Morgunblaðið - 06.02.2002, Page 24

Morgunblaðið - 06.02.2002, Page 24
LISTIR 24 MIÐVIKUDAGUR 6. FEBRÚAR 2002 MORGUNBLAÐIÐ AÐ vera í félagsskap ljúflingsins Antonios Vivaldis er líkt og að fá sér sæti í þægilegum hægindastól. Þæg- indin eru hér í boði Bach-sveitarinn- ar í Skálholti, einleikara og stjórn- anda þeirra Jaaps Schröders. Vivaldi er einstakur. Enn og aftur undrast maður þetta ótrúlega hug- myndaflug „rauða prestsins“ sem var svo gífurlega afkastamikill að orðspor hans sem tónskálds varð mun verra en hann átti skilið. Því er nefnilega svo undarlega farið að menn eiga afar erfitt með að sætta sig við mjög afkastamikla listamenn, og er þá skemmst að minnast orða hrokagikksins Igors Stravinskys sem fór háðulegum orðum um Viv- aldi og tónlist hans. Þegar hugsað er til hinna u.þ.b. 500 konsertverka Viv- aldis þá er þar að sjálfsögðu um að ræða magn sem erfitt er að gera sér grein fyrir og það er borin von að maður nái að kynnast þeim öllum á einni mannsævi, jafnvel þó maður heiti Stravinsky. Sérhver ný kynni af verkum Vivaldis er fersk upplifun, hvað sem menn segja. Alltaf tekst honum að koma manni á óvart, ekki endilega með hlutum eins og súrr- andi ómstreitum og einkennilegu lagferli heldur felst hið óvænta frek- ar í smærri atriðum sem eru ef til vill ekki svo áberandi við fyrstu kynni. Eitt megineinkenni Vivaldis, og mik- ill kostur, er frábært tímaskyn. Hlutföllin í konsertum hans eru ein- hvern veginn svo fullkomin að manni finnst aldrei nótu ofaukið. Ekki skortir heldur tilfinningalega fjöl- breytni. Hafi einhver þá skoðun að tónlist Vivaldis sé léttvæg þá má t.d. benda á „Al santo sepolchro“ RV 130 sem í bókstaflegum skilningi er graf- alvarlegt verk. Það er í tveimur köfl- um og aðeins fimm mínútna langt. C- moll fiðlukonsertinn RV 202, viða- mesta verkið á diskinum, er einnig fjarri því að vera eitthvert léttmeti. Þetta er tilfinningaþrungið en einnig afar glæsilegt verk sem afsannar svo um munar alla neikvæða fordóma um tónskáldið. Einleiksparturinn er hér fallega leikinn af stjórnandanum Jaap Schröder. Það sem hann kann að skorta í einskærum „bravúr“ veg- ur hann ótvírætt upp með fallegum leik, innsæi og einlægni. Konsertinn fyrir fjórar fiðlur RV 550 er einnig í alvarlegri kantinum, tilkomumikið verk í concerto-grosso stíl. Einleik- ararnir Jaap Schröder, Rut Ingólfs- dóttir, Sif Tulinius og Lilja Hjalta- dóttir gera einleikshlutverkinu mjög góð skil og eru sérlega vel studd af snarpri strengjasveitinni. Sellóleik- arinn Sigurður Halldórsson er mikill orkubolti og tekst óhikað á við tónlist allra tímabila tónlistarsögunnar á einleikstónleikum og í hljóðritunum. Hér fæst hann við einn af hinum frá- bæru sellókonsertum Vivaldis, a- moll konsertinn RV 418. Hann spilar þetta ábúðarmikla verk af öryggi og dramatískum þunga. Vivaldi samdi alls 27 sellókonserta og hafa þeir fallið nokkuð í skugga fiðlukonsert- anna. Hvernig væri að sellóleikarar landsins tækju sig saman, skiptu þessum konsertum milli sín og flyttu á nokkrum tónleikum? Hljómsveit- arkonsertinn RV 166 er eina verkið á diskinum sem er í dúr. Þessi stutta og glaðlega tónsmíð endar alltof fljótt enda frábærlega vel spiluð af strengjasveitinni. Tvöfaldi óbókons- ertinn er frumlegt virtúósastykki, fullt af óvæntum uppátækjum. Ein- leiksparturinn er leikinn af óbóleik- urunum Peter Tompkins og Gunnari Þorgeirssyni sem eru einkar sam- stilltir í leik sínum. Eins og jafnan tryggir hljómsveit- arstjórn Jaaps Schröders snarpan tónlistarflutning. Hröðu kaflarnir