðið - 05.02.2002, Blaðsíða 58
FÓLK Í FRÉTTUM
58 ÞRIÐJUDAGUR 5. FEBRÚAR 2002 MORGUNBLAÐIÐ
TIL mín í Gula sófann erumættir þeir Elvar Gunn-arsson og Kristján Þór
Matthíasson, rapparar Afkvæm-
anna en aðrir sem skipa sveitina
eru þeir Hjörtur Már Reynisson
og Páll Þorsteinsson taktsmiðir.
Íslenskt rapp fer mikinn um
þessar mundir en óþarfi er að
tíunda góðan árangur XXX
Rottweilerhunda að undanförnu
en einnig kom fyrsta plata rapp-
arans Sesar A út fyrir stuttu og
um svipað leyti áðurnefndur
frumburður Afkvæmanna. Svo
lifa fleiri sveitir góðu lífi á net-
heimum, t.d. hin akureyrska
Skytturnar, Forgotten Lores og
Mezzias.
Ólíkt Rottweilerhundunum,
sem óneitanlega gera nokkuð út
á hið hneykslunargjarna – sem
er gott og blessað sem slíkt –
eru Afkvæmi guðanna að fjalla
um daginn og veginn, með alls
kyns táknfræði og oft og tíðum
djúphuga texta að vopni. Dæmi-
sögurnar gefa þeir sjálfir út, í
einföldum og smekklegum um-
búðum. Já, íslenska rappið er
loksins orðið til.
Sorakjaftur og fíflagangur
Þeir piltar segja að vinnsla
disksins hafi tekið um hálft ár.
„Við skrifum vanalega heima
hjá okkur,“ segir Elvar. „Og
plötuna tókum við líka upp þar.“
Elvar var eitt sinn einn höf-
uðpaura Rottweilerhundanna,
en klauf sig síðar frá sveitinni.
Er „hundarnir“ sigruðu Músík-
tilraunir árið 2000 og „fóru með
bikarinn heim í Árbæinn“ var
Elvar, eða Seppi, valinn besti
rapparinn.
Um hundrað eintök eru nú
farin af disknum og strákarnir
hyggjast framleiða meira og um
þessar mundir eru þeir að taka
upp nýja plötu. Sveitin hóf að
taka á sig mynd fyrir tveimur til
þremur árum, að sögn Elvars.
„Rottweiler var svona hliðar-
verkefni í upphafi. Allt í einu
unnum við svo Músíktilraunir
þannig að ég fór að sinna því
meira. En hætti svo þegar þeir
ætluðu að gera plötu.“
Textar eru að heita má mátt-
ur og megin rapplistarinnar.
„Við höfum verið að keppa í
ljóðakeppni, „slam-poetry“, og
slíku,“ upplýsir Elvar. „Okkar
textagerð er kannski undir
áhrifum frá því. Svona blandað
ljóða-hipp hopp“
Spurðir um áhrif tiltaka þeir
sérstaklega útgáfur eins og
Anticon og RhymeSayers. Þeir
hlæja þegar þeir eru spurðir
hvort þeir séu meira „West
Coast“ eða „East Coast“ og
fræða blaðamann um það að
Chicago og Detroit séu að koma
sterkar inn sem hipp-hoppsetur.
Í kjölfarið er því velt upp hvort
að nú sé hægt að tala um eitt-
hvað sem heitir „íslenskt rapp“.
T.a.m. er eitt einkenni sænska
rappsins það að það er mikið „á
götunni“ á meðan Danirnir eru
meira í „meginstraumnum“.
„Ef það er eitthvað eitt sem
einkennir íslenska rappið núna,“
segir Elvar. „er að það er svolít-
ið „halló“. Menn eru að reyna að
smala saman íslenskum hljóð-
bútum og það er mjög sjaldan
sem það kemur vel út. Eina
dæmið um virkilega vel heppn-
aðan árangur í þessu er hjá
Mezzíasi, í laginu „Viltu með
mér vaka“. XXX Rottweiler-
hundar tóku bút af íslenskri
barnaplötu og núna eru allir að
því. Svo er það líka þannig að ef
þú ert að styðjast við gamla, ís-
lenska dægurtónlist þá kemur
það alltaf svolítið fíflalega út.
