Morgunblaðið - 06.02.2002, Page 6
FRÉTTIR
6 MIÐVIKUDAGUR 6. FEBRÚAR 2002 MORGUNBLAÐIÐ
Gestir á vefi
mbl.is aldrei
verið fleiri
ALDREI hafa fleiri skoðað vefi
mbl.is en í síðustu viku. Samkvæmt
upplýsingum Virkrar vefmælingar
mældust þeir 110.109, sem er nýtt
met. Flestir nýir gestir heimsóttu
mbl.is í síðustu viku en hlutfallsleg
aukning er reyndar lægri en hjá
minni vefsetrum. Til samanburðar
við stóra erlenda vefi, má geta þess
að netútgáfan af Politiken í Dan-
mörku fékk 155.794 staka gesti í síð-
ustu viku í sambærilegri vefmælingu.
Leitað án
árangurs við
Svanborgu
LEIT kafara við flak Svanborgar SH
á mánudag bar ekki árangur. Þriggja
manna er saknað eftir að skipið
strandaði við Svörtuloft á Snæfells-
nesi 7. desember sl.
Í fréttatilkynningu frá Slysavarna-
félaginu Landsbjörg segir að þetta
hafi verið í fyrsta skipti sem hægt var
að kafa við flakið. Aðstæður til köf-
unar voru mjög erfiðar og komu
straumar í veg fyrir að kafarar gætu
athafnað sig með góðu móti. Þrátt
fyrir það tókst að leita við flakið.
Einnig var strandstaðurinn grand-
skoðaður með neðansjávarmyndavél.
♦ ♦ ♦
TVEIR menn voru í gær dæmdir fyr-
ir að hafa staðið saman að sjö inn-
brotum í fyrirtæki og bifreiðir en and-
virði þýfisins nam um 2,3 milljónum
króna. Þá voru þeir dæmdir fyrir inn-
brotstilraun og nytjastuld á bifreið.
Mennirnir sem eru 25 og 22 ára gaml-
ir játuðu báðir brot sín.
Sá eldri braust inn á tveimur stöð-
um til viðbótar í félagi við ónafn-
greindan aðila, m.a. inn í félagsheimili
Lögreglufélags Reykjavíkur og stálu
þeir jafnvirði 420.000 króna. Þá fund-
ust fíkniefni í fórum hans á Eldborg-
arhátíðinni á Kaldármelum í fyrra.
Hlaut hann 10 mánaða óskilorðs-
bundinn fangelsisdóm. Sakaferill
hans er talsverður en hann var fyrst
dæmdur til refsingar 1995. Frá refsi-
vistinni dregst gæsluvarðhald frá 7.
september 2001.
Félagi hans var dæmdur í sex mán-
aða skilorðsbundið fangelsi til þriggja
ára en hann hafði ekki áður verið
dæmdur fyrir hegningarlagabrot.
Báðir sögðu þeir að innbrotunum hafi
verið ætlað að fjármagna fíkniefna-
neyslu, einkum hafi hinn eldri verið
stórskuldugur fíkniefnasölum. Hefði
hann fengið alvarlegar hótanir vegna
þess.
Innbrotin frömdu þeir á tímabilinu
frá 24. júlí til 30. ágúst 2001. Þeir stálu
m.a. geisladiskum, áfengi, hverskyns
tölvubúnaði, myndavélum, símum,
brauðrist, ljósritunarvél, örbylgju-
ofni, lakkrís að verðmæti 330.000,
riffli, haglabyssu, frímerkjasafni,
geislaspilurum og fleiru. Við ákvörð-
un refsingar var m.a. litið til þess að
töluvert af þýfinu skilaði sér til baka.
Í dómnum kemur fram að báðir
segjast þeir hafa hætt fíkniefna-
neyslu. Sá eldri hefur hafið afplánun
og kveðst vinna tvöfalda vinnu til að
greiða niður skuldir. Hinn er í vinnu
og fær góða umsögn.
Hjördís Hákonardóttir héraðs-
dómari kvað upp dóminn. Mönnunum
var gert að greiða skipuðum verjend-
um sínum, Sigríði Rut Júlíusdóttur
hdl. og Erni Clausen málsvarnarlaun.