eru gjarnan leiknir á hæfilega frísk- legum hraða og í þeim hægu aldrei farið offari, þeir eru íhugulir en aldr- ei þunglamalegir. Upptakan er skýr og hljómmikil og hefur ákjósanlegan enduróm enda gerð í Skálholtskirkju sem er tónleikasalur af Guðs náð. Hér er kominn birtugjafi í skammdeginu sem er öllum hlutaðeigandi til sóma. Og mikið mætti Stravinsky skammast sín. Góður félagsskapur TÓNLIST Geislaplötur Antonio Vivaldi: Konsert í e-moll fyrir fjór- ar fiðlur og strengi RV 550, Konsert í a- moll fyrir selló og strengi RV 418, Kons- ert í B-dúr fyrir strengi RV 166, Konsert í d-moll fyrir tvö óbó og strengi RV 535, Sónata a 4 „Al santo sepolcro“ í Es-dúr RV 130, Konsert í c-moll fyrir fiðlu og strengi RV 202. Einleikur: Jaap Schröder, Rut Ingólfsdóttir, Lilja Hjaltadóttir og Sif Tulinius (fiðla), Sigurður Halldórsson (selló), Peter Tompkins og Gunnar Þor- geirsson (óbó). Semballeikur: Guðrún Óskarsdóttir og Helga Ingólfsdóttir. Hljómsveit: Bachsveitin í Skálholti. Stjórnandi: Jaap Schröder. Hljóðritun: Halldór Víkingsson (Skálholtskirkja ágúst 2000). Heildartími: 52’20. Útgáfa: Smekkleysa SMC 4. VIVALDI KONSERTAR & SÓNATA Valdemar Pálsson „TRUFLANDI“ áhrif kvikmynda- tónlistar á hugmyndatengsl konsert- hlustandans komu enn sem oftar upp í hugann á raftónleikum Myrkra mús- íkdaga í Salnum á sunnudag. Af hverju raftónlistin kveikir slíkar hug- renningar öðrum greinum fremur er mér hulið. Nema megi rekja til þess hvað hún sjálf hefur löngum verið notuð á takmörkuðu sviði í þágu hvíta tjaldsins, nefnilega til að undirstrika hið annarlega og framandi í fantasí- um, hrollvekjum og vísindaskáldsög- um. Vera má að yngsta kynslóðin sé nú orðin svo vön allskyns rafhljóðum í og utan tónlistar, að slík mengunaráhrif séu senn á faraldsfæti. En þeir sem voru nógu gamlir til að muna gullöld útvarpsins og leikrit eins og „Greg- ory“ áttu alltjent í vök að verjast með að tengja ekki skruðningana í Nú-þá (2002; 15 mín.) eftir Gunnar Kristins- son við risavaxinn bor úr iðrum jarð- ar. Nú er að vísu uggur eins yndi ann- ars (og öfugt), en hefði Gallup kannað það á staðnum, grunar mann að ein- hver álíka upplifun hafi samt verið ríkjandi hjá flestum. Hvort tónskáldið hafi nákvæmlega verið á þeim þanka- brautum er verkið kom undir, er aftur á móti næsta óvíst. Hitt stóð þó heima, skv. höfundi í tónleikaskrá, að einu hljóðgjafar verksins voru steina- hljóð, og þaðan svosum ekki langt að fara yfir í einskonar bergmulningsvél, þegar tölvan hafði teygt og tosað næf- urstutt grjótklikkin. Eða tímavél. Kveikja hljóðsmíðinn- ar kvað vera hugleiðingar um „efni“ og „tíma“. Má með sanni segja að hart hafi verið riðið yfir mikinn tímavöll – frá frumsteinöld í tölvuöld. Frá fyrstu töluðu setningunni [„Kalak drepa!“ var uppástunga gamla sögukennara míns í anda Tarzans apabróður] yfir í tilfinningasneyddu smárarödd HAL 2000: „I’m sorry Dave. I can’t do that.“ Og þó að kortérslengdin hefði verið fulldrjúg fyrir síðasta dagskrár- atriði, hélt verkið merkilega vel at- hygli í ferskum huga áheyrandans í tónleikabyrjun, einnig þökk sé tölu- verðri fjölbreytni meðan á hljóðferða- laginu stóð. Þar mátti m.a.s. heyra flýtingar og hægingar, n.k. loftvarn- arsíbylju, lestardynki úr fjarska og að lokum ískur úr ryðguðum tannhjól- um, þegar Saknússem jarðfari stöðv- aði ferlíkið á áfangastað. Organized Wind (2000; 5:10) eftir Helga Pétursson heyrðist síðast á ART 2000 hátíðinni haustið 2000. Sem fyrr hreif mann undraverður kliður „uppstækkaðs“ lofts að leka í orgel- pípur