Svo einkennir sorakjafturinn ís-
lenskt rapp einnig.“
Sterk orð frá orðsterkum
mönnum. Dæmisögur er hægt
að nálgast í öllum betri plötu-
búðum.
Dæmisögur samtímans
Afkvæmi guðanna gaf á dögunum út diskinn Dæmisögur sem inni-
heldur átján nútímarímnasöngva um lífið og tilveruna á öndverðri
21. öld. Arnar Eggert Thoroddsen ræddi við tvö afkvæmanna.
Morgunblaðið/Árni Sæberg
„Jó, vots öpp!“. Elvar og Kristján eru með taktana á hreinu.
Ís
le
ns
ka
r
ap
ps
ve
it
in
A
fk
væ
m
i g
u
ð
an
na
arnart@mbl.is
Á DÖGUNUM var haldin hljóm-
sveitakeppni í Höllinni í Vestmanna-
eyjum sem bar yfirskriftina
„Allra veðra von“. Alls tóku 9
ungar og efnilegar hljómsveitir
þátt í keppninni og var til mik-
ils að vinna. Ein Eyjahljóm-
sveit tók þátt og 8 af fastaland-
inu og kom um 50 manna
hópur unglinga með Herjólfi
gagngert vegna keppninnar.
Það er óhætt að segja að við-
burðurinn hafi borið nafn með
rentu því töluverð bræla var
þegar hópurinn kom með
Herjólfi og einhverjir voru sjó-
veikir, eins og gengur. Að-
komufólkið gisti á ýmsum stöð-
um í bænum og vel fór um alla
að sögn Óðins Hilmissonar,
eins af skipuleggjendum.
Töluverður fjöldi unglinga
fylgdist með tónleikaveislunni í Höll-
inni en skemmst er frá því að segja að
hljómsveitin Castor frá Seyðisfirði
bar sigur úr býtum og hlaut að laun-
um fría upptökutíma hjá Ríkisútvarp-
inu auk þess sem hún fær að koma
fram á þjóðhátíð Vestmannaeyinga
komandi sumar.
Að sögn Óðins var hér um tilraun
að ræða en reiknað er með að „Allra
veðra von“ verði árviss viðburður í
tónlitarlífinu í Vestmannaeyjum.
Hljómsveitirnar sem tóku þátt voru
auk sigurvegaranna Castor, Made in
China frá Vestmannaeyjum, Heróg-
lymur, Reaper og Fake Disorder úr
Kópavogi, Andlát úr Reykjavík,
Dauðikross frá Selfossi, Org frá Hellu
og Hinir Endalausu frá Reykja-
nesbæ.
Þátttakendum og fylgifiskum
þeirra var ýmislegt gert til skemmt-
unar; þeim boðið upp á skoðunarferð,
haldnar myndbandasýningar og svo
að sjálfsögðu slegið upp veglegri át-
veislu.
Óhætt er að segja að „Allra veðra
von“ hafi tekist ágætlega og er gott
innlegg í tónlistarstarf unglinga í
Vestmannaeyjum og víðar.
Morgunblaðið/Sigurgeir Jónasson
Eyjapíur og -peyjar voru vel með á nótunum.
Allra veðra von
Vestmannaeyjum. Morgunblaðið.
G
ró
sk
a
í t
ó
nl
is
ta
rl
íf
i í
E
yj
u
m
Andlát á sviði.
ESCAPISM ku vera fyrsta útgáfa
Ingo, ungs manns sem fiktað hefur
við raftónlist undanfarin ár. Starf-
aði víst eitt sinn með manni í Lond-
on sem er nú í bresku rafpopp-
sveitinni Lamb. Eins og algengt er
í dag er um lítið upplag að ræða og
ekki hlaupið að því að nálgast það;
helst þá í gegnum litlar plötubúð-
ir eða í gegnum listamennina
sjálfa.
