Morgunblaðið - 06.02.2002, Blaðsíða 36

Morgunblaðið - 06.02.2002, Blaðsíða 36
✝ Guðjón Högna-son fæddist í Laxárdal í Gnúp- verjahreppi hinn 21. marz 1925. Hann lézt á Landspítala við Hringbraut 7. janúar síðastiðinn. Guðjón var yngstur átta barna Högna Guðnasonar, f. í Fjósakoti við Stokkseyri 1884, og konu hans Ólafar Jónsdóttur, f. í Kaldakinn í Holtum 1882. 1950 kvæntist Guðjón Unni Ólafsdóttur, f. í Reykjavík 1932. Börn þeirra eru: 1) Ólafía Steinunn (skráð og skrifuð Lóa), hennar maður er Erik Edling og eru þau bú- sett í Lundi í Svíþjóð og eiga tvær dætur: Súsönnu Eydísi og Helenu Steinunni. 2) Guðrún Edda, maður henn- ar er Hamza Bellil og eiga þau soninn Hakim, búsett í Malmö. 3) Ásdís Svala gift Þóri Þór- arinssyni á Selfossi, eiga þrjú börn: Guðjón Birgi, Erlu Fanneyju og Gísla Örn. 4) Ólöf Anna, búsett á Selfossi ásamt sonum þeirra Ólafs Eiríkssonar: Sveini Sigurði, Ei- ríki Unnari og Daníel Hrafni. 5) Hrafnhildur Unnur, maður hennar er Stefan Jönsson í Åkarp skammt frá Malmö, og eru börn þeirra: Johan Alexand- er, Anna Nathalie og María Jo- hanna. Útför Guðjóns fór fram í kyrrþey frá Fossvogskapellu 14. janúar. Fyrir rás viðburðanna fermdist Reykjavíkurmærin Unnur Ólafs- dóttir í Hrunakirkju vorið 1946. Voru ástæður þær, að hún hafði misst móður sína, Steinunni Guð- mundsdóttur frá Hörgslandskoti á Síðu, í fyrstu bernsku og faðir hennar komið telpunni í fóstur austur fyrir fjall. Var það raunar löngu eftir að hann missti konu sína, en á Suðurlandi áttu þau Ólafur Þórðarson næturvörður á Lindargötu 8A og Steinunn kona hans frændur og forna vini. Var Unnur lengi í Hrunasókn, því að hún giftist Guðjóni Högnasyni í Laxárdal í Eystrihrepp 3. júní 1950, en Laxárdalur var þá og lengi enn í Hrunasókn. Guðjón var fæddur og uppalinn í Laxárdal og var fermingardagur hans á hvíta- sunnu 28. maí 1939. Þá var síra Jón Thorarensen prestur Hruna- manna og hafði hann vígzt þangað 1930. Geta má þeirra hlýju kveðju- orða, sem sálnaregistur í Hruna- og Tungufellssóknum geymir, þeg- ar síra Jón hafði lokið skráning- unni í síðasta sinn í janúar 1941: „Um leið og ég hefi lokið við þessa húsvitjun, bið ég þess, að friður og blessun Drottins sé með þessu fólki alla tíma bæði þessa heims og annars“. – Þá var Guðjón í Lax- árdal á 16. ári, fæddur á vorjafn- dægrum 1925. Aðeins þau Ingi- gerður, yngstu systkinin, voru fædd í Laxárdal, en Jón Gísli, sem var þeirra elztur, fæddur 1908, og eldri systkinin í Austurhlíð í Eystrihrepp, þar sem foreldrar þeirra bjuggu lengi, áður en fóru búnaði sínum að Laxárdal. Hefur það verið um 1920, en vanhæfi er að rekja nánar, vegna þess að hvorki eru kirkjubækurnar frá Hruna né Stóra Núpi fræðavinum né forvitnum til sýnis á Þjóðskjala- safni. Sigrún Högnadóttir lifir nú ein þeirra systkinanna frá Lax- árdal, fædd 1915. Var hún barn- fóstra Guðjóns og miklir kærleikar með þeim og systkinalag hlýtt og ævinlegt. Sigrún var húsfreyja í Grindavík langa ævi, en situr nú í skjóli dóttur sinnar og fjölskyldu suður á Álftanesi. Var það Guðjóni mikil gleði, að Sigrún gat fundið hann á Landspítalanum undir ára- mótin, en þar lá hann banaleguna á krabbameinsdeildinni