Morgunblaðið - 06.02.2002, Qupperneq 37
MINNINGAR
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 6. FEBRÚAR 2002 37
Sæll, Haffi minn.
Mig langar með nokkr-
um fátæklegum orðum að kveðja þig
en þú fórst svo fljótt þannig að fátt
var um kveðjur, kallinn minn.
Ég kynntist þér fyrst að einhverju
gagni þegar þú fluttir til okkar á
Patró, stuttan tíma til að ganga þar í
grunnskólann, en það hafði gengið
svolítið illa fyrir þig að aðlagast ann-
ars staðar. Þú varst svolítið baldinn
og varst ekki á að hlýða alltaf og við
systir þín vorum satt best að segja í
mestu vandræðum með þig. Samt
fannst okkur að þú hefðir svo margt
til brunns að bera og myndir verða
góður drengur er fram liðu stundir
ef þú rataðir rétta leið.
Þú hafðir frá fyrstu tíð gaman af
vélum og bílum, það var greinilegt
og það sagði systir þín mér líka þeg-
ar við ræddum um þig. Þú hafðir líka
gaman af að borða og fáum hef ég
haft eins gaman af að gefa mat og
þér og bræðrum þínum en þið tókuð
allir hraustlega til matar ykkar svo
unun var á að horfa. Mig langar að
minnast á jólin 1994, en þá bjugguð
þið, þú, Valdi, Sigþór og mamma þín
á Ásgötu 17 á Raufarhöfn og við
komum í heimsókn að vestan og vor-
um hjá ömmu ykkar og Dedda, í
næsta húsi. Ég man þegar þið sýnd-
uð mér jólageisladiskinn það ár.
Hann hafði verið bannaður í útvarp-
inu og var ekki verri fyrir það fannst
ykkur. Þið spiluðuð diskinn fyrir
okkur, við lítinn fögnuð mömmu ykk-
ar, en þetta var bráðfyndinn diskur
og gaman að rifja þetta upp. Þið vor-
uð búnir að koma ykkur svo vel fyrir
í herbergjunum á efri hæðinni og
græja upp hljómflutningstæki í her-
berginu, að hluta til bílgræjur að mig
minnir og var frábært „sánd“ þar
uppi.
Svo liðu ár og stundir og við hitt-
umst alltaf öðru hvoru, en þó báru
stundirnar keim af því hversu langt
var milli okkar Grétu og ykkar allra.
Þó hittumst við oftar eftir að þú
fluttir til Húsavíkur og eftir að þú
kynntist Dísu.
Einn daginn þegar lífið brosti við
þér kom kallið.
Daginn sem þú fórst var ég í
vinnunni og dagurinn leið eins og
aðrir dagar, frekar rólegur og ekkert
sérstakt að gera. Svo kom kallið, slys
á Kísilvegi og ég fór ásamt félaga
mínum í útkallið og svo tveir að auki
á öðrum bíl. Við vorum fyrri á stað-
inn og hlupum að bílnum til að at-
huga hvort við gætum gert eitthvað
en það var ekkert hægt að gera. Ég
þekkti ekki bílinn þinn strax en sá
svo númerið á honum og gerði mér
þá grein fyrir hvað gerst hefði.
Sárari stund hef ég ekki upplifað,
vinurinn minn, að geta ekkert gert
fyrir þig og vita ekki hvar Dísa og
Davíð væru.
HAFÞÓR
GÍSLASON
✝ Hafþór Gíslasonfæddist í Reykja-
vík 10. janúar 1976
og ólst upp á Rauf-
arhöfn og í Mývatns-
sveit. Hann lést af
slysförum á Kísilvegi
milli Húsavíkur og
Mývatnssveitar 11.
janúar síðastliðinn
og fór útför hans
fram frá
Reykjahlíðarkirkju
19. janúar.
Dísa hafði þá verið
flutt með Davíð á
sjúkrahúsið á Húsavík.
Þú ert núna farinn,
kallinn minn, og það er
erfiðara en orð fá lýst
að horfast í augu við
það því lífið var fram-
undan og allt svo bjart
og gott hjá ykkur.
