Morgunblaðið - 05.02.2002, Qupperneq 59
BANDARÍSKI leikstjórinn John
Singleton á að baki margar umtal-
aðar myndir, þ.á m. Higher Learn-
ing (1995), Poetic Justice (1993) og
Boyz N the Hood (1991) en það var
hans fyrsta mynd og vakti á honum
verðskuldaða athygli. Frumsýnd á
myndbandi nú er myndin Baby Boy,
en þar hverfur Singleton aftur á vit
hins illræmda hverfis L.A., South
Central, en þar var og sögusvið Boyz
N the Hood.
Í upphafi ferils síns einbeitti
Singleton sér að myndum sem tóku á
veruleika ungra blökkumanna í stór-
borgum. Svo vel þótti hann fara af
stað með myndinni títtnefndu, Boyz
N the Hood, að hann var tilnefndur
til Óskarsverðlauna, þá aðeins 24 ára
að aldri. Er hann yngsti leikstjóri
sögunnar sem hlotnast sá heiður.
Mörgum þótti honum svo fatast flug-
ið verulega með myndunum Rose-
wood (1997) og Shaft (2000), en
fyrstu þrjár myndir hans, sem tengj-
ast nokkuð að umfangi og efnivið,
fengu yfirhöfuð prýðisdóma (að vísu
er hart deilt um Higher Learning).
Í Baby Boy mætti segja að Single-
ton leggi höfuðið á ný í bleyti þess
brunns sem gerði hann frægan. Seg-
ir myndin af Jody nokkrum (sem
leikin er af söngvaranum/leikaran-
um Tyrese Gibson), sem þrátt fyrir
ungan aldur er búinn að koma sér í
slæm mál að mörgu leyti. Fyrir það
fyrsta á hann tvo króga með tveimur
konum; er atvinnulaus og býr enn
hjá móður sinni, sem þó er ekki
nema 36 ára (Jody er tvítugur). Þá er
hann stöðugt að forða besta vini sín-
um, Sweetpea (leikinn af Omar
Gooding, sem ku vera litli bróðir
Cuba), frá vandræðagangi á meðan
hann sjálfur glímir við tvo bandingja,
Rodney (sem leikinn er af rapparan-
um Snoop Doggy Dogg) og sam-
býlismann móður sinnar, Marvin
(leikin af aukahlutverkakonunginum
Ving Rhames). Fylgjumst við með
Jody og baráttu hans við að koma
sér og sínum á viðunandi kjöl, en sú
viðleitni gengur ekki þrautalaust
fyrir sig.
Athyglisvert myndband: Baby Boy
!"
!" #
$
!"
!" $
#
!" $
$
$
$
!"
!" $
!"
!"
!"
!" %
&
&
&
%
%
&
&
&
&
&
%
%
&
%
&
&
&
%
%
! !"
##$ %
&
'( ! ( % $
#
John Singleton (til
hægri) ræðir við
Tyrese Gibson (til
vinstri) aðalleik-
ara myndarinnar.
Það er baldið,
barnið
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 5. FEBRÚAR 2002 59
Sýnd kl. 6.
Sýnd kl. 6.
Ísl tal Vit 320
Hasarstuð frá
byrjun til enda
Sýnd kl. 8 og 10. Vit 340
Sýnd kl. 8. Vit 332
DV
Rás 2
Sýnd kl. 10.10.
MAGNAÐ
BÍÓ
Stórverslun á netinu www.skifan.is
Sýnd kl. 6, 8 og 10.
1/2 Mbl
ÓHT Rás 2
DV
Sýnd kl. 5.30, 8 og 10.30. Bi 14.
Riddarinn hugrakki
og fíflið félagi hans
lenda óvart í
tímaflakki og þú
missir þig af hlátri.
Jean Reno fer á
kostum í geggjaðri
gamanmynd.
Endurgerð hinnar
óborganlegu
Les Visiteurs!
i
l
i i
Gwyneth Paltrow Jack Black
Frá höfundum
„There´s Somet-
hing About Mary“
og „Me myself &
Irene“ kemur
Feitasta gaman-
mynd allra tíma
Sýnd kl. 8 og 10.10.
Strik.is
RAdioX
HK DV
Sýnd kl. 8 og 10.30. Vit 334. B.i. 14.
1/2
Kvikmyndir.is
betra en nýtt
Nýr og glæsilegur salur
Sýnd kl. 6.Sýnd kl. 8 og 10.30.
