Morgunblaðið - 06.02.2002, Síða 20

Morgunblaðið - 06.02.2002, Síða 20
ERLENT 20 MIÐVIKUDAGUR 6. FEBRÚAR 2002 MORGUNBLAÐIÐ BYSSURNAR eru flestar eldri en strákarnir. En þeir sem þurfa að láta hressa upp á AK-47-hríðskotariffilinn sinn virðast ekki kippa sér upp við að elsti byssusmiðurinn á verkstæðinu er vart farinn að raka sig og sá yngsti er enn ekki byrjaður að taka fullorðinstennur. Viðskiptin ganga líka vel hjá þess- um fjórum ungu bræðrum. Um það sjá stríðsherrar, vígamenn og venju- legir Afganar sem sjaldnast skilja hólkinn við sig. Það fer enda gott orð af bræðrunum; þeir þykja sérlega flinkir bæði í viðgerðum og end- ursmíði á AK-47-byssunni en sá hálf-sjálfvirki hríðskotariffill er uppistaðan í vopnabúrum Afgana. „Ef hann er bilaður, getum við lagað hann,“ segir elsti bróðirinn, Mohammad Ari sem er 17 ára. Hann er fullur sjálfstrausts líkt og hæfir reyndum byssusmið á markaðnum í Balkh, tæpa 20 kílómetra frá borg- inni Mazar-e-Sharif í Norður- Afganistan. „Viljum lifa í friði“ Hann er enda ágætlega reyndur. Bræðurnir, þeir Zarif, sem er 15 ára, Nazar, 12 ára, og Janagha, sem er aðeins sjö ára auk Mohammad Arif, hafa fengist við skotvopn allt frá því þeir tóku að skríða um verk- stæðið. Þeir lærðu að þekkja sér- hvern bolta og hverja ró af elsta bróður sínum en sá kvaddi þennan heim í kúlnaregni í fyrra eftir að hafa lent í deilum við einn ættingja þeirra. Og vitanlega notaðist sá við AK-47. Strákarnir segjast ekki vita ná- kvæmlega hvers vegna upp úr hafi soðið. Ráðlegast að spyrja sem minnst um það í landi þar sem virkt dómskerfi er óþekkt fyrirbrigði og minnst eitt vopn er að finna á hverju heimili. „Við viljum bara vinna, græða smápeninga og lifi í friði við Guð og menn,“ segir hinn 15 ára gamli Zar- if. En greina þeir enga mótsögn í því að vilja lifa í friði en fást á sama tíma við að halda sjálfvirkum skotvopnum í góðu lagi? „Nei,“ svara allir fjórir. Menn hugleiða lítt siðferðislegar hliðar tilverunnar þegar hungrið sverfur að. Þegar talibanarnir réðu ríkjum í Afganistan sáu bræðurnir um að halda vopnum þeirra við. Nú þjóna þeir nýjum herrum. „Við kunnum að gera við byssur. Þetta er vinnan okkar. Við þurfum að borða,“ segir Mohammad Arif. „Og mér finnast smákökur góð- ar,“ bætir sá minnsti við þegar þeir fá sér snarl í einu horni verkstæð- isins. Þriggja daga bið Á krókum á veggjunum er að finna alla þá hluti sem mögulega og ómögulega er hægt að koma fyrir í Ak-47-hríðskotabyssu, sem oft er líka nefnd Kalishnikov eftir Rúss- anum sem smíðaði hana. Þarna eru hlaup, gikkir, hleðslukerfi, skefti... Á vinnuborðinu er heill haugur af skrúfum, fjöðrum og öðrum óræðum smáhlutum. Í þessu verkstæði er ekkert raf- magn. Allt er gert í höndunum, sama þótt bora þurfi, sverfa eða slípa. „Það kemur sér vel að hafa litla fingur,“ segir 25 ára gamall frændi, Kamil Tavaqoi, sem lítur inn en hann er að gera upp Kalishnikov- riffil fyrir vin sinn. Nú um stundir kostar um 600.000 afgani eða um 1.000 krónur að gera við hríðskotabyssu. Alltjent er þetta verðið hér í Norður-Afganistan. Og hversu lengi þarf að bíða? „Þetta tekur yfirleitt svona þrjá daga,“ seg- ir Mohammad Arif. „Vilji menn nýtt vopn sem sett er saman úr vara- hlutum þurfa þeir að bíða lengur og borga meira. Það tekur um tíu daga að koma saman slíkum grip og gera hann nothæfan. Það kostar um millj- ón afgana