Hjalti Pálmason, fulltrúi lögreglu-
stjórans í Reykjavík, sótti málið.
Dæmdir fyrir stórfelld innbrot
Fékk hótanir
vegna fíkni-
efnaskulda
FRÍMANN Gunn-
laugsson, fyrrverandi
framkvæmdastjóri
Golfsambands Íslands,
lést á líknardeild Land-
spítala Íslands sl. laug-
ardag eftir langvarandi
veikindi. Hann var tæp-
lega 69 ára að aldri,
fæddur 27. mars 1933.
Foreldrar hans voru
Gunnlaugur Einarsson
bifreiðastjóri og Katrín
Regína Frímannsdóttir
húsfreyja. Frímann ólst
upp í vesturbænum í
Reykjavík en bjó síðar í Kópavogi, á
Akureyri, í Reykjavík og síðast í
Hafnarfirði.
Frímann var rafvirki að mennt en
starfaði lengst af við annað. Hann var
hótelstjóri í Skíðahótelinu í Hlíðar-
fjalli á sjöunda áratug síðustu aldar,
rak Sport- og hljóðfæraverslunina á
Akureyri í mörg ár, og frá 1985 til
1999 var hann framkvæmdastjóri
Golfsambands Íslands.
Frímann var kunnur fyrir störf sín
í íþróttahreyfingunni víða um land.
Frímann var kosinn formaður hand-
knattleiksdeildar KR 15 ára að aldri
árið 1948. Hann þjálfaði alla flokka í
handknattleik hjá KR á árunum 1948
til 1958. Hann þjálfaði
einnig handknattleik í
ÍR, ÍBA, Breiðablik og
KA. Hann þjálfaði öll
landslið HSÍ frá 1959–
1964. Hann dæmdi um
1.200 leiki í handknatt-
leik, var fyrsti formaður
Handknattleiksdóm-
arafélags Reykjavíkur
og varð ásamt Hannesi
Þ. Sigurðssyni fyrsti ís-
lenski alþjóðadómarinn
í handknattleik árið
1954. Hann var formað-
ur Skíðaráðs Akureyr-
ar í mörg ár og í níu ár formaður Golf-
klúbbs Akureyrar.
Frímann var sæmdur mörgum
heiðursmerkjum íþróttahreyfingar-
innar. Hann fékk gullmerki Golfsam-
bands Íslands, ÍSÍ og Handknatt-
leikssambands Íslands. Hann hlaut
gullkross Íþróttasambands Íslands
árið 1998 og Golfsambands Íslands
ári síðar. Hann varð heiðursfélagi
Handknattleiksdómarafélags Íslands
árið 1993.
Frímann var kvæntur Karólínu
Guðmundsdóttur og eignuðust þau
fimm börn. Þau skildu. Eftirlifandi
sambýliskona Frímanns er Hildur
Jónsdóttir kennari.
Andlát
FRÍMANN
GUNNLAUGSSON
JÓN Gauti Jónsson ísklifrari sigr-
aði á fyrsta hraðaklifurmóti Ís-
lenska alpaklúbbsins í ísklifurturn-
inum í Gufunesi, sem fram fór 30.
janúar við góðar aðstæður. Turn-
inn er 13 metra hár og varð klif-
urhæfur síðla janúar. Keppt var
með útsláttarfyrirkomulagi, með
því að tólf klifrarar hófu leik, þar af
ein kona, og komust átta klifrarar í
undanúrslit. Tveir kepptu að lokum
um fyrsta sæti, þeir Jón Gauti og
Ívar Finnbogason og sigraði Jón
Gauti á 1.05 mín. en Ívar fór á tím-
anum á 1.22 mín.
Áhorfendur skemmtu sér hið
besta þrátt fyrir frostið, sem er
nauðsynlegt í keppni sem þessari.
Má þess geta að tími keppenda var
frá 1.05 mín. upp í 13.29 mín. Fáein-
ir luku ekki keppni þar sem þeir
duttu í miðjum klíðum, en það kom
ekki að sök þar sem öryggis er gætt
með því að ávallt er klifið í ofanvað.