síðustu 3 vikur hins gengna árs og þá fyrstu hins nýja og komandi. Hann lézt þar á nóni réttrar klukku 7. jan- úar. Fyrstu hjúskaparárin og fram til 1961 bjuggu Unnur og Guðjón í Laxárdal, en þá fóru þau að Sel- fossi, þar sem Guðjón vann á Mjólkurbúi Flóamanna og hjá Kaupfélagi Árnesinga, alls staðar vel liðinn, enda mjög vandvirkur og lagtækur. Hafði smiðshendur, en var ekki faglærður. Í lok sjöunda áratugarins komst sú hreyfing á unga Ísland, bæði faglærða og verkafólk, að varð svo þungur straumur, að kallaðist landflótti. Er talið, að nær 800 manns færi utan í atvinnuleit, lang flestir til Svíþjóðar, þar sem mjög var sókzt eftir vinnuafli, ekki sízt við skipasmíðastöðina Kochums í Malmö. Fór svo, að Íslendingar urðu fleiri í Svíþjóð en í Danmörku og þótti langt til jafnað og næsta sögulegt. Þegar flutningur þeirra Guðjóns var ráðinn, fóru hann og Lóa, elzta dóttirin, utan með Gullfossi. Tóku land í Kaupmannahöfn hinn 1. des- ember 1969. Bjuggu í haginn, áður en Unnur og yngri systurnar kæmu. Eins og sagði í inngangsorðun- um eru þrjár dætranna búsettar í Svíþjóð og eiga þar mann og börn, en tvær eiga heima á Selfossi með fjölskyldum sínum. Dvöl Guðjóns og Unnar í Malmö og nágrenni varð starfs- og ævitími í meir en 31 ár, ef talið er frá ársbyrjun 1970, unz þau hjónin komu aftur í Árnesþing á sl. vori, alflutt af nýju að Selfossi, þar sem áttu fyrrum margra ára hamingjudaga, þótt kysi að hleypa heimdraganum. Kynni okkar Guðrúnar við þau hjónin hófust litlu eftir að við sett- umst að í Kaupmannahöfn vorið 1983 til 6 ára þjónustu. Tókst brátt vinátta og voru bundin tryggðabönd. – Þannig var háttað, að forveri minn, síra Jóhann Hlíð- ar, hafði kynnzt Guðjóni Högna- syni og fjölskyldu hans fyrr og meir en ella, af því að hann átti rætur í Laxárdal eins og Guðjón, en sem kunnugt er, var Sigurður E. Hlíðar yfirdýralæknir faðir hans frá Laxárdal. Varð Guðjón eins og kirkjubóndi, þegar sendi- ráðspresturinn embættaði handan Eyrarsunds. Ásamt Margreti og Georg Franklínssyni önnuðust Guðjón og Unnur ýmsan undir- búning og veittu fyrirgreiðslu, sem nauðsyn var á, en engum skyldugt. Minnumst við Guðrún samveru- stundanna með löndum í Malmö og grennd með virkt og þökkum Guðjóni og þeim hjónum sér- staklega allan drengskap og vin- áttu. – Skal þar ekki upptalið né framar tekið eitt öðru, nema hvað jólaboð íslenzkra hjóna og fjöl- skyldu var umfram allt þjóðlegt. Hátíðlegt með rausn og gleðibrag. Hið mikla geymir minningin, en á úthafi hins liðna ber hvítan faldinn efst við himinboga dags og eilífs árs. Ágúst Sigurðsson frá Möðruvöllum. GUÐJÓN HÖGNASON MINNINGAR 36 MIÐVIKUDAGUR 6. FEBRÚAR 2002 MORGUNBLAÐIÐ Elsku Embla Rut mín. Þú sem varst svo dugleg í því sem þú tókst þér fyrir hendur. Stóru bláu fallegu augun þín og þetta heillandi bros sem alltaf var til staðar og bræddi hjörtu allra. Þú töfraðir mann gjörsamlega upp úr skónum. Þrátt fyrir það hafðir þú skap og vissir alveg hvað þú vildir. Ég vildi ekki trúa því að þinn tími væri kominn þegar ég fékk þessar hræðilegu fréttir. Hugur minn hafði verið mikið hjá þér og fjölskyldu þinni undanfarið en ég hlustaði ekki á hugboðið og fékk því ekki