eða rúmlega 3.300 krón- ur,“ segir Nazar. Skólinn kallar Samkeppnin er lítil en þó er þarna að finna verkstæði sem gerir við allt; vopn, saumavélar, vekjaraklukkur. „Jú, jú, það kemur fyrir að menn komi hingað með byssur í viðgerð,“ segir eigandinn, Mohammad Karim. „En strákarnir fá mikið af þessu. Hvað skal segja: þeir eru einfaldlega mjög færir,“ bætir hann við. En hann getur gert sér vonir um að viðskiptin glæðist í næsta mán- uði; yngstu bræðurnir tveir eiga þá að mæta í skólann. „Það kemur sér vel að hafa litla fingur“ Fjórir barnungir handverksmenn laga hríðskotariffilinn fljótt og vel AP Kamil Tavaqol, frændi bræðranna, vinnur við að gera upp Kalishnikov-hríðskotariffil. Mohammad Arif, sem rekur verkstæðið, er fyrir miðju en yngsti bróðirinn, hinn sjö ára gamli Janagha, er lengst til hægri. Forvitinn afganskur strákur liggur á „glugganum“ á verkstæði bræðr- anna, sem fengist hafa við skotvopn frá því þeir fóru að skríða. Balkh í Afganistan. Associated Press. ’ Rússnesku Kalishnikovarnir eru bestir. Það vilja allir fá þá ‘ NEFND öldungadeildarþingmanna í Bandaríkjunum, er rannsakar gjald- þrot orkusölufyrirtækisins Enron, samþykkti í gær að senda fyrrver- andi forstjóra fyr- irtækisins, Kenn- eth L. Lay, stefnu til þess að fá hann til að koma fyrir nefndina, eftir að hann hætti við að mæta sjálfviljug- ur sl. mánudag, eins og til stóð. Verslunar-, vís- inda- og samgöngunefnd öldunga- deildarinnar samþykkti einróma að þvinga Lay til að mæta fyrir nefnd- ina. „Það hafa of margir Bandaríkja- menn skaðast,“ sagði þingmaðurinn Ron Wyden, og bætti við, að „eina leiðin til að komast til botns í þessu hörmulega máli er að fá að tala við [Lay].“ Margir þingmannanna í nefndinni viðurkenndu að líklega myndi Lay neita að svara spurning- um nefndarinnar á forsendum stjórn- arskrárbundins réttar síns til að skaða ekki sjálfan sig með vitnis- burði. Skyndilegt gjaldþrot Enron í byrj- un desember sl. kostaði þúsundir starfsmanna vinnuna og margir starfsmenn og fjárfestar töpuðu öllu sparifé sínu þegar hlutabréf í fyrir- tækinu urðu skyndilega verðlaus. Rúmlega tíu þingnefndir eru nú að rannsaka gjaldþrotið og beinist at- hyglin m.a. að því hvort ólögmætar bókhaldsaðferðir og hagsmuna- árekstrar yfirmanna fyrirtækisins hafi leitt til gjaldþrotsins. William Powers, stjórnarmaður í Enron og rektor lagadeildar Háskól- ans í Texas, bar vitni fyrir rannsókn- arnefnd fulltrúadeildar þingsins á mánudaginn, og gerði grein fyrir skýrslu sem þriggja manna nefnd, skipuð af stjórninni, skrifaði um gjaldþrot Enron. Powers var skipað- ur í stjórn fyrirtækisins sérstaklega til að rannsaka ástæður gjaldþrots- ins. Powers sagði m.a. að Lay og aðrir yfirmenn Enron hefðu auðgast sjálfir á kostnað fyrirtækisins með viðskipt- um sem voru að mestu falin fyrir al- menningi. Lay hefði sjálfur samþykkt það fyrirkomulag, en samkvæmt því var undirmönnum hans heimilt að taka þátt í viðskiptum við sameign- arfyrirtæki sem Enron stofnaði til í því augnamiði að fela skuldir. Hrun Enron má rekja til „skipu- lagðra og gegnumgangandi tilrauna“ til að ýkja tekjur og fela tap, að sögn Powers. Ekki hafi verið um að ræða fáeina svikula starfsmenn sem brutu starfsreglur fyrirtækisins. Frétta- skýrendur segja að framburður Powers muni gera fyrrverandi yfir- mönnum Enron erfiðara um vik að skella allri skuldinni á endurskoðanda