í krafti samspils hljóða milli þessa heims og annars, milli helgi- söngs og hindurvitna. Enn mátti segja að yndi eins væri uggur annars. Og, þegar verst lét, ærið til að hleypa hrolli í hvern hljóðsmaladreng. Helgi hafði ekki unnið frekar úr verkinu í millitíðinni eins og kannski hefði mátt búast við, enda á sinn hátt skiljanlegt að vilja sem minnst hrófla við þessum hulda töfraheimi. Sononymus III (1998-200; 10:40) eftir Hilmar Þórðarson var síðast fyr- ir hlé, byggt á einleiksflautuverkinu Þulu frá 1998. Við tæran flautublástur Martials Nardeau, sem var eini „lif- andi“ hljóðfæraleikari kvöldsins, var bætt tölvuunnum hljóðum af diski. Má segja að Morfeifur og Orfeifur – vættir draums og hljóðfærasláttar – hafi hér kveðið óvenjuljóðrænan dú- ett í fútúrísku barnaherbergi, þar sem súrrealískur hljóðmálari fékk að leika lausum pensli á hringlum og vindhörpum fjarlægrar framtíðar. Blómabörn hippakynslóðar hefðu ef- laust drukkið verkið í sig fagnandi undir svefninn sem næsta blíðskap- arbær draumalandsins við Lucy in the Sky with Diamonds. Af geisladiski Kjartans Ólafssonar frá í fyrra, 7 tilbrigði, voru eftir hlé leikin tvö: Tilbrigði við gítar og Til- brigði við raddir (7:55 & 5:50). At- gangur var nokkuð harður í því fyrra, sérstaklega eftir ljúfu draumaveröld Hilmars und mandarínutrjám og marmelaðiskýjum. Mikið gekk á, og voru aðföng, jafnt úr hefðbundum hljóðfærum sem raftóngjöfum, marg- uppbrotin í skræpótta mósaík svo minnti helzt á þvögustíl Errós. Seinna tilbrigðið snart mann meira, enda stíl- hreinna og hnitmiðaðra að bæði upp- runa og úrvinnslu. Margt mætti hér beinlínis kalla fallegt, jafnvel þegar mannsröddin var rafskæld að mörk- um hins þekkjanlega, en óneitanlega fylgdi einnig viss óhugnaður. Einkum þegar áreitið minnti helzt á forstig geðklofa, þegar sjúklingurinn fer að „heyra raddir“. Tónlistin hefði því lík- lega hæft ákveðnum kvikmyndasen- um í Englum alheimsins sem flís við rass. Forngrískir harmleikhúsgestir ku hafa fengið ærslaþátt í lokin, svo ekki gengju allir grátandi heim. Ríkharður H. Friðriksson axlaði það hlutverk með glöðu geði í verki sínu Líðan (2002; 15:30) og gekk þar vart með veggjum. Því hafi Raddtil- brigði Kjartans verið englatremmi, þá tók nú við sannkallaður djöflat- remmi sem laðaði fram úr dagfar- sprúðum barka tónskáldsins ótrúleg- ustu tölvuskælda pústra, hveljur, ræskingar og hvers kyns gróteskuh- ark, að sögn höfundar undan inn- blæstri frá skammdegisþynnku. Líkt og í smáheyrn Trevors Wisharts á fyrrgetinni ART 2000 var hér teygt og togað úr (ó)hljóðunum, og oft með kostulegum árangri. En eins og Bif- geir barði kvað svo fleygt í Hamlet, er knappleikinn sál kerskninnar. Timb- urmannasinfónía Ríkharðs var vissu- lega fyndin – en hefði orðið hálfu fyndnari helmingi styttri. Ríkarður Ö. Pálsson Hátækni hins hlustandi manns TÓNLIST Salurinn Raftónverk 1998–2002. Gunnar Krist- insson: Nú-Þá. Helgi Pétursson: Org- anized Wind. Hilmar Þórðarson: Sonony- mus III. Kjartan Ólafsson: 2 tilbrigði. Ríkharður H. Friðriksson: Líðan. Sunnu- daginn 2. janúar kl. 17. MYRKIR MÚSÍKDAGAR BEST að taka fram í upphafi að vestrinn American Outlaws er ekki byggður á sögulegum heimildum og á ekkert skylt við lífshlaup hins fræga James-Younger-gengis annað en mannanöfn. Bíógestum er því hollast að gleyma staðreyndum, raunveruleikinn er jafn fjarlægur hér og í ævintýrinu um Búkollu. Nýjasta Hollywood-útgáfan um hina illræmdu útlaga, James-bræð- urna Jesse (Colin Farrell) og Frank (Gabriel Macht) og þá