tækifæri á að sjá þig einu sinni enn. Elsku Linda, það mun alltaf vera mér í minni hversu dugleg þú varst að hjálpa Emblu litlu að gera hluti sem hún gat ekki, en fannst æð- EMBLA RUT HRANNARSDÓTTIR ✝ Embla RutHrannarsdóttir fæddist í Reykjavík 9. febrúar 2000. Hún lést á gjörgæsludeild Landspítalans í Foss- vogi að kvöldi föstu- dagsins 25. janúar síðastliðinn og fór út- för hennar fram frá Fossvogskirkju. islega gaman að fást við. Þegar hún sá önnur börn labba þá vildi hún gera eins. Það var ekki að spyrja að því að þú hjálpaðir henni við það, hversu erfitt sem það var fyr- ir þig. Þú reyndir að gleðja hana eins og þú gast með þessari hjálp. Það sem ég sá af Hrannari með henni var allt svona ljúft og þolinmæðin í hávegum höfð hjá þeim báðum. Vegir Guðs eru órannsakanlegir. Eins og blóm án blaða söngur án radda skyggir dökkur fugl heiðríkjuna. Vorið sem kom í gær, er aftur orðið að vetri. (Magnús Jóhannsson.) Elsku Linda og Hrannar, það eru þungar byrðar sem á ykkur eru lagðar, en sem betur fer eigið þið góða að, fjölskyldu og vini sem reyna að létta ykkur byrðina á erf- iðum stundum sem þessari. Megi góður guð fylgja ykkur í ókominni framtíð. Guðrún Helga. MIKIL áhersla er lögð á, að handrit séu vel frá gengin, vélrituð eða tölvusett. Sé handrit tölvusett er æskilegt, að disklingur fylgi útprent- uninni. Það eykur öryggi í textameðferð og kemur í veg fyrir tvíverknað. Þá er enn fremur unnt að senda greinarnar í símbréfi (569 1115) og í tölvupósti (minning@mbl.is). Nauðsyn- legt er, að símanúmer höf- undar/sendanda fylgi. Um hvern látinn einstak- ling birtist formáli, ein uppi- stöðugrein af hæfilegri lengd, en aðrar greinar um sama einstakling takmarkast við eina örk, A-4, miðað við með- allínubil og hæfilega línu- lengd, - eða 2.200 slög (um 25 dálksentimetra í blaðinu). Til- vitnanir í sálma eða ljóð tak- markast við eitt til þrjú er- indi. Greinarhöfundar eru beðn- ir að hafa skírnarnöfn sín en ekki stuttnefni undir grein- unum. Frágangur afmælis- og minning- argreina 5   6      , 6   *      +*+     ,      $  ,     ,             $3  #2 > ; 20% /   6   #     %  %    +  7        % 4  +% 40 $ 0  % ,   (2) * 0 , )''! *  05'  *  ,! *  0-'*  #'  ,! *  ,0 % .( !2 (' ,5' 01,  ,! *  2 !'' ** ('  ,! ' (' '' , % 0' *  '1' ''1' (, ''''% 8, +   , 6   *   +*+    6 %  +            ,           ,    /  3/  ? !! @ A B*C 'D E> !"#% /   6        % ,#    &  $   3   !'' F  !'  3#  B* FG2(* ,#0 !'' ' *  @  !! ' ('  !2&' 3!'A!  !2&' ('% 5   6   0   *     ) +       $  ,     ,      @H<  $  2"% !,2!0  ! !, > !"#% /   6        %  0 #  )   1(  &  $    3   0  # ,   (  0 ,  #'  &' *  1' !',*1' '1' (, ''1'% "#               $9< 44< <+<4   0 , ,           8 0      9    1!! '' +1 ,0*  : 2 +& 2 (' ! -  2 *  '  ,! 2 (' 0-'* '* (' ! ,   *  ,0 902'' (' /'2#0 $ # +,'5 * % "#             <+<4 I    D  >             :%  ,  .      ! ;%         6   6       +      <      7 05' ,' *  ! ,  *- (' ' ,' ('  ' +,  &' *  #' ,' *  .0 5  (' 5 # ,' (' /'  * ! ,*  /' 05' .0*  ,'    ! , (' 5  .0 ('  &'  ! , (' #  '' 5 # (' ,' ' (' ,' +& 5 # (' /' $  ' *  /1' -'' 5 # (' (, ''1'%

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.