Ég sá þér síðast
bregða fyrir á kísilbíln-
um um morguninn, við
Naustagilið á Húsavík
þar sem þú varst að
beygja niður að höfn og
varst á leið út að kís-
ilskemmu til að losa bílinn. Ég veit
ekki hvort þú sást mig en ég vil halda
það, því ég veifaði til þín, eins og svo
oft áður. Við höfðum oft ekki mörg
orð um hlutina þegar við hittumst en
gerðum oft að gamni okkar og rædd-
um um áhugamálin, bíla og vélar og
allt í kring um það. Þú ætlaðir alltaf
að gera Sunbeaminn upp. Ég átti eft-
ir að kíkja á hann hjá þér en ég hafði
tröllatrú á því að þér tækist að gera
við hann. Þú gerðir við það sem þú
ætlaðir þér að lagfæra og gafst ekki
upp fyrr en „vélin fór í gang“. Ég
hjálpa þér með Hunterinn þegar við
hittumst næst, vinur.
Mér er enn í fersku minni þegar
þú fékkst nýja bílinn, sem var í flutn-
ingum milli Húsavíkur, Mývatns-
sveitar og Akureyrar fyrir Sniðla. Þú
kallaðir á mig þar sem þú varst að
lesta vörubretti við vöruflutninga
Alla Geira og sýndir mér djásnið.
Þetta var nýr Volvo, kassabíll með
öllum græjum og sætið, maður, og
vinnuaðstaðan. Ég fékk að setjast
smástund upp í bílinn og máta sætið
og fannst flott. Geislaspilari og allt
hvað eina. Hamingjuóskir með bíl-
inn. Síðan varstu farinn upp í Mý-
vatnssveit.
Það var þó aldrei neinn asi á þér
og þú barst með þér rólegheit hvert
sem þú komst.
Ég held að það hafi verið þín
mesta gæfa í lífinu að kynnast Dísu
þinni og hún var þér sem þitt ankeri í
lífinu, að ég tali ekki um eftir að þið
eignuðust Davíð litla.
Við fylgjumst með Dísu, Davíð og
Erlu fyrir þig, þótt ég sé alveg viss
um að þú gerir það líka.
Vertu sæll og Guð blessi minningu
þína.
Elsku Dísa, Davíð og Erla. Hugur
okkar er hjá ykkur. Megi algóður
Guð styrkja ykkur í sorginni.
Af eilífðar ljósi bjarma ber,
sem brautina þungu greiðir.
Vort líf, sem svo stutt og stopult er,
það stefnir á æðri leiðir.
Og upphiminn fegri en augað sér
mót öllum oss faðminn breiðir.
(Einar Ben.)
Aðalsteinn Júlíusson.
Elsku Hafþór, með þessum orðum
vil ég minnast þín. Þegar ég sit hér
og skrifa um þig minningargrein
koma margar minningar upp í hug-
ann og engin ein stendur upp úr. All-
ar þessar minningar um þig eru svo
skemmtilegar og góðar. Alltaf var
jafnskemmtilegt í félagsskap þínum,
eins var nú gaman þegar við tókum
okkur til og strumpuðum í stofunni
hjá Söru. Allar þessar minningar
mun ég geyma í hjarta mér um
ókomna tíð.
Elsku Hafþór minn, þín er sárt
saknað. Ég þakka Guði fyrir að hafa
fengið að kynnast þér og eiga þig að.
Að lokum bið ég góðan Guð að
styrkja Dísu, Davíð, Erlu Ösp,
mömmu þína og Jóa og aðra að-
standendur í þessari miklu sorg.
Elsku Hafþór minn, með þessum
línum vil ég kveðja þig.
Margs er að minnast,
margt er hér að þakka.
Guði sé lof fyrir liðna tíð.
Margs er að minnast,
margs er að sakna.
Guð þerri tregatárin stríð.
(V. Briem.)
Hugrún.
ÆSKILEGT er að minningar-
greinum fylgi á sérblaði upplýs-
ingar um hvar og hvenær sá,
sem fjallað er um, er fæddur,
hvar og hvenær dáinn, um for-
eldra hans, systkini, maka og
börn, skólagöngu og störf og
loks hvaðan útför hans fer fram.
Ætlast er til að þessar upplýs-
ingar komi aðeins fram í for-
málanum, sem er feitletraður,
en ekki í greinunum sjálfum.