Ljósmynd/Helgi Borg
Jón Gauti fljót-
asti ísklifrarinn
SAMKEPPNISRÁÐ telur Heilsu-
verslun Íslands ehf. hafa brotið gegn
ákvæðum 21. greinar samkeppnis-
laga með fullyrðingum um að Ortis-
ginseng væri ræktað á ómenguðum
landsvæðum. Kveður lagagreinin á
um bann við villandi upplýsingagjöf.
Eðalvörur ehf. fóru fram á það við
Samkeppnisstofnun að kannaðar
yrðu fullyrðingar Heilsuverslunar
Íslands ehf. um að Ortis-ginseng
væri ræktað samkvæmt aldagamalli
hefð á ómenguðum landsvæðum. Eð-
alvörur flytja inn ginseng frá Kóreu
en Heilsuverslunin frá Kína og eru
fyrirtækin keppinautar. Eðalvörur
benda á að í grein í auglýsingablaði
Heilsuverslunarinnar hafi verið
dregin upp dökk mynd af ræktunar-
aðferðum í Kóreu og fullyrt að þar
væri notað óhóflegt magn tilbúins
áburðar og skordýraeiturs andstætt
því sem gerðist í Kína. Lögmaður
Heilsuverslunar Íslands taldi mála-
tilbúnað Eðalvara lið í því að sverta
nafn Heilsuverslunarinnar.
Í niðurstöðu samkeppnisráðs seg-
ir að fram hafi komið að Hollustu-
vernd ríkisins hafi ekki talið forsend-
ur til aðgerða eftir athugun á
ginsenginu en beint því til Heilsu-
verslunarinnar að ekki yrði auglýst
að jurtin væri ræktuð í ómenguðum
jarðvegi nema hægt væri að sýna
fram á að svo væri. Er það niður-
staða ráðsins að Heilsuverslun Ís-
lands hafi ekki fært fram sannanir
fyrir því að Ortis-ginseng væri rækt-
að á ómenguðum landsvæðum. Hafi
hún því brotið í bága við 21. grein
samkeppnislaga.
Auglýsti
ginseng með
ósönnuðum
fullyrðingum
ÞRENNT var flutt á Fjórðungs-
sjúkrahúsið á Ísafirði eftir bílveltu
innan við Látra í Mjóafirði síðdegis á
mánudag. Í bifreiðinni var roskið
fólk og fór bifreiðin nokkrar veltur
út af veginum. Einum úr bílflakinu
tókst að komast upp á veginn og
gera ökumanni á aðvífandi bifreið
viðvart um slysið. Fólkið var flutt
með sjúkrabifreið og lögreglubifreið
til Ísafjarðar þar sem tekið var á
móti þeim á sjúkrahúsinu um klukk-
an 19.30. Tveir hinna slösuðu fengu
að fara heim að lokinni rannsókn en
slösuð kona úr hópnum var lögð inn,
þó ekki mikið slösuð, samkvæmt
upplýsingum frá sjúkrahúsinu.
Bifreiðin skemmdist mikið að sögn
lögreglunnar á Ísafirði.
Þrennt
slasaðist í
bílveltu
SAMKEPPNISRÁÐ hefur komist
að þeirri niðurstöðu að fyrirkomulag
Listasafns Kópavogs við útleigu
sýningarsala til utanaðkomandi að-
ila þar sem endurgjald er háð veltu
sýningar hafi skaðleg áhrif á sam-
keppni. Beinir ráðið þeim fyrirmæl-
um til safnsins að ekki skuli verð-
leggja útleigu sýningarsala undir
þeim kostnaði sem henni tengist.
Málefni Listasafns Kópavogs
voru tekin upp vegna kvörtunar
manns vegna fyrirkomulags sölu-
sýningar á eldri myndlist í safninu.