Gwyneth Paltrow
Jack Black
t ltr
l
1/2
RadioX
Sýnd kl. 6, 8 og 10.
Sjóðheitasta mynd
ársins er komin.
Tom Cruise + Penelope
Cruz=Heitasta parið í dag.
Ásamt ofurskutlunni,
Cameron Diaz.
Rien Sur Robert Undarlegir vegir ástarinnar reynast
án enda í dálítið sjarmerandi, vel
leikinni og óvenjulegri tilfinn-
ingamynd.
Síðasta kappræðan/The Last
Debate Fín kvikmynd þar sem velt er upp
áleitnum spurningum um hlutverk
fjölmiðla í nútímasamfélagi og af-
stöðu þeirra til pólitískra mála.
Gæðagelt/Best in Show Skínandi gamanmynd frá gam-
ansmiðnum snjalla Christopher
Guest, sem lýsir vonum og vænt-
ingum stoltra hundaeigenda á leið á
hundasýningu. Ómissandi gam-
anupplifun.
Þáttaröð sjö:Keppendurnir/
Series 7: The Contenders
Kjaftshögg á „dægurmenningu“
samtímans. Fáránleiki raunveru-
leikasjónvarps undirstrikaður svo
rækilega að ekki verður hægt að
horfa það sömu augum aftur.
Apaspil/Monkeybone Alls ekki eins vond og gefið hefur
verið í skyn, bæði af erlendri pressu
og viðtökum vestanhafs. Svolítið tví-
stígandi í því til hverra skal höfða en
hugmyndaauðgin er botnlaus.
Fjölskylduleyndarmál/
Familjehemligheter Áhugaverð innsýn í skuggahliðar
sænsku velferðarútópíu áttunda
áratugarins. Kaldranaleg kímni og
notaleg nostalgía.
Cecil B. Demented Smekkleysusérfræðingurinn John
Waters stríðir Hollywood og fer létt
með. Hnitmiðuðustu skotin eru þó á
þá sem snobba niður á við í bíóheim-
inum.
Þjóðvegur 666/Route 666 Kærkomið eðaldrasl. Hrein og klár
„splatter“-mynd með grátbroslegu
plotti og ennþá hlægilegri leik-
frammistöðu. Fleiri svona.
Ég, þú, þau/Eu, Tu, Eles Ástarsaga úr heimi fátæktar í dreif-
býli Brasilíu. Hvalreki fyrir áhuga-
menn um alþjóðlega kvikmynda-
gerð.
Lest lífsins/Train de vie Áhugaverð evrópsk kvikmynd sem
lýsir draumi um frelsi og flótta með-
al Gyðinga í hernumdu Frakklandi
heimsstyrjaldarinnar síðari.
Títus/Titus Sterk og metnaðarfull aðlögun á
samnefndu leikriti eftir Shake-
speare, þar sem ýmsum brögðum er
beitt til að leggja út af efni – sum
takast og önnur ekki.
Undir sama þaki/Two Family
House Ljúf saga um fjölmenningarlega
árekstra og persónulega drauma í
fátækari hverfum New York borg-
ar.
Samsæri/Conspiracy Stórmagnað sjónvarpsleikrit um
frægan fund hæstráðenda í nas-
istastjórn Hitlers, í Wansee í Þýska-
landi, þar sem ákvörðunin var tekin
um „lokalausnina“ svokölluðu í gyð-
ingaofsóknum.
GÓÐ MYNDBÖND
Heiða Jóhannsdóttir/Hildur Loftsdóttir/Skarphéðinn Guðmundsson/Sæbjörn Valdi-
marsson/
Meistaraverk Ómissandi Miðjumoð Tímasóun 0 Botninn
www.laugarasbio.is
„Þvílík bíóveisla“
HVS Fbl
HK. DV
ÓHT Rás 2
Kvikmyndir.com
„Besta mynd ársins“
SV Mbl
i ir.
HJ. MBL.
Sýnd kl. 5.45 og 9. B.i 12 ára
Rick og félagar kunna bara eitt og það er að skemmta
sér. Um leið og reynt er að eyðileggja það fyrir þeim
taka þeir til sinna ráða... Frábær grínmynd með
svakalegum snjóbrettaatriðum og geggjaðri tónlist!
FRUMSÝNING
SVAL
ASTA
GAM
ANM
YND
ÁRSI
NSI
Sýnd kl. 6, 8 og 10.