Hér má
heyra raftón-
list; einhvers-
konar raf-
popp sem nokkuð
erfitt er að henda
reiður á. Fyrir það fyrsta er heild-
armynd plötunnar nær engin. Lögin
ólík að lengd og byggingu og tilfinn-
ingin sem maður fær er að hér sé ver-
ið að tæma harða diskinn; sem safnað
hefur verið á í dágóðan tíma virðist
vera. Það er skiljanlegt með útgáfur
sem þessar; en virkar þó sem löstur
hér.
Sumum lögunum mætti lýsa sem
einhvers konar sveimpoppi; sum
þeirra minna meira að segja á sveitina
AmPop sem, eins og nafnið gefur til
kynna, hefur fengist við slíkan bræð-
ing. Þannig er hið sjö mínútna langa
„Snow for the Fanatics“ næsta und-
arlegur rafpoppóður, hvar helsta ein-
kennið er hæg og dreymin rödd, sem
búið er að véla um með. Lagið nær að
heilla, á sinn sérstaka hátt. Besta lag-
ið í sungna flokknum er „Time to go“,
þar sem Ingo tekst að kreista út hina
þekkilegustu melódíu. Önnur lög eru
of keimlík til að vekja hjá manni eft-
irtekt.
Mörg ósungnu verkanna hér minna
á eitthvað dufl frá Eno, Fripp, Hillage
eða Budd; hljómar nokkuð níunda-
áratugslega, jafnvel áttunda. Virkar í
sumum tilfellum hálfafkáralega; í öðr-
um alls ekki. „Sand“ inniheldur þó
nóg af sprettum sem gefa vísbending-
ar um að Ingo lumi á ýmsu. Þar virkar
rafblandan ágætlega og vekur hjá
manni heilnæma forvitni.
Hljómur hér er oftast fornfálegur
og „grannur“; og tölvu- og tækjabún-
aður greinilega ekkert sérstaklega
uppfærður. Umslagshönnuninni skal
hrósa; smekkleg mjög í einfaldleika
sínum.
Nokkuð misjöfn smíð frá Ingo sem
því miður nær aldrei neinum tilfinn-
anlegum hæðum.
Tónlist
Ingo
Escapism
Slatur gefur út
Escapism, geislaplata Ingo. Hljóð og
raddir: Ingolfur-Earthwomit; Hjalti Thor
Sverrisson, Benedict Birgisson. Tónlist
er eftir Ingo/Earthworm. Hljóðvinnsla
var í höndum Earthwomit. 65,29 mín-
útur.
Arnar Eggert Thoroddsen
Ingo, eða Ingólfur Þór Árnason.
Morgunblaðið/Jim Smart
Vaðið á rafi
SÍMI 564 0000 - www.smarabio.is5 hágæða bíósalir
Miðasala opnar kl. 15
Sýnd kl. 4 og 8. B.i. 12 ára
Sýnd í LÚXUS kl. 6 og 10.
„Besta mynd ársins“
SV Mbl
„Þvílík bíóveisla“ HVS Fbl
DV
Mbl
ÓHT Rás 2
Kvikmyndir.com
l
i i .
Gwyneth Paltrow Jack Black
Frá höfundum
„There´s Something
About Mary“ og
„Me myself &
Irene“ kemur
Feitasta
gamanmynd
allra tíma
SV Mbl
DV
Sýnd kl. 4, 6, 8 og 10. B.i 14.
Dúndrandi gott
snakk með
dúndrandi góðri
gamanmynd
Sýnd kl. 5.30, 8 og 10.30.
Ath! síðustu sýningar á Lord of the Rings í Lúxussal.Glæný leysigeislasýning í sal-1
á undan myndinni
Sýnd kl. 5.30, 8 og 10.30.
B.I. 16 ára.