Formáli minn-
ingargreina
KIRKJUSTARF
RANNSÓKNIR á trúarstefjum í
kvikmyndum hafa aukist verulega
á síðustu árum. Til að kynna þessar
rannsóknir stendur fullorðins-
fræðsla kirkjunnar og kvikmynda-
hópurinn Deus ex cinema fyrir
námskeiði í aðalbyggingu HÍ. Á
námskeiðinu verður þessi nýja
fræðigrein kynnt og mikilvæg
trúarstef skoðuð. Fjallað verður um
myndir um líf og starf Jesú Krists
sem og afþreyingarmyndir, rýnt
verður í þær og skoðað hvar finna
má Kristsgervinga, Edenstefið og
yfirvofandi heimsendi, Davíðs-
sálma og þekkta kristna trúarhópa.
Námskeiðið stendur yfir í sex
miðvikudaga frá kl. 20–22 og hefst í
dag, 6. febrúar. Kennarar á nám-
skeiðinu eru félagar í Deus ex cin-
ema-hópnum og eiga allir greinar í
hinni nýútkomnu bók, Guð á hvíta
tjaldinu. Trúar- og Biblíustef í kvik-
myndum. Þau eru dr. Arnfríður
Guðmundsdóttir lektor, Bjarni
Randver Sigurvinsson guðfræð-
ingur, dr. Gunnlaugur A. Jónsson
prófessor og Þorkell Ágúst Óttars-
son BA í guðfræði.
Skráning á námskeiðið fer fram í
síma 535 1500 eða á vef Leik-
mannaskólans, www.kirkjan.is/
leikmannaskóli <http://
www.kirkjan.is/leikmannaskóli>
Endurminningafundir
í Langholtskirkju
ENDURMINNINGAFUNDIR
kvenna og karla (blandaður hópur)
í Langholtssöfnuði eru annan hvern
fimmtudag kl. 14.00–15.30 í Guð-
brandsstofu í anddyri Langholts-
kirkju.
Á slíkum fundum hittist lítill hóp-
ur fólks (5–10 manns) 1½ tíma í
senn og ræðir saman um eitthvert
efni sem hefur verið fyrirfram
ákveðið eða kemur á óvart. Upprifj-
unin byggist á skynjuninni allri;
sjón, heyrn, lyktarskyni, snertingu
og bragðskyni. Rifjaðar eru upp
bjartar minningar úr bernsku,
æsku og frá fullorðinsárum.
Ákveðið efni er tekið fyrir hverju
sinni í hópstarfinu og fá allir að tjá
sig ef þeir vilja. Rætt er um gamlar
endurminningar, s.s. fyrstu minn-
inguna, sambandið við mömmu og
pabba, systur og bræður, vini og
vandamenn. Skólagangan, ferm-
ingin, giftingin, barn fæðist, hús-
bygging, kreppan, stríðsárin, at-
vinna, starfslok o.s.frv., ótalmargt
kemur til greina.
Bjartar minningar eru í fyr-
irrúmi en ef þátttakendur vilja
ræða nánar einstaka atburði gefst
þeim tækifæri til að ræða við
djákna í einrúmi.
Kaffi og meðlæti er í boði kirkj-
unnar. Alltaf er pláss fyrir nýja
meðlimi.
Svala Sigríður Thomsen djákni
stýrir þessu starfi og eru áhuga-
samir um þátttöku beðnir að hafa
samband við hana í síma 520-1300
eða 862-9162.
Alfa-námskeið og opið
hús í Hjallakirkju
NÚ ER að hefjast Alfa-námskeið í
Hjallakirkju, Kópavogi, en slík
námskeið hafa víða verið haldin í
kirkjum á höfuðborgarsvæðinu
með góðum árangi.
Á námskeiðinu gefst einstakt
tækifæri til að kynnast grundvall-
aratriðum kristinnar trúar á
skemmtilegan og samfélagseflandi
hátt.
Námskeiðið er þannig uppbyggt
að hver kvöldstund hefst á því að
þátttakendur snæða saman léttan
kvöldverð, síðan tekur við fræðsla
og hópaumræður og í lokin er stutt
helgistund.
Námskeiðið verður á fimmtudög-
um kl. 19–22 og stendur skráning
nú yfir í kirkjunni, í síma 554-6716.
Allir áhugasamir eru hvattir til að
mæta næsta fimmtudag og kynna
sér málin.
Við minnum einnig á opið hús
sem er hvern miðvikudag í kirkj-
unni kl. 10–13.30. Þar snæðum við
saman léttan hádegisverð og njót-
um samfélags hvert við annað. Ver-
ið velkomin.
Trúarstef
í kvikmyndum
Hjallakirkja í Kópavogi.