fyrirtækisins, fyrirtækið Anderson. Nefnd Powers kemst að þeirri nið- urstöðu að Lay og Jeffrey K. Skilling, fyrrverandi yfirframkvæmdastjóri Enron, hafi að mestu borið ábyrgðina á þeirri röngu ákvörðun að láta Andr- ew S. Fastow, fyrrverandi yfirfjár- málastjóra fyrirtækisins, stofna og stjórna sameignarfélögum sem Enr- on kostaði og skiluðu Fastow tugum milljóna dollara í tekjur og gerðu Enron kleift að fela gífurlegt tap og skuldir. Enron neyddist síðan til að greina frá þessu tapi í október sl., með þeim afleiðingum að fjárfestar, lánardrottnar og viðskiptavinir misstu trúna á fyrirtækið og gjald- þrot varð óumflýjanlegt. Fastow hafði að minnsta kosti 30 milljónir dollara í tekjur fyrir að stjórna sameignarfyrirtækjunum, en hluthöfum í Enron var aldrei sagt frá því. Samstarfsmaður Fastows, Mich- ael J. Kopper, hagnaðist um allt að eina milljón dollara af 125 þúsund dollara fjárfestingu. Aðrir samstarfs- menn Fastows fengu allt að einni milljón fyrir að gera í raun ekki neitt, sagði Powers. Að sögn þingmanna er þess enn vænst að Skilling muni verða fús til að bera vitni fyrir rannsóknarnefndum, að sögn blaðsins Houston Chronicle. Fastow á einnig að bera vitni, en hef- ur sent nefndarmönnum skilaboð um að hann muni ekki svara spurningum þeirra. Fyrrverandi forstjóra Enron send stefna Washington. AFP, The Washington Post. William Powers TUTTUGU palestínskir byssumenn ruddu sér leið inn í dómshús í bæn- um Jenín á Vesturbakkanum í gær og tóku þar af lífi þrjá menn sem dómari hafði stuttu áður dæmt í fimmtán ára fangelsi fyrir morðið á liðsmanni palestínsku öryggislög- reglunnar. Mistókst lögreglu á staðnum að halda aftur af byssu- mönnunum. Um eitt hundrað manns hafði safnast saman fyrir framan híbýli verslunarráðs Jenín en þar fóru rétt- arhöld yfir þremenningunum fram. Voru flestir fjarskyldir ættingjar mannsins, sem þremenningarnir höfðu myrt síðastliðinn föstudag. Múgurinn ruddist inn í bygg- inguna og þrátt fyrir að lögreglan reyndi að halda aftur af fólkinu kom hún engum vörnum við þegar byssu- menn skutu þremenningana til bana. Dómari hafði gefið tveimur mann- anna væga dóma sökum aldurs þeirra en frændurnir Khlaid Mo- hammed Nasir Qmeil og Jihad Mo- hammed Selim Qmeil voru 15 og 16 ára. Fengu þeir fimmtán ára fangels- isdóm í stað dauðadóms sökum þess hve ungir þeir voru. Sá þriðji, hinn 32 ára gamli Mo- hammed Qmeil, fékk sama dóm enda tók hann ekki þátt í morðinu á örygg- islögreglumanninum Osama Qmeil að öðru leyti en því að hann aðstoðaði piltana ungu við undirbúning þess. Liður í fjölskylduerjum Talið er að mennirnir hafi myrt Osama Qmeil vegna sögusagna um að hann hefði staðið fyrir morðunum á nokkrum ættingjum þeirra á ár- unum 1987–1993 þegar fyrri upp- reisn Palestínumanna stóð sem hæst. Þá var Qmeil liðsmaður félags- skapar er nefndist Svörtu pardus- arnir og sem tók að sér að lífláta Pal- estínumenn sem sakaðir voru um samstarf við Ísraela. Fulltrúar palestínsku heima- stjórnarinnar vildu lítt ræða málið við fjölmiðla en þrýst var á um það að Yasser Arafat, leiðtogi Palestínu- manna, gripi í taumana til að koma í veg fyrir að þessar fjölskylduerjur yllu algeru öngþveiti í Jenín. Palestínskir byssumenn tóku völdin í sínar hendur í dómsal í Jenín Ruddust inn og myrtu sak- borningana Nablus. AFP.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.