Younger-syni Cole (Scott Caan), Bob (Will McCor- mack) og Jim (Gregory Smith), hefst á því að þessir sveitapiltar drita nið- ur herdeild Norðurríkjamanna í lok þrælastríðsins. Koma sér síðan heim í átthagana, hvar önnur vá vofir yfir í líki gráðugra landakaupamanna og járnbrautarmógúlsins Thadeus Rains (Harris Yulin). Ef bændur vilja ekki selja honum kot sín á slikk kemur Allan Pinkerton (Timothy Dalton) til skjalanna með skálka sína. Jesse vill halda friðinn. Þá sprengir illþýði járnbrautarmanna kotið í loft upp með mömmu gömlu innanborðs. Í samræmi við annað „raunsæi“ myndarinnar flýgur kerl- ingin ekki eins og orrustuþota upp í heiðið hátt, heldur birtist, dauðvona reyndar og kámug, í næstu senu og gefur upp andann í höndum Jesse. Mælirinn er fullur, Suðurríkjapilt- ar snúa bökum saman, gerast útlag- ar og ræna hvern bankann á fætur öðrum. Jesse, sem er orðinn yfir sig ástfanginn af læknisdótturinni Zee (Ali Larter), heltist úr lestinni og flytur með brúði sína niður til Flór- ída. Þar dúkkar Pinkerton upp, hefði betur látið það ógert, því Jesse ríður að lokum alheill og óskaddaður með Zee inn í friðsælt sólarlagið í Tenn- essee. Vestrar eru fáséðir um þessar mundir og lítil von til að American Outlaws, sem er í rauninni ósköp hversdagsleg hefndarmynd með lukku í lokin, breyti einhverju þar um. Framvindan er að vísu nokkuð fjörug, mikið um sprengingar og kúlnaregn og alltaf gaman að sjá gamla jaxla og fáséða eins og Yulin, Cox og Terry O’Quinn, jafnvel Scott Wilson bregður fyrir í hlutverki sál- nahirðis, af öllum mönnum. Jafn- skjótt og bræðurnir mynda gengið rennur myndin út í sandinn. Þrjót- arnir verða e.k. Hróar hettir. Farrell (Tigerland) og Caan eru jafnan hinir reffilegustu, henta vel fallegum en innihaldslitlum umbúðum. Ævintýri um ódáma KVIKMYNDIR Kringlubíó Leikstjóri: Lew Mayfield. Handritshöf- undur: Roderic Taylor. Kvikmyndatöku- stjóri: Russell Boyd. Tónlist: Trevor Rob- in. Aðalleikendur: Colin Farrell, Scott Caan, Ali Larter, Gabriel Macht, Harris Yulin, Timothy Dalton, Kathy Bates, Ronny Cox. Sýningartími 93 mín. Warner Bros. Bandaríkin 2001. AMERICAN OUTLAWS (AMERÍSKIR ÚTLAGAR) Sæbjörn Valdimarsson TVEIR listamenn í Garðabæ hlutu á dögunum viðurkenningu úr Verð- launasjóði Rótarýklúbbsins Görð- um. Það voru þau Árni Elvar mynd- listarmaður og Kristín Helga Gunnardóttir rithöfundur. Á mynd- inni eru, talið f.v.: Pétur Stefánsson stjórnarmaður sjóðsins, Einar Þor- björnsson, forseti klúbbsins, Kristín Helga Gunnarsdóttir, Árni Elvar, Axel Gíslason, formaður sjóðsins og Jónas Hallgrímsson stjórnarmaður sjóðsins. Morgunblaðið/Sverrir Viðurkenn- ing veitt í Garðabæ Norræna húsið Á fyrstu háskóla- tónleikum ársins, kl. 12.30, syngur kvennakórinn Vox feminae undir stjórn Margrétar J. Pálmadóttur. Arnhildur Valgarðsdóttir og Ástríð- ur Haraldsdóttir leika með á píanó. Á efnisskránni eru Liebeslieder- Walzer op. 52 eftir Johannes Brahms í raddsetningu Pauls Hin- dermanns. Tónleikarnir taka um það bil hálfa klst. Aðgangseyrir er 500 kr. en ókeypis fyrir handhafa stúd- entaskírteina. Goethe-Zentrum, Laugavegi 18 Þýska heimildamyndin „Mein liebs- ter Feind – Klaus Kinski“ frá árinu 1999 verður sýnd kl. 20.30. Myndina gerði leikstjóri Werner Herzog um „fjandvin“ sinn, leikarann Klaus Kinski, sem lést 1991. Herzog fer á fornar slóðir Kinskis, sýnir híbýli og tökustaði og ræðir við fyrrverandi kollega leikarans. Myndin er með enskum texta og aðgangur ókeypis. Í DAG

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.