Bústaðakirkja. Opið hús fyrir aldraða í
dag kl. 13. Handavinna, spil, föndur og
gamanmál.
Dómkirkjan. Hádegisbænir kl. 12.10.
Léttur málsverður á eftir. Prestarnir
taka við fyrirbænum í síma 520 9700.
Grensáskirkja. Foreldramorgunn kl.
10–12. Samverustund aldraðra kl. 14.
Biblíulestur, bænastund, kaffiveitingar
og samræður. Munið þorrahátíðina á
öskudaginn, miðvikudaginn 13. febr.,
kl. 12.10. Helgistund, þorramatur o.fl.
Skráning til þátttöku í kirkjunni í síma
553-2750.
Hallgrímskirkja. Opið hús fyrir foreldra
ungra barna kl. 10–12. Starf fyrir 9–10
ára börn kl. 16. Starf fyrir 11–12 ára
börn kl. 17.30.
Háteigskirkja. Morgunbænir kl. 11.
Súpa og brauð kl. 12 í hádegi í Setrinu á
neðri hæð safnaðarheimilis. Brids kl.
13 fyrir eldri borgara. Yngri deild barna-
kórsins æfir kl. 16.30 undir stjórn Birnu
Björnsdóttur. Kórinn er ætlaður börnum
úr 1.–3. bekk. Eldri deild barnakórsins
æfir kl. 17.30 undir stjórn Birnu Björns-
dóttur. Kórinn er ætlaður börnum úr
4.–6. bekk. Kvöldbænir kl. 18.
Langholtskirkja. Þorragleði eldri borg-
ara í Langholtskirkju miðvikudaginn 6.
febrúar næstkomandi kl. 13–16. Stund-
in hefst með kaffisopa í safnaðarheim-
ilinu kl. 13. Síðan verður gengið til
kirkju þar sem sóknarprestur, djákni og
organisti ásamt góðum gestum flytja
bænagjörð, hugvekju, stýra söng og
gleðimálum. Eftir stundina verður geng-
ið að borðum sem svigna undan góm-
sætum þorramat (verð veitinga er að-
eins 1.200 krónur). Að borðhaldi loknu
gefst tími til spjalls eða spilamennsku
eftir því sem hugur þátttakenda stendur
til. Gleðinni lýkur síðan kl. 16.
Laugarneskirkja. Morgunbænir kl.
6.45–7.05. Kirkjuprakkarafundur kl.
14.10–15.30 ætlaður börnum í 1.–4.
bekk. Fermingartími kl. 19.15. Ung-
lingakvöld Laugarneskirkju og Þrótt-
heima kl. 20.
Neskirkja. 7 ára starf kl. 14. Öll börn í
2. bekk velkomin. Opið hús kl. 16.
Spjallað yfir kaffi og meðlæti. Lestur úr
ævisögu sr. Jóns Steingrímssonar. Um-
sjón sr. Örn Bárður Jónsson. Bæna-
messa kl. 18. Prestur sr. Örn Bárður
Jónsson.
Seltjarnarneskirkja. Kyrrðarstund kl.
12. Léttur málsverður í safnaðarheimili
eftir stundina.
Árbæjarkirkja. Kyrrðarstund kl. 12. Org-
elspil, söngur, fyrirbænir og heilög
kvöldmáltíð. Súpa og brauð í safnaðar-
heimilinu á eftir gegn vægu verði. Opið
hús fyrir aldraða frá kl. 13–16. Kirkju-
prakkarar kl. 17–18.
Breiðholtskirkja. Kyrrðarstund í dag kl.
12.10. Tónlist, altarisganga, fyrirbænir.
Léttur málsverður í safnaðarheimilinu
eftir stundina. Kirkjuprakkarar. Starf fyr-
ir 7–9 ára börn kl. 16.30. TTT-starf fyrir
10–12 ára kl. 17.30. Æskulýðsstarf á
vegum KFUM&K og kirkjunnar kl. 20.
Digraneskirkja. Fjölskyldumorgnar kl.
10. Unglingastarf KFUM&K Digranes-
kirkju kl. 20.
Grafarvogskirkja. Kyrrðarstund í hádegi
kl. 12 með altarisgöngu og fyrirbænum.