Er atvikum þannig lýst að Listasafn
Kópavogs hafi í samvinnu við lista-
verkasala sett upp sölusýningu á
verkum í eigu einstaklinga og stofn-
ana. Kæmi til sölu myndi 15% sölu-
þóknun skiptast að jöfnu milli safns-
ins og listaverkasalans. Kemur fram
í erindinu að sá sem stóð fyrir sýn-
ingunni hafi engin leyfi til rekstrar,
hafi ekki greitt höfundarréttargjöld
en hafi verið umsvifamikill í sölu á
list- og fornmunum. Telur kvartandi
að þarna hafi verið á ferð órétt-
mætir viðskiptahættir og óeðlileg
samkeppni af hálfu opinbers aðila
sem samræmist ekki þeim tilgangi
sem stofnað hafi verið til með starf-
semi safnsins. Safnið sé í beinni
samkeppni við einkarekin fyrirtæki
á þessu sviði.
Listasafn Kópavogs heldur því
fram að umrætt fyrirkomulag sölu-
sýningar sé ekki í andstöðu við sam-
keppnislög. Samkeppnisráð kemst
að þeirri niðurstöðu að meginmark-
mið Listasafns Kópavogs sé að sýna
verk og muni með skipulögðum sýn-
ingum en megintilgangur sýningar
sem kvartað er yfir sé hins vegar
sala listaverka. Með því að tengja
endurgjald fyrir afnot sýningarsala
við söluverðmæti listaverkanna sé
safnið orðið þátttakandi í sölu þeirra
og þar með að taka á sig viðskipta-
lega áhættu. Með því að tengja end-
urgjald fyrir útleigu sýningarsala
við veltu viðkomandi sýningar sé
ekki öruggt að hlutur safnsins nægi
til að þekja þann kostnað sem safnið
hafi af sýningum auk hæfilegs end-
urgjalds fyrir afnot sala. Af þeim
sökum sé hætta á að verið sé að nið-
urgreiða samkeppnisstarfsemi með
opinberu fé.
Ákvörðun samkeppnisráðs er því
sú að fyrirkomulag Listasafns
Kópavogs við útleigu sýningarsala
til utanaðkomandi aðila, þar sem
endurgjald sé háð veltu sýningar
viðkomandi aðila, hafi skaðleg áhrif
á samkeppni. Telur ráðið að til að
vinna gegn samkeppnishömlum sem
geti leitt af slíkri verðlagningu sé
nauðsynlegt að beina þeim fyrir-
mælum til safnsins að það verðleggi
þjónustu sína þannig að ekki leiki
vafi á því að það sé ekki að nið-
urgreiða samkeppnisrekstur.
Samkeppnisráð
finnur að útleigu
sýningarsala
HÆSTIRÉTTUR hefur ómerkt úr-
skurð Héraðsdóms Reykjavíkur sem
vísaði frá dómi kröfum gæsluvarð-
haldsfanga sem sætir gæslu vegna
gruns um fíkniefnabrot, en fanginn
neitaði að heimilt væri að fram-
kvæma líkamsleit á honum eða leita í
klefa hans, nema sérstök og rök-
studd ástæða væri til.
Þá krafðist fanginn þess að hér-
aðsdómari kvæði upp úrskurð um að
hann ætti rétt á því án sérstakra tak-
markana að ræða við verjanda sinn
símleiðis í einrúmi.
Hæstiréttur taldi að ekki yrði ráð-
ið af gögnum málsins að héraðsdóm-
ari hefði boðað ákæruvaldið til að
sækja þing í héraði svo sem rétt
hefði verið og taldi að ekki yrði hjá
því komist að ómerkja úrskurðinn og
leggja fyrir dómara að taka málið til
meðferðar að nýju.
Dómari taki kröfur
fanga fyrir að nýju
RÍKISSAKSÓKNARI hefur ákært
fyrrverandi hafnarvörð hjá Búða-
hreppi fyrir fjárdrátt í opinberu
starfi. Er hann sakaður um að hafa
dregið sér og nýtt í eigin þágu sam-
tals tæplega 4,7 milljónir af fé hafn-
arsjóðs. Skv. ákæru sveik hann út fé
með útgáfu 32 tékka sem hann inn-
leysti á tímabilinu frá 16. júní 1995 til
26. júlí 2000.
Ákært fyrir
fjárdrátt
♦ ♦ ♦