Morgunblaðið - 05.02.2002, Qupperneq 60
60 ÞRIÐJUDAGUR 5. FEBRÚAR 2002 MORGUNBLAÐIÐ
VÁKORT
Eftirlýst kort nr.
4543-3700-0027-8278
4507-4500-0030-3021
4543-3700-0015-5815
4507-2800-0001-4801
4507-4500-0030-6412
4507-4500-0030-6776
! "#
"$%&'
()( )$$$
Sýnd kl. 6, 8 og 10. Vit 334. Bi. 14.
1/2
Kvikmyndir.com
Sýnd kl. 10.30 Vit 319
Sýnd í Lúxus VIP kl. 5.30, 8 og 10.20. B.i. 16.
Sjóðheitasta mynd ársins er komin.
Tom Cruise + Penelope Cruz=Heitasta parið í dag.
Ásamt ofurskutlunni, Cameron Diaz.
Myndin er hlaðin frábærri tónlist
en Sigur Rós á þrjú lög í myndinni. Frá leikstjóra Jerry Maguire.
KEVIN SPACEY JEFF BRIDGES
Strik.is
RAdioX
1/2
Kvikmyndir.is
Sýnd kl. 4. Ísl. tal. Vit 320
1/2
Kvikmyndir.com
strik.is
Sýnd kl. 4 ísl tal. Vit 325
Sýnd kl. 4. E. tal. Vit 307
1/2
RadíóX
1/2
Kvikmyndir.isSV MBL
Sýnd kl. 8 og 10.20.
Vit 327
Sýnd kl. 4 og 6.
Vit 328
HJ MBL
ÓHT Rás 2DV
HK DV
Hann er gæddur þeim hæfileika að
geta séð fortíðina, að geta spáð
fyrir um framtíðina og að geta látið
hæfileika sína öðrum í te.
Ó.H.T Rás2
Sýnd kl. 3.45, 5.45, 8 og 10.15.
B.i. 12 ára. Vit 339.
VISA FORSÝNING KL. 8.
2 fyrir 1 í boði VISA.
VISA FORSÝNING
Byggt á sögu Stephen King
HJ MBL
ÓHT Rás 2
DV
Frá leikstjóra Sea
of Love kemur
fyrsta spennu-
mynd ársins. Með
töffaranum, John
Travolta
(Swordfish, Face/-
Off), Teri Polo
(Meet the Par-
ents), Vince
Vaughn (The Cell,
Swingers) og
Steve Buscemi
(Armageddon,
The Big Lebowski).
Edduverðlaun6
Sýnd kl. 7 og 9. B.i 14 ára
ÞÞ Strik.is
ÓHT Rás 2
HL Mbl
Ó.H.T Rás2
Strik.is
Strik.is
HK DV
Kvikmyndir.co SG. DV
HL:. MBL
Sýnd kl. 5, 7.30 og 10.
Sýnd kl. 5, 7 og 9. B.i 14.Sýnd kl. 5, 7 og 9. B.i 14.
RAdioX
SG DV
Sýnd kl. 10.
Sýnd kl. 5. Sýnd kl. 5
Ó.H.T Rás2
MOSFELLSKI veitingastaðurinn
Álafossföt bezt stóð fyrir þorrablóti
síðasta laugardagskvöld sem var all-
sérstakt fyrir margra hluta sakir.
Var það formaður kvæðamanna-
félagsins Iðunnar, Steindór Ander-
sen, sem stjórnaði þar veisluhöldum
með styrkri hendi og var margt góðra
skemmtiatriða sem fólk gat notið með
pungum, sviði og brennivíni. Steindór
kvað að sjálfsögðu við raust en einnig
kom félagi hans, Sigurður Sigurðar-
son, dýralæknir með meiru, og
hræddi líftóruna úr fólki í tvígang
með safaríkum draugasögum. Þá sté
„didgeridoo“-leikarinn Buzby á svið
með Steindóri og saman suðu þeir
tónlist; þá ættuð frá Ástralíu og Ís-
landi! „Didgeridoo“ hefur annars
fengið formlega þýðingu frá Sigurði
og heitir nú jarðlúður.
Næst komu fram tveir ungir
kvæðamenn, þeir Grétar Hallur Þór-
isson og Pétur Björnsson, sem sýnir
að ötul kynning Steindórs og félaga á
þessu alíslenska formi er að skila sér.
Að endingu léku félagar Steindórs í
hljómsveitinni Sigur Rós með honum
nokkur rímnalög en þeir hafa ferðast
saman víða um heim og spilað og
sungið. Sigur Rós lék svo að endingu
„Popplagið“, uppáhaldslagið hans
Steindórs eins og hann gat um sjálfur.
Kvöldið verður endurtekið laugar-
daginn 16. febrúar. Forsala aðgöngu-
miða er í Álafossföt bezt og kostar
miðinn 5.800 krónur. Nánari upplýs-
ingar fást í síma 566 8585.
Rímur, rokk
og jarðlúðrar
Mosfellsbæ. Morgunblaðið.
Morgunblaðið/Jim Smart
Kjartan Sveinsson og spúsa hans ræða við Georg Holm yfir ljúffengum
þorramatnum.
„Viltu setja á glasið staup!“
segir Steindór Andersen.
Sérstætt þorrablót í Álafossföt bezt
Sigurður Sigurðarson flutti
kynngimagnaðar draugasögur.
Pétur Björnsson og Grétar Hallur Þórisson eru ungir og upprennandi
kvæðamenn.
SÍÐASTA föstudags-
kvöld fóru fram fjár-
öflunartónleikar til
styrktar Heimsþorpi –
samtökum gegn kyn-
þáttafordómum. Vett-
vangurinn var Tjarn-
arbíó og m.a. komu
hinir vinsælu XXX
Rottweilerhundar
fram og náðust þá
þessar skemmtilegu
myndir af Erpi og fé-
lögum. Samtök þessi
eru annars að fara af
stað með fyr-
irlestraröð í skóla
landsins, þar sem tal-
að verður gegn ras-
isma og kynþátta-
fordómum.
Rokkað og rappað
gegn rasisma
Morgunblaðið/Páll Sveinsson
XXX Rottweilerhundar: Erpur og Bent í sveiflu.Erpi var greinilega mikið niðri fyrir.
Hvellur
(Bang)
Spennumynd
Bandaríkin, 1997. Myndform VHS. (99
mín.) Bönnuð innan 16 ára. Leikstjórn og
handrit: Ash. Aðalhlutverk: Darling Nar-
ita og Peter Greene.
ÞESSI rúmlega fimm ára gamla
mynd, sem nú fyrst kemur út á
myndbandi hér á landi, greinir frá
afar erfiðum degi í lífi ungrar konu
sem reynir að hasla
sér völl sem leikari
í Hollywood. Fyrst
er henni vísað á dyr
af leigusalanum,
því næst reynir
dópaður framleið-
andi að fá hana til
sofa hjá sér gegn
hlutverkaveitingu
og þar á eftir reyn-
ir mótórhjólalögga að nauðga henni.
Þegar hún í kjölfarið kemst í þá
stöðu að dulbúast sem mótórhjóla-
lögga má segja að valdið sem fylgir
búningnum stígi henni til höfuðs því
hræðilegir atburðir taka að gerast.
Myndin er vel leikin og frásögnin öll
drifin áfram af töluverðum krafti,
framrásin er að vísu á köflum dálítið
sérviskuleg en á heildina litið er hér
á ferðinni nokkuð forvitnileg mynd.
Heiða Jóhannsdóttir
Myndbönd
Í gervi
lögreglu