Boðið er upp á léttan hádegisverð á
vægu verði að lokinni stundinni. Allir
velkomnir. KFUM fyrir drengi 9–12 ára
kl. 16.30–17.30. Kirkjukrakkar í Rima-
skóla fyrir börn 7–9 ára kl. 17.30–
18.30. KFUK unglingadeild kl. 19.30–
21. Æskulýðsfélag Engjaskóla fyrir börn
í 8.–9. bekk kl. 20–22.
Hjallakirkja. Fjölskyldumorgnar kl. 10.
Opið hús kl. 12. TTT-starf fyrir 10–12
ára kl. 17. Litlir lærisveinar í Lindaskóla
kl. 17.
Kópavogskirkja. Starf með 8–9 ára
börnum í dag kl. 16.45–17.45 í safn-
aðarheimilinu Borgum. Starf með 10–
12 ára börnum (TTT) á sama stað kl.
17.45–18.45.
Seljakirkja. Kyrrðar- og bænastund í
dag kl. 18. Beðið fyrir sjúkum, allir vel-
komnir. Tekið á móti fyrirbænaefnum í
kirkjunni og í síma 567 0110.
Bessastaðasókn. Dagur kirkjunnar í
Haukshúsum í boði Bessastaðasóknar.
Foreldramorgnar, starf fyrir foreldra
ungra barna, kl. 10–12. Heitt á könn-
unni. Fjölmennum. Opið hús fyrir eldri
borgara kl. 13–16 í samstarfi við Félag
eldri borgara á Álftanesi. Notalegar
samverustundir með fræðslu, leik,
söng og kaffi. Auður og Erlendur sjá um
akstur á undan og eftir.
Hafnarfjarðarkirkja. Kyrrðarstund í
kirkjunni kl. 12, íhugun, altarisganga,
fyrirbænir. Léttur hádegisverður kl. 13 í
Ljósbroti Strandbergs.
Víðistaðakirkja. Foreldramorgnar á
fimmtudögum kl. 10–12. Opið hús fyrir
eldri borgara í dag kl. 13:00. Helgi-
stund, spil og kaffiveitingar
Lágafellskirkja. Kirkjukrakkafundur í
Lágafellsskóla á miðvikudögum frá kl.
13.15–14.30. Foreldramorgnar í safn-
aðarheimili frá kl. 10–12.
Keflavíkurkirkja. Kirkjan opnuð kl. 12.
Kyrrðar- og fyrirbænastund í kirkjunni kl.
12.10. Samverustund í Kirkjulundi kl.
12.25, súpa, salat og brauð á vægu
verði. Allir aldurshópar. Umsjón Ásta
Sigurðardóttir, cand. theol. Æfing kórs
Keflavíkurkirkju frá kl. 19.30–22.30.
Stjórnandi Hákon Leifsson. Alfanám-
skeið í Kirkjulundi kl. 19 og lýkur í kirkj-
unni um kl. 22.
Landakirkja í Vestmannaeyjum. Kl. 20
opið hús í KFUM&K-húsinu fyrir ung-
linga í 8.–10. bekk.
Njarðvíkurkirkja (Innri–Njarðvík). For-
eldramorgunn í Safnaðarheimilinu í dag
kl. 10.30. Sóknarprestur.
Þorlákskirkja. Barna- og foreldramorgn-
ar í dag kl. 10–12.
Kletturinn, kristið samfélag. Bæna-
stund kl. 20. Allir velkomnir.
Kefas. Samverustund unga fólksins kl.
20.30. Orð guðs rætt og mikil lofgjörð.
Allt ungt fólk velkomið.
Fíladelfía. Létt máltíð á vægu verði kl.
18. Kl. 19 er kennsla og þá er skipt nið-
ur í deildir. Það er krakkaklúbbur fyrir
krakka 3–12 ára, unglingafræðsla fyrir
13–15 ára, fræðsla fyrir ungt fólk á aldr-
inum 16–20 ára. Síðan er kennsla á
ensku. Einnig eru til skiptis biblíulestr-
ar, bænastundir og vitnisburðarstundir.
Allir hjartanlega velkomnir.
Akureyrarkirkja. Mömmumorgunn kl.
10. Börnin koma með uppáhalds leik-
föngin sín. TTT-starf kl. 17. Allir 10–12
ára krakkar velkomnir. Biblíulestur kl.
20.30. Krossins helga nál, Jesús hand-
tekinn. Mark. 14: 43–52. Sr. Guðmund-
ur Guðmundsson.
Safnaðarstarf