Morgunblaðið - 06.02.2002, Qupperneq 17

Morgunblaðið - 06.02.2002, Qupperneq 17
VIÐSKIPTI/ATHAFNALÍF MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 6. FEBRÚAR 2002 17 FRAMKVÆMDANEFND um einkavæðingu sendi frá sér tilkynn- ingu í gær þar sem fram kemur m.a. að viðræður við TDC um viðskipti með fjórðungshlut í Landssíma Ís- lands standi enn. Jafnframt kemur fram að nefndin áskilji sér rétt til viðræðna við aðra aðila sem sýnt hafa sölunni áhuga. Henning Dyremose, forstjóri TDC (áður Tele Danmark), sagði við Reuters-fréttastofuna á mánu- dag að viðræðurnar við fulltrúa ís- lensku ríkisstjórnarinnar um kaup TDC á 25% hlut í Landssímanum hefðu siglt í strand, a.m.k. tíma- bundið. Dyremose hefur einnig lýst því yfir að ekkert verði af samn- ingum nema verðið á hlut í Lands- símanum verði lækkað. Fyrir fjórðungshlut í Landssím- anum á genginu 5,75 sem var ákveð- ið lágmarksverð, þarf TDC að greiða um tíu milljarða íslenskra króna. Markmið íslensku ríkis- stjórnarinnar var að selja kjölfestu- fjárfesti 25% auk réttar til að kaupa 10% til viðbótar eftir eitt ár. Dyremose segir einnig í frétt Reuters: „Það hefur hægt á samn- ingaviðræðunum. Við höfum ekki fjárhagslega burði til að borga 5,75 krónur á hlut eins og krafist er.“ Dyremose segir að það sé skilningur TDC að íslenska ríkisstjórnin hafi nú sjónarmið TDC til athugunar. Í tilkynningu til Verðbréfaþings um málið kemur fram að Price- waterhouseCoopers hefur fyrir hönd framkvæmdanefndar um einkavæðingu sent TDC bréf þar sem fyrirtækinu var greint frá að á næsta viðræðufundi yrði farið yfir niðurstöðu ársreiknings 2001 og endurskoðaða rekstraráætlun 2002 en hvort tveggja verður tilbúið fljót- lega. Í tilkynningunni segir einnig: „Jafnframt var TDC greint frá því að framkvæmdanefnd um einka- væðingu áskildi sér rétt til að eiga viðræður við aðra aðila sem sýnt hafa sölunni áhuga að undanförnu. Því er rangt að viðræðum við TDC hafi verið slitið af hálfu nefndarinn- ar. Þá er það miður að TDC virðist að undanförnu kjósa að bera nefnd- inni skilaboð í gegnum fjölmiðla. Nefndin mun á fundi síðar í vikunni taka ákvörðun um framhald máls- ins.“ Skarphéðinn Steinarsson, starfs- maður einkavæðingarnefndar, vildi ekki tjá sig um málið í gær og vísaði alfarið í tilkynninguna frá nefndinni. Gengi bréfa Landssímans hefur lækkað að undanförnu á Tilboðs- markaði VÞÍ. Síðustu viðskipti voru á genginu 5,10 og er það lægsta gengið síðan bréf félagsins voru skráð sl. haust þegar upphafsgengið var 6,1. Morgunblaðið/Jim Smart Áskilur sér rétt til við- ræðna við aðra en TDC ● BÚNAÐARBANKI Íslands telur ekki tímabært að lækka stýrivexti. Bún- aðarbankinn telur að taka verði á lausafjárskorti bankanna einungis ef stýrivextir verða lækkaðir og ef sú lækkun eigi að leiða til lækkunar markaðsvaxta. Í Morgunblaðinu í gær kom fram að Búnaðarbanki Íslands hefur bent á að miðlunarferli peningamálastefn- unnar sé stíflað. Þar kom einnig fram að bankinn teldi að gera þyrfti ráð- stafanir gagnvart lausafjárskorti bankanna en Edda Rós Karlsdóttir, forstöðumaður greiningardeildar Búnaðarbanka Íslands, leggur áherslu á að það er einungis skoðun bankans, ef ætlunin er að lækka markaðsvexti. Taka þarf á lausa- fjárskorti ef lækka á markaðsvexti ● FLOTUN ehf., Baldur Björnsson og Sigurður Sigurðsson, hafa keypt Gólflagnir af Eignarhaldsfélagi Hörpu hf. og hafa nýir eigendur tekið við rekstrinum. Baldur var áður eigandi fyrirtækisins en Harpa hf. keypti af honum reksturinn árið 1998 og hef- ur rekið síðan. Gólflagnir voru stofnaðar fyrir 12 árum og hafa unnið mikið fyrir sjáv- arútvegsfyrirtæki og aðra aðila í mat- vælaiðnaði, eins og kjötvinnslur, sláturhús, mjólkurbú og fleiri. Einnig iðnfyrirtæki í flestum greinum, versl- unarfyrirtæki, skóla, íþróttahús og önnur opinber mannvirki. Gólflagnir skipta um eigendur

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.