Morgunblaðið - 05.02.2002, Qupperneq 64
MORGUNBLAÐIÐ, KRINGLUNNI 1, 103 REYKJAVÍK, SÍMI 569 1100, SÍMBRÉF 569 1181, PÓSTHÓLF 3040,
ÁSKRIFT-AFGREIÐSLA 569 1122, NETFANG: RITSTJ@MBL.IS, AKUREYRI: KAUPVANGSSTRÆTI 1 ÞRIÐJUDAGUR 5. FEBRÚAR 2002 VERÐ Í LAUSASÖLU 190 KR. MEÐ VSK.
EFTIR aðeins tveggja vikna viðræð-
ur hafa lyfjafyrirtækin Delta hf. og
Omega Farma ehf. gert samkomulag
um sameiningu félaganna tveggja
undir nafni hins fyrrnefnda. Gert er
ráð fyrir að eigendur Omega Farma
fái 26% hlut í Delta sem greiðslu.
Ekki er fyrirhugað að gefa út nýtt
hlutafé vegna samrunans, en þess í
stað hefur Delta keypt mikið af eigin
hlutabréfum og hefur Búnaðarbank-
inn haft umsjón með fjármögnuninni.
Samkomulag félaganna um sam-
runa er með ítarlegum fyrirvörum
m.a. um niðurstöðu áreiðanleika-
könnunar, en stefnt er að undirritun
endanlegs kaupsamnings um miðjan
mars næstkomandi.
Omega Farma er óskráð félag en
Delta er skráð á Verðbréfaþingi Ís-
lands og voru viðskipti með hlutabréf
þess stöðvuð laust fyrir hádegi í gær
og skömmu síðar var greint frá fyr-
irhuguðum samruna. Gengi bréfa fé-
lagsins hækkaði í gær um 19,9% og
var lokagengið 58,50. Heildarvið-
skiptin námu tæpum 2,6 milljörðum
króna í 72 viðskiptum.
Omega Farma verður rekið sem
dótturfélag Delta. Friðrik Steinn
Kristjánsson, núverandi fram-
kvæmdastjóri Omega Farma, mun
áfram veita fyrirtækinu forstöðu
ásamt því að taka við stöðu faglegs
framkvæmdastjóra í sameinuðu fé-
lagi og eiga sæti í framkvæmda-
stjórn. Róbert Wessman, forstjóri
Delta, verður forstjóri hins samein-
aða félags.
Fjöldi starfsmanna sameinaðs fé-
lags verður um 550 og segja Róbert
og Friðrik að markmiðið með samein-
ingunni sé að stuðla að auknum vexti í
þróun og sölu á samheitalyfjum en
ekki að fækka starfsfólki. Með sam-
einingu félaganna nýtist fjárfestingar
þeirra betur en ella, fleiri lyfjum verði
hægt að koma á markað og hægt
verði að byggja upp enn öflugra sölu-
net erlendis.
Frá árinu 1998 hefur velta beggja
fyrirtækja um það bil tífaldast og
samkvæmt áætlunum fyrir árið 2002
er gert ráð fyrir um 10,5 milljarða
króna veltu og að yfir 90% af tekjum
samstæðunnar komi erlendis frá. Þá
gera áætlanir ráð fyrir rúmlega
þriggja milljarða króna hagnaði fyrir
afskriftir og fjármagnsliði. Hagnaður
eftir skatta fyrir árið 2002 er áætl-
aður um 1,7 milljarðar króna.
Delta og Omega Farma
hyggja á aukna útrás
Áætluð ársvelta/21
AFTAKAVEÐRIÐ sem gekk yfir
landið um helgina var einna verst
í Staðarsveit og Breiðuvík á Snæ-
fellsnesi þar sem mörg útihús
urðu fyrir barðinu á veðurofs-
anum. Mikið tjón varð einnig í
Lýsuhólsskóla.
Á myndinni má sjá þá Einar
Magnússon og Björn Tryggvason,
skoðunarmenn hjá Vátrygginga-
félagi Íslands, meta tjónið sem
varð á gömlu fjárhúsi og hlöðu
við bæinn Hlíðarholt í Staðarsveit.
Fjallið Kambshaus er í baksýn.
Morgunblaðið/RAX
Skoðun-
armenn
meta
tjónið
Fárviðri/14
NOKKRIR hópar starfsmanna
Landspítala – háskólasjúkrahúss
fengu um mánaðamótin bréf þar
sem þeim var tilkynnt að farið yrði
fram á breytingar á starfskjörum
þeirra. Er þar átt við starfshlutfall
og fastar yfirvinnugreiðslur.
Í febrúar á að ræða við nokkurn
hóp starfsmanna sem þannig er
ástatt um. Til greina kemur að
minnka starfshlutfall þeirra og
fella niður fastar yfirvinnu-
greiðslur. Þessi kjör eiga við um
margar stéttir. Verði teknar
ákvarðanir um slíkar breytingar
þarf að segja þeim kjörum form-
lega upp með þriggja mánaða fyr-
irvara.
Með þessu er hugmyndin sú að
forðast í lengstu lög beinar upp-
sagnir.
Einnig er ætlunin að nýta
starfsmannaveltu sem mest, þ.e.
að ráða ekki í stað þeirra sem
hætta. Talið er að ekki verði kom-
ist alveg hjá uppsögnum en reynt
verður einnig að bjóða tilfærslur í
störfum.
Boða
breytingar
á starfs-
kjörum
STURLA Böðvarsson samgöngu-
ráðherra mun í dag eiga fund með
Þorgeiri Pálssyni flugmálastjóra um
skýrslu nefndar sem fjallað hefur um
störf Þengils Oddssonar, trúnaðar-
læknis Flugmálastjórnar. Í skýrsl-
unni er komist að þeirri niðurstöðu
að sú ákvörðun Þengils að gefa út
heilbrigðisvottorð til flugmanns með
skilyrðum hafi verið óheimil og hafi
farið gegn góðum stjórnsýsluhátt-
um.
„Samgönguráðuneytið hefur sent
Flugmálastjórn Íslands skýrslu út-
tektarnefndarinnar. Jafnframt hefur
ráðuneytið lýst þeirri skoðun sinni
að í skýrslunni felist alvarleg áminn-
ing um að stjórnsýslu Flugmála-
stjórnar hafi verið áfátt við útgáfu
heilbrigðisvottorðs og flugskírteinis
til flugmannsins,“ sagði samgöngu-
ráðherra á blaðamannafundi í gær,
þar sem skýrslan var kynnt.
Helgi Jóhannesson, lögmaður
Þengils Oddssonar, sagði að Þengill
hefði ávallt rækt sitt starf af trú-
mennsku hvað varðar læknalög og
þá ábyrgð sem því fylgdi að vera
trúnaðarlæknir JAA hér á landi.
Atli Gíslason, lögmaður flug-
mannsins, sagðist telja að Félag ís-
lenskra atvinnuflugmanna myndi
aldrei sætta sig við að Þengill Odds-
son kæmi aftur til starfa.
Ráðherra ræð-
ir nefndarálit
Hefði átt/32
„MÉR þótti stórmerkilegt að vera
lifandi,“ segir Bjarki Gunnarsson
sem lenti í sjónum í höfninni á
Skagaströnd á laugardaginn.
Sólarhring áður munaði minnstu
að hurð fyki í gegnum framrúðuna
á bílnum hans en Bjarki náði að
gefa duglega inn sem varð til þess
að hurðin lenti á aftari hliðarrúðu.
Tvisvar slapp hann því úr lífsháska
um helgina.
Rafmagn fór af á Skagaströnd
aðfaranótt laugardags og komst
ekki aftur á fyrr en um hádegi.
Bjarki, sem er vélstjóri í rækju-
vinnslunni á Skagaströnd, fór þá í
rækjuvinnsluna til að tryggja að
rafmagn kæmist aftur á frystiklefa.
Að því loknu hugðist hann fara
sömu leið til baka en vegna veðurs
varð hann að skríða eftir stórum
skafli. Var hann með slitin snjó-
gleraugu og sá lítið út þegar hann
skreið skáhallt upp í veðrið. „Svo
sá ég eitthvað dökkt fyrir framan
mig og af því að ég hafði farið svo
oft þarna hélt ég að þetta væri mal-
bikið,“ segir Bjarki. Hoppaði hann
því fram af skaflinum og bjóst við
að lenda á hörðu malbikinu. Hann
hafði hins vegar borið nokkuð af
leið og það sem hann taldi vera
malbik var í raun sjórinn í höfninni.
Bjarki segir að það hafi verið „dá-
lítið svakaleg tilfinning“ að lenda á
kaf ofan í köldum sjónum.
Honum til happs synti hann bein-
ustu leið að neyðarstiga á bryggj-
unni og komst þannig að mestu upp
úr sjónum. Snjóhengja hindraði þá
för en eftir talsvert erfiði tókst
honum að komast upp á bryggjuna.
Rakti hann spor sín aftur að rækju-
vinnslunni og þaðan hjálpuðu hon-
um tveir björgunarsveitarmenn.
Bjarki frétti síðar að tveir trillu-
karlar hefðu verið litlu utar við
bryggjuna en þeir heyrðu hvorki
né sáu Bjarka í sjónum vegna há-
vaða í veðrinu.
Morgunblaðið/Ólafur Bernódusson
Fyrir aftan Bjarka Gunnarsson er snjóhengjan sem hann stökk fram af
þar sem hann taldi að malbik væri fyrir neðan.
„Stórmerkilegt
að vera lifandi“
Slapp tvisvar/15